Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Qupperneq 23
mund á Núpum fyrir Sonju frænku hans. „Hún ánafnaði mér Pic­asso- skissu. Guðmundur á Núpum er ekki ennþá búinn að skila henni til réttra eigenda,“ segir Guðmundur Frankl- ín. Hann hafi þó ekki gengið hart að honum að skila henni. Fasteignir yfir á eiginkonuna Guðmundur á Núpum færði tvær fasteignir í sinni eigu yfir á eiginkonu sína Unni Jóhannsdóttur, 10. októ- ber í fyrra á sama tíma og banka- hrunið gekk yfir. Um er að ræða ein- býlishús á Hofsvallagötu 1 sem var á sínum tíma í eigu athafnamanna eins og Björgólfs Guðmundssonar og Herlufs Clausen. Björgólfur Thor ólst upp í húsinu. Hin fasteignin sem um ræðir er á Sóleyjargötu 7 í Reykjavík. Tíu milljarða sjóður Minningarsjóður um Sonju Wendel Benjamínsson de Zorrilla var stofnað- ur eftir andlát hennar árið 2002. Meg- inhlutverk hans átti að vera að styrkja langveik börn á Íslandi og í Banda- ríkjunum. Eigur Sonju voru metnar á 9.500 milljónir króna árið 2001 sam- kvæmt bókinni Ríkir Íslendingar, sem kom út það ár. Ætlunin var að stærst- ur hluti þeirra eigna færi í minningar- sjóð Sonju. „Þetta lýsir henni mjög vel og hug hennar til barna. Hún var sjálf barnlaus en þótti ýmislegt mega betur fara hvað börnin varðar. Þetta verður vonandi öðrum til eftirbreytni,“ sagði Guðmundur á Núpum í samtali við Fréttablaðið árið 2002 þegar sjóður- inn var stofnaður. Allt tilbúið 2004 „Milljarða króna styrktarsjóður í nafni Sonju Zorrilla, The Sonja Foundation, mun að öllum líkind- um verða tilbúinn nú í maí til að taka við umsóknum frá félögum og samtökum í Bandaríkjunum og á Ís- landi sem starfa í þágu barna. Að- eins á eftir að ganga frá nokkrum tæknilegum atriðum og selja fáeinar eignir Sonju heitinnar, en þau mál eru aðallega í höndum bandarískra lögmanna í New York,“ sagði í frétt sem birtist í DV í mars 2004. „Þessi mál eru fyrst og fremst í höndum manna í Bandaríkjunum og þeirra að tjá sig um gang þess- ara mála. Sem er ekki tímabært því það á eftir að ganga frá ýmsu og til dæmis selja nokkrar eignir hverra andvirði á að renna í sjóðinn,“ sagði Guðmundur á Núpum þá í samtali við DV. Eignir á Flórída Samkvæmt heimildum DV hafa ein- ungis tvö rannsóknasetur hérlend- is fengið styrk úr sjóðnum auk fóst- urgreiningardeildar Landspítalans. Er talið að þeir styrkir nemi ekki meira en nokkrum milljónum króna. Stjórnarmenn sjóðsins eru Guð- mundur á Núpum og bandaríski lög- fræðingurinn John Ferguson. Fergu- son var lögfræðingur Sonju í um 20 ár. Báðir sjóðsstjórarnir eiga fast- eignir í bænum Naples á Flórída. Eins og sést á myndum sem fylgja fréttinni eru íbúðir þeirra örfá skref frá ströndinni. Samkvæmt vefsíð- unni zillow.c­om er fasteign Guð- mundar metin á 130 milljónir króna og eign Johns Ferguson á 120 millj- ónir króna. Enginn styrkur borist Í lok árs 2006 barst Birni Mekkinóssyni bréf frá John Ferguson sjóðsstjóra um vilyrði fyrir styrk til náms við UCLA- háskólann í Los Angeles árin 2007 og 2008. Björn er að læra hljóðblöndun við UCLA. Átti hann að fá 5.000 doll- ara styrk þessi tvö ár, eða 645 þús- und íslenskar krónur á ári miðað við núverandi gengi. Honum hefur hins vegar aldrei borist styrkur frá sjóðn- um þrátt fyrir að hafa fengið undirrit- að bréf frá sjóðnum eins og sést í skjali sem DV hefur undir höndum. Einkasjóður Í svari sem Ferguson sendi DV kem- ur fram að um einkasjóð sé að ræða. Því sé hann ekki skuldbundinn til þess að veita upplýsingar um styrk- veitingar úr sjóðnum. Árið 2004 voru nokkur listaverk í eigu Sonju seld hjá Christies í New York. Samkvæmt til- kynningu sem fylgdi sölunni kemur fram að söluandvirðið eigi að nota til styrktar börnum í Bandaríkjunum og á Íslandi. Ferguson segir að Guð- mundur á Núpum hafi keypt eitt verk úr safni hennar. DV fjallaði um minningarsjóð Sonju í lok árs 2007. Þá sögðust við- mælendur blaðsins ekki kannast við að sjóðurinn hefði enn veitt neina styrki. Eina tilkynningin sem finnst um styrki úr sjóðnum erlendis er 5.000 dollara styrkur til Saint Mary- spítala í New York árið 2006, sem nam 300 þúsund krónum íslensk- um á þeim tíma. Auk þess koma fram gögn þar sem Lee-sýsla á Flór- ída krefur sjóðinn um 9.000 dollara vegna vangoldinna skatta árið 2007, eða sem nam 550 þúsund krónum á þeim tíma. Lögfræðiskrifstofa Johns Ferguson er skráð með aðsetur í New York og í bænum Naples á Flórída. Þrír styrkir Í samtali við DV segir Vilhjálmur Bjarnason, viðskiptafræðingur og frændi Sonju, að sjóðurinn hafi veitt Háskóla Íslands tvo styrki. Rannsókna- setur í barna- og fjölskylduvernd stað- festi það í samtali við DV að hafa feng- ið styrk frá sjóðnum en vildi ekki gefa upp fjárhæðina sem þeim var veitt. Fósturgreiningardeild Landspítalans hefur líka tilkynnt um að hafa fengið styrk frá sjóðnum. Rannsóknasetur í fötlunarfræð- um við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands fékk styrki árin 2007 og 2008. „Okkur var bent á að sækja um styrk frá sjóðnum. Við höfum fengið tvo styrki og ég hef því ekkert annað en gott að segja af sjóðnum,“ segir Rann- veig Traustadóttir, forstöðumaður Rannóknaseturs í fötlunarfræðum. Að föstudagur 26. júní 2009 23Fréttir Hátíðarmatseðill Forréttur Koniaksbætt humarsúpa Aðalréttur Steikt Lúðufiðrildi með hvítlauksristuðum humarhölum og humarsósu Dessert Hátíðardessert Forréttur Súpa dagsins Aðalréttur Hunangsgljáð andabringa „Orange” með rusty kartöflum og ristuðu grænmeti Dessert Hátíðardessert Forréttur Koniaksbætt humarsúpa Aðalréttur 200 gr. ristaðir humarhalar með mangó-chilli cous cous, salat og kartöflubátar Dessert Hátíðardessert Forréttur Súpa dagsins Aðalréttur Glóðuð Nautalundarpiparsteik, ristaðir humarhalar, grænmeti og rjómalöguð piparsósa Dessert Hátíðardessert Laugaás 30 ára 25. júní Framhald á næstu síðu Stórauðug Eigur sonju voru metnar á 9.500 milljónir árið 2001. stærstur hluti þeirra átti að renna til styrktar langveikum börnum á íslandi og í Bandaríkjunum. Til styrktar börnum Hér má sjá forsíðu fréttablaðsins haustið 2002 þegar tilkynnt var um stofnun sjóðsins. Hús sjóðsstjórans Hér má sjá hús guðmundar á núpum, sjóðsstjóra sonju Zorrilla- sjóðsins. sonja átti þetta hús þar til hún lést. mynd KriSTinn mAgnúSSon Hofsvallagata 1 guðmundur a. Birgisson á núpum færði þetta hús yfir á eiginkonu sína nokkrum dögum eftir bankahrunið. Húsið var á sínum tíma í eigu Björgólfs guðmundssonar og ólst Björgólfur thor þar upp. mynd BrAgi Þór JóSEFSSon
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.