Dagblaðið Vísir - DV - 17.06.2009, Page 32
Miðvikudagur 17. júní 200933 Sport
Button spenntur fyrir silverstone Langstigahæsti ökumaðurinn í Formúlu 1,
Bretinn jenson Button, getur ekki beðið eftir því að aka á Silverstone-brautinni í heimalandinu
en þar fer næsta keppni fram á sunnudaginn. Hinn 29 ára gamli Breti hefur meira og minna verið
í aukahlutverki í Formúlunni þar til í ár en hann hefur nú unnið sex af fyrstu sjö keppnunum á
Brawn gP-bíl sínum. Hann hefur endað í sautjánda sæti eða neðar í sex af síðustu níu keppnum á
Silverstone en vonast nú til þess að fagna sigri á heimavelli. „Bretlandskappaksturinn er alltaf
frábær og ég get ekki beðið eftir því að keppa fyrir framan mitt fólk á sunnudaginn,“
segir jenson Button.
Uppgjör fyrsta þriðjungs Pepsi-
deildarinnar var tilkynnt í gær í
höfuðstöðvum KSÍ en veitt voru
verðlaun fyrir umferðir eitt til sjö.
Stjörnumenn áttu besta leikmann-
inn, Steinþór Frey Þorsteinsson,
sem hefur farið á kostum í byrjun
deildar en þá var Bjarni Jóhanns-
son, þjálfari Stjörnunnar, einnig
valinn besti þjálfari umferðanna.
Stjarnan hefur farið ótrúlega af stað
í byrjun Pepsi-deildarinnar en hún
er í öðru sæti með sextán stig eftir
umferðirnar sjö.
Steinþór var eðlilega í liði um-
ferðanna ásamt tveimur félögum
sínum, miðverðinum Daníel Laxdal
og markahróknum Arnari Má Björg-
vinssyni. FH-ingar sem tróna á toppi
deildarinnar áttu einnig þrjá menn í
liðinu, Keflavík tvo en KR, Breiða-
blik og Fylkir einn hvert. Besti dóm-
arinn var valinn Kristinn Jakobs-
son og þá voru stuðningsmenn KR
valdir bestir í umferðum 1-7 í Pepsi-
deild karla.
Úrvalslið umferða 1-7
markvörður: Lasse jörgensen (keflavík)
varnarmenn: guðmundur Sævarsson
(FH), alen Sutej (keflavík), daníel Laxdal
(Stjarnan), Hjörtur Logi valgarðsson (FH)
miðjumenn: atli guðnason (FH), jónas
guðni Sævarsson (kr), Steinþór Freyr
Þorsteinsson (Stjarnan), valur Fannar
gíslason (Fylkir)
sóknarmenn: arnar Már Björgvins-
son (Stjarnan), alfreð Finnbogason
(Breiðablik)
tomas@dv.is
Verðlaun fyrir umferðir 1-7:
steinþór og Bjarni Bestir
saha áfram
Franski framherjinn Loius Saha, sem
leikur með enska úrvalsdeildarliðinu
Everton, ætlar sér að vera áfram hjá
þeim bláu þrátt fyrir áhuga frá
Tyrklandi. Meistaraliðið þar, Besiktas,
vill fá framherjann sterka en Tyrkirnir
ætla að mæta með öfluga sveit til
leiks í meistaradeildinni á næsta
tímabili. Saha hefur leikið í
meistaradeildinni með Manchester
united en hann vill vera áfram hjá
Everton því honum finnst hann
skulda félaginu. „Ég vil borga david
Moyes til baka fyrir að taka áhættu
með að fá mig. nema hann vilji mig
auðvitað ekki. annars fer ég ekki
neitt,“ segir Loius Saha.
adriano týndur
Brasilíska knattspyrnuliðið Flamengo
sem partíljónið adriano leikur með
lenti heldur betur í hrakförum í ferð
sinni til Coritiba. Ekki nóg með að
hafa tapað leiknum skammarlega, 5-
0, varð enn meira vesen þegar liðið
kom aftur á flugvöllinn heimafyrir.
Þegar töskur liðsmanna voru sóttar
komust þeir að því að það hafði verið
farið í farangurinn þeirra, þá
sérstaklega töskuna sem geymir alla
búningana og var búið að eiga við
þá. Ekki nóg með að nokkra búninga
vantaði heldur var adriano einnig
horfinn og vissi enginn hvert hann
hafði farið. væntanlega á barinn en
ekki fylgdi í fréttum frá Brasilíu hvort
hann hefði fundist þar.
uMSjón: TóMaS Þór ÞórðarSon, tomas@dv.is
frábær Steinþór Freyr hefur farið
frábærlega af stað með Stjörnunni.
mynd Bragi Þór Jósefsson
Fyrsti opinberi mótsleikur milli liðanna í vesturhluta Reykjavíkur, KR og Gróttu, fer fram
á fimmtudaginn á heimavelli Gróttu en liðin mætast þá í 32 liða úrslitum VISA-bikarsins.
Fjórtán leikmenn úr hópi Gróttu hafa með einum eða öðrum hætti komið við í KR, þar af
eru tveir Íslandsmeistarar með KR í liðinu, Kristján finnbogason og sigurvin ólafsson.
„Það er helst þessi leikur og að
bæjarstjórinn sé hættur,“ segir Ás-
mundur Guðni Haraldsson, þjálf-
ari 2. deildar liðs Gróttu, kátur í
bragði aðspurður hvort það sé eitt-
hvað talað um annað á Seltjarnar-
nesi þessa dagana en leik Gróttu
og KR í VISA-bikarnum sem fer
fram á fimmtudagskvöldið. Þetta
er í fyrsta skiptið sem liðin mætast
í alvöru leik á vegum KSÍ.
„Ég sjálfur sé nú ekki mikið á
daginn nema fótboltavöllinn og
Hagkaup á kvöldin en fólk sem ég
hitti og þekki talar bara um þenn-
an leik,“ segir Ásmundur sem er
einnig íþróttastjóri Gróttu. Hann
lék sjálfur á sínum tíma með KR og
á tvö silfur með liðinu frá Íslands-
móti. „Það er mikil stemning okk-
ar megin og við ætlum að reyna að
gera þennan leik að miklum við-
burði,“ segir Ásmundur.
Kr má ekki tapa
Ásmundur er sjálfur uppalinn KR-
ingur og þekkir hvern krók og kima
í svarta og hvíta hluta Vesturbæj-
arins. Hann veit alveg að sigur er
ekki einungis skylda hjá KR-ingum
til þess að komast áfram heldur sé
miklu meira undir í leiknum. „Þótt
það séu bara nokkur hundruð
metrar á milli félaganna er himinn
og haf á milli þeirra hvað varðar
árangur, virðingu og sögulega séð.
Ég veit það alveg að ef það er ein-
hver leikur sem KR má ekki tapa
að þeirra mati er það gegn Gróttu,“
segir Ásmundur og heldur áfram.
„Ég man vel þegar KR-ingar
töpuðu gegn Tindastóli í bikarn-
um fyrir mörgum árum og hvort
þeir töpuðu ekki fyrir Völsungi
líka. Ef þetta KR-lið í dag tapar
hér á Nesinu verður það stimpl-
að í sögubækurnar um aldir alda.
KR hefur öllu að tapa. Og ekki bara
leiknum eða sæti í 16 liða úrslit-
um. Tapi þeir gegn okkur færist
montrétturinn yfir á Seltjarnarn-
arnesið um ókomin ár því guð má
vita hvenær þessi lið mætast aftur,“
segir Ásmundur.
ekki eins og hver
annar leikur
Í liði Gróttu, sem er sem stendur í
2. sæti annarrar deildar, má finna
tvær miklar kempur. Kristján Finn-
bogason og Sigurvin Ólafsson sem
báðir hafa orðið Íslandsmeistarar
með KR. Fleiri menn með ágætis
reynslu má finna hjá Gróttu sem er
langbest skipaða lið 2. deildar. Svo
sem Árna Inga Pjetursson, Sölva
Davíðsson og Ásmund sjálfan. En
í Gróttu má einnig finna urmul
reynsluminni manna.
„Þessir reynslumeiri hjálpa
mikið til en við reynum að undir-
búa okkur eins og við getum. Það
er ekkert hægt að segja að við för-
um í þetta eins og hvern annan
leik því þetta er klárlega ekki eins
og hver annar leikur. Því má búast
við að einhverjir verði yfirspennt-
ir en við reynum að stýra því eins
og við getum,“ segir Ásmundur og
bætir við: „Við ætlum samt að sjálf-
sögðu að gera þeim lífið leitt. Þeir
koma ekki hingað með kassann út
í loftið og taka þetta með vinstri.“
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
„KR hefuR öllu að tapa“
Þrír Kr-ingar á nesinu Sölvi davíðsson
á tugi leikja fyrir kr í efstu deild, Ásmundur
þjálfari hefur tvívegis orðið í öðru sæti
með kr og þá hefur kristján Finnbogason
hampað íslandsmeistaratitlum með kr.
mynd róBerT reynisson