Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2009, Side 31
Föstudagur 12. júní 2009 31Helgarblað
EftirminnilEgustu
sukkaugnablik gullæðisins
ríkisbubbakappaksturinn mikli
Á hverju ári fer fram gumball 3000-kappakstur ríka og fræga fólksins þar
sem keppt er á mismunandi götum Evrópu. Árið 2006 sátu nokkrir útrás-
arvíkingar ekki auðum höndum og tóku þátt í þessari keppni ríkidæmis
og glamúrs. Hannes smárason ók forláta Porsche-bifreið á meðan jón
Ásgeir jóhannesson og félagi hans, guðmundur Ingi Hjartarson, þeyttust
um götur Evrópu á Bentley. um fjórar og hálfa milljón króna kostar að
taka þátt í keppninni og voru þessir menn í ágætum félagsskap rapparans
snoop dog, klámkóngsins Hughs Hefner og plastdrottningarinnar Pamelu
anderson svo einhverjir séu nefndir. Eftir kappaksturinn var slegið upp
veislu á Playboy-setri Hefners.
sérhannað tryllitæki
Björgólfur thor Björgólfsson lét á sínum
tíma sérhanna fyrr sig nokkurs konar
Chopper-mótorhjól sem dennis Hopper
og Peter Fonda gerðu fræg á sínum tíma
í kvikmyndnni Easy rider. Hjólið hans
Björgólfs var keypt af thunder struck Custom
Bike og er áætlað að það hafi kostað hundrað
þúsund dollara eða um tólf milljónir króna
á genginu í dag.
Áramótaveislur fyrir allan peninginn
Ármann Þorvaldsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupþings í London, vill
greinilega aðeins það besta í tónlist þegar hann heldur veislur. Þá leigir
hann ekki afburða plötusnúða heldur rándýra og heimsþekkta listamenn.
Áramótin 2007-2008 léku glamúrpoppararnir duran duran í árlegu
áramótateiti Ármanns sem var forstjóri Kaupþings í London. talnafróðum
reiknaðist til að kostnaðurinn við veisluna hefði ekki verið undir 35
milljónum króna. Árið áður hafði tom jones leikið í sömu veislu en hún var
einnig talin hafa kostað tugi milljóna króna.
byggt með þyrlu
Bakkabræðurnir Ágúst og Lýður guðmundssynir byggðu sér báðir
sumarhús í sukkinu, eða sumarhöll í tilviki þess síðarnefnda. En á meðan
Lýður byggði sér 990 fermetra höll í Fljótshlíð tókst Ágústi samt að
eyða um 250 milljónum króna í sitt sumarhús sem er þó „aðeins“ níutíu
fermetrar. Það er þó engin furða að það hafi kostað svo mikið því Ágúst
notaði þyrlu til að steypa húsið. Flaug þyrlan að sækja steypu í Mest og
til baka þar sem verkamenn sáu um að dreifa henni á grunninn.
„bruðl“ í Hong kong
Landsbankinn opnaði glæsilegt útibú í Hong Kong árið 2007. allir topp-
mennirnir voru þarna samankomnir og var ekkert sparað í fínheitunum.
Áætlað er að flug og gisting fyrir gestina hafi kostað 24 milljónir og var
gestalistinn langur. sérsniðinn hundrað kílóa ísklumpur úr Vatnajökli
var sendur sérstaklega til Hong Kong fyrir opnunarteitið. Björn Ársæll
Pétursson útibússtjóri sagði í samtali við dV á sínum tíma: „Þetta var
ekkert svo stórt, það mætti fullt af fólki. Það eina sem við leyfðum okkur
var að flytja til Hong Kong íslenskan skífuþeyti. svo fengum við sendan
hundrað kílóa íslenskan ísklump og það má kannski kalla það bruðl.“ í
opnunarteitinni var jafnframt boðið upp á heilsteikt svín. samkvæmt
fornum kínverskum sið er það talið boða góða lukku að borða svín á
slíkum tímamótum. Þeirrar lukku er nú leitað
stoke var djók, West Ham var ...?
Hvað gerir sá sem elskar enska
boltann og á nóg af peningum?
nú, hann kaupir sér lið. Það gerðu
Björgólfur guðmundsson, þáverandi
bankaráðsformaður Landsbankans,
ásamt Eggerti Magnússyni en
Björgólfur borgaði þó langstærsta
hlutann sem kostaði 85 milljónir
punda, takk fyrir. Með peninga
Björgólfs að vopni eyddi Eggert
og eyddi þannig að liðið steyptist í
skuldir sem það reynir enn að bjarga
sér úr. Eggert leigði einkaþotur
og eðalvagna til þess að ferðast á
útileiki og baðaði sig gjörsamlega
í frægð og frama enska boltans.
Eggert var rekinn fyrir óhóf og
Björgólfur missti liðið endanlega til
straums-Burðaráss í vikunni.