Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2009, Qupperneq 43

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2009, Qupperneq 43
Föstudagur 12. júní 2009 43Sport Næsti áfaNgastaður Eiðs smára? Jenson Button hefur verið meira og minna aukaleikari í Formúlu 1 síðan hann kom til leiks árið 2000. Hann kom þá úr Formúlu 3 til Williams- liðsins en gerði engar rósir. Eins og Breta sæmir var þó mikið fjölmiðla- fár í kringum hann enda átti Button að verða næsta stórstjarnan eins og svo margir sem koma inn í íþrótt- ina. Útlit hans skemmdi heldur ekk- ert fyrir enda þótt gengið á brautinni hafi ekki verið gott fram að þessu hefur ekkert vantað upp á áhuga á kappanum vegna útlits hans. En nú er öldin önnur. Button er ekki bara sæti strákurinn sem alltaf tapar heldur vinnur hann mót eftir mót, alls sex af fyrstu sjö keppnum ársins og hefur tuttugu og sex stiga forystu á næsta mann sem vill svo til að er liðsfélagi hans, Rubens Barr- icello. Þráði einn sigur Á fyrstu sex tímabilum sínum keyrði Button fyrir fjögur lið. Williams, Ben- etton, Renault og svo í þrjú ár með BAR. Besta árið hans var 2004 með BAR en þar náði hann þriðja sæti í heimsmeistarakeppninni, þó án þess að vinna svo mikið sem eina keppni og ná aðeins einum ráspól. Árið eft- ir náði hann í sinn annan ráspól en gengið í heimsmeistarakeppninni varð ekki jafngott. Button skipti yfir til Honda árið 2006 og þegar tólf keppnir voru bún- ar af mótinu hafði hann náð ein- um ráspól og komist einu sinni á pall. Enn hafði hann ekki unnið sig- ur. Hann fór í viðtal í vinsæla breska bílaþættinum Top Gear þar sem hann yfirlýsti að draumurinn væri að vinna allavega eina keppni áður en hann hætti. Svartsýnin var orðin mikil. Viti menn, í næstu keppni eftir þáttinn hafði hann sigur í Ungverja- landskappakstrinum. Fleiri urðu þó sigrarnir ekki. Í fyrra og tímabilið 2007 gekk Button afleitlega á döpr- um Honda-bíl og endaði hann í 15. og 16. sæti heimsmeistarakeppninn- ar. Töfrabíll Ross Brawn Jenson Button man eflaust ekki eftir síðustu níu tímabilum sínum í Form- úlu 1. Hann keyrir nú Brawn GP-bíl- inn sem snillingurinn Ross Brawn, maðurinn á bak við magnaðan ár- angur Michaels Schumacher, smíð- aði upp úr rústum Honda. Fyrir utan að vera ótrúlegur verkfræðingur er Brawn einnig kapítuli út af fyrir sig þegar kemur að liðsstjórn í keppni. Hann virðist alltaf skrefinu á undan andstæðingnum og ekki skemmir fyrir að vera alltaf með besta bílinn. Button virðist ósnertanlegur það sem af er og hefur unnið sex af sjö mótum ársins. Fyrsta mótið fór fram í lok mars og það síðasta í byrj- un júní. Hefur Button því sexfaldað sigra sína í Formúlu 1 á rétt ríflega tveimur mánuðum ásamt því að ná fleiri ráspólum á þeim tíma en hann hefur náð frá komu sinni í Formúlu 1. Það getur lítið sem ekkert komið í veg fyrir að Jenson Button hampi heimsmeistaratitlinum í ár og upp- skeri fyrir níu ár af grámyglu og með- almennsku. Jenson Button er kóngurinn í Formúlu 1 þessa dagana. Hann hefur unnið sex af fyrstu sjö mótum ársins og leiðir stigakeppni ökumanna með yfirburðum. Umskiptin á gengi hans eru ævin- týri líkust þar sem hann hafði aðeins unnið eina keppni á níu árum fyrir mótið í ár. Brawn GP-bíllinn sem hann er á er krafta- verki líkastur og lítið sem getur komið í veg fyrir fyrsta heims- meistaratitil Bretans. sExfaldaði sigraNa TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON blaðamaður skrifar: tomas@dv.is GeNGi JeNSONS BuTTON í FORMúlu 1 2000: Williams, 12 stig - 8. sæti (Enginn ráspóll, enginn sigur) 2001: Benetton, 2 stig - 17. sæti (Enginn ráspóll, enginn sigur) 2002: renault, 14 stig - 7. sæti (Enginn ráspóll, enginn sigur) 2003: Bar, 16 stig - 9. sæti (Enginn ráspóll, enginn sigur) 2004: Bar, 85 stig - 3. sæti (Einn ráspóll, enginn sigur) 2005: Bar, 37 stig - 9. sæti (Einn ráspóll, enginn sigur) 2006: Honda, 56 stig - 6. sæti (Einn ráspóll, einn sigur) 2007: Honda, 6 stig - 15. sæti (Enginn ráspóll, enginn sigur) 2008: Honda, 3 stig - 18. sæti (Enginn ráspóll, enginn sigur) 2009: Brawn gP, 61 stig - 1. sæti (7 keppnir búnar, fjórir ráspólar) Jenson Button ræður nú ríkjum í Formúlu 1 eftir níu döpur ár. Ross Brawn smíðaði bíl sem Button vinnur allt á. ATVINNA Afleysingafólk vantar í uppvask á veitingastaðinn Við Tjörnina. Upplýsingar í síma 863-8066 inu. Gísli Árni Eggertsson, skrif- stofustjóri Íþrótta- og tómstunda- „Við lítum svo á að börnin séu að taka þátt í formlegu frístunda- starfi á frístundaheimilunum en þar fer fram margs konar starf- semi sem er sniðin að aldri þeirra og þörfum. Þá taka ekki öll börn sem sækja frístundaheimilin þátt í öðru frístundastarfi og þótti ástæða til að gefa foreldrum þeirra möguleika á að nýta kortið til að greiða niður dægradvölina. Það skal þó tekið fram að full vistun á frístundaheimili kostar um 8.000
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.