Dagblaðið Vísir - DV - 17.06.2009, Blaðsíða 28
Miðvikudagur 17. júní 2009 29Umræða
Hver er konan? „dóra guðrún
guðmundsdóttir, forstjóri Lýðheilsu-
stöðvar.“
Hvað drífur þig áfram? „Ást mín á
manninum mínum, börnunum mínum
og lífinu.“
Hvar ertu uppalin? „reykjavík,
Hofsósi og Blönduósi.“
Hvaða bók lastu síðast? „a primer
in positive psychology.“
Hvert er hlutverk Lýðheilsustöðv-
ar? „að vinna að bættri lýðheilsu á
íslandi ásamt því að vera stjórnvöldum
til ráðgjafar um stefnumótun á sviði
lýðheilsu.“
Hvert er hlutverk nýja sjóðsins?
„að veita ungu fólki án atvinnu í sumar
tækifæri á því að vinna að skapandi
verkefnum sem hafa jafnframt
heilsueflandi skilaboð.“
Hvað var samtals veitt mikið í
styrki úr sjóðunum tveimur? „úr
Forvarnasjóði voru veittar rúmar 45
milljónir og til stendur að veita 5
milljónir úr styrktarsjóði fyrir ungt fólk
án atvinnu í sumar.“
Hversu árangursríkt finnst þér
forvarnastarf allajafna? „Þegar
unnið er að forvörnum byggðum á
þekkingu, í samstarfi við hlutaðeig-
endur næst yfirleitt góður árangur en
mikilvægt er að hafa í huga að ekki er
nóg að hafa viljann að verki heldur er
nauðsynlegt að byggja á þekkingar-
grunni og meta árangur.“
Hver er öflugasta forvörnin að
þínu mati? „aðgerðir sem hafa áhrif
á aðgengi, þar með talið verðlag,
skipta miklu máli. í því samhengi er
mikilvægt að ýta ekki undir aðgengi að
því sem skaðar heilsuna eins og áfengi,
tóbaki og óhollri matvöru og annarri
óhollustu. Á sama tíma og við þurfum
að tryggja gott aðgengi að heilsusam-
legri valkostum þannig að holla valið
verði ávallt auðvelda valið.“
Hver eru algengustu neyslu-
vandamál Íslendinga? „Tóbak,
áfengi og slæmt mataræði.“
Hvað geta foreldrar gert til þess
að efla forvarnir innan fjölskyld-
unnar? „Það er mikilvægt að foreldrar
gefi sér tíma fyrir börnin sín, efli náin
tengsl við þau, séu þátttakendur í lífi
þeirra alveg frá upphafi og séu góðar
fyrirmyndir.“
Á að selja léttvín í verslunum Á íslandi?
„nei, það finnst mér ekki. Mér finnst þetta
fyrirkomulag sem er til staðar í dag hjá
ÁTvr mjög fínt. Búðirnar eru opnar
hvenær sem er nema á sunnudögum.“
Steinunn VaLdÍS ÓSkarSdÓttir
44 Ára ÞingMaður
„já, það yrði betra aðgengi að geta
keypt vín með matnum og svoleiðis.“
Stefán karL Lund
55 Ára ísLendingur
„Hefði ég verið spurður fyrir mánuði
hefði ég sagt já. en núna ætla ég að
segja nei.“
SVeinbjörn eySteinSSon
45 Ára aTvinnuLaus
„nei, það yrði bara minna úrval.“
SigurjÓn tryggVaSon
58 Ára ísLendingur
Dómstóll götunnar
dÓra guðrún guðmundS-
dÓttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar,
segir að 5 milljónir verði veittar úr
sjóðnum í sumar. Lýðheilsustöð veitti
einnig styrki úr forvarnasjóði sínum
til ýmissa uppbyggjandi rannsókna
og forvarnarstarfs.
DRIFIN ÁFRAM
AF ÁST
„Ég bara veit það ekki.“
freyja obSomer
19 Ára skipTineMi FrÁ BeLgíu
maður Dagsins
Agnes Bragadóttir, blaðamaður á
Morgunblaðinu, lét að því liggja
í blaðinu í byrjun þessa árs að eft-
ir að hafa tapað formannsslag við
Davíð Oddsson 1991 hafi Þorsteinn
Pálsson eiginlega haft lifibrauð sitt
úr hendi hans í 15 ár. Fyrst sem
ráðherra og síðar sendiherra. Þar
með taldi hún það einhvern veg-
inn ódrengilegt af ritstjóranum Þor-
steini Pálssyni að gagnrýna Davíð í
Fréttablaðinu.
Þetta kemur upp um auðsveipni
og flokkshollan þankagang. Umb-
unar- og tyftunarkerfi Sjálfstæðis-
flokksins og formannsins var fólg-
ið í því að útdeila almannafé, sem
hann réð yfir með aðgangi að rík-
issjóði, til dæmis með því að veita
mönnum sendiherrastöður. Gegn
sendiherrastöðu átti Davíð sem sagt
að hafa keypt hollustu Þorsteins að
eilífu og því óleyfilegt af honum að
gagnrýna Davíð fyrir peningamála-
stjórn síðustu ára.
Eða bítur maður í höndina sem
færir manni fæðuna?
Verðleikar og kunningjaveldi?
Páll Hreinsson hófst til metorða og
virðingar í byrjun tíunda áratug-
arins og átti meðal annars hlut að
samningu stjórnsýslulaga og upp-
lýsingalaga. Björn Bjarnason, þá-
verandi dómsmálaráðherra, lagði
til að hann yrði skipaður hæsta-
réttardómari úr hópi umsækjenda
sumarið 2007. Úr stöðu hæstarétt-
ardómara er hann nú kominn í
rannsóknarnefnd Alþingis.
Páll er áreiðanlega mætur mað-
ur sem unnið hefur sín störf sam-
viskusamlega og af kunnáttusemi
og þekkingu í þágu stjórnvalda.
Það breytir ekki því að Páll hefur átt
frama sinn og virðingu undir einum
manni öðrum fremur; Davíð Odds-
syni, en síðan Birni Bjarnasyni.
Tryggvi Gunnarsson, umboðs-
maður Alþingis, er áreiðanlega
einnig mætur maður og vinnur störf
sín sjálfsagt af fagmennsku og þekk-
ingu. Áður fyrr var hann virkur í Sjálf-
stæðisflokknum og sat meðal annars
í stjórn Heimdallar árin 1973 til 1975.
Hann vann líka sem blaðamaður á
Morgunblaðinu áður en hann sneri
sér að lögmannsstörfum. Nú situr
hann einnig í rannsóknarnefnd Al-
þingis.
Árið 2004 fékk Davíð Oddsson í
hendur álit Tryggva, umboðsmanns
Alþingis, um skipan Björns Bjarna-
sonar á Ólafi Berki Þorvaldssyni,
frænda Davíðs, í embætti hæstarétt-
ardómara.
Fréttir birtust um að Davíð, þá
forsætisráðherra, hefði haft í hótun-
um um að endurnýja ekki ráðningar-
samning við Tryggva í starfi umboðs-
manns Alþingis, svo mjög mislíkaði
Davíð álit hans.
Lögum samkvæmt er umboðs-
maður Alþingis eins konar brjóst-
vörn borgaranna gagnvart misbeit-
ingu valds af þess hálfu. Því vekur
athygli að Tryggvi skyldi ekki tilkynna
það opinberlega að æðstráðandi
framkvæmdavaldsins, Davíð Odds-
son, hefði gert atlögu að embættinu.
Síðar átti Tryggvi eftir að taka sér 10
mánuði til þess að skila áliti um skip-
an Árna Mathiesen á Þorsteini, syni
Davíðs Oddssonar, í dómaraembætti.
Kannski er engin furða að menn verði
að hugsa sig vel um við slíkar aðstæð-
ur. En eru það ekki afglöp að hafa ekki
látið þjóðina vita um atlögu fram-
kvæmdavaldsins að embætti sem
hefur þann tilgang fremstan að verja
hana gegn valdníðslu stjórnarherr-
anna?
Hvar er hinn óháði sjónarhóll?
Eins er farið með Tryggva og Pál;
báðir áttu þeir starfsframa sinn og
virðingarstöðu að umtalsverðu leyti
undir Davíð Oddssyni sem deildi og
drottnaði vel á annan áratug sem for-
sætisráðherra og formaður Sjálfstæð-
isflokksins. Nú sitja þeir í rannsóknar-
nefnd á vegum Alþingis og hafa reynt
að telja þriðja nefndarmanninn, Sig-
ríði Benediktsdóttur, á að yfirgefa
hana.
Carsten Valgren, hagfræðingur hjá
greiningardeild Danske Bank, ritaði
eftirfarandi í Fréttablaðið 10. janúar
síðastliðinn: „Ísland er lítið, einsleitt
samfélag þar sem innbyrðis tengsl eru
mikil. Þetta er bæði mikill styrkleiki
og veikleiki. Þetta er rót kreppunnar.
(...) Útilokun tiltekinna vandamála
og ákvörðun um að þagga þau nið-
ur þróast mjög auðveldlega og af því
leiðir að erfitt er að grípa inn í þegar
þau hafa hreiðrað um sig.“
Eru Páll og Tryggvi veikleiki eða
styrkleiki nefndarinnar sem rann-
sakar á vegum Alþingis aðdraganda
og orsakir þeirrar kreppu sem Val-
gren talar um?
Höndin sem fæðir nefndarmenn
kjallari
1 icesave-menn reka saman
skrifstofu
Björgólfur guðmundsson, sigurjón
Árnason og Halldór j. kristjánsson
reka saman skrifstofu við köllunar-
klettsveg.
2 Stundar ekki skyndikynni
Breska leikkonan sienna Miller fékk á
sig druslustimpilinn eftir ástarævintýri
sitt með kvænta leikaranum Balthazar
getty.
3 rannsaka þeir sjálfa sig?
jón F. Thoroddsen hagfræðingur segir
í nýrri bók að þeir sem til þekki fullyrði
að gögnum hafi verið eytt innan bank-
anna á fyrstu vikum eftir bankahrunið.
4 Vill að Seymour Hoffman
leiki georg
jón gnarr vill helst að philip seymour
Hoffman leiki georg Bjarnfreðarson í
Bandaríkjunum.
5 „gunnar er mikill maður“
elín Þórðardóttir forstjóri sagði
gunnar Birgisson mikinn mann í
Morgunblaðsgrein.
6 tónlistarmenn snoðaðir og
fjötraðir
Talibanar börðu tónlistarmenn,
rökuðu höfuð þeirra og bundu þá við
tré.
7 bananar bannaðir
skólayfirvöld forskóla í plymouth á
englandi hafa bannað banana í
skólanum.
mest lesið á dv.is mynDin
dvel ég í draumahöll gamla kempan Árni Tryggvason brá á leik með viðari eggertssyni við afhendingu grímuverðlaunanna
í gær og sýndi að hann hefur engu gleymt þegar hann söng vögguvísuna sígildu sem hann notaði til að svæfa Mikka ref þegar
hann lék Lilla klifurmús í Þjóðleikhúsinu fyrir margt löngu. mynd Sigtryggur ari
jÓHann
HaukSSon
blaðamaður skrifar.
„Eins er farið með
Tryggva og Pál; báðir
áttu þeir starfsframa
sinn og virðingar-
stöðu að umtals-
verðu leyti undir
Davíð Oddssyni.“