Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2009, Side 46
Föstudagur 12. júní 200946 Helgarblað
HIN HLIÐIN
Gæti verið
bróðir Jónsa
Nafn og aldur?
„Bjartur Guðmundsson, 27 ára.“
Atvinna?
„Leikari.“
Hjúskaparstaða?
„Í sambandi með dásamlegri konu.“
Fjöldi barna?
„Ég er svo heppinn að eiga tvo yndislega stjúpsyni.“
Hefur þú átt gæludýr?
„Já, ég átti einhver prósent í páfagauknum Kíkí
meðan hann var og hét þegar ég var yngri.“
Hvaða tónleika fórst þú á síðast?
„Síðast fór ég á frábæra tónleika hjá Kristjönu Stef-
ánsdóttur á Blúshátíð.“
Hefur þú komist í kast við lögin?
„Nei, ég er svo voðalega löghlýðinn náungi þótt
útlitið hafi verið svart um fimm ára aldurinn en
þá fór faðir minn ansi margar ferðir með mig til að
skila stolnum leikföngum.“
Hver er uppáhaldsflíkin þín og af hverju?
„Þröngu, gráu G-Star-gallabuxurnar mínar því þær
eru töff.“
Hefur þú farið í megrun?
„Nei.“
Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmælum?
„Já.“
Trúir þú á framhaldslíf?
„Ég er svo jarðbundinn að ég bíð bara eftir hinsta
degi til að komast til botns í þeim efnum.“
Hvaða lag skammast þú þín mest fyrir að hafa
haldið upp á?
„Ég skammast mín hreint ekki neitt fyrir eitt ein-
asta lag sem ég hef haldið upp á. Mér finnst svo
gaman að því hvernig tónlistarsmekkurinn sveifl-
ast eftir því hvar maður er staddur í lífinu. En einu
sinni skammaðist ég mín fyrir að fíla Careless
Whisper með George Michael.“
Hvaða lag kveikir í þér?
„Velflest með Led Zeppelin, ég er að gera konuna
mína geðveika því ég hlusta ekki á neitt annað í
bílnum.“
Til hvers hlakkar þú núna?’
„Að frumsýna Grease.“
Hvaða mynd getur þú horft á aftur og aftur?
„Little Miss Sunshine því hún er um svo ótrú-
lega þversagnakennt og skemmtilegt fólk sem er
stórfurðulegt þrátt fyrir að vera venjulegt. Kemur
manni alltaf í gott skap.“
Afrek vikunnar?
„Að fara araba-flikk á trégólfi.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Nei, ég trúi lítið á svoleiðis. Þá finnst mér máls-
hátturinn Hver er sinnar gæfu smiður betra vega-
nesti.“
Spilar þú á hljóðfæri?
„Já, já, ég glamra á gítar, munnhörpu og trommur.“
Viltu að Ísland gangi í Evrópusambandið?
„Mér finnst það þurfi að laga til og breyta ansi
mörgu í íslensku samfélagi og taka upp aðra mynt
en krónuna en hvort Evrópusambandið sé leiðin
skal ég ekki segja til um.“
Hvað er mikilvægast í lífinu?
„Þeir sem maður elskar, að hafa óbilandi trú á
sjálfum sér og halda í drauma sína hvað sem aðrir
kunna að segja um þá.“
Hvaða íslenska ráðamann mundir þú vilja hella
fullan og fara á trúnó með?
„Mig hefur lengi langað að pikka upp heilann í
Davíð Oddssyni.“
Hvaða fræga einstakling myndir þú helst vilja hitta
og af hverju?
„Mér finnst alltaf spennandi að hitta kraftmikið,
metnaðarfullt fólk með eldmóð í hjarta. Hvort það
er frægt eða ekki skiptir engu máli.“
Hefur þú ort ljóð?
„Já, en ekki mörg. Þegar ég var níu ára samdi ég
ljóð um jólin og gaf afa og ömmu. Vinkona ömmu
minnar lét hana svo heyra að þetta væri leirburð-
ur með meiru. En einhver sagði að maður þyrfti að
moka upp tonni af drullu til að finna einn gull-
mola. Til ykkar, ungu ljóðskáld: EKKI GEFAST
UPP!“
Nýlegt prakkarastrik?
„Faldi mig undir pappakassa fyrir utan eldhús-
glugga á efri hæð Kaffibarsins og smyglaði mér svo
inn um gluggann þegar tækifæri gafst.“
Hvaða fræga einstaklingi líkist þú mest?
„Ég fékk að heyra um daginn að ég gæti verið bróð-
ir Jónsa í Í svörtum fötum.“
Ertu með einhverja leynda hæfileika?
„Já, en það er tromp sem verður notað á ögur-
stundu.“
Á að leyfa önnur vímuefni en áfengi?
„Nei, það finnst mér alls ekki.“
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn?
„Leynigjárnar í Mývatnssveit.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð
að sofa?
„Horfi á fallegustu konu í heimi.“
Hver er leið Íslands út úr kreppunni?
„Veit það ekki.“
Bjartur Guðmundsson leikari hreppti hlutverk hins ofursvala danny Zuko
í sönGleiknum Grease sem frumsýndur er á föstudaGinn.
mynd karl petersson
H
u
g
sa
s
é
r!
S. 562 2104
Varahlutaverslunin
Varahlutaverslunin Kistufell | Brautarholti 16 | Sími: 562 2104 | www.kistufell.is | kistufell@kistufell.is
Legur
NICOLAI
Véla- og hjólastillingar
Tímareimar - Viðgerðir
BIFREIÐASTILLINGAR
Faxafeni 12 Sími 588-2455
... á Dalveg 16a
Sími: 554 3430
Erum fluttir...
30 days
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla verðinu.
30 days
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því
að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30
days saman.
Oxy tarm
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla genginu.
Oxy tarm
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama oxy tarmið
Nýr kostur í DV eru
þjónustuauglýsingar.
Það borgar sig að
auglýsa í DV!
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR
Hringdu í síma 515 5550
og byrjaðu strax í dag!