Dagblaðið Vísir - DV - 17.06.2009, Page 14
Miðvikudagur 17. júní 200914 íslandi allt
Tónlistarmaðurinn og alþýðuskáld-
ið Bjartmar Guðlaugsson hváði þeg-
ar hann var spurður um sitt besta og
versta sumarfrí.
„Öll mín sumarfrí hafa verið
ánægjuleg og slæmt sumarfrí er ekki
að finna í minni mínu,“ sagði Bjart-
mar. Bjartmar Guðlaugsson hefur ver-
ið eitt ástsælasta söngvaskáld íslensku
þjóðarinnar og því ekki að undra að
flest sumarfrí hans hafi tengst tónlist
með einum eða öðrum hætti. „Já, flest
frí sem ég hef tekið hafa verið vinnu-
tengd og nánast órjúfanleg regla að öll
fjölskyldan hefur verið með í för,“ segir
Bjartmar.
Í huga margra tengjast frí sumri og
sól, helst á erlendri grundu, sendinni
strönd og margarítum, en Bjartmar gef-
ur ekki mikið fyrir slíkt. „Sem góð sum-
arfrí get ég nefnt nánast allar útihátíðir
sem ég hef komið fram á, en þó sér-
staklega Þjóðhátíð í Eyjum. Að koma á
Þjóðhátíð í Eyjum er nánast eins og að
koma heim, öll fjölskyldan með í för og
jafnvel hluti af stórfjölskyldunni,“ segir
Bjartmar.
Eitt sumarfrí sem Bjartmar nefnir til
sögunnar átti sér þó stað fjarri Íslands
ströndu, en var engu að síður tengt tón-
list. „Árið 2008 fór ég í sumarfrí að vetri
til. Ég og María mín, Rúnar Júl og María
hans, Baldur bróðir Maríu og eiginkona
hans fórum til Jamaíka. Hvernig getur
slíkt frí verið annað en eftirminnilegt
og ferðin var, eins og Rúnar orðaði það
svo snyrtilega, „alger veisla fyrir heil-
ann“, hvort sem um var að ræða augu,
eyru eða önnur skynfæri.“
Sem fyrr segir man Bjartmar ekki
eftir slæmu sumarfríi í fljótu bragði.
„Mér líður alltaf vel þar sem ég er, hvort
sem um er að ræða frí eða ekki. Í hnot-
skurn má segja að öll mín frí hafi verið
skemmtileg, þó með ólíkum hætti sé,“
segir Bjartmar að lokum.
Fer aldrei í slæm sumarfrí
Öll frí Bjartmars Guðlaugssonar eru skemmtileg:
„Mitt uppáhald er að ríða Heklu-
brautina um Landsveit og fara þar í
Landsréttir og gista við Leirubakka.
Svo er tekið að ríða yfir að fossi og
meðfram Þríhyrningi, við Tumastað-
arskóg og ofan í Fljótshlíðina. Svo er
hægt að fara inn í Emstru, skammt
frá Þórsmörk,“ segir Fjölnir Þorgeirs-
son, hestamaður og ritstjóri Hesta-
frétta, þegar hann er spurður um sína
uppáhalds reiðleið. Fjölnir reynir að
ríða um Suðurlandið á hverju sumri
og tekur þá gjarnan eins mörg hross
með í ferðirnar og mögulegt er.
„Þetta eru þægilegar reiðleið-
ir, þarna er hægt að komast alveg út
úr stressinu, en þetta er ekkert langt
í burtu frá alfaraleið,“ segir hann.
Margar skemmtilegar reiðleiðar eru
um sveitina og segir Fjölnir það mjög
auðvelt að flétta inn frábærar dag-
leiðir í kringum svæðið.
100 hesta túrar
„Góð dagleið á þessu svæði er 35 til
40 kílómetrar á dag og þá er hugs-
að um það sem er best fyrir hross-
in. Þetta er hugsað sem þjálfunartúr,
þá tökum við allt að hundrað hesta
í túra, smölum okkur saman með
fimm til sex topphross. Þarna eru
moldargötur allt í kring og alveg frá-
bært að ríða um, “ segir hann.
Fjölnir mælir með að ef fólk ætl-
ar að taka 35 til 40 kílómetra dagleið
á þessum slóðum, þurfi það að hafa
þrjá til fjóra hesta. „Við reynum að
ríða ekki mikið meira en 7 til 10 kíló-
metra á hverjum hesti. Við reynum
að skipta frekar oft um. Maður byrj-
ar á sterkum hesti, því reksturinn fer
af stað af miklum krafti. Svo þegar fer
að líða á fara hestarnir að lesta sig
saman,“ segir hann.
Fjölnir segir að það eigi ekki að
vera of mikil fyrirstaða ef fólk hefur
ekki aðgang að svona mörgum hest-
um. Hann segir hestamenn oft vera
opna fyrir því að lána hesta sína, svo
lengi sem menn séu sæmilega vanir
reiðmenn.“
Langar í Löngufjörur
Auk þess að vera frábær skemmtun
í fallegri náttúru, segir Fjölnir langa
reiðtúra með marga hesta meðferðis,
gera mikið fyrir hrossin sjálf. „Við för-
um með tamningartrippi sem hlaupa
bara með í fyrstu og í lok þessarar
ferðar verða þau reiðfær hross sem þú
ert farinn að stýra,“ segir Fjölnir. „Það
er bara einhvern veginn geggjað að
ríða í þessari náttúru. Þarna er mikil
litadýrð og alveg frábært.“
Önnur leið sem Fjölnir stefnir á
að fara er að ríða um Löngufjörur á
Snæfellsnesi. „Það er draumur allra,
það er bara víst toppurinn, renni-
sléttur sandur, hægt að ríða í flæðar-
málinu og alveg geggjað.“
Fjölnir Þorgeirsson, ritstjóri Hestafrétta segir frábært að fara ríðandi um Heklubrautina
og Landsveit. Hann fer á hverju ári í þjálfunartúr með allt upp í 100 hross. Þar er slétt
lendi og algjörlega hægt að gleyma sér í litadýrðinni í íslenskri náttúru. Um það bil 35 til
40 kílómetrar eru farnir á dag og mælir Fjölnir með að reiðmenn hafi 4 hross með. „Þarna
er hægt að komast alveg út úr stressinu, en þetta er ekkert langt í burtu frá alfaraleið.“
„MoLdargötur
aLLt í kring“
Hugar að hestinum
Fjölnir Þorgeirsson er
mikill hestamaður
Reiðtúr „Við reynum að skipta frekar oft
um. Maður byrjar á strekum hesti, því
reksturinn fer af stað af miklum krafti.
Svo þegar fer að líða á fara hestarnir að
lesta sig saman,“
Bjartmar í vinnunni Flest frí
Bjartmars hafa verið vinnu-
tengd og öll góð.
norðurLand
Hvað þarftu að sjá? Kattaraugað
Hvar er það? Í Vatnsdal í Húnvatns-
sýslu
Hvers vegna verðurðu að sjá það?
Þetta er staður sem enginn veit um
en gaman fyrir fólk að sjá. Þarna
flýtur eyja á lítilli tjörn sem er bara
uppspretta af köldu vatni. Er líklega
einsdæmi á landinu.
austurLand
Hvað þarftu að sjá? Stórurð
Hvar er það? Vestan Dyrfjalla sem
liggja á milli Borgarfjarðar eystri og
Fljótsdalshéraðs.
Hvers vegna verðurðu að sjá
það? Þetta er ein af mögnuðustu
náttúruperlum Íslands. Þarna liggja
risavaxnir berghnullungar á víð
og dreif. Á milli þeirra og gróinna
grasbala rennur grænleit jökulá en
saman myndar þetta stórkostlegan
ævintýraheim.
VesturLand
Hvað þarftu að sjá? Surtshelli
Hvar er það? 14 km frá Húsafelli á
fjallvegi 578.
Hvers vegna verðurðu að sjá
það? Surtshellir er kunnasti hellir á
Íslandi, 1.310m langur. Hæð til lofts
í aðalhellinum er 8-10 metrar en í
vesturenda hans aðeins 2-4 metrar.
Mjög seinfarið er um hellinn því í
botni hans er víða stórgrýtt urð sem
fallið hefur úr þakinu.
reykjanes
Hvað þarftu að sjá? Reykjanesvita
Hvar er það? Yst á Reykjanesinu.
Hvers vegna verðurðu að sjá það?
Þetta er ævintýrastaður. Hann er
sérstaklega áhrifamikill og býður
upp á mikla fjölbreytni ásamt orku
og upplifun.
Verður
að sjá
staðir
sem þú