Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Blaðsíða 8
föstudagur 26. júní 20098 Fréttir
HINIR RÍKU VERÐA FÁTÆKARI
Síðasta ár var auðugasta fólki heims þungt í skauti. Auður þess minnkaði um tuttugu prósent og verulegt
skarð var höggvið í raðir þess því auðmönnum fækkaði um tæp fimmtán prósent. Þýskaland getur vel við
unað en sömu sögu er ekki að segja um kínverska sjálfstjórnarsvæðið Hong Kong.
Síðan fjármálakreppan skall á heims-
byggðinni á síðasta ári hafa hinir rík-
ustu í heiminum tapað einum fimmta
hluta auðæfa sinna og þeim sem áttu
meira en eina milljón bandaríkjadala,
128.520.000 krónur á gengi gærdags-
ins, fækkaði um 14,9 prósent þegar
fjármálakreppan þurrkaði út gróða
tveggja ára.
Þetta kemur fram í 13. árlegu
Merrill Lynch/Capgemini World
Wealth-skýrslunni sem birt var á mið-
vikudaginn.
Samkvæmt skýrslunni fór heildar-
auður ríkasta fólks í heimi, – fólks sem
á eignir yfir eina milljón dala nettó,
undanskilið er aðalheimili þess og
hversdagslegar eigur – undir heildar-
auð þess árið 2005 og reiknast nú vera
32,8 trilljónir dala.
Merrill Lynch/Capgemini hefur
staðið að könnun á sveiflum í auð-
söfnun síðan 1996 og hafa síðan þá
ekki breytt skilgreiningu sinni á rík-
asta fólki heims.
Ofurríkum fækkar
Samkvæmt skýrslu Merrill Lynch/
Capgemini fengu Bandaríkin einn
versta skellinn árið 2008 en þar fækk-
aði þeim sem teljast til ríkasta fólks
heims um 18,5 prósent, en engu að
síður héldu Bandaríkin stöðu sinni
sem heimaland flestra ríkustu ein-
staklinganna. Þeir telja um 2,5 millj-
ónir í Bandaríkjunum og standa fyrir
28,7 prósent af ríkustu einstaklingum
heims.
Um það bil 35 prósent heildarauðs
hinna ríkustu, 32,8 trilljóna dala, til-
heyra hinum svokölluðu ofurríku sem
eiga eignir yfir 30 milljónir dala hver,
um 3.855.600.000 króna. Hinir ofur-
ríku eru 0,9 prósent heimsins ríkasta
fólks en á síðasta ári fækkaði þeim um
nánast fjórðung og auður þeirra dróst
saman í sama hlutfalli.
Á fréttavef Reuters er haft eftir Dan
Sontag, hjá Merrill Lynch/Capgem-
ini, að fjárfestar hafi í raun hvergi get-
að falið sig árið 2008. „Enginn heims-
hluti var óskaddaður í árslok,“ sagði
Sontag.
Minnst afföll í Þýskalandi
Bandaríkin, Japan og Þýskaland
eru heimili 54 prósenta ríkasta fólks
heims, hlutfallið var 53,3 prósent árið
2007, og í ár þurftu Bretar að bíta í það
súra epli að gefa eftir fjórða sætið til
Kína. Auk áðurnefndra fimm landa
eru Frakkland, Kanada, Sviss, Ítalía
og Brasilía á lista yfir þau tíu lönd sem
eiga flesta af auðugustu mönnum
heims.
Sem fyrr segir fækkaði hinum rík-
ustu um 18,5 prósent í Bandaríkjun-
um. Í Japan nam fækkunin 9,9 pró-
sentum, en Þjóðverjar geta vel við
unað því fækkun í hópi hinna ríkustu
þar nam aðeins 2,7 prósentum.
Þess má geta að kínverska sjálf-
stjórnarsvæðið Hong Kong fór svo
sannarlega ekki varhluta af kreppunni
og fækkun í félagsskap hinna ríkustu
þar á bæ nam 61,3 prósentum og er
Hong Kong nú heimili 37.000 af rík-
asta fólki heims.
Bjartsýni á bata
Dan Sontag sagði að markaðir sýndu
merki um bata og að í kjölfar þess að
tæknibólan sprakk og árásanna á Tví-
buraturnana í New York 2001 hefði
auðugu fólki verið kleift að auka við
auðævi sín sem nam 9 prósentum á
ári frá 2002 til 2007.
Sontag sagði að þrátt fyrir að eðli
kreppunnar nú og niðursveiflunnar
í tæknigeiranum væri af ólíkum toga
gætti bjartsýni um að endurheimt
auðæfa nú fylgdi svipuðu mynstri
og þá. „Engu að síður álítum við að
þess sé að vænta að [auðugt fólk] gæti
varkárni í ár og á næsta ári,“ sagði
Sontag.
Bitnar á líknarmálum
Í skýrslunni er því spáð að auður hinna
auðugustu í heimi muni verða 48,5
trilljónir dala árið 2013 og að Banda-
ríkin og Asía/Kyrrahafssvæðið verði
þar í fararbroddi. Reiknað er með að
Asía/Kyrrahafssvæðið muni árið 2013
velta Bandaríkjunum úr fyrsta sæti
listans yfir fjölda ríkustu einstaklinga.
Yfir 40 prósent ríkasta fólks heims
sögðust hafa skorið niður eyðslu í lúx-
usferðalög og –vörur, en 54 prósent
sögðust hafa aukið eyðslu í heilsu-
tengd mál.
Sé horft til líknarmála er því spáð í
skýrslunni að þau muni bera skarðan
hlut frá borði í ár, en 60 prósent auð-
ugra Bandaríkjamanna hyggjast gefa
minna til líknar- og mannúðarmála
en fyrr. Hins vegar ætla 54 prósent
auðugra Japana gefa meira til málefna
af þeim toga og var eina landið þar
sem spáð var vexti á því sviði .
Á fyrri helmingi síðasta árs var ekki
að merkja nokkra breytingu á gjaf-
mildi auðugra til líknarmála, en mik-
il breyting varð þar á á síðasta árs-
fjórðunginum þegar auðugt fólk „gaf
minna og horfði til færri málstaða“.
Fækkun hinna ríkustu
Hong Kong – 61,3%
rússland – 28,5%
Bretland – 26,3%
ísrael – 25,5%
Kanada – 24,1%
írland – 20%
Barein – 19,5%
Bandaríkin – 18,5%
sádi-arabía – 10,9%
japan – 9,9%
Brasilía – 8,4%
Þýskaland – 2,7%
kOlBeinn ÞOrsteinssOn
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Hinir ofurríku eru 0,9
prósent heimsins rík-
asta fólks en á síðasta
ári fækkaði þeim um
nánast fjórðung og
auður þeirra dróst sam-
an í sama hlutfalli.
Peningar og skart fjármálakreppan
hefur haft áhrif á eyðslu hinna ríku.
Mynd: aFP
hong kong fjármála-
kreppan hjó stærsta skarðið
í raðir ríkra í Hong Kong.
Mynd: aFP