Dagblaðið Vísir - DV - 17.06.2009, Blaðsíða 16
Miðvikudagur 17. júní 200916 íslandi allt
Hamingjudagar á Hólmavík 3. - 5. júlí
www.strandabyggd.is/hamingjudagar
Landsmenn geta reynt sig við margvíslegar jaðaríþróttir þegar þeir fara í frí. DV kynnti sér valmöguleikana,
hvar þeir eru og hvað það kostar að reyna sig við brimbretti, flúðasiglingar og fallhlífarstökk svo dæmi séu
tekin.
Heimsklassaöldur
við Ísland
Ég vildi gera eitthvað nýtt og hringdi í frænda minn sem er einn af þeim sem hef-ur stundað íþróttina hér-
lendis. Hann sagði mér að nokkr-
um sinnum hefði verið reynt að
kynna brimbretti fyrir Íslendingum
og flytja inn búnað en ekki gengið
upp. Það er ástæðan fyrir því að við
fylgjum þessu alla leið, fyrst með
námskeiðum, þá búnaði og endum
á því að koma þeim sem hafa áhuga
í brimbrettahóp,“ segir Leifur Dam
Leifsson, einn þeirra sem standa að
baki surf.is sem býður upp á brim-
brettanámskeið.
Fyrir alla
Hann segir að þeir hafi fengið til sín
fólk á aldrinum 16 til 37 ára auk þess
sem kynjahlutfall hafi verið með
besta móti. „En í grunninn er þetta
fólk á aldrinum 20 til 25 ára. Margir
halda að þetta sé eitthvað „hardcore“
dæmi en það er að sjálfsögðu ekki
þannig,“ segir Leifur.
Dagsnámskeið hjá þeim kost-
ar 14.900 krónur og er þá innifal-
inn allur búnaður, kennsla og ferjun
fram og til baka. Yfirleitt eru um fjór-
ir saman á námskeiði og segir Leif-
ur að þeir vilji ekki hafa stærri hópa
til þess að geta sinnt fólki sem best.
„Ef fólk kaupir síðan brimbrettabún-
að gengur námskeiðsgjaldið upp í
þann kostnað,“ segir hann. Að sögn
Leifs kostar búnaðurinn sem til þarf í
kringum 130 til 140 þúsund krónur.
reykjanesið vinsælt
Aðspurður um hvar námskeiðin fara
fram segir Leifur að það sé aldrei
ákveðið fyrir fram. Það fari alfarið eft-
ir veðri. „Það er ákveðið kvöldið fyr-
ir brottför þegar kennararnir okkar
hafa lesið út besta mögulega sjólag á
hverjum stað fyrir sig. En valið stend-
ur þó yfirleitt alltaf á milli Sandvíkur
á Reykjanesi og Þorlákshafnar,“ segir
Leifur.
Ísland er að mati Leifs frábær stað-
ur fyrir brimbrettaiðkun. Hér skapist
oft heimsklassaöldur. „Staðsetning
landsins er þannig að nóg af lægð-
um gengur yfir landið sem skapar
góð skilyrði. Við Reykjanesið er nán-
ast alltaf hægt að fara á brimbretti því
lega hryggsins er þannig að hægt er
að velja um marga staði miðað við átt
og sjólag,“ segir hann að lokum.
Margir hentugir staðir Leifur Dam
Leifsson, einn aðstandenda
surf.is segir að Sandvík á Reykjanesi
og Þorlákshöfn henti vel til brim-
brettaiðkunar.
Ólafsfjörður Margir staðir eru hentugir fyrir brimbrettaiðkun á Íslandi. Hér er brimbrettakappi að leika sér við Ólafsfjörð.
Ævintýraferðir í Skagafirði hafa boðið
upp á flúðasiglingar síðastliðin fimmt-
án ár. Að sögn Magnúsar Sigmunds-
sonar, framkvæmdastjóra fyrirtækis-
ins, eru flúðasiglingar nú orðnar eitt
af aðalsmerkjum Skagafjarðar í ferða-
þjónustu. Hann segir að elsti gest-
urinn hingað til hafi verið 86 ára og
sá yngsti sex ára. Leiðsögumenn eru
bæði erlendir og íslenskir. Ævintýra-
ferðir bjóða upp á fjórar mismunandi
ferðir og kosta þær frá 6.500 krónum
og upp í 45 þúsund krónur.
Vestari Jökulsá þykir henta vel
fyrir byrjendur en líka fyrir lengra
komna því að sögn Magnúsar er auð-
velt að hækka spennustig ferðarinn-
ar. Á miðri leið niður ána er stoppað
við heitan hver þar sem boðið er upp
á heitt kakó blandað úr heita hvern-
um. Fullyrðir Magnús að þetta sé eina
flúðasiglingaá heimsins sem bjóði
upp á slíkan munað. Siglingin niður
Vestari Jökulsá tekur um þrjá til fjóra
tíma og er siglt um átta kílómetra leið.
Kostnaður er 6.500 krónur á mann.
Fyrir lengra komna er boðið upp á
siglingu niður Austari Jökulsá. Er hún
að sögn Magnúsar ein af bestu flúða-
siglingaám Evrópu. Boðið er upp á
tvær mismunandi ferðir niður Austari
Jökulsá. Fimm til sjö tíma ferð þar sem
sigldir eru um 17 kílómetrar. Kostar
hún 9.800 krónur. Síðan er boðið upp
á tveggja daga siglingu frá Laugarfelli
á Sprengisandi niður í byggð þar sem
sigldir eru um 50 kílómetrar og gist í
Laugarfelli og Hildarseli. Tveggja daga
ferðin kostar 45 þúsund krónur.
Vaxandi vinsældir
fallhlífarstökks
Á Íslandi er starfræktur einn
skóli sem kennir fallhlífarstökk
og er það Fallhlífastökkskóli
Íslands. Hjörtur Blöndal, for-
maður Fallhlífasambands Ís-
lands, segir að stakt stökk kosti
í dag 4.000 krónur. Þá er um
að ræða svokallað statik línu
stökk. Þá er stokkið úr um þrjú
til fjögur þúsund feta hæð. Lína
tengir fallhlífina við flugvélina
og um þremur sekúndum eftir
að þú sleppir takinu af flugvél-
inni opnast fallhlífin.
Á heimasíðunni jump.is
kemur fram að um 120 nem-
endur skrái sig að meðaltali á
námskeið á ári hjá Fallhlífa-
stökkskóla Íslands. Að sögn
Hjartar er oftast stokkið á
Sandskeiði og á Hellu. Auk þess
sé stundum stokkið á Akureyri
auk annarra staða þar sem fall-
hlífarstökkvarar eru fengnir til
að taka sýningarstökk.
Hjörtur segir að vinsældir
fallhlífarstökks hérlendis séu
vaxandi. Margir Íslendingar
fara í kennslu hérlendis. Líka
sé vinsælt að fara í þjálfun á eitt
stærsta stökksvæði í heimi sem
er í bænum Deland á Flórída.
Þar býr Íslendingur sem stjórn-
ar þar kennslumálum. Hafa
margir Íslendingar farið þang-
að til að læra fallhífarstökk.
Ævintýrafyrirtækið Arctic Rafting
býður upp á margvíslegar ferðir í
náttúrunni fyrir Íslendinga og út-
lendinga. Meðal annars flúðasigl-
ingar, kanóferðir, fjallgöngur, köfun,
hjólaferðir, ísklifur, fjórhjólaferðir og
svo mætti lengi telja. „Náttúran er
hið sanna ævintýri,“ er leiðarljós fyr-
irtækisins. Líka er boðið upp á venju-
legar klifurferðir. Að sögn Torfa G.
Yngvasonar, framkvæmdastjóra Arc-
tic Rafting, hafa Íslendingar ekki nýtt
sér mikið klifurferðirnar sem þeir
bjóða upp á. Þær hafi verið vinsælar
hjá skólahópum en flestir sem sæki
í þær séu þó útlendingar. Torfi segir
að klifurferðin sem þeir bjóða upp á
sé dagsferð og kostar hún 9.900 krón-
ur á mann. Um er að ræða klifurferð
sem farin er í Valshamar í Eilífsdal
sem er norðan megin við Esjuna.
náttúran Hið sanna ævintýri
Ein besta á Evrópu