Dagblaðið Vísir - DV - 17.06.2009, Síða 17
Miðvikudagur 17. júní 200918 íslandi allt
200
9
Dimmuborgir
í uppáhalDi
Ferð Herberts Guðmundssonar með Tilveru
árið 1972:
Eftirminnilegasta ferðalag Herberts
Guðmundssonar tónlistarmanns
hér innanlands er þegar hann fór í
Dimmuborgir í Mývatnssveit með
hljómsveitinni Tilveru árið 1972.
Tilgangur ferðarinnar var að spila
með Tilveru í félagsheimilinu Skjól-
brekku. „Við fórum og böðuðum
okkur í heitu vatni inni í helli sem
ekki er lengur hægt að baða sig í því
vatnið þar er orðið svo heitt. Svo var
bara svo fallegt þarna,“ segir Herbert
sem var aðeins rétt rúmlega tvítugur
þegar hann fór í ferðina en hafði þó
verið í mörgum öðrum hljómsveit-
um.
„Maður hafði aldrei komið þarna
áður og þetta greip mig strax. Þarna
er einstök náttúrufegurð,“ segir Her-
bert og bætir því við að þessi tími
í sveitinni með Tilveru hafi verið
mjög góður. „Þetta var alveg yndis-
leg ferð.“
Aðspurður segir Herbert að hann
hafi síðar farið oftsinnis í Mývatns-
sveitina og að enn betra sé að fara
þangað í dag en fyrir tæpum 30 árum.
„Það er enn betra að fara í Mývatns-
sveitina í dag. Það eru komin leirböð
þarna núna sem gaman er að fara
í. Ég skora á alla að fara í Mývatns-
sveitina og keyra í kringum vatnið,“
segir Herbert sem stefnir þó ekki að
því að skella sér í sveitina þetta sum-
arið líkt og svo oft áður.
ingi@dv.is
Flestir Íslendingar ætla að halda sig heima við í sumar enda nær ómögulegt að ferðast til útlanda. Fáir kvarta
þó vegna þess, því að á íslenskum blíðviðrisdögum er hvergi betra að vera en heima á Íslandi. Sól eða ekki,
það er alltaf hægt að gera daginn betri með því að skella sér í sund. DV tók saman lista yfir nokkrar sundlaug-
ar sem ferðalangar ættu ekki að láta framhjá sér fara í sumar.
skemmtilegar
sunDlaugar
SundlauGin á Suðureyri
Útsýnið til allra átta úr lauginni á Suðureyri er
stórbrotið. Pottarnir eru skemmtilegir og gufu-
baðið er gamall söluturn. Það er alltaf heitt á
könnunni og sundlaugargestir geta gætt sér á
nýlöguðu kaffi á meðan þeir spjalla í pottinum.
SundlauGin í HveraGerði (lauGaSkarði)Það er stutt að fara í þessa laug fyrir Reykvíkinga og auðvelt að gera sér glaðan dag í Hveragerði. Útlit sund-laugarinnar í Hveragerði er afar athyglisvert og minnir óneitanlega á art deco-byggingar í Miami. Potturinn þar er einnig einn sá skemmilegasti á landinu.
SundlauGin á Grenivík
Sundlaugin á Grenivík er afar
skemmtileg og á friðsælum stað.
Ekki er langt fyrir ferðalanga að
fara frá Akureyri og er því tilvalið
að skreppa þangað í bíltúr.
SundlauGin á StokkSeyri
Hún er lítil og sæt og afar hentug fyrir fólk með börn.
Það er frábært að skella sér í laugina í góðu veðri og
eins og í svo mörgun laugum er boðið upp á kaffi eða
djús í pottinn. Það gerist ekki mikið betra.
SundlauGin á ÞórSHöfn á lanGaneSi
Ein flottasta og íburðarmesta sundlaug landsins.
Hún er byggð fyrir fjölmenni í einu minnsta þorpi
landsins. Það er vel þess virði að kíkja í þessa laug.
SundlauGin í Hall-
ormSStaðarSkóGi
Sundlaugin í Hallormsstað-
arskógi er ein sú minnsta
á landinu en um leið sú
friðsælasta. Á góðum degi
er hvergi betra að vera.
SundlauGin á
akraneSi
Er gömul og góð með
heldur nýstárlegum
pottum sem flestir taka
aðeins tvo til þrjá í einu.
PatrekSfjörður
Sundlaugin á Patreks-
firði er ný og stórglæsi-
leg. Þar má finna frá-
bæra sólbaðsaðstöðu
með heitum pottum og
útsýni yfir fjörðinn.
SundlauGin við Svínafell í öræfumEinkarekin sundlaug með ágætispottum. Óhætt er að segja að sundlaugin sé frábær viðkomu-staður á hringveginum.
Skemmtilegur stíll
Sundlaugin í Lauga-
skarði í Hveragerði.
Sundlaugin í Hall-
ormsstaðarskógi
Dásamlegt að vera hér
í góðu veðri.
Sundlaugar íslands Eru
alveg sér á báti í heiminum.