Dagblaðið Vísir - DV - 17.06.2009, Page 23
Miðvikudagur 17. júní 200924 íslandi allt
Á ferð um landið er nauðsynlegt að næra sig til að hafa orku til að
sjá alla þá dásemd sem landið hefur upp á að bjóða. DV kannaði
verð á ýmsu matarkyns á helstu áningarstöðum við þjóðveginn.
Við voginn á Djúpavogi er ódýrasti viðkomustaðurinn á meðan
dýrast er að næra sig á Akureyri og í Hreðavatnsskála.
Ódýrast er að fylla sig af mat og drykk á Við vog-inn á Djúpavogi sam-kvæmt verðkönnun
sem DV framkvæmdi á átta án-
ingarstöðum víðs vegar um land-
ið. Dýrast er hins vegar að nærast
í Leirunesti á Akureyri og í Hreða-
vatnsskála.
Við voginn býður ekki upp á til-
boð á stökum hamborgara, frönsk-
um og gosi heldur sérstakt fjöl-
skyldutilboð fyrir fjóra. Þá kostar
máltíðin á mann aðeins 930 krónur
en hamborgaratilboð eru yfirleitt á
verðbilinu 970 til 1050 krónur úti á
landi. Þau eru þó misjafnlega sam-
ansett. Þá kostar hamborgari og
franskar 995 krónur í Víkurskála á
meðan ostborgari, franskar og gos
úr vél með ábót kostar 970 krónur
í Staðarskála.
Pylsa með öllu, það er steikt-
um og hráum lauk og tilheyrandi
sósum, kostar yfirleitt það sama
hvar sem þú ert á ferð um landið,
eða 250 krónur. Hún er ódýrari á
Við voginn, kostar 240 krónur, og
dýrust í Leirunesti á Akureyri þar
sem hún kostar 260 krónur.
Talsverður munur er á hálfum
lítra af kóki í plasti. Kókið er áber-
andi ódýrast á Við voginn á Djúpa-
vogi og kostar 155 krónur. Dýrast er
það í Hreðavatnsskála. Þar er það
tæplega hundrað krónum dýrara
og þarf að greiða 250 krónur fyrir
hálfan lítra af drykknum vinsæla.
Litla kaffistofan, sem nokkr-
um sinnum hefur verið valin besta
vegasjoppa landsins, ber sigur úr
býtum þegar kemur að því að selja
ódýrasta Nizza-súkkulaðið. Það
kostar 150 krónur í Kaffistofunni
en það dýrasta er selt í Leirunesti á
Akureyri og kostar heilar 190 krón-
ur.
Þegar verð á lítilli fernu af kókó-
mjólk er athugað fer Við voginn
enn og aftur með sigur af hólmi.
Þar kostar fernan hundrað krón-
ur en sú dýrasta er á 130 krónur í
Hreðavatnsskála.
Þó að verðmunur á hinum ýmsu
vörum sé aðeins í tíköllum talinn
verður að hafa hið rótgróna orðtak
í huga: Margt smátt gerir eitt stórt.
liljakatrin@dv.is
Litla kaffistofan
Hamborgaratilboð: Ekki í boði.
Kókómjólk: 120 kr.
Pylsa með öllu: 250 kr.
Kók í plasti, ½ lítri: 200 kr.
Hreint Nizza-súkkulaði: 150 kr.
Vegamót
á Snæfellsnesi
Hamborgaratilboð: 980 kr.
Kókómjólk: 120 kr.
Pylsa með öllu: 250 kr.
Kók í plasti, ½ lítri: 200 kr.
Hreint Nizza-súkkulaði: 180
Staðarskáli
Ostborgari, franskar og gos úr
vél með ábót: 970 kr.
Kókómjólk: 109 kr.
Pylsa með öllu: 250 kr.
Kók í plasti, ½ lítri: 190 kr.
Hreint Nizza-súkkulaði: 155 kr.
Hreðavatnsskáli
Ostborgari, franskar og kokteil-
sósa: 990 kr.
Kókómjólk: 130 kr.
Pylsa með öllu: Ekki í boði.
Kók í plasti ½ lítri: 250 kr.
Hreint Nizza-súkkulaði: 180 kr.
Hlíðarendi
á Hvolsvelli
Hamborgaratilboð: 970 kr.
Kókómjólk: 109 kr.
Pylsa með öllu: 250 kr.
Kók í plasti, ½ lítri: 190 kr.
Hreint Nizza-súkkulaði: 155 kr.
Við voginn
á Djúpavogi
4 ostborgarar, 2 x kokteilsósa, 2
lítra kók, stór franskar: 3720 kr.
Kókómjólk: 100 kr.
Pylsa með öllu: 240 kr.
Kók í plasti, ½ lítri: 155 kr.
Hreint Nizza-súkkulaði: 174 kr.
Víkurskáli
Hamborgari og franskar: 995 kr.
Kókómjólk: 105 kr.
Pylsa með öllu: 250 kr.
Kók í plasti, ½ lítri: 190 kr.
Hreint Nizza-súkkulaði: 165 kr.
Leirunesti
á Akureyri
Hamborgaratilboð: 1050 kr.
Kókómjólk: 120 kr.
Pylsa með öllu: 260 kr.
Kók í plasti, ½ lítri: 220 kr.
Hreint Nizza-súkkulaði: 190 kr.
ÓDÝRAST Á
DJÚPAVOGI
Ódýrt súkkulaði Litla kaffistofan selur ódýrasta Nizza-súkkulaðið samkvæmt
verðkönnun DV.
Dýr hamborgari Hamborg-
ari, franskar og gos kosta
1050 krónur í Leirunesti á
Akureyri. myND Sigtryggur Ari
H
ér
að
sp
re
nt
H
ild
ur
H
lín
Jó
ns
dó
tt
ir
/ h
ild
ur
@
dv
.is
GISTING Í VOPNAFIRÐI
FERÐAÞJÓNUSTA BÆNDA
SYÐRI VÍK VOPNAFIRÐI
Upplýsingar gefur Kristín í síma: 473 1199 - GSM: 848 0641 - fax: 473 1449 -
holmi56@vortex.is
Tvö sumarhús, 4 og 8 manna, einnig sér hús með 6
tveggjamanna herbergjum og eldunaraðstöðu.
Gott aðgegi fyri fatlaða.
Uppbúin rúm og svefnpokapláss.
Veiðileyfi seld á silungarsævði í Hofsá
Nýr kostur í DV eru
þjónustuauglýsingar.
Það borgar sig að
auglýsa í DV!
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR
Hringdu í síma 515 5550
og byrjaðu strax í dag!