Dagblaðið Vísir - DV - 17.06.2009, Blaðsíða 31
Miðvikudagur 17. júní 200932 Ættfræði
Kári Þorgrímsson
bóndi í Garði ii, SkútuStaðahreppi
Kári fæddist í Garði og ólst þar upp
við öll almenn sveitastörf. Hann
stundaði barnaskólanám við skól-
ann á Skútustöðum. Á unglings-
árunum var Kári í byggingavinnu
á Egilsstöðum og í Mývatnssveit,
vann í hjáverkum á bifvélaverk-
stæði í Reykjahlíð og var til sjós frá
Hornafirði tvær vertíðir, 1987 og
1988. Auk þess stundaði hann bú-
störf á búi foreldra sinna.
Kári settist í bú með foreldr-
um sínum að Garði II, tók síðan
við búinu og hefur verið þar bóndi
lengst af. Þá hefur hann verið rún-
ingsmaður og unnið sjálfboðaliðs-
störf fyrir Landgræðsluna.
Kári sat í stjórn ungmennafé-
lagsins Mývetnings í fimm ár og var
formaður félagsins í tvö ár, er með-
limur í Náttúruverndarsamtökum
Íslands, sat í sveitarstjórn Skútu-
staðahrepps 1990-95, hefur setið í
nefndum fyrir hreppinn og sat um
skeið í stjórn Búnaðarfélags Skútu-
staðahrepps. Kári hefur haft mikil
afskipti af málefnum landbúnað-
arins, einkum þeim þáttum er lúta
að framleiðslu- og markaðsmál-
um. Þá sat hann í stjórn Veiðifélags
Mývatns í nokkur ár.
Fjölskylda
Kona Kára er Jóhanna Njálsdóttir,
f. 9.11. 1962, bóndi og húsfreyja í
Garði II. Hún er dóttir Njáls Þórð-
arsonar, viðgerðarmanns á Húsa-
vík, og k.h., Kolfinnu Árnadóttur
húsmóður.
Börn Kára og Jóhönnu eru
Hildigunnur, f. 7.3. 1984, nemi í
Danmörku en maður hennar er
Karl Ingólfsson húsasmiður og
nemi; Þór, f. 4.10. 1989, verkamað-
ur á Húsavík.
Systur Kára eru Stefanía, f. 11.4.
1950, öldrunarfulltrúi og rithöf-
undur í Reykjavík; Sigrún Huld,
f. 4.6. 1952, hjúkrunarfræðingur í
Kópavogi; Sigríður Kristín, f. 20.9.
1956, sagnfræðingur og kennari í
Reykjavík, en maður hennar er Þór
Hjaltalín sagnfræðingur.
Foreldrar Kára voru Þorgrímur
Starri Björgvinsson, f. 2.12. 1919,
d. 5.10. 1998, bóndi í Garði, og
k.h., Jakobína Sigurðardóttir, f. 8.7.
1918, d. 29.1. 1994, skáldkona.
Ætt
Þorgrímur var sonur Björgvins
Helga, b. í Garði Árnasonar, b. í
Garði Jónssonar, b. í Garði Jóns-
sonar, b. í Garði Marteinssonar,
frá Baldursheimi Þorgrímsson-
ar. Móðir Björgvins var Guðbjörg
Stefánsdóttir, b. í Haganesi Gam-
alíelssonar, skálds og b. í Ytri-
Neslöndum Halldórssonar. Móðir
Guðbjargar var Björg Helgadóttir,
Ásmundssonar, pr. á Skútustöð-
um.
Móðir Þorgríms Starra var Stef-
anía, dóttir Þorgríms, b. á Starra-
stöðum Bjarnasonar, bróður
Sigurlaugar, ömmu Indriða G. Þor-
steinssonar rithöfundar og fyrrv.
ritstjóra, föður Arnaldar glæpa-
sagnahöfundar. Móðir Þorgríms
var Ingibjörg Jónsdóttir. Móðir
Stefaníu var Valgerður Jónsdóttir,
pr. á Mælifelli Sveinssonar, læknis
og náttúrufræðings Pálssonar og
Hólmfríðar Jónsdóttur, Þorsteins-
sonar. Móðir Jóns á Mælifelli var
Þórunn Bjarnadóttir, landlækn-
is Pálssonar. Móðir Þórunnar var
Rannveig Skúladóttir, landfógeta í
Viðey Magnússonar.
Jakobína var dóttir Sigurðar,
b. í Hælavík og síðar símstöðvar-
stjóra á Hesteyri Sigurðssonar, b. á
Læk Friðrikssonar, b. í Rekavík bak
Höfn Einarssonar, b. á Horni Sig-
urðssonar, b. á Horni Pálssonar, b.
í Reykjarfirði á Ströndum Björns-
sonar, ættföður Pálsættarinnar.
Móðir Sigurðar Sigurðssonar var
Kristín Arnórsdóttir, b. í Rekavík
Ebenezerssonar, b. á Dynjanda
Ebenezerssonar, b. í Efri-Miðvík
Jónssonar, bróður, sammæðra,
Gríms Thorkelíns, leyndarskjala-
varðar og prófessors.
Móðir Jakobínu var Stefanía
Halldóra, systir Ingibjargar, móð-
ur Þórleifs Bjarnasonar, námstjóra
og rithöfundar. Stefanía var dóttir
Guðna, b. í Hælavík Kjartanssonar,
b. á Atlastöðum Ólafssonar. Móð-
ir Kjartans var Soffía Jónsdóttir,
b. á Steinólfsstöðum Einarssonar,
og Guðrúnar Lárentínusardóttur,
b. á Hóli í Bolungarvík Erlends-
sonar, sýslumanns á Hóli Ólafs-
sonar, bróður Jóns fornfræðings
(Grunnavíkur-Jóns).
Ásdís fæddist í Reykjavík og ólst þar
upp í Vesturbænum. Hún var í Vest-
urbæjarskóla og Hagaskóla, lauk
stúdentsprófi frá MH 1999, lauk
BA-prófi í spænsku frá HÍ og stund-
aði nám í spænsku við háskólann
í Santi Jaco á Kúbu. Þá lauk hún
MPAEd.-prófi í spænsku við HÍ.
Ásdís starfaði við leikskóla
í Reykjavík með námi, kenndi
spænsku við Iðnskólann í Reykjavík
og við Kvennaskólann og kennir nú
spænsku við MH.
Ásdís er mjög virk í Salsafélagi
Íslands.
Fjölskylda
Maður Ásdísar er Halldór Örvar
Stefánsson, f. 29.5. 1972, jarðeðlis-
fræðingur.
Börn Ásdísar og Halldórs Örv-
ars eru Ronja Halldórsdóttir, f. 3.1.
2004; Hugi Halldórsson, f. 10.8.
2005; Embla Rebekka Halldórsdótt-
ir, f. 30.12. 2008.
Systir Ásdísar er Hrafnhildur
Þórólfsdóttir, f. 3.12. 1980.
Foreldrar Ásdísar eru Þórólfur
Hafstað, f. 27.9. 1949, jarðfræðingur
hjá ÍSOR, og Þuríður Jóhannsdóttir,
f. 12.2. 1952, kennslufræðingur við
KHÍ.
Þess má geta að Ásdís, sem er
fædd á þjóðhátíðardaginn, er góð
vinkona Steinunnar Guðmunds-
dóttur sem oft er nefnd lýðveld-
isbarnið, enda var hún fyrsta
barnið sem fæddist á þjóðhátíðar-
daginn 1944. Ásdís sendir henni af-
mæliskveðjur.
Ásdís Þórólfsdóttir
SpænSkukennari í reykjavík
Jóhannes Björnsson er þrítug-
ur í dag. Hann er húsasmiður
hjá Ístaki en unnusta hans, Petra
Marteinsdóttir, er verslunarstjóri
hjá Dómínós. Jóhannes er bú-
settur í Mosfellsbænum en er nú
samt með annan fótinn á bænum
Flekkudal í Kjós þar sem hann er
fæddur og uppalinn. Þar verður
drengurinn með kaffi og kökur
fyrir fjölskylduna í dag:
„Já, þetta verður nú bara á ró-
legri nótunum í faðmi fjölskyld-
unnar. Það verður engin stór-
veisla á afmælisdaginn sjálfan,
enda virkur dagur daginn eftir.
Stórveisluhöld verða því að bíða
betri tíma.“
En hvernig er það að eiga af-
mæli á sjálfan þjóðhátíðardag-
inn?
„Það er ósköp notalegt. Líklega
hefur Jón Sigurðsson séð til þess
að oft hafi verið meira umleikis
og meira um gestagang en ella á
afmælinu mínu. Ég er hins vegar
alinn upp í sveit svo ég varð ekki
eins mikið var við skrúðgöngur,
lúðrasveitir og ræðuhöld, eins og
krakkarnir í bænum.“
Áttu þér eftirminnilegt af-
mæli?
„Ætli það sé ekki jarðskjálfta-
afmælið mikla árið 2000. Að vísu
fann ég sjálfur ekkert fyrir þeim
fræga skjálfta því ég var í bíl á
leiðinni frá Kópaskeri og í bæinn.
En það er óneitanlega sérstakt
að þjóðin haldi upp á afmælið
manns með þjóðhátíð og land-
ið með jarðskjálfta. Svo á Agnes,
systir mín, afmæli 29. maí. Hún
fékk því Suðurlandsskjálftann í
fyrra á sínum afmælisdegi. Fjöl-
skyldan er farin að hafa varann á
þegar við eigum afmæli.“
30 ára í dag
Jóhannes, smiður úr Kjósinni
jarðSkjálftaafmæli
17. júní
30 ára
n Edelsonia Aratea Tabucanon Vesturbergi 70,
Reykjavík
n Enrice Ernst Garði, Húsavík
n Baldur Andri Stefánsson Austurbraut 1, Reykja-
nesbæ
n Eva Dögg Albertsdóttir Vegghömrum 26, Reykjavík
n Björn Hjartarson Bjarmalandi 2, Reykjavík
n Bergþór Haukdal Jónasson Gunnarsbraut 47,
Reykjavík
n Jón Ölver Kristjánsson Stóradal, Blönduósi
n Hlynur Hjaltason Stekkum 1, Selfossi
n Páll Lúthersson Gerðavegi 2, Garði
n Silja Jóhannesdóttir Álfheimum 60, Reykjavík
n Þóra Gísladóttir Brimhólabraut 29, Vestmannaeyjum
n Helga Arnardóttir Þingholtsstræti 30, Reykjavík
40 ára
n Rikke Houd Holst Christensen Hringbraut 63,
Reykjavík
n Pétur Þröstur Baldursson Þórukoti, Hvammstanga
n Svava Rögn Þorsteinsdóttir Akurgerði 54, Reykjavík
n Sóley Magnúsdóttir Huldugili 50, Akureyri
n Ásgrímur Stefán Reisenhus Víðivangi 1, Hafnarfirði
n Þórarinn Guðjónsson Hæðargerði 27, Reyðarfirði
n Helga Jóhanna Stefánsdóttir Hringbraut 28,
Reykjavík
n Svava Jónsdóttir Réttarbakka 3, Reykjavík
n Magnús Jóhann Björnsson Syðra-Hóli, Blönduósi
n Grzegorz J. Mieszczankowski Gauksási 17, Hafn-
arfirði
n Páll Kristjánsson Framnesvegi 24a, Reykjavík
n Guðbjörg Jóna Guðlaugsdóttir Grófarsmára 20,
Kópavogi
n Helena Marta Jakobsdóttir Illugagötu 21, Vest-
mannaeyjum
50 ára
n Ingibjörg Aðalsteinsdóttir Reynihvammi 5, Egils-
stöðum
n Zbigniew Jan Mika Stóragarði 7, Húsavík
n Hilmar Sighvatsson Kristnibraut 71, Reykjavík
n Ólöf Gerður Ragnarsdóttir Álftamýri 24, Reykjavík
n Guðrún Guðbjartsdóttir Álftarima 36, Selfossi
n Jens Einarsson Hlemmiskeiði 1, Selfossi
n Halldór U Snjólaugsson Hlíðargötu 15, Fáskrúðsfirði
n Hannes Karlsson Vanabyggð 4d, Akureyri
n Sveinn Þórður Birgisson Lindarbyggð 28, Mosfellsbæ
n Hulda Laxdal Hauksdóttir Hafnarbraut 41, Höfn
n Helga Þormóðsdóttir Bústaðavegi 55, Reykjavík
n Sigurjón Guðmundsson Brekkubyggð 19, Blönduósi
n Magnús Stefánsson Stóragerði 22, Reykjavík
n Dagný Björk Pétursdóttir Álfhólsvegi 26, Kópavogi
n Gunnlaugur G Snædal Vesturbrún 12, Reykjavík
60 ára
n Andrés Bjarni Sigurvinsson Tjaldhólum 7, Selfossi
n Loftur Ásgeirsson Lokastíg 26, Reykjavík
n Ragnheiður Sigurðardóttir Sólvallagötu 40d,
Reykjanesbæ
n Jóna Bergsdóttir Miðleiti 5, Reykjavík
n Sverrir Thorstensen Lönguhlíð 9a, Akureyri
n Jolanta Bozena Sliwinska Fífuseli 33, Reykjavík
n Gísli Helgi Árnason Viðarrima 3, Reykjavík
n Hrafnhildur Eysteinsdóttir Arnarási 3, Garðabæ
n Kári Hafsteinn Sveinbjörnsson Barðavogi 40,
Reykjavík
n Matthías Jóhannsson Bakka, Hólmavík
70 ára
n Björk E Jónsdóttir Efstaleiti 10, Reykjavík
n Þorsteinn Hjaltason Heimalandi, Hellu
n Gunnar Kristjánsson Bugðustöðum, Búðardal
n Kristmann Guðmundsson Lyngheiði 18, Selfossi
n Baldvin Árnason Holtagötu 15a, Selfossi
75 ára
n Karl Jóhann Samúelsson Prestastíg 6, Reykjavík
n Lilja Hjartardóttir Laufási 1, Garðabæ
n Bragi Björgvinsson Sæbergi 18, Breiðdalsvík
n Rögnvaldur Haraldsson Sóleyjumima 9, Reykjavík
80 ára
n Ragnar Kristjánsson Hrannarstíg 30, Grundarfirði
n Hulda Magnúsdóttir Maríubakka 2, Reykjavík
n Margrét Árnadóttir Kirkjubæ, Eyrarbakka
n Sigurvin Guðbjartsson Fjarðarstræti 59, Ísafirði
85 ára
n Jón Björnsson Ægisíðu 92, Reykjavík
n Jakobína S. G. Hafliðadóttir Drekavogi 20, Reykjavík
n Þóra Sigurjónsdóttir Hásteinsvegi 62, Vestmanna-
eyjum
95 ára
n Ólafur Hólm Einarsson Hraunvangi 7, Hafnarfirði
Til
hamingju
með
afmælið!
50 ára í dag
18. júní
30 ára
n Marcin Marek Oleszek Engihjalla 1, Kópavogi
n Soumia Ababou Hverfisgötu 74, Reykjavík
n Agnieszka Anna Fidut Hólabraut 6, Reykjanesbæ
n Sævar Örn Albertsson Birkigrund 21, Kópavogi
n Kristjana Eysteinsdóttir Lækjartúni 18, Hólmavík
n Ágúst Ingi Arason Garðhúsum 10, Reykjavík
n Ingibjörg Magnúsdóttir Hverafold 86, Reykjavík
n Kristján Snorri Ingólfsson Urðarstíg 2, Hafnarfirði
n Álfheiður Rut Ragnarsdóttir Austurbrún 4,
Reykjavík
n Valtýr Örn Valtýsson Goðaborgum 8, Reykjavík
n Særún Ása Rúnarsdóttir Heiðarbraut 7d, Reykja-
nesbæ
40 ára
n Antoni Nawrocki Ásholti 36, Reykjavík
n Mohammed Harimache Eyjabakka 9, Reykjavík
n Dariusz Kalabunski Eskivöllum 3, Hafnarfirði
n Anton Már Magnússon Hjallavegi 21, Suðureyri
n Daníel Thor Helgason Flétturima 20, Reykjavík
n Auður Daníelsdóttir Sólbraut 11, Seltjarnarnesi
n Jóhann Hreiðar Hreiðarsson Eiðsvallagötu 38,
Akureyri
n Sigurjón Einarsson Sóltúni 14 Hvanneyri, Borgarnesi
n Jón Sævar Ólafsson Bjarnastaðavör 10, Álftanesi
n Álfheiður Eymarsdóttir Háteigsvegi 18, Reykjavík
50 ára
n Hrönn Geirsdóttir Ægissíðu 24, Grenivík
n Sigurveig Sigurðardóttir Hjallavegi 32, Reykjavík
n Ragnar Sigurðsson Proppé Álfhólsvegi 141,
Kópavogi
n Gyða Þórisdóttir Funafold 77, Reykjavík
n Gunnlaugur Gestsson Norðurtúni 26, Álftanesi
n Ása Margrét Jónsdóttir Hjarðartúni, Hvolsvelli
n Sigurlín Guðný Ingvarsdóttir Sílatjörn 16, Selfossi
n Sigurlaug Ingvarsdóttir Skólabraut 9, Njarðvík
n Deborah Anne Eaves Strandgötu 12, Tálknafirði
n Witold Gackowski Hrannargötu 5, Reykjanesbæ
60 ára
n Elísabet Haraldsdóttir Ásvegi 10 Hvanneyri, Borg-
arnesi
n Ragnheiður Valdimarsdóttir Heiðargerði 33,
Reykjavík
n Trausti Friðfinnsson Arahólum 4, Reykjavík
n Guðmundur E Lárusson Lautavegi 13, Laugum
n Halldór Halldórsson Vatnsendabletti 45, Kópavogi
n Kjartan Örn Kjartansson Básbryggju 51, Reykjavík
n Hjálmur Geir Hjálmsson Þjóðbraut 1, Akranesi
n Bjarni Guðmundsson Leynisbraut 4, Akranesi
n Gústaf Hannesson Víðimel 39, Reykjavík
n Margrét Valdemarsdóttir Álfheimum 46, Reykjavík
70 ára
n Egill Árnason Langholtsvegi 190, Reykjavík
n Baldur Bragason Þverholti 15, Mosfellsbæ
n Jóhanna Guðjónsdóttir Álfaheiði 30, Kópavogi
n Stella Gísladóttir Ársölum 3, Kópavogi
75 ára
n Þórir Björnsson Álfaskeiði 84, Hafnarfirði
n Jón Pálsson Álftamýri 20, Reykjavík
n Guðlaug Jónasdóttir Melteigi 6, Reykjanesbæ
n Svanur Sveinsson Birkigrund 61, Kópavogi
80 ára
n Kristín Kristjánsdóttir Keilusíðu 9a, Akureyri
n Kristín Vilhjálmsdóttir Hraunbæ 180, Reykjavík
n Guðrún Jónsdóttir Mýrum 14, Patreksfirði
n Bragi Vestmar Björnsson Ásbúð 96, Garðabæ
n Vilborg S Guðmundsdóttir Tjarnarlundi 1a, Akureyri
n Kristín Haraldsdóttir Þórólfsgötu 15, Borgarnesi
85 ára
n Þórður Þ Kristjánsson Ofanleiti 5, Reykjavík
n Guðrún Sigurjónsdóttir Víðivöllum 3, Selfossi
90 ára
n Sigurborg Ágústa Þorleifsdóttir Aflagranda 40,
Reykjavík
n Guðmundur Höskuldsson Hæðargarði 33, Reykjavík
Til
hamingju
með
afmælið!
auglýsingasíminn er
512
70
50