Dagblaðið Vísir - DV - 17.06.2009, Side 4
Miðvikudagur 17. júní 20094 Fréttir
Karlheinz Bellmann er þýskur spari-
fjáreigandi sem átti 120 þúsund evr-
ur inni hjá Kaupthing Edge þegar ís-
lenska bankakerfið hrundi. Hann er
hér í þriðja sinn frá bankahruninu og
gekk á fund skilanefndar Kaupþings
í gær til þess að ganga eftir því að fá
innistæðu sína greidda út og flutta
í annan banka. Þessu hafði honum
verið lofað strax þegar hann kom ör-
væntingarfullur í nóvember til þess
að kanna afdrif sparifjárins hjá Kaup-
þingi, en sparnaður hans jafngildir
liðlega 21 milljón króna á núverandi
gengi gagnvart evrunni.
Helgi Felixson kvikmyndagerðar-
maður vinnur að gerð heimilda-
myndar um bankahrunið og hefur
meðal annars fylgst með máli Bell-
manns. „Ég gekk á fund skilanefnd-
armanna í gær með tökumann á
eftir mér. Ég spurði enn einu sinni
hvenær ég fengi peningana mína.
Ég spurði líka í nóvember og þá var
svarið að menn hefðu ekki hug-
mynd um það. Með slíkt svar gat ég
ekki snúið til Þýskalands aftur og þá
var mér sagt að til væru eignir sem
myndu hrökkva fyrir innistæðum en
eignir bankans yrði að kortleggja. Ég
kom síðan aftur á fundinn sem hald-
inn var af skilanefndinni með kröfu-
höfum. Þar sat ég á milli fulltrúa
tveggja banka með himinháar kröfur
á hendur Kaupþingi.“
Þrautaganga
„Í gærmorgun sagði skilanefnd
Kaupþings við mig að ég fengi inn-
eign mína greidda næstkomandi
mánudag. Ég hef vitni að þessu og
við tókumst í hendur um þetta. Ég
var enn að tala við sama mann og í
nóvember. Ég átti að geta treyst hon-
um. Þegar ég kom í nóvember vildi
ég spyrja margra spurninga. Ég lagði
töskuna mína á borðið og sagði að
við gætum farið auðveldu leiðina
eða þá erfiðu. Kaupþingsmaðurinn
sat andspænis mér með lögfræðing
sér við hlið og hann spurði hver erf-
iða leiðin væri. Ég svaraði að ég hefði
spurningar á 16 blaðsíðum. Auð-
velda leiðin fólst vitanlega í að borga
út inneign mína. Eftir þetta ræddum
við um Finnland og ég sýndi þeim
myndir af fjölskyldu minni og fjórum
börnum og sagði að þetta snerist um
framtíð þeirra. Það væri aldrei hægt
að kyngja því að bankinn brenndi
upp sparifé mitt. Þeir skildu mig.“
Bellmann segist vita af lögbundn-
um gjaldeyrishöftum. „Flutningur
á sparifé mínu úr landi ætti ekki að
vera vandi því íslensk og þýsk fjár-
málayfirvöld hafa gert með sér samn-
ing sem felst í að flytja fé frá íslenska
Seðlabankanum til Þýskalands. Ég er
ánægður með þessa þriðju ferð mína
hingað og verð enn ánægðari þegar
ég hef sparifé mitt í höndum.“
Yfirlýsing Bellmanns
„Ég er bálreiður. Siðfræði og sið-
ferði eru orð sem einmitt þeir sem
orsökuðu kreppuna skilja ekki og
ekki heldur þeir sem tregðast fram
á þennan dag við að upplýsa mál-
in. Þýska fjármálaeftirlitið krafðist
þess 8. október að Kaupþing útveg-
aði því meira lausafé. Þessa peninga
haldlagði síðan DZ-Bankinn, þýsk-
ur viðskiptabanki Kaupþings. Þýska
fjármálaeftirlitið kom ekki í veg fyrir
þetta. Þýsk stjórnvöld hafa ekki einu
sinni gagnrýnt þessa umdeildu hald-
lagningu DZ-bankans á peningum
okkar. Kaupþing telur að við eigum
þessa peninga. Það teljum við líka.
Þessi togstreita hefur staðið mán-
uðum saman, á kostnað okkar. Það
hefði verið hægt að gera upp við okk-
ur fyrir löngu. Í Austurríki og Finn-
landi gekk það hratt fyrir sig og þar
voru vextir líka greiddir. Hvers vegna
ekki hjá okkur? Ég mun fá til baka
það sem ég lagði inn. Og ég er þakk-
látur fyrir það. En nú vill Kaupþing
einungis greiða vexti til október.
Ég kemst ekki upp með það að
borga ekki skuldir mínar, bankinn
ætti ekki að geta það heldur. Ef við
ekki berjumst núna afsölum við okk-
ur peningunum einmitt til þeirra
sem hafa hrakið okkur að barmi þess
hyldýpis þar sem við nú stöndum.
Ég gleðst með íslensku þjóðinni
yfir því að gagnstætt Icesave-dæm-
inu mun uppgjör við okkur ekki
kosta íslenska skattgreiðendur neitt.
Bankinn greiðir til baka.
Ég fer fram á jafnræði. Það geng-
ur ekki að við séum verr sett en
sparifjáreigendur í öðrum löndum.
Greiðslustöðvun getur staðið árum
saman. Eftir það fengjum við hugs-
anlega einhvern hluta af vöxtunum.
Ég vil ekki bíða svo lengi.“
Gefur vextina til góðgerðar-
mála á Íslandi
„Mig langar til að láta eitthvað af
hendi rakna til íslensku þjóðarinn-
ar. Þess vegna stíg ég fram og segi:
Ég skal gefa vextina mína. Vaxta-
tekjur mínar, sem ekki stendur til að
greiða út núna, gef ég til einhverrar
íslenskrar góðgerðarstofnunar, sem
nú sinnir fólki sem líður skort vegna
kreppunnar. Það má ekki bíða þar
til greiðslustöðvuninni lýkur! Hjálp-
ið ykkur, hjálpið okkur. Hraðið því
að leysa málið, með lausn sem ekki
mismunar okkur. Hjálpið með því að
finna lagalegan grundvöll fyrir því að
þetta sé hægt. Eða með því að sann-
færa skuldareigendurna um að þeir
eigi að gefa okkur forgang,“ segir
Bellmann í yfirlýsingu sinni.
Karlheinz Bellmann frá Þýskalandi fær 120 þúsund evrur greiddar út úr gamla Kaup-
þingi næstkomandi mánudag. Hann fær ekki vextina greidda út frá bankahruninu
og ætlar að gefa þá til góðgerðarstarfsemi á Íslandi. Hann gekk á fund skilanefndar
Kaupþings með kvikmyndatökumann á hælunum í gærmorgun og fékk loforð um að
20 milljónir króna í eigu hans yrðu greiddar út.
Gefur fátækum
vaxtatekjurnar
Jóhann hauKsson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
„Vaxtatekjur mínar, sem ekki
stendur til að greiða út núna,
gef ég til einhverrar íslenskr-
ar góðgerðarstofnunar, sem
nú sinnir fólki sem líður skort
vegna kreppunnar.“
Glaðnar yfir sparifjáreigand-
anum karlheinz Bellmann hefur
komið þrisvar til landsins eftir hrun
bankanna til þess að ganga eftir því
að fá um 20 milljóna króna sparnað
sinn greiddan út hjá gamla
engar upplýsing-
ar um nauðgun
Lögreglan á Vestfjörðum verst
allra frétta af meintu kynferð-
isbroti sem var kært til lögregl-
unnar að morgni sunnudagsins
31. maí. Málið er enn í rannsókn
að sögn lögreglunnar en talið
er að brotið hafi verið fram-
ið kvöldið áður. Upplýsinga er
að vænta á næstunni og miðar
rannsókninni ágætlega, sam-
kvæmt embættinu.
farbann
framlengt
Hæstiréttur staðfesti í gær áfram-
haldandi farbannsúrskurð hér-
aðsdóms yfir ferðamanni sem er
grunaður um að hafa misnot-
að sér ástand íslenskrar konu til
þess að hafa við hana samræði.
Konan var ölvuð og er maðurinn
grunaður um að hafa í félagi við
annan mann komið fram vilja
sínum á hótelherbergi í Reykjavík
þann 8. maí. Samkvæmt úrskurði
Hæstaréttar sætir maðurinn far-
banni allt til 10. júlí.
ásgerður verður
bæjarstjóri
Ásgerður Halldórsdóttir, for-
seti bæjarstjórnar Seltjarnar-
ness, tekur við af Jónmundi
Guðmarssyni sem bæjarstjóri
á Seltjarnarnesi en hann hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins. Sitjandi
bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins og stjórn fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna á Seltjarnarnesi
samþykktu einróma að Ásgerð-
ur tæki við af Jónmundi en hún
skipaði annað sætið á fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksins í
bænum.
Leiðrétting
Steingrímur J. Sigfússon, fjár-
málaráðherra og formaður
vinstri grænna, hefur aldrei
skammað Lilju Mósesdóttur,
þingkonu VG, með svo mikl-
um látum að hún hafi fellt tár.
Í smáfrétt á baksíðu Helgar-
blaðs DV var greint frá orða-
skiptum á Facebook-síðu
framsóknarmannsins Gests
Guðjónssonar í kjölfar at-
hugasemdar hans um að ljótt
hefði verið af Steingrími J. Sig-
fússyni að græta Lilju. Gestur
taldi sig hafa traustar heimild-
ir fyrir því að Steingrímur hafi
hellt sér yfir Lilju með miklum
látum á göngum þinghússins.
Þetta mun þó vera alrangt og
að sögn Lilju hefur Steingrím-
ur ekki enn fundið sig knúinn
til þess að skamma hana með
slíkum ósköpum.
Gríman, Íslensku leiklistarverðlaunin, voru afhent í Borgarleikhúsinu í gær:
utan gátta sigurvegari kvöldsins
Íslensku leiklistarverðlaunin voru af-
hent við hátíðlega athöfn í gærkvöld
og þar var sýningin Utan gátta, í svið-
setningu Þjóðleikhússins, aðsóps-
mikil. Sýningin var valin besta sýn-
ing ársins, Kristín Jóhannesdóttir fékk
Grímuna fyrir leikstjórn sýningar-
innar, rithöfundurinn og ljóðskáldið
Sigurður Pálsson fékk Grímuna fyr-
ir leikritið og Gretar Reynisson fékk
verðlaunin fyrir búninga sína í þessari
sömu sýningu.
Þegar Tinna Gunnlaugsdóttir
þjóðleikhússtjóri tók við verðlaun-
unum fyrir bestu sýninguna frá þeim
Katrínu Jakobsdóttur menntamála-
ráðherra og Katrínu Júlíusdóttur iðn-
aðarráðherra þakkaði hún kærlega
fyrir þann heiður sem Þjóðleikhús-
inu væri sýndur en sagði að fyrst og
fremst væri það listafólkið sem að
Utan gátta stendur sem væri sigur-
vegarar kvöldsins.
Björn Thors var valinn besti leik-
arinn í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt
í leiksýningunni Vestrinu eina í svið-
setningu Leikfélags Reykjavíkur og
Harpa Arnardóttir var valin besta leik-
konan fyrir hlutverk sitt í leiksýning-
unni Dauðasyndunum, einnig í svið-
setningu Leikfélags Reykjavíkur.
Birna Hafstein fékk verðlaunin
sem besta leikkonan í aukahlutverki
fyrir leik sinn í Steinari í djúpinu í svið-
setningu Lab Loka og Hafnarfjarðar-
leikhússins og Bergur Þór Ingólfsson
var verðlaunaður sem besti leikarinn í
aukahlutverki fyrir hlutverk sitt í leik-
sýningunni Milljarðamærin snýr aftur
í sviðsetningu Leikfélags Reykjavíkur.
Sýningin Bólu-Hjálmar eftir Ár-
mann Guðmundsson, Snæbjörn
Ragnarsson, Sævar Sigurgeirsson og
Þorgeir Tryggvason í sviðsetningu
Stoppleikhópsins og í leikstjórn Ág-
ústu Skúladóttur fékk verðlaun fyrir
bestu barnasýningu ársins.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, afhenti einnig Helga Tóm-
assyni, ballettdansara og listrænum
stjórnanda San Francisco-ballettsins
sérstök heiðursverðlaun.
helgi Tómasson Tók við heiðursverða-
lunum grímunnar úr hendi Ólafs ragnars
grímssonar í Borgarleikhúsinu í gær.
MYnd siGTrYGGur ari