Dagblaðið Vísir - DV - 17.06.2009, Blaðsíða 21
Miðvikudagur 17. júní 200922 íslandi allt
“Hugarþel”
Sögusetrið Hvolsvelli
Sögusetrið Hvolsvelli | The Saga Centre
Hlíðarvegi 14, 860 Hvolsvöllur
www.njala.is | njala@njala.is
Sími: 487-8781, 895-9160
Ný sýning opnar
í Gallerí Ormi
á Jónsmessunótt
Esjan
Það þarf ekki að leita langt yfir
skammt þegar ætlunin er að fara
tiltölulega létta fjallgöngu. Kostur-
inn við að ganga á Esjuna er sá að
þú getur í raun ráðið hversu erfið
gangan er. Hæsti punkturinn er í
914 metra hæð en algengast er að
gengið sé á Þverfellshorn. Marg-
ir láta sér það nægja að ganga að
Steininum svokallaða, sem er í 600
metra hæð. Efsti hluti fjallsins er
stórgrýttur og ekki á færi allra að
fara alla leið. Í góðu veðri er útsýnið
yfir höfuðborgarsvæðið frábært.
Göngutími: 2–4 klukkustundir.
skEssuhorn
Fjallið Skessuhorn í Borgarfirði er
fjall sem býður upp á tilkomumik-
ið útsýni. Hátindur Skessuhorns er
í 963 metra hæð en vinsælt er að
leggja upp frá bænum Horni. Byrj-
endum í fjallgöngu er þó bent á að
hafa reynslumeiri göngumenn með
þó að leiðin ætti að vera fær flestu
göngufólki. Í fjallgöngum er aldrei
of varlega farið. Eins og áður segir
býður hátindurinn upp á frábært
útsýni í góðu skyggni.
Göngutími: 4–5 klukkustundir.
ÚlfarsfEll
Úlfarsfellið er tilvalið fyrir þá sem
vilja fara í stutta og létta gönguferð
innan borgarmarkanna. Úlfarsfell-
ið er um það bil 270 metra hátt og
tilvalið fyrir þá sem eru að stíga sín
fyrstu spor í fjallgöngum. Eins og
flestum er kunnugt er keyrt fram
hjá Úlfarsfellinu þegar ferðinni er
heitið úr borginni í Mosfellsbæ.
Göngutími: 1–1½ klukkustund.
kEilir
Móbergsfjallið Keilir á Reykjanesi er
lítið en tilkomumikið fjall sem ber
nafn með rentu og sést víða; með-
al annars frá höfuðborgarsvæðinu.
Gönguleiðin þangað upp er tiltölu-
lega auðveld og hentar vel byrjend-
um sem og lengra komnum. Keilir
nær 379 metra hæð yfir sjávarmáli
fjölbrEyttar fjallgöngur
Í nágrenni við höfuðborgina eru fjölmargar fallegar gönguleiðir sem krefjast ekki mikillar fjallareynslu eða
mikils útbúnaðar. Fátt er sniðugra en að fara í stutta fjallgöngu á fallegu sumarkvöldi eða þegar tími gefst til
um helgar. Það þarf ekki að kosta mikið og hefur þann kost að þú brennir hitaeiningum í leiðinni.
í nágrenni Reykjavíkur