Dagblaðið Vísir - DV - 17.06.2009, Page 29
Miðvikudagur 17. júní 200930 Fréttir
Viðurkenna
sök sína
Bandarísku fréttakonurnar tvær,
Laura Ling og Euna Lee, sem
dæmdar voru til 12 ára fangels-
isvistar í Norður-Kóreu í síðustu
viku, hafa samkvæmt frétt ríkis-
fréttastofunnar KCNA viður-
kennt að hafa komið með ólög-
legum hætti inn í landið.
Samkvæmt fréttinni hafa
báðar konurnar „játað, og
meðtekið“ refsinguna og auk
þess viðurkenndu þær að hafa
með athöfnum sínum unnið að
„óhróðursaðgerð“ gegn mann-
réttindum í Norður-Kóreu.
Fréttir fréttastofunnar birtust
örfáum klukkustundum áður
en fyrirhugaður fundur Lees
Myung-bak, forseta Suður-Kór-
eu, og Baracks Obama átti að
hefjast.
Nýr listi
um mansal
Bandaríkin hafa bætt sex Afríku-
ríkjum á lista yfir lönd þar sem
mansal er stundað. Umrædd
lönd eru Tsjad, Erítrea, Níger,
Máritanía, Svasíland og Simb-
abve. Viðskiptaland Bandaríkj-
anna, Malasía, var einnig sett
aftur á listann. Listinn er hluti
árlegrar skýrslu þar sem gert er
átak í 173 löndum til að hamla
gegn mansali hvort sem er með
tilliti til þrælkunar, vændis, her-
þjónustu eða annars.
Katar, Óman, Alsír og Mold-
óva voru fjarlægð af listanum
Á meðal þeirra ríkja sem eru
á listanum eru bandalagsþjóðir
Bandaríkjanna, Sádí-Arabía og
Kúveit.
Borg úrillra
ökumanna
Samkvæmt nýrri bandarískri
könnun hefur New York-borg
skotið Miami aftur fyrir sig hvað
varðar geðslag bílstjóra.
Miami hefur undanfarin fjög-
ur ár haft vinninginn, ef vinning
skyldi kalla, en í könnuninni úr-
skurða þátttakendur frá 25 stór-
um borgarsamfélögum að bíl-
stjórar í New York séu reiðustu
og herskáustu bílstjórarnir sem
aki þétt upp við næsta bíl, aki
hratt, þeyti flauturnar, geri úlf-
alda úr mýflugu og missi stjórn á
skapi sínu.
New York er einnig í efsta
sæti hvað varðar vegabræði
vegna viðbragða ökumanna við
afleitum ökumönnum.
Imelda Marcos, fyrrverandi forsetafrú á Filippseyjum, hefur að eigin sögn þurft að þola
mikið harðræði. Ást hennar á skófatnaði komst í hámæli eftir að einræði eiginmanns
hennar leið undir lok árið 1986. Á meðal þess sem hald var lagt á voru skartgripir að
andvirði um 40 milljarða króna.
imelda heimtar
skartgripiNa
Það var aum Imelda Marcos sem
birtist almenningi í síðustu viku.
Þessi fyrrverandi forsetafrú Filipps-
eyja, og ekkja Ferdinands Marcos,
fyrrverandi einræðisherra eyjanna,
grét og lýsti því yfir að hún ætti ekki
til hnífs og skeiðar.
Imelda Marcos ætti að geta þurrk-
að tárin af hvarmi sínum og tekið
gleði sína aftur því á mánudaginn
lýsti ríkisstjórn Filippseyja því yfir
að Imelda gæti fengið til baka skart-
gripi sína sem voru haldlagðir fyr-
ir tuttugu og þremur árum. Imelda
Marcos er ekki þekkt fyrir hófsemi
og er skartgripaeign hennar engin
undantekning þar á. Áætlað verð-
mæti skartgripanna er 310 milljónir
bandaríkjadala, eða um 40 milljarðar
íslenskra króna.
Löglegur eigandi
Úrskurður ríkisstjórnarinnar hefur
vakið mikla reiði hjá hinum almenna
Filippseyingi, en ef að líkum lætur
verður Imelda Marcos ekki snortin af
almenningsáliti eða reiði sauðsvarts
almúgans.
Nokkuð ljóst má telja að undan-
farin ár hafi verið Imeldu Marcos erf-
ið. Marcos-fjölskyldan flúði Filipps-
eyjar árið 1986 og settist að í útlegð á
Havaí, eftir að stjórn Ferdinands var
velt úr sessi eftir fjögurra daga bylt-
ingu.
Sagan segir að við flóttann hafi
Imelda Marcos skilið eftir í höll fjöl-
skyldunnar 15 minkapelsa, 508 kjóla,
888 handtöskur og 1.060 skópör.
Forsendur úrskurðar ríkisstjórnar
Filippseyja fyrir því að Imelda sé rétt-
mætur eigandi skartgripanna eru að
ríkisstjórnin gleymdi að gera form-
lega kröfu til þeirra og sagði Raul
Gonzalez hjá dómsmálaráðuneytinu
að engar sannanir væru fyrir því að
skartið væri illa fengið. Sökum þessa
sofandaháttar yfirvalda á Filippseyj-
um getur Imelda Marcos nú komið
sér upp vænu skósafni á ný.
Áfall fyrir baráttu
gegn spillingu
Fyrir milligöngu talsmanns kom Im-
elda Marcos þeim upplýsingum á
framfæri á mánudag að stór hluti
skartgripanna hafi verið ætlaður til
skreytinga á trúarlegum myndum, til
dæmis, sem „höfuðdjásn fyrir bless-
aða Maríu mey“.
Mannréttindalögfræðingar sem
unnið hafa hörðum höndum við
að rannsaka eftirmál hinnar löngu
valdatíðar Marcos-fjölskyldunnar á
Filippseyjum hafa sagst munu gera
sitt ítrasta til að koma í veg fyrir að
skartgripunum verði skilað í hend-
ur Imeldu. Ákvörðun yfirvalda virkar
ekki aðeins sem vindur í segl Imeldu
Marcos heldur er einnig um að ræða
niðurlægjandi áfall fyrir þá stofnun
landsins sem barist hefur gegn spill-
ingu.
Táknmynd hömlu-
lauss einræðis
Helsta markmið sérstaks ráðs á veg-
um stjórnvalda Filippseyja er að
tryggja endurheimt milljarða banda-
ríkjadala sem talið er að hafi verið
stolið frá ríkinu í valdatíð Ferdinands
Marcos.
Umræddir skartgripir voru á með-
al eigna Marcos-fjölskyldunnar sem
hald var lagt á í kjölfar flótta hennar
frá Filippseyjum árið 1986. Sérstak-
lega var horft til rándýrs fatnaðar Im-
eldu og fylgihluta ýmiss konar sem
táknmyndar um það hömluleysi sem
einkenndi einræðisherrann og fjöl-
skyldu hans.
Græðgi forsenda gjafmildi
Og Imeldu Marcos vafðist ekki tunga
um tönn þegar bandaríska tímaritið
Newsweek tjáði henni að hún ætti
sæti á lista yfir gráðugasta fólk sög-
unnar, þar sem hún er í félagsskap
Genghis Khan og Bernards Madoff.
„Í mínum huga er græðgi það
sama og að gefa. Ég var forsetafrú
í tuttugu ár, til að geta gefið öllum
verður þú fyrst að vera gráðugur. Það
er eðlilegt,“ sagði Imelda við blaða-
menn.
Eftirlaunasjóður til bjargar
Á hátindi valdatíma eiginmanns
hennar, Fernandos, var Imelda tal-
in á meðal ríkustu kvenna heims en
nú hefur mikið vatn runnið til sjáv-
ar og forsetafrúin fyrrverandi kvart-
ar sáran yfir örbirgð sinni. Imelda
hefur verið ómyrk í máli um slæma
fjárhagsstöðu sína og gert mikið úr
því að hún hafi meira að segja þurft
að seilast í hereftirlaunasjóð eigin-
manns síns sáluga til að endar næðu
saman.
Cherry Cobarrubias, fyrrverandi
talsmaður Imeldu Marcos og stofn-
andi samtaka tryggðartrölla Marcos-
fjölskyldunnar, sagði að harðræði
forsetafrúarinnar fyrrverandi væri
þó ekki fjárhagslegt í bókstaflegum
skilningi. „Fyrst og fremst er um að
ræða tilfinningalegt harðræði vegna
hinna stöðugu ofsókna sem hún
verður fyrir,“ sagði Cobarrubias.
Líklegt verður að teljast að Imelda
Marcos geti tekið gleði sína aftur
þegar hún hefur fengið skartgripina
aftur og jafnvel farið að gefa öðrum
eins og henni er einni lagið.
„Í mínum huga er
græðgi það sama og að
gefa. Ég var forsetafrú
í tuttugu ár, til að geta
gefið öllum verður þú
fyrst að vera gráðugur.
Það er eðlilegt.“
KoLbEInn þorsTEInsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Imelda Marcos Hefur
sérstakar hugmyndir um
forsendur gjafmildi.
Úr skartgripasafni Imeldu Marcos
Stjórnvöldum Filippseyja láðist að gera
formlega kröfu til skartgripanna.
Kínverskur dómstóll sýknar þjónustustúlku af morði:
„Besta stúlkan í heiminum“
Alþýðudómstóllinn í Badong-sýslu
í Kína hefur sýknað þjónustustúlku
sem banaði embættismanni komm-
únistaflokksins þegar hann hugðist
þröngva henni til samræðis við hann.
Í þarlendu dagblaði segir að stúlkunni,
Deng Yujiao, verði ekki gert að sæta
refsingu því ljóst sé að hún hafi ban-
að manninum, Deng Guida, í sjálfs-
vörn. Yujiao var einnig talið til tekna að
hún gaf sig sjálfviljug fram við lögreglu
í kjölfar atviksins.
Fyrirfram var talið að ekki yrði beitt
silkihönskum gegn þjónustustúlk-
unni, en umfjöllun um málið í ríkisfjöl-
miðlum hefur verið afar rík af samúð í
hennar garð og á spjallrásum hefur
hún verið kölluð „besta stúlkan í heim-
inum“.
Vinsældir Deng Yujiao eru taldar
endurspegla útbreidda reiði almenn-
ings í Kína vegna misbeitingar valds
af hálfu háttsettra meðlima kommún-
istaflokksins, embættismanna og liðs-
manna öryggissveita.
Í kínverskum fjölmiðlum segir svo
frá að Deng Guida hafi komið að Yuji-
ao þar sem hún var í þvottahúsi hótels-
ins sem hún vinnur á, nokkrum hæð-
um neðar en barinn sem hún vann
á er. Þar krafðist Guida kynmaka við
hana.
Þegar Yujiao neitaði mun Guida
hafa þrýst henni niður í sófa og mein-
að henni brottför. Yujiao réðst gegn
Guida með ávaxtahníf sem hún hafði
í veski sínu.
Að sögn lögreglunnar réðst Yuji-
ao einnig gegn félaga Guida, Huang
Dezhi. Samkvæmt frétt hjá fréttastofu
Xinhua hafa Huang og annar opinber
embættismaður sem var á hótelinu
umrætt kvöld verið reknir og Huang
hefur einnig sætt varðhaldi.
Deng Yujiao naut samúðar í
kínverskum ríkisfjölmiðlum.