Dagblaðið Vísir - DV - 17.06.2009, Page 2
Miðvikudagur 17. júní 20092 Fréttir
RíkisstjóRnin legguR meiRi áheRslu
á afkomu banka en heimilanna í landinu
alliR sem
svöRuðu ósammála
18,9%
Mjög
ósammála
7,7%
Frekar
ósammála
11,2%
Hvorki
sammála
né ósammála
19,3%
Frekar
sammála
24,1%
Mjög
sam-
mála
37,7%
sammála
61,8%
spuRt vaR: Hversu saMMála ertu eFtirFarandi Fullyrðingu?
baRa þeiR
sem tóku
afstöðu
ósammála
23,4%
Mjög
ósammála
9,5%
Frekar
ósammála
13,9%
Frekar
sammála
29,9%
Mjög
sammála
46,7%
sammála
76,6%
Skuldir sem hafa aukist verulega,
verðbólga sem landsmenn hafa ekki
átt að venjast, afborganir sem fólk
ræður ekki við, króna í frjálsu falli
og umdeilanlegur árangur af því að
berjast gegn hremmingum heimil-
anna. Allt þetta spilar inn í að stór
hluti þjóðarinnar telur stjórnvöld
leggja meiri áherslu á afkomu bank-
anna en heimilanna, samkvæmt
nýrri skoðanakönnun MMR fyrir
DV.
Rúmlega þrír af hverjum fjórum,
sem taka afstöðu í könnuninni, telja
að ríkisstjórnin leggi meiri áherslu
á afkomu banka en heimilanna í
landinu. Innan við fjórðungur er á
öndverðri skoðun.
Úrræðin duga ekki til
„Það sem búið er að gera er auð-
vitað góðra gjalda vert. Ég held að
það þurfi þó að þróa fleiri lausn-
ir innan þeirra ramma sem búið er
að móta,“ segir Finnur Sveinbjörns-
son, bankastjóri Kaupþings. Finn-
ur sendi starfsmönnum bankans
póst í síðustu viku þar sem meðal
annars kom fram að stjórn bankans
hefði samþykkt að þróa áfram lausn
á skuldavanda verst stöddu heimil-
anna.
„Stjórnvöld hafa ítrekað sagt að
ekki standi til að lækka skuldir heim-
ilanna með flötum niðurskurði. Það
blasir hins vegar við að þau úrræði
sem þegar hafa verið kynnt munu
ekki duga eða eru of þung í vöfum
til að gagnast nægilega vel. Því hef-
ur viðskiptabankasvið verið að leita
nýrra leiða,“ sagði Finnur í tölvu-
póstinum.
Þrír af hverjum fjórum sem taka afstöðu telja að stjórnvöld leggi
meiri áherslu á afkomu bankanna en heimilanna. Bankastjóri
Kaupþings segir úrræði stjórnvalda fyrir heimilin ýmist of þung
í vöfum eða ekki duga. Aðgerðaáætlun stjórnvalda byggir á ófull-
nægjandi upplýsingum, segir lektor við Háskólann í Reykjavík.
Bankarnir skyggja á heimilin
bRynjólfuR þóR guðmundsson
og annas sigmundsson
blaðamenn skrifa: brynjolfur@dv.is og as@dv.is
Ríkisstjórnin Þrír af hverjum
fjórum sem taka afstöðu telja
ríkisstjórnina uppteknari af
hagsmunum bankanna en afkomu
heimilanna í landinu.
svigrúm til að gera betur Ólafur
ísleifsson, hagfræðingur og lektor við
Háskólann í reykjavík, segir svigrúm fyrir
ríkisstjórnina til að gera enn þá betur.
mynd ásgeiR m. einaRsson