Dagblaðið Vísir - DV - 17.06.2009, Blaðsíða 20
íslandi allt Miðvikudagur 17. júní 2009 21
HVAÐ ER AÐ GERAST
á Íslandi í sumar?
JAZZHÁTÍÐ
Dagsetning: 24. – 27. júní
Staðsetning: Egilsstaðir (24)
Lýsing: Jazzhátíð Egilsstaða á Austurlandi er elsta jazzhátíð
landsins. Gífurlega skemmtilegir tónleikar á Egilsstöðum, í
Fjarðabyggð og fleiri stöðum á Austurlandi.
HERNÁMSDAGURINN
Dagsetning: 1. júlí
Staðsetning: Reyðarfjörður (25)
Lýsing: Hernámsins á Reyðarfirði og þeirrar miklu sögu
sem staðurinn hefur að geyma er minnst, með göngu,
viðburðum í Stríðsárasafninu og fleira.
HUMARHÁTÍÐ
Dagsetning: 3. – 5. júlí
Staðsetning: Höfn í Hornafirði (27)
Lýsing: Skemmtileg hátíð fyrir alla fjölskylduna þar sem allt-
af er mikið líf og fjör. Hátíðin hefur stækkað rosalega mikið
síðustu ár og er orðin miðpunktur sumarsins á Hornafirði.
Nánar á www.humar.is.
EISTNAFLUG
Dagsetning: 9. – 12. júlí
Staðsetning: Egilsbúð í Neskaupstað (26)
Lýsing: Alvöru rokk og ról hátíð þar sem hörðustu rokkunn-
endur þjóðarinnar koma saman og hlusta á bæði innlendar
og erlendar hljómsveitir spila. 18 ára aldurstakmark.
KÁTIR DAGAR
Dagsetning: 16. – 19. júlí
Staðsetning: Langanesbyggð (28)
Lýsing: Það verður kraumandi kæti á öllu svæðinu, á
Þórshöfn, Bakkafirði og í Svalbarðshreppi. Ýmsir viðburðir,
sýningar, opin hús, tónleikar, dansleikir, gönguferðir,
náttúruskoðun, íþróttamót, leikir og margt fleira.
FRANSKIR DAGAR
Dagsetning: 23. – 26. júlí
Staðsetning: Fáskrúðsfjörður
Lýsing: Menningarhátíð með frönsku ívafi. Skemmtileg fjöl-
skylduhátíð með fjölda frábærra viðburða. Skemmtiatriði,
leiktæki, sýningar, tónleikar, brekkusöngur og margt fleira.
ORMSTEITI
Dagsetning: 14. – 23. ágúst
Staðsetning: Egilsstaðir og Fljótdalshérað (24)
Lýsing: Ormsteiti er skemmtileg gleðihátíð þar sem gestir
eiga kost á að fara í skipulagðar gönguferðir, skógarsam-
veru, grilla í skóginum, fara á tónleika á Skriðuklaustri og
óhefðbundna íþróttaleika þar sem keppt verður meðal
annars í rabarbarakasti. Sjá nánar á www.ormsteiti.is.
JÓNSMESSUHÁTÍÐ
Dagsetning: 27. – 28. júní
Staðsetning: Eyrarbakki (29)
Lýsing: Jónsmessuhátíðin er haldin á Eyrarbakka
í kringum Jónsmessuna með tilheyrandi viðburð-
um og skemmtunum.
BRÚ TIL BORGAR
Dagsetning: 27. – 28. júní
Staðsetning: Borg í Grímsnesi (30)
Lýsing: Hollvinir Grímsness verða með hátíð á
Borg. Hressandi handverkssýning, búvélasýning
og bílasýning.
GOSLOKAHÁTÍÐ
Dagsetning: 3. – 5. júlí
Staðsetning: Vestmannaeyjar (31)
Lýsing: Nostalgíuhátíð fyrir fólk yfir fertugu. Menn
rifja upp hvað var gert í gosinu, tónleikar, böll,
myndalistarsýningar og margt fleira. Stórhátíð
einnig fyrir börnin á laugardeginum.
BRYGGJUHÁTÍÐ
Dagsetning: 17. – 20. júlí
Staðsetning: Stokkseyri (32)
Lýsing: Mikið fjör er á Stokkseyri þessa helgina
þar sem verður varðeldur og bryggjusöngur á
föstudagskvöldinu. Mánudaginn 20. júlí sem
er Þorláksmessa að sumri verður sameiginleg
skötuhátíð hrúta- og súluvina, verður þá borðuð
skata í tilefni dagsins.
FÆREYSKIR FJÖLSKYLDUDAGAR
Dagsetning: 31. júlí – 3. ágúst
Staðsetning: Stokkseyri (32)
Lýsing: Færeyskir fjölskyldudagar verða haldnir á
Stokkseyri í sumar um verslunarmannahelgina.
Fjölmargir listamenn munu skemmta svo öll
fjölskyldan ætti að finna sér eitthvað við sitt hæfi.
TRAKTORSTORFÆRA OG FURÐUBÁTAKEPPNI
Dagsetning: 31. júlí – 3. ágúst
Staðsetning: Flúðir – Hrunamannahreppi (33)
Lýsing: Traktorstorfæra og furðubátakeppni eru
fastir liðir um verslunarmannahelgina á Flúðum
þar sem öllum er velkomið að koma og taka þátt.
HARMONIKKUHÁTÍÐ Í ÁRNESI
Dagsetning: 31. júlí – 3. ágúst
Staðsetning: Árnes (34)
Lýsing: Félag harmonikkuunnenda verður með
sína árlegu harmonikkuhátíð í Árnesi. Dansleikir
öll kvöld, hljómsveitir, tónleikar, markaður og
fleira skemmtilegt.
ÞJÓÐHÁTÍÐ Í EYJUM
Dagsetning: 30. júlí – 3. ágúst
Staðsetning: Heimaey (31)
Lýsing: Þjóðhátíðin í Vestmannaeyjum er löngu
orðin þekkt fyrir taumlausa gleði og skemmtun.
Hún hefst með Húkkaraballinu á fimmtudeginum
og lýkur svo á mánudeginum.
SUMAR Á SELFOSSI
Dagsetning: 8. – 9. ágúst
Staðsetning: Selfoss (35)
Lýsing: Skemmtileg fjölskylduhátíð þar sem
von er á gestum frá Evrópu, sjálfboðaliðum á
vegum Veraldarvina, sem munu setja mark sitt á
bæjarlífið og samfélagið með salsa-uppákomum
og um leið aðstoða við hreinsun stranda og
verkefni tengd uppbyggingu í fuglafriðlandi.
KAMMERTÓNLEIKAR Á KIRKJUBÆJAR-
KLAUSTRI
Dagsetning: 7. – 9. ágúst
Staðsetning: Kirkjubæjarklaustur (36)
Lýsing: Margir frábærir tónlistarmenn spila
skemmtilega tónlist. Gestum er bent á að vinsælt
hefur verið að gista í nágrenni Kirkjubæjarklaust-
urs til að njóta þar tónlistar og náttúrufegurðar.
SUMARHÁTIÐ Á RANGÁRBÖKKUM VIÐ HELLU
Dagsetning: 13. – 16. ágúst
Staðsetning: Rangárbakkar við Hellu (37)
Lýsing: Hátíð fyrir alla fjölskylduna. Gengur út á
hestakeppnir, hefðbundnar og óhefðbundnar,
ratleiki og þrautir. Einnig verður sýning og
vörukynning á öllu mögulegu sem tengist
landbúnaði og ekki má gleyma skemmtunum
og böllum. Aðgangur að svæðinu kostar 3.000
krónur og gildir miðinn fyrir alla dagana. Ókeypis
verður fyrir börn 12 ára og yngri.
JÓNSMESSUHÁTÍÐ Á SIGLÓ
Dagsetning: 20. – 21. júní
Staðsetning: Siglufjörður (14)
Lýsing: Jónsmessuhátíð Síldarminjasafnsins á Siglufirði hefur
verið haldin frá 2007 með fastmótaðri dagskrá. Meðal annars
eru list- eða ljósmyndasýningar í gallerí Gránu, málþing og
síldartónleikarnir í Bátahúsinu.
BJARTAR NÆTUR
Dagsetning: 20. júní
Staðsetning: Húnaþing vestra (15)
Lýsing: Fjöruhlaðborð í Hamarsbúð, Vatnsnesi. Þjóðlegar
veitingar, sem notið hafa vinsælda og athygli vítt um land.
Glens, gaman, tónlist og fjöldasöngur verður að venju í
stórtjaldinu.
ÞÓRDÍSARGANGA Á SPÁKONUFELLI
Dagsetning: 3. júlí
Staðsetning: Spákonufell á Skagaströnd (16)
Lýsing: Hópur fólks ætlar í hina geysilega skemmtilegu
Þórdísargöngu á Spákonufell með fararstjóra. Lagt verður
að stað klukkan 21 og verður sagt frá Þórdísi spákonu,
staðháttum, landslagi og þjóðsögum.
BLÚSHÁTÍÐ
Dagsetning: 26. – 27. júní
Staðsetning: Ólafsfjörður (17)
Lýsing: Hátíðin er elsta blúshátíð landsins. Á þeim áratug
sem hátíðin hefur verið haldin hafa margir sérlega efnilegir
og góðir tónlistarmenn komið fram, innlendir sem erlendir.
ÞJÓÐLAGAHÁTÍÐ
Dagsetning: 1. – 5. júlí
Staðsetning: Siglufjörður (14)
Lýsing: Þjóðlagahátíðin er alhliða tónlistarhátíð með rót sína
í þjóðlagaarfinum. Auk tónleika er boðið upp á fjölmörg
námskeið, bæði í tónlist og handverki, gömlu og nýju.
26. LANDSMÓT UMFÍ
Dagsetning: 9. – 12. júlí
Staðsetning: Akureyri (18)
Lýsing: Landsmót UMFÍ eru fjölmennustu íþróttamót á
Íslandi þar sem keppt er í mörgum greinum íþrótta auk
ýmissa starfsíþrótta eins og dráttarvélarakstri, starfshlaupi,
línubeitingu auk annarra greina.
HÚNAVAKA
Dagsetning: 17. – 19. júlí
Staðsetning: Blönduós (19)
Lýsing: Skemmtileg hátíð þar sem markmiðið er fyrst og
fremst að bæjarbúar og gestir geti gert sér glaðan dag
saman og notið fjölbreyttrar flóru menningar og lista þannig
að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi.
EIN MEÐ ÖLLU OG ALLT UNDIR
Dagsetning: 31. júlí - 3. ágúst
Staðsetning: Akureyri (18)
Lýsing: Akureyringar eru ekki þekktir fyrir neitt annað en
taumlausa gleði og skemmtun. Ein vinsælasta hátíðin um
verslunarmannahelgina þar sem bæjarbúar bjóða gesti
velkomna.
UNGLINGALANDSMÓT UMFÍ
Dagsetning: 31. júlí – 2. ágúst
Staðsetning: Sauðárkrókur (20)
Lýsing: Unglingalandsmótin eru góð blanda af fjölbreyttri
íþróttakeppni og annarri heilbrigðri afþreyingu fyrir ungt
fólk. Lögð er áhersla á fjölskylduvænt umhverfi en hátíðin er
vímuefnalaus með öllu.
SÍLDARÆVINTÝRIÐ
Dagsetning: 31. júlí – 3. ágúst
Staðsetning: Siglufjörður (14)
Lýsing: Siglfirðingar minnast þess þegar Siglufjörður var
síldarhöfuðstaður heimsins. Reynt er að endurskapa stemm-
inguna hverja verslunarmannahelgi með virkri þátttöku
heimamanna og gesta. Þvílíkt fjör.
FISKIDAGURINN MIKLI
Dagsetning: 7. – 8. ágúst
Staðsetning: Dalvík (21)
Lýsing: Skemmtileg bæjarhátíð með afar vandaðri og
fjölbreyttri skemmtidagskrá. Á aðalsviði spila, syngja, ræða
og leika listir sínar landsþekktir menn meðal minna þekktra
úr byggðarlaginu. Þess utan er boðið upp á skemmtisiglingu
um fjörðinn, götuleikhús og margs konar sýningar. Af þeim
ber einna hæst ferskfiskasýning þar sem telja má vel á annað
hundrað fiska og furðufiska.
GRENIVÍKURGLEÐI
Dagsetning: 14. – 15. ágúst
Staðsetning: Grenivík (23)
Lýsing: Á Grenivík er haldin árlega útisamkoma sem nefnist
Grenivíkurgleði. Skemmtileg hátíð fyrir alla fjölskylduna þar
sem heimamenn ásamt gestum gera sér góða helgi.
KÁNTRÝDAGAR
Dagsetning: 14. – 16. ágúst
Staðsetning: Skagaströnd (16)
Lýsing: Kántrýdagar verða að venju haldnir á Skagaströnd í
sumar. Þeir eru fyrst og fremst hugsaðir sem skemmtun fyrir
heimamenn en engu að síður eru gestir velkomnir.
BERJADAGAR
Dagsetning: 21. – 23. ágúst
Staðsetning: Ólafsfjörður (22)
Lýsing: Tónlistarhátíðin Berjadagar er haldin árlega í
Ólafsfirði um miðjan ágúst. Á Berjadögum er flutt aðgengi-
leg kammertónlist auk þess sem gestir úr öðrum listgreinum
taka þátt.
GÖNGUVIKA
Dagsetning: 17. – 23. ágúst
Staðsetning: Fjallabyggð (14 og 17)
Lýsing: Í gönguviku er hægt að fara í skipulagðar göngu-
ferðir um nágrennið í fylgd leiðsögumanns. Göngurnar eru
miserfiðar allt frá berjagöngum þar sem rölt verður um hin
glæsilegu berjalönd Fjallabyggðar og tínd ber, upp í erfiðar
og langar fjallgöngur.
TÓNLISTARHÁTÍÐIN VIÐ DJÚPIÐ
Dagsetning: 18. – 23. júní
Staðsetning: Ísafjarðarbær (7)
Lýsing: Tónleikar og masterklassar heimsþekktra
tónlistarmanna. Aðalkennarar hátíðarinnar að
þessu sinni eru gítarleikarinn Pétur Jónasson
og píanóleikarinn Vovka Stefán Ashkenazy.
Sérstakur gestur er svo danska tónskáldið Bent
Sørensen.
FJÖLSKYLDUHÁTÍÐIN BÍLDUDALS GRÆNAR
Dagsetning: 25. – 28. júní
Staðsetning: Bíldudalur (8)
Lýsing: Skemmtileg fjölskylduhátíð þar sem
meðal annars eru tónleikar, golfmót, sjó-
stangaveiðimót, Skrímslasetrið, hoppukastalar,
leiksýningar, rækjuveisla á hafnarbakkanum,
langeldagrill og dorgveiðikeppni. Öll atriði eru í
umsjón heimamanna.
HAMINGJUDAGAR
Dagsetning: 2. – 5. júlí
Staðsetning: Hólmavík (9)
Lýsing: Bæjarhátíðin samanstendur af úti-
skemmtun, dansleik, tónleikum, gönguferðum,
furðuleikum Sauðfjárseturs á Ströndum og ýmissi
afþreyingu fyrir alla fjölskylduna.
DÝRAFJARÐARDAGAR
Dagsetning: 3. – 5. júlí
Staðsetning: Þingeyri (10)
Lýsing: Heillandi bæjarhátíð með víkingaþema
á söguslóðum Gísla Súrssonar. Þriggja daga
hátíðarhöld með alls kyns skemmtilegum
uppákomum fyrir alla fjölskylduna.
SÆLUHELGIN Á SUÐUREYRI
Dagsetning: 9. – 12. júlí
Staðsetning: Suðureyri við Súgandafjörð (11)
Lýsing: Ein elsta og skemmtilegasta bæjarhátíð
landsins er á Suðureyri við Súgandafjörð. Segja
má með sanni að Sæluhelgin sé þjóðhátíð
Súgfirðinga sem skemmta sér saman og taka vel
á móti gestum.
HESTAÞING STORMS
Dagsetning: 10. – 11. júlí
Staðsetning: Þingeyri (10)
Lýsing: Hestamannafélagið Stormur heldur sitt
árlega hestaþing þessa helgi. Gæðingakeppni,
kappreiðar, útreiðatúr, grill og fleira.
ÓSHLÍÐARHLAUP OG VESTURGATAN
Dagsetning: 17. – 19. júlí
Staðsetning: Bolungarvík og víðar (12)
Lýsing: Þessa helgi fara fram tvö af sérstæðustu
víðavangshlaupum landsins. Í Óshlíðarhlaupinu
er farið frá Bolungarvík til Ísafjarðar, um hina
alræmdu Óshlíð, og í Vesturgötunni er hlaupið
fyrir nesið milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar um
eina sérstökustu veglagningu síðustu aldar.
BRYGGJUHÁTÍÐ
Dagsetning: 18. júlí
Staðsetning: Drangsnes (9)
Lýsing: Bryggjuhátíðin hefst jafnan með dorg-
veiðikeppni yngstu kynslóðarinnar um morgun-
inn. Grillmeistarar hreppsins grilla svo grásleppu,
saltfisk, krabba og önnur sjávarskrímsli handa
gestum. Bryggjuhátíðin endar með varðeldi við
samkomuhúsið og dansleik fram á rauðanótt.
EVRÓPUMEISTARAMÓT Í MÝRARBOLTA
Dagsetning: 31. júlí – 2. ágúst
Staðsetning: Ísafjarðarbær (7)
Lýsing: Mýrarboltafélag Íslands heldur mót í
þessari áhorfendavænstu íþrótt í heimi. Ekkert er
jafn skemmtilegt og að horfa á fullfrískt fólk velta
sér eins og svín upp úr drullunni í Tungudal.
LEIKLISTARHÁTÍÐIN ACT ALONE
Dagsetning: 14. – 16. ágúst
Staðsetning: Ísafjarðarbær (7)
Lýsing: Einleikjahátíðin Act alone hefur verið
haldin á Ísafirði síðan 2004. Þar gefst gestum
kostur á að kynnast þessu sérstæða leikhúsformi
og er það eitt einkenni hátíðarinnar að ókeypis er
inn á allar sýningar.
REYKHÓLADAGURINN
Dagsetning: 29. ágúst
Staðsetning: Reykhólahreppur (13)
Lýsing: Þetta er eins konar uppskeruhátið
(hlunnindahátíð) með ýmsum uppákomum um
miðjan daginn og síðan veisla og skemmtun/
dansleikur um kvöldið. Frítt hefur verið inn á
Hlunnindasýninguna og í sundlaugina þennan
dag. Einnig verður sýning á forn-dráttarvélum og
áhugamannafélag um bátasafn Breiðafjarðar á
Reykhólum hefur sýnt sína báta.
SÓLSETURSHÁTÍÐ Á GARÐSKAGA
Dagsetning: 26. – 28. júní
Staðsetning: Sveitarfélagið Garður (38)
Lýsing: Sólsetrið á Garðskaga er einstök sjón og tímasetning
hátíðarinnar er vel við hæfi þar sem sumarsólstöður eru
nýafstaðnar og sólsetrið gyllir hafið á meðan Garðbúar og
gestir þeirra syngja og gleðjast við varðeldinn. Fjölbreytt
dagskrá fyrir alla fjölskylduna.
SANDGERÐISDAGAR
Dagsetning: 28. – 30. ágúst
Staðsetning: Sandgerði (39)
Lýsing: Skemmtilegir dagar þar sem Sandgerðingar leggja
áherslu á að gamlir og nýir Sandgerðingar hittist, bjóði
gestum í bæinn og eigi saman þrjá góða daga. Mikið fjör í
Sandgerði þessa helgi.
LJÓSANÓTT
Dagsetning: 4. - 6. september
Staðsetning: Reykjanesbær (40)
Lýsing: Ljósanóttin verður haldin í 10. skiptið í ár. Mikið
verður um dýrðir þá daga sem hátíðin stendur og meðal
annars stór atvinnu- og þjónustusýning, Reykjanes 2009,
í Reykjaneshöll þar sem fjöldi fyrirtækja og sveitarfélaga á
Reykjanesi taka þátt.
noRÐuRlAnd
AuSTuRlAnd
VESTfiRÐiR
SuÐuRlAnd
REykjAnES