Dagblaðið Vísir - DV - 17.06.2009, Qupperneq 6
Miðvikudagur 17. júní 20096 Fréttir
Sigurður Kári
aðstoðar Bjarna
Sigurður Kári Kristjánsson
hefur verið ráðinn aðstoðar-
maður Bjarna Benediktssonar,
formanns Sjálfstæðisflokksins.
Sigurður Kári er lögfræðingur að
mennt og starfaði sem slíkur frá
árinu 1998 til 2003 þegar hann
tók sæti á Alþingi. Hann náði
ekki kjöri í síðustu kosningum.
Sigurður Kári segist fullur til-
hlökkunar að takast á við þetta
nýja verkefni.
Ábyrgðirnar ekki
afskrifaðar strax
Stjórn Nýja Kaupþings banka
ætlar ekki að afskrifa lán til
starfsmanna vegna hlutabréfa-
kaupa á meðan kæra hluthafa
vegna lánanna er til meðferð-
ar hjá sérstökum saksóknara.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Nýja Kaupþingi. Forsaga
málsins er sú að stjórn gamla
Kaupþings ákvað 25. september
2008 að fella niður persónulegar
ábyrgðir starfsmanna bankans
vegna lána til hlutabréfakaupa.
Samtals náði þessi niðurfell-
ing til persónulegra ábyrgða að
upphæð tæpum 10,5 milljörðum
króna.
Gögnum eytt
Jón F. Thoroddsen hagfræð-
ingur segir í nýrri bók að
þeir sem til þekki fullyrði að
gögnum hafi verið eytt innan
bankanna á fyrstu vikum eftir
bankahrunið. Jón, sem er
hagfræðingur og verðbréfa-
miðlari, segir að það hafi tek-
ið tíma að losna við toppana
í bönkunum. „Í staðinn fyrir
að læsa skrifstofum og hindra
aðgang að gögnum fengu
þeir að starfa óáreittir innan
bankanna svo dögum og vik-
um skipti. Á endanum fóru
þó þeir Sigurjón Þ. Árnason,
Lárus Welding og Hreiðar
Már (Sigurðsson). Aðrir vinir
og samstarfsmenn fengu hins
vegar að vera áfram og voru
því í aðstöðu til að eyða þeim
gögnum sem þeir vildu. Þeir
sem til þekkja fullyrða að það
hafi verið gert.“
Sigurjón Árnason var ráðinn sem stundakennari við Háskólann í Reykjavík til að
kenna inngangskúrs í fjármálaverkfræði um síðustu áramót. Gunnar Guðni Tómas-
son, forseti tækni- og verkfræðideildar, segir að Sigurjón hafi verið ráðinn á faglegum
forsendum vegna þekkingar hans og kunnáttu. Það sé annarra stofnana að dæma um
hvort hann hafi gert eitthvað af sér í öðrum störfum.
SIGURJÓN KENNDI
FAGLEGAR AÐFERÐIR
Eftir að Sigurjón Árnason lét af störf-
um sem bankastjóri Landsbankans
og hafði fengið 70 milljóna króna
lán hjá eigin lífeyrissjóði tók hann
að sér stundakennslu við Háskólann
í Reykjavík. Sigurjón kenndi nám-
skeiðið Inngangur að fjármálaverk-
fræði fyrir fyrsta árs nemendur í BS-
námi í fjármálaverkfræði.
Gunnar Guðni Tómasson forseti
tækni- og verfræðideildar Háskólans í
Reykjavík segir að Sigurjón hafi verið
einn af um 100 stundakennurum sem
ráðnir voru til starfa innan deildarinn-
ar síðasta vetur. „Hann kom og kenndi
þetta eina námskeið. Hann er því ekki
starfsmaður skólans og hefur ekki
verið,“ segir Gunnar. Aðspurður hvort
Sigurjón muni kenna þetta námskeið
aftur segir Gunnar að það sé ekki búið
að taka ákvörðun um það. „Við ákveð-
um það ekki með svona löngum fyrir-
vara,“ segir hann.
Fagleg ráðning
Gunnar segist ekki sjá neitt athuga-
vert við það að Sigurjón hafi verið
að kenna við Háskólann í Reykjavík.
„Hann er að kenna faglegar aðferð-
ir og annað í fjármálaverkfræði. Við
ráðum hann fyrst og fremst á fagleg-
um forsendum vegna þekkingar hans
og kunnáttu. Það er annarra stofnana
hlutverk en okkar að dæma um það
hvort hann hafi gert eitthvað af sér í
öðrum störfum,“ segir Gunnar.
Eins og DV greindi frá í gær lét
Sigurjón mágkonu sína leppa kaup
sín á Bens-bifreið af SP-Fjármögn-
un. Um var að ræða bifreið sem hann
hafði haft til umráða þegar hann
var bankastjóri Landsbankans fyrir
efnahagshrunið. Landsbankinn lét
SP Fjármögnun sjá um sölu á fimmt-
án lúxusbifreiðum sem stjórnendur
bankans höfðu haft afnot af. Tveim-
ur vikum eftir að mágkona Sigurjóns
hafði keypt bílinn af SP-Fjármögnun
var hann færður yfir á Kristrúnu Þor-
steinsdóttur, eiginkonu Sigurjóns.
Menntaður vélaverkfræðingur
Sigurjón Árnason lauk prófi í véla-
verkfræði frá Háskóla Íslands árið
1992. Hann stundaði framhalds-
nám í Bandaríkjunum og
Japan, þaðan sem hann
lauk
MBA-námi og
einnig í Þýskalandi
þar sem hann lagði
stund á nám í iðn-
aðarverkfræði. Að
loknu framhalds-
námi 1995 hóf
hann störf við Búnaðarbanka Íslands
og var framkvæmdastjóri rekstrar-
sviðs þegar hann var ráðinn til Lands-
banka Íslands sem banka-
stjóri árið 2003.
annaS SiGMundSSon
blaðamaður skrifar: as@dv.is
„Hann kom og kenndi
þetta eina námskeið. “
Fagleg ráðning Forseti tækni-
og verkfræðideildar Háskólans í
reykjavík segir að Sigurjón hafi verið
ráðinn vegna þekkingar og kunnáttu
hans í fjármálaverkfræði.
Bíll eiginkonunnar Sigurjón lét
mágkonu sína kaupa þennan bíl sem
síðan var færður á eiginkonuna.
Óvíst með framhaldið Ekki
liggur fyrir hvort Sigurjón
Árnason muni kenna aftur við
Háskólann í reykjavík.
Nethyl 2, sími 587-0600, www.tomstundahusid.is
Fjarstýrðir bensínbílar
í miklu úrvali.
Tillögur lagðar fram fyrir helgi um aukna skatta og niðurskurð:
Skattar og niðurskurður
Skattar og gjöld verða hækkuð um 10
milljarða króna til loka þessa árs. Jafn-
framt verður skorið niður um aðra tíu
milljarða króna og þannig leitast við
að mæta 20 milljarða króna viðbótar-
halla sem fyrirsjáanlegur er á ríkissjóði
á þessu ári. Frumvarp þessa efnis hef-
ur verið afgreitt til þingflokka stjórnar-
flokkanna og verður lagt fram á Alþingi
á morgun.
Tryggingagjald verður hækkað til
muna til þess að mæta útgjöldum úr at-
vinnuleysistryggingasjóði og ábyrgðar-
sjóði launa. Ráðgert er að hækkun þess-
ara launatengdu gjalda skili ríkissjóði
um 12 milljörðum króna á heilu ári.
Steingrímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra segir að skilningur ríki með-
al aðila vinnumarkaðarins á nauðsyn
þess að bregðast við til þess að koma í
veg fyrir að atvinnuleysistryggingsjóður
tæmist.
Ráðgert er að leggja 8 prósenta
hátekjuskatt á laun yfir 700 þús-
und krónum á mánuði. Þetta þýðir
24 þúsund króna meiri skattbyrði á
mánuði fyrir þá sem hafa eina millj-
ón króna í laun á mánuði. Áætlað er
að hátekjuskatturinn skili um tveim-
ur milljörðum í ríkissjóð á þessu ári
en fjórum milljörðum króna á heilu
ári. Þá er einnig lagt til að fjármagns-
tekjuskattur fari úr 10 prósentum í
15 prósent. Jóhanna Sigurðardótt-
ir forsætisráðherra segir að gert sé
ráð fyrir að fjármagnstekjur und-
ir ákveðnum mörkum verði undan-
þegnar hækkuninni. Allar skatta-
breytingar eiga að taka gildi um
næstu mánaðamót.
oddvitarnir Byrðarnar sem þjóðin
þarf að bera vegna bankahrunsins
færast nú sem óðast yfir á herðar
skattgreiðendanna, þjóðina sjálfa.