Dagblaðið Vísir - DV - 17.06.2009, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 17. júní 200920 íslandi allt
HVAÐ ER AÐ GERAST
á Íslandi í sumar?
Íslendingar ættu ekki að eiga í vandræðum með að finna eitthvað við sitt hæfi í sumar. DV hefur tekið
saman lista yfir nokkrar hátíðir og skemmtanir sem fara fram á landinu þetta sumarið. Margt er í boði víðs
vegar um land, allt frá skipulögðum gönguferðum til rabarbarakasts.
JÓNSMESSUHÁTÍÐ
Dagsetning: 27. – 28. júní
Staðsetning: Eyrarbakki (29)
Lýsing: Jónsmessuhátíðin er haldin á Eyrarbakka
í kringum Jónsmessuna með tilheyrandi viðburð-
um og skemmtunum.
BRÚ TIL BORGAR
Dagsetning: 27. – 28. júní
Staðsetning: Borg í Grímsnesi (30)
Lýsing: Hollvinir Grímsness verða með hátíð á
Borg. Hressandi handverkssýning, búvélasýning
og bílasýning.
GOSLOKAHÁTÍÐ
Dagsetning: 3. – 5. júlí
Staðsetning: Vestmannaeyjar (31)
Lýsing: Nostalgíuhátíð fyrir fólk yfir fertugu. Menn
rifja upp hvað var gert í gosinu, tónleikar, böll,
myndalistarsýningar og margt fleira. Stórhátíð
einnig fyrir börnin á laugardeginum.
BRYGGJUHÁTÍÐ
Dagsetning: 17. – 20. júlí
Staðsetning: Stokkseyri (32)
Lýsing: Mikið fjör er á Stokkseyri þessa helgina
þar sem verður varðeldur og bryggjusöngur á
föstudagskvöldinu. Mánudaginn 20. júlí sem
er Þorláksmessa að sumri verður sameiginleg
skötuhátíð hrúta- og súluvina, verður þá borðuð
skata í tilefni dagsins.
FÆREYSKIR FJÖLSKYLDUDAGAR
Dagsetning: 31. júlí – 3. ágúst
Staðsetning: Stokkseyri (32)
Lýsing: Færeyskir fjölskyldudagar verða haldnir á
Stokkseyri í sumar um verslunarmannahelgina.
Fjölmargir listamenn munu skemmta svo öll
fjölskyldan ætti að finna sér eitthvað við sitt hæfi.
TRAKTORSTORFÆRA OG FURÐUBÁTAKEPPNI
Dagsetning: 31. júlí – 3. ágúst
Staðsetning: Flúðir – Hrunamannahreppi (33)
Lýsing: Traktorstorfæra og furðubátakeppni eru
fastir liðir um verslunarmannahelgina á Flúðum
þar sem öllum er velkomið að koma og taka þátt.
HARMONIKKUHÁTÍÐ Í ÁRNESI
Dagsetning: 31. júlí – 3. ágúst
Staðsetning: Árnes (34)
Lýsing: Félag harmonikkuunnenda verður með
sína árlegu harmonikkuhátíð í Árnesi. Dansleikir
öll kvöld, hljómsveitir, tónleikar, markaður og
fleira skemmtilegt.
ÞJÓÐHÁTÍÐ Í EYJUM
Dagsetning: 30. júlí – 3. ágúst
Staðsetning: Heimaey (31)
Lýsing: Þjóðhátíðin í Vestmannaeyjum er löngu
orðin þekkt fyrir taumlausa gleði og skemmtun.
Hún hefst með Húkkaraballinu á fimmtudeginum
og lýkur svo á mánudeginum.
SUMAR Á SELFOSSI
Dagsetning: 8. – 9. ágúst
Staðsetning: Selfoss (35)
Lýsing: Skemmtileg fjölskylduhátíð þar sem
von er á gestum frá Evrópu, sjálfboðaliðum á
vegum Veraldarvina, sem munu setja mark sitt á
bæjarlífið og samfélagið með salsa-uppákomum
og um leið aðstoða við hreinsun stranda og
verkefni tengd uppbyggingu í fuglafriðlandi.
KAMMERTÓNLEIKAR Á KIRKJUBÆJAR-
KLAUSTRI
Dagsetning: 7. – 9. ágúst
Staðsetning: Kirkjubæjarklaustur (36)
Lýsing: Margir frábærir tónlistarmenn spila
skemmtilega tónlist. Gestum er bent á að vinsælt
hefur verið að gista í nágrenni Kirkjubæjarklaust-
urs til að njóta þar tónlistar og náttúrufegurðar.
SUMARHÁTIÐ Á RANGÁRBÖKKUM VIÐ HELLU
Dagsetning: 13. – 16. ágúst
Staðsetning: Rangárbakkar við Hellu (37)
Lýsing: Hátíð fyrir alla fjölskylduna. Gengur út á
hestakeppnir, hefðbundnar og óhefðbundnar,
ratleiki og þrautir. Einnig verður sýning og
vörukynning á öllu mögulegu sem tengist
landbúnaði og ekki má gleyma skemmtunum
og böllum. Aðgangur að svæðinu kostar 3.000
krónur og gildir miðinn fyrir alla dagana. Ókeypis
verður fyrir börn 12 ára og yngri.
TÓNLISTARHÁTÍÐIN VIÐ DJÚPIÐ
Dagsetning: 18. – 23. júní
Staðsetning: Ísafjarðarbær (7)
Lýsing: Tónleikar og masterklassar heimsþekktra
tónlistarmanna. Aðalkennarar hátíðarinnar að
þessu sinni eru gítarleikarinn Pétur Jónasson
og píanóleikarinn Vovka Stefán Ashkenazy.
Sérstakur gestur er svo danska tónskáldið Bent
Sørensen.
FJÖLSKYLDUHÁTÍÐIN BÍLDUDALS GRÆNAR
Dagsetning: 25. – 28. júní
Staðsetning: Bíldudalur (8)
Lýsing: Skemmtileg fjölskylduhátíð þar sem
meðal annars eru tónleikar, golfmót, sjó-
stangaveiðimót, Skrímslasetrið, hoppukastalar,
leiksýningar, rækjuveisla á hafnarbakkanum,
langeldagrill og dorgveiðikeppni. Öll atriði eru í
umsjón heimamanna.
HAMINGJUDAGAR
Dagsetning: 2. – 5. júlí
Staðsetning: Hólmavík (9)
Lýsing: Bæjarhátíðin samanstendur af úti-
skemmtun, dansleik, tónleikum, gönguferðum,
furðuleikum Sauðfjárseturs á Ströndum og ýmissi
afþreyingu fyrir alla fjölskylduna.
DÝRAFJARÐARDAGAR
Dagsetning: 3. – 5. júlí
Staðsetning: Þingeyri (10)
Lýsing: Heillandi bæjarhátíð með víkingaþema
á söguslóðum Gísla Súrssonar. Þriggja daga
hátíðarhöld með alls kyns skemmtilegum
uppákomum fyrir alla fjölskylduna.
SÆLUHELGIN Á SUÐUREYRI
Dagsetning: 9. – 12. júlí
Staðsetning: Suðureyri við Súgandafjörð (11)
Lýsing: Ein elsta og skemmtilegasta bæjarhátíð
landsins er á Suðureyri við Súgandafjörð. Segja
má með sanni að Sæluhelgin sé þjóðhátíð
Súgfirðinga sem skemmta sér saman og taka vel
á móti gestum.
HESTAÞING STORMS
Dagsetning: 10. – 11. júlí
Staðsetning: Þingeyri (10)
Lýsing: Hestamannafélagið Stormur heldur sitt
árlega hestaþing þessa helgi. Gæðingakeppni,
kappreiðar, útreiðatúr, grill og fleira.
ÓSHLÍÐARHLAUP OG VESTURGATAN
Dagsetning: 17. – 19. júlí
Staðsetning: Bolungarvík og víðar (12)
Lýsing: Þessa helgi fara fram tvö af sérstæðustu
víðavangshlaupum landsins. Í Óshlíðarhlaupinu
er farið frá Bolungarvík til Ísafjarðar, um hina
alræmdu Óshlíð, og í Vesturgötunni er hlaupið
fyrir nesið milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar um
eina sérstökustu veglagningu síðustu aldar.
BRYGGJUHÁTÍÐ
Dagsetning: 18. júlí
Staðsetning: Drangsnes (9)
Lýsing: Bryggjuhátíðin hefst jafnan með dorg-
veiðikeppni yngstu kynslóðarinnar um morgun-
inn. Grillmeistarar hreppsins grilla svo grásleppu,
saltfisk, krabba og önnur sjávarskrímsli handa
gestum. Bryggjuhátíðin endar með varðeldi við
samkomuhúsið og dansleik fram á rauðanótt.
EVRÓPUMEISTARAMÓT Í MÝRARBOLTA
Dagsetning: 31. júlí – 2. ágúst
Staðsetning: Ísafjarðarbær (7)
Lýsing: Mýrarboltafélag Íslands heldur mót í
þessari áhorfendavænstu íþrótt í heimi. Ekkert er
jafn skemmtilegt og að horfa á fullfrískt fólk velta
sér eins og svín upp úr drullunni í Tungudal.
LEIKLISTARHÁTÍÐIN ACT ALONE
Dagsetning: 14. – 16. ágúst
Staðsetning: Ísafjarðarbær (7)
Lýsing: Einleikjahátíðin Act alone hefur verið
haldin á Ísafirði síðan 2004. Þar gefst gestum
kostur á að kynnast þessu sérstæða leikhúsformi
og er það eitt einkenni hátíðarinnar að ókeypis er
inn á allar sýningar.
REYKHÓLADAGURINN
Dagsetning: 29. ágúst
Staðsetning: Reykhólahreppur (13)
Lýsing: Þetta er eins konar uppskeruhátið
(hlunnindahátíð) með ýmsum uppákomum um
miðjan daginn og síðan veisla og skemmtun/
dansleikur um kvöldið. Frítt hefur verið inn á
Hlunnindasýninguna og í sundlaugina þennan
dag. Einnig verður sýning á forn-dráttarvélum og
áhugamannafélag um bátasafn Breiðafjarðar á
Reykhólum hefur sýnt sína báta.
SÓLSTÖÐUHÁTÍÐ OG FLEIRA
Dagsetning: 20. júní
Staðsetning: Borgarbyggð (3)
Lýsing: Skemmtileg hátíð þar sem verður meðal
annars Brákarhlaup með þrautum í boði. Þá verða
einnig víkingaleikar og margt fleira skemmtilegt
fyrir alla fjölskylduna.
ÍRSKIR DAGAR
Dagsetning: 4. – 7. júlí
Staðsetning: Akranes (4)
Lýsing: Ljóst er að Írskir dagar 2009 verða með
talsvert öðrum blæ en verið hefur á undanförn-
um árum, meira verður sótt til heimamanna um
þátttöku og skemmtilegheit og áhersla lögð á
hófstilltari umgjörð og heimatilbúin atriði. Gífur-
lega mikið um að vera í bænum þessa helgina.
ÓLAFSVÍKURVAKA
Dagsetning: 4. – 5. júlí
Staðsetning: Ólafsvík (5)
Lýsing: Ólsarar ætla að sameinast í bænum þessa
helgi og skemmta sér duglega. Allir bæjarbúar
leggjast á eitt til að gera dagana ógleymanlega
þar sem tónlistin verður hækkuð í botn og
dansinn dunar langt fram á nótt.
DANSKIR DAGAR
Dagsetning: 21. – 23 ágúst
Staðsetning: Stykkishólmur (6)
Lýsing: Danskir dagar í Stykkishólmi er hátíð fyrir
alla fjölskylduna. Gönguferðir, tónleikar, söfn og
gallerí og margt fleira sem allir hafa gaman af.
JÓNSMESSUGANGAN Á SELTJARNARNESI
Dagsetning: 24. júní
Staðsetning: Seltjarnarnes (1)
Lýsing: Jónsmessugangan á Seltjarnarnesi
verður tengd bókmenntum, að venju verður
sungið við bálköst og boðið upp á veitingar.
Bálið logar glatt með Gróttuna í baksýn á meðan
gestir syngja kröftuglega.
GAY PRIDE
Dagsetning: 7. – 9. ágúst
Staðsetning: Reykjavík (1)
Lýsing: Samkynhneigðir ganga niður Laugaveg-
inn með tilheyrandi flottheitum. Útitónleikar
verða í miðborginni þar sem margir þekktir
tónlistarmenn koma fram. Skyldumæting þar
sem miðbær Reykjavíkur lifnar allur við.
MENNINGARNÓTT
Svæði: Höfuðborgarsvæðið
Dagsetning: 22. ágúst
Staðsetning: Reykjavík (1)
Lýsing: Menningarnótt er stærsta hátíðin á
landinu yfir allt sumarið. Alls kyns listviðburðir
og menningarstarfsemi í gangi allan daginn.
Tónleikar og sýningar og svo mætti lengi telja.
Hátíð fyrir alla fjölskylduna.
Í TÚNINU HEIMA
Dagsetning: 28. – 30. ágúst
Staðsetning: Mosfellsbær (2)
Lýsing: Bæjarhátíð Mosfellsbæjar, Í túninu
heima, verður haldin þessa frábæru helgi. Margt
verður í boði fyrir alla aldurshópa. Nánar á
mos.is.
VESTfiRÐiR
SuÐuRlAnd
VESTuRlAndHöfuÐboRGARSVæÐiÐ
12
1
2
3
4
5
6
7
8
910
11
13
14
15
16
17
1819
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35 3637
38
39 40