Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Qupperneq 24
föstudagur 26. júní 200924 Fréttir
www.nora.is Dalvegi 16a Kóp.
opið: má-fö. 11-18,
laugard. 11-16
Opið: má-fö. 12-18, lau.12-16
Dalvegi 16a,
Rauðu múrsteinshúsunum
Kóp. 201 - S: 517 7727
www.nora.is
Fyrir bústaðinn og heimilið
More than ten thousand fingers have
played beautiful music on this piano,
since it arrived in Eyrarbakki village
in 1871. It was brought across the
Atlantic on a large merchantman, then
hauled into a small fishing boat and
rowed ashore, where four strong men
carried it into the village in a terrible
rainstorm. But you can touch it now in
the Húsið museum in Eyrarbakki.
Open May 15th - Sept. 15th: 11 - 18
Other times by arrangement
Tel: +354 483 1504
husid@husid.com
www.husid.com
sögn hennar fékk setrið tvo styrki sem
námu 33 þúsund dollurum hvor, eða
rúmlega 4 milljónum íslenskra króna
samtals.
Umsvifamikill fjárfestir
Guðmundur hefur verið umsvifa-
mikill fjárfestir undanfarin ár. Hann
á fyrirtækið Lífsval með Landsbank-
anum, Ingvari Karlssyni og Ólafi
Wernerssyni. Ólafur er bróðir þeirra
Karls og Steingríms sem kenndir eru
við fjárfestingafélagið Milestone.
Var einnig talað um að Nóatúnsfjöl-
skyldan hefði verið í samstarfi við þá
í gegnum félag sitt Saxhól.
Lífsval er stærsti jarðeigandi
landsins en félagið mun eiga á annað
hundrað jarðir. Samkvæmt ársreikn-
ingi félagsins árið 2007 átti félagið
jarðir fyrir um 4,3 milljarða króna.
Félagið rekur bú á Skriðufelli í Jök-
ulsárhlíð og Ytrafelli í Eyjafirði. Auk
þess er félagið með stærsta kúabú
landsins á jörðinni Flatey á Mýrum
í Austur-Skaftafellssýslu. Samkvæmt
frétt af búinu er ætlunin að hafa þar
500 mjólkurkýr með framleiðslugetu
upp á hátt í þrjár milljónir mjólk-
urlítra árlega. Ekki liggur ljóst fyr-
ir hvernig staða Lífsvals er í dag en
Landsbankinn er skráður stærsti
hluthafi félagsins.
Fjölmiðlafælinn
Að sögn viðmælenda DV er Guð-
mundur á Núpum ekki mikið fyrir
athygli fjölmiðla enda hefur lítið ver-
ið fjallað um hann á undanförnum
árum. Frjáls verslun birti þó ítarlega
umfjöllun um hann árið 1998 eftir
að Guðmundur hafði gengið frá sölu
á jörðum við Núpa í Ölfusi og Þóru-
staði á Vatnsleysuströnd til Hita-
veitu Reykjavíkur. „Guðmundur Al-
bert Birgisson er fæddur í Reykjavík
1. júlí 1961. Hann er elstur fjögurra
systkina. Foreldrar hans eru Birgir
Guðmundsson Albertsson kennari
og kaupmaður og móðir hans heit-
ir Evlalía Kristín Guðmundsdótt-
ir. Birgir, faðir Guðmundar, kenndi
lengi í Langholtsskóla, var formað-
ur Kristilegra skólasamtaka, stýrði
barnatíma í Sjónvarpinu og var ið-
inn fararstjóri hjá Ferðafélagi Ís-
lands. Birgir er fæddur og uppalinn
á Hesteyri í Jökulfjörðum þar sem
faðir hans, Guðmundur Halldór Al-
bertsson, stundaði útgerð og kaup-
mennsku. Fjölskyldan fluttist burt
ásamt öðrum íbúum á Hesteyri árið
1942 en 1952 fór þorpið allt í eyði,“
sagði í frétt Frjálsrar verslunar árið
1998 sem Páll Ásgeir Ásgeirsson
skrifaði.
Peningar voru leikfangið
„Guðmundur Birgisson var snemma
einbeittur og stefnufastur í því ætlun-
arverki sínu að eignast peninga. Til eru
myndir af honum barnungum þar sem
hann situr og leikur sér að peningum
sem voru hans eftirlætisleikföng,“ segir
í blaðagrein Frjálsrar verslunar. Guð-
mundur er mikill bílaáhugamaður.
Þegar hann var 17 ára, árið 1979, fór
hann til Þýskalands og keypti sér Mer-
cedes Benz 280 SEL sem þótti einn af
flottari bílum landsins á þeim tíma.
Bíllinn var hins vegar fljótlega seldur.
Á árum áður sást stundum til Guð-
mundar á Rolls Royce-bifreið sem
Sonja Zorrilla geymdi í húsi sínu að
Núpum í Ölfusi. Hún flutti bílinn inn
frá Flórída árið 1995 en hann er árgerð
1983. Að sögn heimildarmanna er bíll-
inn nú að Núpum við húsið sem Sonja
átti og Guðmundur á í dag. Bíllinn varð
óökufær fyrir nokkrum árum þegar
Guðmundur ætlaði að keyra hann út
úr bílskúrnum að Núpum en eyðilagði
hlið bílsins. Að sögn heimildarmanna
hafði Sonja ætíð sagt að eini arfurinn
sem Guðmundur á Núpum fengi væri
þessi Rolls Royce.
Garðyrkjumaður
Guðmundur byrjaði snemma í at-
vinnurekstri en á unglingsárum var
hann í lóðaslætti og garðyrkju. Hann
lauk verslunarskólaprófi en nam síð-
an við Garðyrkjuskóla ríkisins að
Reykjum í Ölfusi og lauk þaðan prófi
af skrúðgarðyrkjubraut árið 1983. Á
meðan á náminu við garðyrkjuskól-
ann stóð keypti hann jörð að Núpum
í Ölfusi ásamt skólabróður sínum
Páli Melsted en Guðmundur keypti
hann þó fljótlega út.
Þegar hann var við nám í skólan-
um kynntist hann konu sinni Unni
Jóhannsdóttur sem þá bjó í Hvera-
gerði. Unnur er átta árum eldri en
Guðmundur og átti tvö börn þeg-
ar hún kynntist honum. Saman eiga
þau Guðmundur dótturina Eddu
Sonju sem er á unglingsaldri.
Mjög náinn Sonju
Viðmælandi sem DV ræddi við sagði
að Guðmundur hefði dvalið löngum
stundum með Sonju frænku sinni á
meðan hún átti við veikindi að stríða
síðustu tvö ár ævi sinnar. Taldi við-
mælandinn að þetta nána samband
hans við Sonju hefði haft töluverð
áhrif á hjónaband hans og Unnar.
Guðmundur hefur að sögn viðmæl-
enda reynst börnunum tveimur vel
sem Unnur átti þegar þau kynntust.
Rændur á Spáni
Guðmundur á einbýlishús á Spáni og
DV sagði frá því 2007 þegar 20 milljóna
króna Mercedes Benz-bifreið hans var
stolið fyrir utan heimili hans. Sam-
kvæmt heimildum DV á Guðmundur
líka fasteignir í Slóvakíu með Runólfi
Oddssyni, hálfbróður Davíðs Odds-
sonar. Runólfur er ræðismaður Slóv-
akíu á Íslandi.
Guðmundur átti líka hlut í HB
Granda sem hann hefur selt. Hann átti
32 prósenta hlut í B-deild Sláturfélags
Suðurlands sem verðbréfafyrirtækið
Virðing tók yfir.
Þrátt fyrir að viðmælendur séu
sammála um að Guðmundur hafi
tapað miklum peningum við banka-
hrunið er þó ekki talið líklegt að hann
standi uppi eignalaus. Flestir eru þó
sammála um að þögn hans um minn-
ingarsjóð Sonju frænku sinnar sé frek-
ar undarleg. Er jafnvel talið að um það
sé samkomulag milli hans og banda-
ríska lögfræðingsins Johns Ferguson
að gefa sem minnstar upplýsingar um
sjóðinn. Guðmundur á Núpum virðist
hafa misst töluvert af viðskiptafélög-
um að undanförnu. Er það mat margra
þeirra sem DV ræddi við að hann hefði
oft á tíðum ekki komið heiðarlega fram
við þá. Þeim færi því ört fækkandi í
viðskiptaheiminum sem vildu stunda
með honum viðskipti eða við hann.
Sóleyjargata 7 guðmundur a. Birgisson á núpum
færði íbúð í þessu húsi yfir á eiginkonu sína nokkrum
dögum eftir bankahrunið. Mynd Heiða HelGadóttiR
Íbúð Guðmundar guðmundur a. Birgisson á núpum, annar sjóðsstjóranna, á íbúð
sem metin er á 130 milljónir króna á flórída.
Íbúð Fergusons john ferguson, hinn sjóðsstjórinn, á íbúð sem metin er á 120
milljónir króna á flórída.