Dagblaðið Vísir - DV - 17.06.2009, Side 36
Miðvikudagur 17. júní 2009 37Fókus
á miðvikudegi
Heiðrar pabba
Í dag opnar rithöfundurinn Óttar M. Norðfjörð sýninguna Arkitekt-
inn með alpahúfuna. Sýningin er unnin upp úr úrklippum sem Óttar
notaði við gerð samnefndrar bókar sem hann gerði til minningar um
föður sinn, Sverri Norðfjörð. 17.júní er afmælisdagur Sverris en hann
lést á þeim degi fyrir nákvæmlega ári. Sýningin er haldin í Grófinni 1 í
miðbæ Reykjavíkur.
VíkingaHeimar
opnaðir
Safnið Víkingaheimar og skáli skips-
ins Íslendings verða formlega opn-
uð í dag í Reykjanesbæ. Opnunin
er klukkan 17.00 en á safninu er að
finna fornminjar frá Íslandi, Noregi,
Svíþjóð, Englandi, Færeyjum, Græn-
landi og fleiri stöðum. Í dag eru
liðin nákvæmlega níu ár frá því að
Gunnar Marel Eggertsson og áhöfn
Íslendings lögðu upp í tímamóta-
siglingu til Ameríku til að minnast
landafunda norrænna manna í álf-
unni. Meðal sýningargripa eru vopn
víkinga sem grafin voru upp í Sví-
þjóð og eru talin vera frá því í kring-
um árið 800.
Hugmynda- og
tengslasmíð
Þýski hugmynda- og tengsla-
smiðurinn Christopher Patrick
Peterka heldur fyrirlestur í Hafn-
arhúsinu fimmtudaginn 18. júní
klukkan 20. Peterka er stofnandi
og framkvæmdastjóri hugmynda-
versins Gannaca sem er með að-
setur í Köln, New York og Sjang-
hæ. Fyrirlesturinn er skipulagður
af Hönnunarmiðstöð Íslands í
samstarfi við Nýsköpunarmið-
stöð Íslands, Visit Iceland-sjóð
utanríkisráðuneytis og Útflutn-
ingsráðs og Listasafn Reykjavík-
ur. Hann fer fram á ensku og er
öllum opinn.
Á fund fjallkon-
unnar
Bergsveinn Birgisson ætlar að gefa
út skáldfræðisöguna Handbók um
hugarfar kúa á þjóðhátíðardegi Ís-
lendinga. Bergsveinn ætlar að af-
henda sjálfri Fjallkonunni fyrsta ein-
takið af bókinni í Alþingisgarðinum
í hádeginu. Að því loknu verður efnt
til útgáfuhátíðar vegna bókarinnar í
Austurstræti. Handbók um hugarfar
kúa er önnur skáldsaga Bergsveins
Birgissonar, en árið 2003 kom út hjá
Bjarti skáldsagan Landslag er aldrei
asnalegt og var hún tilnefnd til Ís-
lensku bókmenntaverðlaunanna.
Sue Claussen (Jennifer Aniston)
ferðast víða og selur fyrirtækjum
fjöldaframleidd málverk. Í einum
slíkum leiðangri gistir hún á fjöl-
skyldureknu gistiheimili og kynnist
Mike (Steve Zahn) sem er fullorð-
ið einkabarn fjölskyldunnar. Hann
lætur hana ekki í friði þrátt fyrir ít-
rekaðar tilraunir hennar og að lok-
um myndast örlítil tenging sem
Mike ýkir í huga sér. Hann eltir hana
út um allt meðal annars heim til
kærasta hennar (Woody Harrelson)
við litlar vinsældir. Myndin er sund-
urlaus og veit ekki um hvað hún á
að vera, hann, fjölskylduna, ástina
eða eitthvað enn annað? Handrit-
ið er illa skrifað og það er lítið bita-
stætt í samræðunum. Dramatíkin er
léttvæg og ekkert er að gerast. Kar-
akterarnir eru óspennandi og það
er jafnvel einhver sjarmi yfir því
hversu vonlausir þeir eru. Myndin
skartar nokkrum fyndnum brönd-
urum meðal annars með kínverska
vini hans en nær ekki tíu brand-
ara markinu. Það tekst ekki einu
sinni að gera danssenuna fyndna.
Óskemmtilegheitin eru svo þrúg-
andi að þetta minnir á hryllings-
mynd því þig langar alls ekki að vera
þarna frekar en í Sög 3. En maður
beið eftir því að Woody Harrelson
mætti og berði Mike fyrir að naðrast
í gellunni heima hjá honum og til að
refsa honum fyrir vont fyrirhlé. En,
nei, nei, einu Woody-atriðin voru
eftir hlé, voru örfá og öllum rúnkað
í stiklunni fyrir myndina. En Woody
var fínn í þessar örfáu mínútur sem
við fengum með honum. Það er
einhver sparnaður þarna á ferð sem
jaðrar við vörusvik. Svo þarna situr
maður á allt of notalegri mynd og
veit að hún endar með ógeðslegu
lagi. Rómantísk gamanmynd með
Jennifer Aniston? Gat maður ekki
sjálfum sér um kennt? Þetta er kell-
ingamynd þar sem þú sendir kell-
inguna eina án þess að splæsa.
Erpur Eyvindarson
vörusvik
Fjórir félagar ranka við sér eftir
steggjapartí fyrir vin sinn í Las Vegas.
Alls ekkert er eins og það á að vera.
Alvarlegir líkamlegir áverkar, svæs-
in þynnka, algjört minnisleysi, þeir
sitja uppi með tígrísdýr og barn inni
á herberginu sem er allt í rúst og það
sem verra er, þeir finna ekki brúð-
gumann. Nú hefst mikil leit að hon-
um og atburðum gærdagsins sem eru
svo sannarlega ekki hversdags. Hug-
myndin er góð. Einföld og góð.
Flestir þekkja þær aðstæður að
vakna og muna lítið annað en að þú
hafir gert einhvern djöfulinn af þér.
Fólk getur auðveldlega tengt við það
þótt maður voni að það sé ekki al-
gengt að fólk lendi í öðru eins rugli
og söguhetjur Hangover. Partítónlist
tengir atriðin í upphafi en skyndi-
lega er ekkert partí lengur heldur bara
bráðfyndið og fálmkennt úrræðaleysi
þeirra félaga.
Það er Todd Phillips sem leikstýrir
myndinni en hann á nokkrar góðar að
baki. Þar ber helst að nefna myndirn-
ar Road Trip, Starsky & Hutch og hina
vanmetnu og drepfyndnu Old School.
Í Old School gerði Will Farrell meðal
annars persónu hins tæpa Frank The
Tank ódauðlega.
Þó Hangover slái ekki Old School
við er myndin er fyndin í gegn. En al-
mennt ekki öskrandi spaugileg samt.
Hún er hvað fyndnust í aðli sínum að
vera með óvenjulega gróft grín sem
kemur manni frábærlega á óvart. Nak-
inn gamall maður er fyndið. Hvernig
þeir fíflast í smábarninu og skella hurð
á það óvart er á einhvern undarlegan
hátt alveg bráðfyndið. Las Vegas-lög-
reglan er góð þar sem hún birtist sem
ofbeldissjúkir geðsjúklingar og Mike
Tyson fer á kostum. Kínamaður sem
er alveg þrælvondur í ensku er síðan
klisjukennt grín sem virkar engu að
síður alltaf frábærlega.
Bradley Cooper, Ed Helms og Zach
Galifianakis fara með aðalhlutverkin í
myndinni og skila sínu nokkuð vel.
Ed Helms er sterkur sem hinn kúgaði
Stu enda hefur hann góða reynslu af
því að leika svipaðan aula í amerísku
útgáfunni af The Office. Bestur er þó
hinn smávaxni Alan sem er leikinn af
Galifianakis. Hann óþægilega undar-
legur og meira en lítið pervertískur á
köflum. Þá þekkir hann hinar persón-
ur ferðarinnar engan veginn nógu vel
til að láta eins og hann gerir. Sem er
auðvitað mjög fyndið.
Eitt það besta er síðan myndir af
kvöldinu góða sem birtast í öllu sínu
skítuga veldi. Mestallt það fyndnasta
er í treilernum sem var sýndur frekar
mikið og ef til vill gæti það pirrað ein-
hvern. En svo virðist sem myndin lifi
algjörlega upp í væntingar flestra og er
prýðileg afþreying með vænni slettu
af hrottagríni. Þetta eru 5 aura brand-
arar fyrir allan peninginn og hann er í
milljörðum eins og flest í Vegas.
Erpur Eyvindarson
Hangover
Leikstjóri: Todd Phillips
Aðalhlutverk: Bradley Cooper, Ed
Helms, Zach galifianakis, justin Bartha
kvikmyndir
Á Haaalanum
Ed Helms upprenn-
andi gamanleikari.
The Hangover „nakinn
gamall maður er fyndið.“
Management „Þetta er
kellingamynd þar sem
þú sendir kellinguna
eina án þess að splæsa.“
ManageMent
Leikstjóri: Stephen Belber
Aðalhlutverk: jennifer aniston, Steve
Zahn
kvikmyndir