Dagblaðið Vísir - DV - 17.06.2009, Qupperneq 10
ÁTVR. Að baki því verði liggur inn-
kaupsverð ÁTVR á dósinni, 82 krón-
ur. Ofan á það bætist álagning ÁTVR
sem er 33 krónur og síðan skattar,
sem eru áfengisgjald, virðisauka-
skattur og skilagjald, alls 155 krón-
ur. Þegar viðskiptavinur kaupir bjór-
dósina svo í verslun fara 70 prósent
af verðinu beint til ríkisins. Kippa af
bjór á þessu verði kostar 1.620 krón-
ur í verslun og renna 1.134 krónur af
því til ríkisins í álagningu, skatta og
gjöld. Föst álagning vínbúðanna er
18 prósent og virðisaukaskatturinn
er 24,5 prósent.
Miðvikudagur 17. júní 200910 Neytendur
Skylda að
verðmerkja í
krónum
Neytendasamtökin benda á að
í ljósi umræðu um að seljend-
ur gefi í vaxandi mæli upp verð
í evrum er rétt að ítreka að skylt
er að gefa upp verð í íslenskum
krónum. Ábendingar um verð-
merkingar í evrum hafa borist
Neytendasamtökunum og snúa
þær flestar að ferðaþjónustuað-
ilum.
Neytendasamtökin benda á að
jafnvel þó skylda sé að gefa upp
verð í krónum megi seljendur
gefa upp verð í hvaða annarri
mynt sem er.
aSí Stendur
við Sitt
Alþýðusamband Íslands sendi
í gær frá sér yfirlýsingu vegna
ummæla forsvarsmanna Bónuss
þess efnis að verðlagseftirlit ASÍ
villi fyrir neytendum með því að
bera saman ólíkar vörutegundir
í könnun sinni. Er þar átt við að
appelsínusafi var 121 prósenti
dýrari í Bónus en í Krónunni. Í
yfirlýsingu ASÍ segir að ummæli
Bónuss-manna séu byggð á mis-
skilningi, þann dag sem könn-
unin var framkvæmd var lægsta
verð á hreinum appelsínusafa í
verslun Bónuss á Akureyri 219
krónur.
n Viðskiptavinur Select í
Öskjuhlíð keypti sér
grillpylsu með
beikoni. Aldrei þessu
vant kíkti viðskipta-
vinurinn á kvittunina,
þá kom í ljós að
knappar tvær matskeiðar af
kartöflusalati út á pylsuna,
kostuðu 125 krónur aukalega.
n Veitingastaðurinn Oliver fær lofið
fyrir nýjan og ferskan indverskan
matseðil. Þar má upplifa ekta
indverska matargerð, enda
kokkarnir indverskir. Oliver
hefur líka keypt sérstaka
matardiska til að bera
indverska matinn fram á. Þar
eru til dæmis engir
tveir diskar eins.
SEndið LOF Eða LaST Á nEYTEndur@dv.iS
Dísilolía
algengt verð verð á lítra 179,8 kr. verð á lítra 179,7 kr.
Skeifunni verð á lítra 173,3 kr. verð á lítra 174,2 kr.
algengt verð verð á lítra 179,8 kr. verð á lítra 179,7 kr.
bensín
Hveragerði verð á lítra 171,2 kr. verð á lítra 172 kr.
Selfossi verð á lítra 173,3 kr. verð á lítra 174,2 kr.
algengt verð verð á lítra 179,8 kr. verð á lítra 179,6 kr.
uMSjón: vaLgEir örn ragnarSSOn, valur@dv.is / neytendur@dv.is
el
d
sn
ey
t
i
Fosters-bjór í hálfs lítra áldós er
ódýrasti bjórinn sem seldur er í vín-
búðum ÁTVR, samkvæmt verðlista
yfir bjór sem birtur er á vefsíðu stofn-
unarinnar. Samkvæmt verðsaman-
burði DV á 38 bjórtegundum sem
seldar eru í hálfs lítra bjórdósum
með áfengisstyrkleika á bilinu 4 til 6
prósent er Egils Pilsner ódýrasti ís-
lenski bjórinn. Fosters er raunar eini
bjórinn sem er með 4 prósent áfeng-
isstyrkleika. Egils Pilsnerinn er með
4,5 prósent styrkleika, jafnmikið og
Viking Lager, sem er þriðji ódýrasti
bjórinn í vínbúðunum.
Fosters er í rauninni langódýrasti
hálfs lítra bjórinn í ríkinu. Hver dós
kostar 215 krónur, eða 1.290 krónur
kippan. Egils Pilsner kostar 237 krón-
ur og Viking Lager kostar 238 krónur.
Verð eftir styrkleika
Af þeim 38 bjórtegundum í hálfs lítra
dósum sem verðsamanburðurinn
nær til eru alls 18 tegundir sem kosta
undir 300 krónum. Helmingur þessa
bjórs er bruggaður hér á landi.
Flestar ódýrustu bjórtegundirn-
ar eru með lægri áfengisstyrkleika
en þeir dýrari. Þannig er breski bjór-
inn Carling, sem er með 4,1 prósents
styrkleika, fjórði ódýrasti bjórinn í
ríkinu. Faxe Premium, 4,6 prósent, er
fimmti ódýrasti bjórinn. Dýrasti hálfs
lítra áldósabjórinn í vínbúðunum er
hins vegar Krusovice Imperial sem
kostar 389 krónur dósin.
14 af 38 bjórtegundum eru í
flokknum 4 til 5 prósent áfengisstyrk-
leika. Hinar tegundirnar falla í 5 til 6
prósenta styrkleika. Langódýrasti
bjórinn í þeim flokki er Hollandia
sem kostar 259 krónur. DAB-bjórinn
er næstódýrasti bjórinn í þeim flokki,
á 279 krónur.
Sjötíu prósent í ríkissjóð
Til þess að átta sig á því hvað ræður
verðlagningu áfengis má taka dæmi
af hálfs lítra bjórdós sem er með fimm
prósent áfengisstyrkleika. Bjórdós-
in er seld á 270 krónur úr vínbúðum
Fosters er ódýrasti bjórinn í hálfs lítra dósum sem seldur er í ríkinu. Ódýrasti íslenski
bjórinn í sams konar umbúðum er hins vegar Egils Pilsner samkvæmt verðkönnun
DV á bjór í hálfs lítra dósum. Allt upp í sjötíu prósent af söluverði bjórdósar í vínbúð-
um renna beint til ríkisins í gegnum ýmis gjöld og skatta. Dýrasti íslenski bjórinn í
þessari stærð er Egils Maltbjór á 339 krónur stykkið.
ÓDÝRASTI BJÓRINN
ValGEIR ÖRN RaGNaRSSON
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Kippa af bjór á þessu
verði kostar 1.620
krónur í verslun og
renna 1.134 krónur af
því til ríkisins í álagn-
ingu, skatta og gjöld.
BJÓR í 5 TIl 6 pRÓSeNTA
STyRkleIkA
BJÓR í 4 TIl 5 pRÓSeNTA
STyRkleIkA
Fosters 4% 215 kr.
Egils Pilsner 4,5% 237 kr.
víking Lager 4,5% 238 kr.
Carling 4,1% 248 kr
Faxe Premium 4,6% 249 kr
Egils Lite 4,4% 264 kr.
víking Lite 4,4% 265 kr.
Tuborg grön 4,5% 269 kr
Polar Beer 4,7% 289 kr.
Carlsberg 4,5% 294 kr
Pilsner urquell 4,4% 319 kr.
San Miguel 4,5% 329 kr.
Beamish irish S. draught 4,3% 360 kr.
Murphy’s irish Stout 4% 380 kr.
Hollandia 5% 259 kr.
daB 5% 279 kr.
Bavaria 5% 289 kr
kronenbourg 1664 5% 291 kr
Egils gull 5% 295 kr.
Thule 5% 299 kr
Faxe amber 5% 299 kr
Faxe red 5% 299 kr
Faxe royal 5,6% 309 kr
Tuborg gold 5,5% 309 kr
Stella artois 5% 309 kr
Lech 5,2% 309 kr.
grolsch 5% 319 kr
Löwenbrau Original 5,2% 319 kr.
Pilsner urquell 4,4% 319 kr.
amstel 5% 320 kr
Budweiser Budvar 5% 320 kr
Egils Premium 5,7% 325 kr.
Heineken 5% 325 kr.
víking 5,6% 326 kr
Beck’s 5% 329 kr.
Zywiec 5,6% 336 kr.
Egils Maltbjór 5,6% 339 kr
Budweiser 5% 359 kr
krusovice imperial 5% 389 kr.
ÓdýRaStI íS-
lENSkI bjÓRINN
Egils Pilsner kostar
237 krónur.
ÓdýRaStI bjÓRINN
Fosters er ódýrasti
bjórinn í ríkinu. dósin
kostar 215 krónur.
ÓdýRaStI
bjÓRINN 5-6
pRÓSENt
Hollandia kostar
259 krónur.
í dýRaRI
kaNtINum
Heineken
kostar 325
krónur.
mEðalVERð
Thule kostar 299 krónur.
Vínbúð 174 krónu munur er á
dýrasta og ódýrasta bjórnum í
hálfs lítra dósum í ríkinu.