Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2009, Side 18
Jónsmessunótt á
Fimmvörðuhálsi og
Útivistargleði í Básum
Helgina 19.-21. júní
Skráning í síma
562 1000
18 Föstudagur 12. júní 2009 Helgarblað
sér. Í þessu felst mikið gagnsæi. Ég tel
að þetta sé lífsspursmál fyrir lítið sam-
félag eins og íslensku þjóðina.
Það er hægt að skoða Ísland sem
eins konar kennsludæmi um afleið-
ingar þess þegar losað er um reglu-
verk og fjármálastarfsemi gefinn laus
taumurinn. Ísland getur verið dæmi
um hversu langt er hægt að ganga. En
þetta er með svipuðu móti í Bandaríkj-
unum og á Bretlandi þar sem ástandið
er alvarlegt og engin leið að vita hvað
framtíðin ber í skauti sér þar. Þess
vegna nær áhugi á íslenska banka-
hruninu langt út fyrir landsteinana.“
Víkur ekki frá kröfum sínum
Fram kom á Alþingi og í fjölmiðlum
fyrir helgina að forsætisráðherra, fjár-
málaráðherra og dómsmálaráðherra
hefðu fullan hug á að verða við kröf-
um Evu Joly um aukinn mannafla til
rannsókna á mögulegum efnahags-
brotum í tengslum við bankahrunið,
aðstöðu og fleira. Kvisast hafði út að
Eva væri komin á fremsta hlunn með
að hætta afskiptum af rannsókninni.
Í samningi sem gerður var við hana
fyrr í vetur er ákvæði um að hún veiti
ráðgjöf til ársloka 2010 en samning-
urinn er uppsegjanlegur af beggja
hálfu.
„Ég óska þess innilega að rann-
sóknin gangi vel og skili árangri. Þau
skilaboð sem ég hef látið frá mér fara
snúast um þau meðul sem ég tel að
verði að vera til staðar til þess að svo
megi verða. Það er krefjandi að reyna
að breyta veruleikanum, en mér
finnst ég bera ábyrgð.“
Vinnuhestur frá 16 ára aldri
Eins og fram kom í upphafi spjalls-
ins við Evu Joly er hún orðin þing-
maður á Evrópuþinginu. Spyrja má
hvort hún hafi tíma til að sinna öllum
þessum verkefnum og hvort þing-
mennskan og ráðgjöfin hér á landi
geti farið saman.
„Þú þekkir mig greinilega ekki en
hefur lesið ýmislegt eftir mig. Ég hef
unnið átján tíma á sólarhring síðan
ég var 16 ára. Ég hef alltaf verið í tvö-
faldri vinnu. Ég vann fulla vinnu með
menntaskólanum. Ég tók fínt lög-
fræðipróf og vann námsárin og var
jafnframt í móðurhlutverkinu á þeim
tíma. Ég bætti við mig framhalds-
námi, vann meðfram því og var í móð-
urhlutverkinu. Ég hef stundað ábyrgð-
arstörf í hundrað kílómetra vegalengd
að heiman, stundum vann ég á næt-
urnar. Svona mætti áfram telja. Sem
þingmaður á Evrópuþinginu finnst
mér að það geri mér gagn að vera
tengd ákveðinni rannsóknarvinnu og
geta fylgt eftir rannsókninni hér. Þetta
eins og bætir hvort annað upp. Á þing-
inu verða teknar fyrir spurningar um
nýja löggjöf um eftirlit með fjármála-
mörkuðum svo dæmi sé tekið. Þá er
gott að vera í góðu sambandi við raun-
veruleg viðfangsefni. Þetta vefst með
öðrum orðum ekkert fyrir mér.“
Sannleiksnefnd og réttarkerfi
Hér á landi halda margir því fram
að réttast hefði verið að ráða ein-
vörðungu útlendinga til rannsókna
á öllum þáttum bankahrunsins,
ekki síst vegna smæðar þjóðfélags-
ins og þess kunningjaveldis sem
hér kann að ríkja. Hvað segir Eva
um slík rök?
„Þetta er vandi hér á Íslandi. En
ég held að Ísland sé réttarríki. Sann-
leiksnefndir eru frekar verkfæri sem
grípa þarf til í þróunarlandi. Maður
setur ekki á fót sannleiksnefnd í rétt-
arríki. Þar er stuðst við réttarkerfið
sjálft. Maður dregur fólk fyrir dóm.“
Valdið Þeir sem mögulega hafa framið
efnahagsbrot geta haldið uppi vörnum
með ógnunum.
Sektin Margir virðast
álíta að reglan um sakleysi
uns sekt er sönnuð eigi að
koma í veg fyrir rannsóknir.