Dagblaðið Vísir - DV - 17.06.2009, Qupperneq 37
Miðvikudagur 17. júní 200938 Fólkið
Greint var frá því á vef Monit-
ors að Þröstur Jónsson, sem er
einna þekktastur undir viður-
nefninu bassafanturinn, sé á
togaranum Barða NK frá Norð-
firði. Bassafanturinn hefur sinnt
ýmsum störfum síðan hann
hætti í hljómsveitinni Mín-
us fyrir tveimur árum og hefur
hann meðal annars unnið sem
dyravörður á ölstofum bæjarins.
Æskuvinur Þrastar, Eskfirðing-
urinn Helgi Seljan, hefur einng
komið víða við á starfsferli sín-
um. Og það var einmitt síðasta
sumar sem sjónvarpsstjarnan
hélt út á sjó og tók túr á fjölveiði-
skipinu Aðalsteini Jónssyni SU
frá Eskifirði.
VERÐA SYSTUR
Smíði leikmyndar stórmyndar-
innar Víkingr sem Baltasar Kor-
mákur leikstýrir er nú í fullum
gangi þrátt fyrir að tökur á mynd-
inni hefjist ekki fyrr en næsta vor.
Gömlu kartöflugeymslunum í Ár-
túnsbrekku hefur verið breytt í
smíðaverkstæði en þar hefur mátt
sjá turna og önnur mannvirki sem
ætluð eru í leikmyndina sem er á
Suðausturlandi skammt frá Höfn
í Hornafirði.
Þar verður meðal annars smíð-
að víkingaþorp mikið sem er á bil-
inu 600 til 700 fermetrar. Ástæða
þess að leikmyndin er smíðuð
með svo miklum fyrirvara er að
hún fái tíma til þess að veðrast í
íslenskri náttúru. Tökur í sjálfu
þorpinu munu sennilega ekki
hefjast fyrr en næsta sumar og
fær því þorpið nægan tíma til að
aðlagast náttúrunni sem er kraft-
meiri og hraðari hér en á flestum
öðrum stöðum í heiminum.
Það er True North sem hefur
umsjón með framleiðslu mynd-
arinnar hér á landi en það er
gamla handboltabrýnið Finni Jó-
hannsson sem hefur yfirumsjón
með leikmyndasmíðinni. Útlits-
hönnuður Víkingr er Karl Júlí-
usson en hann hefur unnið að
myndum allt frá Stellu í orlofi til
K-19: The Widowmaker og nú síð-
ast hrollvekju Lars Von Trier Ant-
ichrist með Willem Dafoe í aðal-
hlutverki.
asgeir@dv.is
RiSAVíkingAþoRp RíS
SjóAÐiR
félAgAR
Leikmyndasmíð fyrir Víkingr í fuLLum gangi:
Jóhanna Sigurðardóttir og Jóhanna guðrún JónSdóttir:
Ásdís Rán Gunnarsdóttir, glam-
úrfyrirsæta og athafnakona,
lýsir því yfir á bloggi sínu að hið
margumtalaða Maxim-tímarit
komi út í dag í Búlgaríu en eins
og fram hefur komið áður mun
Ásdís prýða forsíðuna og flottan
myndaþátt inni í blaðinu. Ásdís
kallar þetta „stóran áfanga“, enda
er tímaritið Maxim eitt þekktasta
karlatímarit í heimi. Ásdís ætlar
að birta nokkur sýnishorn úr
blaðinu á aðdáendasíðu sinni á
Facebook og geta þeir sem eiga
mánaðaráskrift að Icelandicbea-
uty.com skoðað allar myndirnar
í heild sinni. Ásdís hefur einnig
lofað því að senda nokkrum að-
dáendum sínum á Íslandi árituð
eintök.
STóR
áfAngi
Gömlu kartöflugeymslurnar
Eru nú orðnar að smíðaverkstæði fyrir myndina víkingr.
Það er ekki til sú manneskja á íslandi sem ekki veit hverjar Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra og Jóhanna Guðrún Jónsdóttir eurovision-stjarna eru. nöfnurnar,
sem eiga ekki margt sameiginlegt, gerðust í dag systur á vegum unifem, þróunar-
sjóðs sameinuðu þjóðanna í þágu kvenna.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra og Eurovision-stjarnan Jó-
hanna Guðrún Jónsdóttir eiga án
efa ekki mikið sameiginlegt fyrir
utan nafnið. En þrátt fyrir það hittust
stöllurnar í gær í tilefni af söfnunar-
átakinu Systralag á vegum UNIFEM,
þróunarsjóðs Sameinuðu þjóðanna
í þágu kvenna. Þessar frægustu Jó-
hönnur landsins hittust fyrir þetta
verðuga verkefni og spjölluðu saman
í dágóða stund við athöfnina og virt-
ist fara vel á með þeim á meðan þær
skrifuðu undir styrktarsamkomulag
um mánaðarleg framlög. Forsætis-
ráðherra spurði söngkonuna efni-
legu hvort frami hennar hefði breyst
eitthvað eftir Eurovision-velgengn-
ina.
Átakið Systralag stendur yfir um
þessar mundir og er megintilgang-
ur átaksins að fjölga mánaðarlegum
styrktaraðilum UNIFEM á Íslandi.
Mikið var um að vera í miðstöð Sam-
einuðu þjóðanna við Laugaveg og
snerist allt um Systralagið. Söngkon-
an Elín Eyþórsdóttir kom fram ásamt
systrum sínum og var við hæfi að
þær sungu lagið Sister. Einnig steig
hin unga og efnilega systrasveit Pas-
cal Pinon á svið.
Þess má geta að alþjóðleg ráð-
stefna um konur, frið og öryggi fer
fram um helgina hérna á Íslandi og
mun yfirkona UNIFEM í Afganistan,
Wenny Kusuma, tala á ráðstefnunni.
jóHÖnnUR
Systur fyrir verðugt
málefni jóhanna Sigurðar-
dóttir og jóhanna guðrún
jónsdóttir gerast systur.
Spjalla saman Forsætisráðherra og Euro-
vision-stjarnan spjalla við formann uniFEM.
Forsætisráðherra spurði meðal annars út í
frama söngkonunnar ungu.
Heita að styrkja
Frægustu jóhönnur
landsins heita því
að styrkja uniFEM
með mánaðarleg-
um greiðslum.