Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2009, Síða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2009, Síða 50
Föstudagur 12. júní 200950 Lífsstíll Ítalskt Í kreppunni svo virðist sem ítalskir veitingastaðir blómstri í kreppunni en á síðustu mánuðum hafa þrír nýir ítalskir veitingastaðir verið opnaðir í reykjavík. Veitingastaðurinn Basil & Lime á Klapparstíg var opnaður í vetur og síðar var opnaður veit- ingastaðurinn Pisa í Lækjargötu þar sem Ljóti andarunginn var til húsa. Þriðji staðurinn var opnaður ekki alls fyrir löngu á Lauga- veginum og hefur hlotið heitið Volare. Það er spurning hvort fleiri ítalskir staðir spretti upp á næstu mánuðum. Lautarferðir geta verið sérlega skemmtilegar og börn elska að borða úti í náttúrunni. Það er eitt- hvað rómantískt og seiðandi við að flatmaga á ullarteppi og borða nesti í fallegri lautu þar sem lækurinn seitl- ar hjá og fuglarnir gefa frá sér fagra tóna. Suðið í flugunum er kærkomin viðbót til að auka enn frekar á sveita- stemninguna og ekkert gerir til þó að ein og ein lítil fluga lendi ofan í maga, flugur eru víst prótínríkar. En galdur- inn við góða lautarferð er ekki bara fuglasöngur og lækjarniður, ferð- in veltur mikið á veðrinu og nest- inu. Það er því um að gera að fylgjast með veðurspánni og elta góða veðr- ið ef einhverju góðu veðri er á annað borð spáð. Klassískt nesti í íslenskri lautarferð samanstendur náttúrlega af flatkökum með hangiketi, brauði með eggi, agúrkum og tómötum og heitu kakói. En það er margt annað sem hægt er að útbúa í nestiskörf- una og mætti nefna kjúklingaleggi, túnfisk, samlokur, vefjur, bökur, sal- öt og ávexti. Uppskrift fyrir 4-6 n Pestóið n 1 poki furuhnetur, ristaðar n 2 ½ msk. grænt ólífumauk n 4 msk. ólífuolía n 1 askja ferskt basil n 2 ½ msk. ferskur parmesanostur n salt n svartur pipar setjið allt í matvinnsluvél og maukið vel. n 450 g penne-pasta n 300 g spergilkál n 200 kjúklingabaunir, soðnar n 2 msk. ólífuolía n salt n pipar Sjóðið pastað eftir leiðbeiningum á pakka, kælið. Steikið spergilkálið í olíu á pönnu og látið malla við frem- ur lágan hita í u.þ.b. 10 mínútur, salt- ið og piprið, kælið. Blandið svo sam- an pastanu, kjúklingabaununum og spergilkálinu í nestisbox. Setjið pes- tóið saman við og blandið vel. Bragð- bætið með salti og pipar ef þörf kref- ur. Uppskrift úr Gestgjafanum. Frábært pasta með pestói og spergilkáli: Dása legt Í lautarferðina umsjón: hanna eiríKsdóttir, hanna@dv.is leggstu Í laut í tilefni af uppskriftinni hér á síðunni tók dV saman nokkra skemmtilega staði sem hægt er að fara í lautarferð ásamt allri fjölskyldunni: hljómskálagarðurinn er nýi austurvöllurinn. Það er aldrei troðið í hljómskálagarðinum og þar er alltaf gott veður. svæðið er stórt og einnig eru skemmtileg leiktæki fyrir krakkana. hljómskálagarðurinn er tilvalinn fyrir bæjarrottuna og bíllausa. ekki skemmir fyrir að reykjavíkurborg er búin að opna lítið kaffihús á svæðinu. heiðmörkin stendur alltaf fyrir sínu. hægt er að finna góða laut og leggjast fyrir í faðmi fjölskyldunnar. einnig eru frábær grillsvæði á staðnum. indíánagil í elliðaárdalnum er fullkomin staður fyrir lautarferð. Þar eru aðstæður til að grilla og leiksvæði fyrir krakkana. Frábær náttúrufegurð og algjör kyrrð frá borginni. hellisgerði í hafnarfirði er einn af fallegustu görðunum á höfuðborg- arsvæðinu. Fullkominn fyrir rómantíska lautarferð. grasagarðurinn er gullfallegur og oft gleymdur. hann er vinsæll meðal brúðhjóna en einnig er hægt að skella góðum mat í körfu, taka krakkana með og njóta þess í grasagarðinum. nauthólsvíkin er vinsæll staður á sumrin. hægt er að borða góðan mat þar og leika sér á ylströndinni. einnig eru frábærir grasblettir allt í kringum ströndina sem hægt er að nota. Umsjón: hanna ingibjörg arnarsdóttir Myndir: rakel ósk sigurðardóttir Ljúffengt í lautarferðina dásamleg og einföld uppskrift fyrir lautarferðina í sumar. Ekki mæta seint jafnvel þó að þú mætir fimm mínútum of seint. Þið eruð bæði jafnstressuð, ekki gera manninum það að bíða og jafnvel halda að þú sért hætt við. ef þú sérð fram á það að verða aðeins of sein er gott að senda sms og láta vita. Klæddu þig rétt ef þið hafið ákveðið að hittast á flottum veitingastað er í lagi að klæða sig aðeins upp á en ef þið ætlið einungis að fá ykkur bjór eða fara í bíó er óþarfi að vera í sínu fínasta. Þó er alltaf í lagi að vera smekklegur til fara. ef maðurinn ætlar að taka þig í eitthvað surprise er ágætt að spyrja hvernig þú eigir að klæða þig. Það er svolítið hallærislegt að mæta í djamm-kjólnum á fótboltaleik. Forðastu hættuleg umræðuefni Kreppan og pólitík geta til dæmis verið viðkvæm umræðuefni á fyrsta deiti. Þið þekkið hvort annað ekki vel og samræðurnar geta oft orðið ansi heitar þegar ólík sjónarmið eiga hlut að máli. Þú finnur það strax á manninum hvort þið getið rætt hlutina almennilega. nú, þegar þið verðið par getið þið rifist endalaust. Einbeittu þér að honum Þegar deitið þitt talar, passaðu þig á því að horfa í augu hans og alls ekki leyfa augunum að reika. Það er dónalegt og fyllir manninn óöryggi. nú ef strákurinn er að horfa mikið á aðra er alveg spurning um að finna sér einhvern annan mann til að bjóða á deit. Engin hópstefnumót hópstefnumót geta verið skemmtileg þegar par er búið að vera saman um tíma. ekki mæla með hópstefnumóti. Þið eigið ekki eftir að ná að tengjast almennilega ef aðrir eru með á stefnumótinu. Ekki drekka of mikið Það er fátt betra en góður matur og rauðvínsglas en við vitum líka öll að of mikið áfengi gjörsamlega breytir stöðunni. Það er alltaf skemmtilegra að reyna að kynnast hvort öðru án þess að áfengi sé haft um hönd. Það hjálpar stundum ekki að drekka þegar maður er stressaður, áfengið getur sagt verulega til sín og maður endar á því að gera sig að algjöru fífli. Ekki vera of ágeng Það er oft gott að byrja bara rólega. Fara á eitt deit og sjá hvernig hlutirnir þróast. ekki hoppa strax í brúðarkjólinn og plana brúðkaupið. Karlmenn þefa uppi svona örvæntingu. Vertu þú sjálf, vertu opin og leyfðu honum að hafa samband við þig. ekki byrja að plana næsta deit með honum. Ekki tala um fyrri sambönd ekki gera það! Það drepur alla stemn- ingu strax. sambandsslit eru alltaf erfið og oft er betra að geyma þær samræður þangað til þið kynnist betur. Ekki hætta við Við erum búin að ræða þetta. Það er skiljanlegt ef eitthvað kemur upp á og þú þurfir að hætta við stefnumótið. ótrúlegustu hlutir geta komið upp á. en ekki senda honum sms klukkutíma fyrir deitið og hætta við. „Hún samkjaftaði ekki“ Vonandi á hann ekki eftir að segja eitthvað slíkt um þig. mundu að anda á milli setninga og passaðu að tala ekki of mikið um sjálfa þig. Leyfðu honum að komast að og að segja þér frá sjálfum sér. Það er nú einu sinni ástæðan fyrir stefnumótinu. eitt lokaráð: ekki panta fyrir ykkur bæði. hann er ekki sonur þinn. Allar konur eiga eina góðu sögu af deiti sem misheppnaðist alveg hrikalega. DV tók saman nokkur ráð sem gott er að hafa í huga á fyrsta stefnumótinu. 10 ráð fyrir stef umótið Fyrsta stefnumótið skiptir miklu máli. Ekki drekka of mikið Það gæti eyðilagt stefnumótið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.