Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Page 25
föstudagur 26. júní 2009 25Fréttir Eimskip heldur aðalfund sinn á þriðjudag. Er talið víst að mikilla frétta sé að vænta af óskabarni þjóðarinnar sem nú hefur verið starfandi hérlendis í 95 ár. Stjórn félagsins hefur verið óbreytt frá því síðasta haust þrátt fyrir að stærstu hluthafar Eimskips standi höllum fæti vegna bankahrunsins. Grettir er skráður fyrir þriðjungi hlutafjár en það er félag Björgólfs Guðmundssonar. Fyrir stuttu var tilkynnt um að Björgólfur bæri persónulega ábyrgð á 58 milljarða skuld við Landsbankann. Front- line Holding er líka skráð fyrir þriðjungi en það er félag Magn- úsar Þorsteinssonar. Hann var ný- verið lýstur gjaldþrota af Héraðs- dómi Norðurlands. Eimskip yfirtekið Samkvæmt heimildum DV verður tilkynnt um það á aðalfundinum á þriðjudag að erlendir kröfuhaf- ar yfirtaki rekstur Eimskips. Hald- inn var fundur með kröfuhöfum í Kaupmannahöfn fyrir viku þar sem rætt var um fjárhagslega end- urskipulagningu og yfirtöku með aðkomu fjármálateymis. Gylfi Sig- fússon verði þó áfram forstjóri fé- lagsins. DV sagði frá því 8. maí síð- astliðinn að blaðið hefði heimildir fyrir því að Eimskip yrði yfirtekið af erlendum kröfuhöfum. Þá sagði Gylfi Sigfússon í sam- tali við DV 6. maí að unnið væri daglega með ýmsum aðilum frá Landsbankanum, Straumi- Burðarási og erlendum kröfuhöf- um að endurskipulagningu félags- ins. Tilefni skrifa DV í maí voru upplýsingar um að Gylfi hefði selt Eimskipi félagið IceExpress. Það félag hafði keypt ShopUSA af konu Gylfa árið 2007 en hún átti helm- ingshlut í því. Við kaup Eimskips á IceExpress fylgdi ShopUSA hins vegar ekki með. Losna ekki við Versacold Eimskip keypti kanadíska kæli- og frystigeymslufyrirtækið Versa- cold árið 2007. Kaupverðið var á þeim tíma nálægt 68 milljörðum íslenskra króna. Eimskip hefur unnið að því undanfarið að finna kaupanda að Versacold. Sam- kvæmt heimildum DV hefur það gengið illa. Er Eimskip sagt hafa fengið eitt tilboð sem var mjög lágt og langt undir bókfærðum skuld- um. Í byrjun árs sendi Eimskip frá sér tilkynningu um að félag- ið gerði ráð fyrir að sölu eigna í Norður-Ameríku myndi ljúka í febrúar. Þrem mánuðum síðar kom tilkynning um að söluferl- ið tæki lengri tíma en áætlað var. Markmiðið væri þó að ljúka því fyrir lok júní. Nú liggur fyrir að það mun ekki nást. Eimskip seldi um miðjan maí finnska skipafélagið Container- ship sem félagið hafði fest kaup á haustið 2006. Þá var tilkynnt að með sölunni lækkaði Eim- skip skuldir sínar um 11 milljarða króna og myndi bókfæra 3,9 millj- arða króna tap vegna sölunnar. Óljóst með þrjú skip DV greindi frá því 8. maí að þrjú skip Eimskips lægju við bryggju í Álasundi í Noregi og Árósum í Danmörku. Um var að ræða skip- in Storfoss, Dalfoss og Langfoss. Þessi þrjú skip voru fjármögn- uð af sænska bankanum Nord- ea. Í maí sást á heimasíðu Eim- skips að skipin hefðu legið við bryggju í nokkrar vikur. Nú eru þessi skip hins vegar ekki lengur skráð á heimasíðu félagsins. Eim- skip hefur hins vegar ekki sent neina tilkynningu frá sér um sölu þessara skipa. Þessi þrjú skip voru smíðuð fyr- ir norska skipafélag- ið CTG sem er að fullu í eigu Eim- skips. CTG lét líka smíða þrjú önnur skip sem enn eru í fullum rekstri hjá Eimskipi. Þau skip fjármagn- aði hins vegar Landsbankinn á sínum tíma. Eimskip Eimskip heldur aðalfund næsta þriðjudag. Samkvæmt heimildum DV verður þá tilkynnt um yfirtöku erlendra kröfuhafa á félaginu. Haldinn var fundur með kröfuhöfum í Kaupmannahöfn fyrir viku. Eim- skip gengur illa að selja kanadíska félagið Versacold. Einungis eitt tilboð hefur borist og er það sagt mjög lágt og langt undir bókfærðum skuldum. yfirtEkið á þriðjudag föstudagur 8. maí 200910 Fréttir Gylfi Sigfússon DV birti á miðvikudag upplýsing- ar um að Eimskip hefði keypt félag í eigu eiginkonu forstjórans. Eimskip keypti félagið IceExprsess í febrú- ar 2008. IceExpress keypti félagið ShopUSA í september 2007 af Hildi Hauksdóttur, eiginkonu Gylfa Sig- fússonar, forstjóra Eimskip. Í lok árs 2007 var IceExpress orðið stærsti undirverktaki Eimskip í Banda- ríkjunum.Í viðtali við DV afneit- aði Gylfi eignarhlut eiginkonunnar. Hann sagði hana einungis starfa fyrir ShopUSA. Þess skal auk þess getið að við kaup Eimskip á IceExpress fylgdi ShopUSA ekki með í kaupunum. Tengslin gagnrýnd Eins og sést í afritum sem birtast með greininni á Hildur Hauksdóttir 50 prósent í ShopUSA holding ehf.. Það er því ekki rétt hjá Gylfa að kona hans eigi ekki eignarhlut í félaginu. Þar sést líka að faðir hennar Haukur F. Leósson fer með prókúruumboð félagsins. Samkvæmt heimildum DV var sett út á tengsl ShopUSA við Eimskip fyrir nokkrum árum. Þau voru talin óheppileg. Þá sagðist Gylfi ekki hafa neinna hagsmuna að gæta vegna ShopUSA. Nú hefur hins vegar komið í ljós að það er ekki rétt. Einn- ig lét Gylfi þau orð falla að þetta væri eitthvað sem væri farið að tíðkast á Íslandi. Nýir viðskiptahættir hafi komið með yfirtökum útrásarvíking- anna á íslenskum fyrirtækjum. Fjárfestu í sex skipum Í janúar 2004 keypti Eimskip 51 prósent hlut í norska skipafyrir- tækinu CTG. Í október 2005 keypti félagið síðan 49 prósent hlut í fé- laginu og átti eftir það félagið að fullu. Strax um sumarið 2004 hóf Eimskip að láta smíða ný skip fyr- ir CTG. Í lok árs 2005 hafði félagið sex skip í smíðum. Heildarfjárfest- ingin í þessum sex nýju skipum er talinn hafa numið átta milljörðum króna. Öll skipin voru smíðuð í Nor- egi í dýrustu skipasmíðastöðvum heims. Sem dæmi hafi einungis eitt af þeim skipum sem Landsbankinn fjármagnaði verið fjármagnað með venjulegu láni. Hin tvö munu hafa verið fjármögnuð með yfirdrætti. Þrjú skip liggja við bryggju Samkvæmt heimildum DV fjár- magnaði Landsbankinn þrjú af þessum skipum, Svartfoss, Holm- foss og Polfoss. Hin þrjú skipin voru fjármögnuð af sænska bankanum Nordea sem er stærsti banki Norð- urlandanna. Þau skip heita Storfoss, Langfoss og Dalfoss. Að sögn heim- ildamanns DV hefur Storfoss leg- ið við bryggju í Álasundi í Noregi í nokkurn tíma. Dalfoss og Langfoss liggja við bryggju í Árósum í Dan- mörku. Samkvæmt heimasíðu Eim- skip hefur Dalfoss legið sex daga við bryggju, Langfoss 16 daga og Stor- foss 20 daga. Þau hafa þó legið mun lengur í höfn. Ástæða þess að dag- arnir eru ekki réttir er sú að þau hafa verið færð á milli bryggja í millitíð- inni og þá er byrjað að telja aftur. Sex milljónir á dag Ekki liggur ljóst fyrir hvers vegna skipin þrjú sem Nordea fjármagn- aði liggja við bryggju en ekki þau sem Landsbankinn fjármagnaði. Þó er talið að þar sem Nordea á veð í þeim hafi Eimskip ákveðið að skila þeim. Í samtali við DV sagðist Páll Benediktsson, upplýsingafulltrúi skilanefndar Landsbankans, ekki kannast við þessar fullyrðingar. Samkvæmt heimildum DV kost- ar það Nordea nálægt 6 milljónum ís- lenskra króna á dag að láta þessi skip standa án þess að þau séu notuð. Ef þau standa í mánuð kostar það Nor- dea því í kringum 170 milljónir króna án þess að tekjur komi inn á skipin. Þessi kostnaður leggst ekki á Lands- bankann þar sem skipin þrjú sem þeir fjármögnuðu eru stöðugt í sigl- ingum. Sá orðrómur er auk þess á kreiki að norskt dótturfélag Samskipa sem heitir Silver Sea sé í viðræðum um leigu á skipunum sem Nordea fjár- magnaði. Þetta hefur ekki fengist staðfest. Yfirtekið af erlendum kröfuhöfum Þeir sem DV ræddi við finnst skrýtið að ekki sé búið að skipta um stjórn Eimskip. Þar sitja ennþá fulltrúar gömlu hluthafanna. Þrír þeirra eru fulltrúar Björgólfs Guðmundssonar. Einn viðmælandi sem blaðið ræddi við taldi mjög líklegt að breyting yrði gerð á stjórninni á næsta að- alfundi Eimskip. Gylfi Sigfússon sagði að aðalfundur yrði haldinn í lok maí. Einn heimildarmaður sagði að erlendir kröfuhafar myndu þá yfir- taka félagið og fara með yfirstjórn þess. Gylfi eigi þó áfram að fara með stjórnina. Guðmundur P. Dav- íðsson, framkvæmdastjóri Eimskip á Íslandi, verði þó látinn fara. Guð- mundur er bróðursonur Björgólfs Guðmundssonar. Hann var ráðinn til Eimskip í september 2007 um það leyti sem yfirtaka Björgólfs var að hefjast. Guðmundur starfaði fyr- ir það sem framkvæmdastjóri Grett- is, félags Björgólfs, stærsta hluthafa Eimskip. Á árunum 2003 til 2007 starfaði hann í Landsbankanum. Björgólfur sendi sem kunnugt er yfirlýsingu frá sér í vikunni. Þar kom fram að persónulegar ábyrgðir hans tengdar Eimskip og Icelandic séu 50 milljarðar í gegnum félagið Gretti. Óskynsamlegar fjárfestingar Fjárfestingar Eimskip á síðustu árum þóttu margar hverjar ekki skynsamlegar. Einn viðmælandi sem DV ræddi við og þekkir vel til málefna Eimskip nefndi sem dæmi yfirtökuna á kanadíska félaginu Atlas árið 2006. Þá hafi 20 fjárfest- um verið kynnt félagið en einungis Eimskip hefði boðið í það. Þrátt fyr- ir það hækkaði Eimskip tilboð sitt. Kaupverðið þá var 34,5 milljarðar íslenskra króna. Sama hafi átt við um aðrar fjárfestingar. „Þetta voru menn sem vissu ekkert hvað þeir voru að gera,“ sagði einn viðmæl- andi DV. DV mun í næstu viku fjalla meira um málefni Eimskips. Laug að óskabarni þjóðarinnar annaS SiGmundSSon blaðamaður skrifar: as @dv.is Gylfi Sigfússon Ljóst er að gylfi laug bæði að dV og að Eimskip um tengsl sín við shopusa. Langfoss og dalfoss Þessi skip liggja við höfn í Árósum í danmörku. sænski bankinn Nordea fjármagnaði þau og hafa þau staðið við bryggju í nokkurn tíma. ShopuSa á Íslandi Hér sést að Hildur situr í stjórn félagsins og faðir hennar Haukur f. Leósson fer með prókúruumboð. Miðvikudagur 6. Maí 20098 Fréttir Gylfi Sigfússon AfneitAr eignArhlut eiginkonu sinnAr Eimskip gekk í febrúar frá kaup- um á bandaríska fyrirtækinu Ic- eExpress. Félagið var á þeim tíma í eigu Lárusar Ísfelds. Við kaupin sagði Gylfi Sigfússon, forstjóri Eim- skips, í samtali við Morgunblaðið að kaupverðið væri trúnaðarmál en það væri í rauninni greitt með hagræðingunni. Innifalið í verðinu var ekki rekstrarleyfi fyrir fyrirtæk- ið ShopUSA. Gylfi tók við sem for- stjóri Eimskips í maí 2008. Hann hafði tvö árin á undan starfað sem framkvæmdastjóri Eimskip Amer- icas sem nær yfir flutningastarf- semi Eimskips í Bandaríkjunum og Kanada. Félag konunnar keypt Haustið 2007 keypti IceExpress ShopUSA fyrir eina milljón dollara sem þá var nálægt 60 milljónum króna. Þá var Gylfi framkvæmda- stjóri Eimskip Americas. Selj- andinn var meðal annars Hildur Hauksdóttir, eiginkona Gylfa Sig- fússonar. Hlutur hennar var skráð- ur 45 prósent þegar salan átti sér stað. Faðir hennar, Haukur F. Leós- son, er skráður fyrir framkvæmda- stjórn ShopUSA og prókúruhafi félagsins. Haukur varð frægur fyrir að hafa verið gert að hætta sem stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur haustið 2007 þegar REI-málið stóð sem hæst . Hann var auk þess endurskoðandi Sjálf- stæðisflokksins og skrifaði upp á ársreikning flokksins fyrir árið 2006 eftir risastyrkina frá FL Group og Landsbankanum. Gylfi neitar hlut Hildar Í samtali við DV segir Gylfi Sigfús- son að kona sín hafi ekki fengið neitt greitt þegar ShopUSA var selt til IceExpress. „Þú ert bara að vaða reyk,“ segir Gylfi við blaðamann aðspurður um sölu Hildar á hlut sínum í ShopUSA. Hún vinni hjá ShopUSA en eigi ekkert í félaginu. Samkvæmt hluthafalista ShopUSA Incorporation var hún skráð fyrir 45 prósenta hlut í fyrirtækinu í Banda- ríkjunum áður en það var selt til IceExpress. Samkvæmt hlutafé- lagaskrá sem Credit Info veitir að- gang að er Hildur einnig skráð fyr- ir helmingshlut í ShopUSA Holding ehf. á Íslandi. Bauð blaðamanni vinnu Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, reyndi að hafa áhrif á skrif DV um málefni sín og eiginkonu sinnar með því að bjóða blaðamanni vinnu hjá Eimskip. Sagði hann við blaða- mann að breytingar yrðu gerðar á fjármálasviði félagsins í júní og þá þyrfti að ráða nýtt fólk. Samkvæmt 4. grein siðareglna Blaðamannafé- lagsins telst það mjög alvarlegt brot þiggi blaðamaður mútur eða hafi í hótunum vegna birtingar efnis. Fengu samninga án greiðslu Eftir að IceExpress keypti ShopUSA af eiginkonu Gylfa fékk fyrirtæk- ið ýmsa samninga við Eimskip í Bandaríkjunum. Má þar nefna yf- irtöku á rekstri vöruhúss Eimskips í Norfolk í Virginíufylki sem IceEx- press fékk án nokkurrar greiðslu. Í lok árs 2007 var IceExpress orð- inn stærsti undirverktaki Eimskips í Bandaríkjunum og hafði yfirtekið stóran hluta af starfsemi Eimskips í Bandaríkjunum. Eimskip kaupir IceExpress Við bankahrunið í haust varð veru- legur samdráttur á flutningastarf- semi frá Bandaríkjunum til Íslands. Eimskip fækkaði þá skipaferðum til Bandaríkjanna og dró saman samn- inga við undirverktaka. IceExpress missti á þeim tíma stóran hluta við- skipta sinna og viðskipti ShopUSA snarminnkuðu. Samkvæmt heim- ildum DV jukust skuldir IceExpress við Eimskip mikið á þeim tíma. Í febrúar 2009 keypti Eimskip síðan IceExpress. Þá sagði Gylfi við blaðamann Morgunblaðs- ins að verðið væri trúnaðarmál en það greiddist með hagræðingunni. Samkvæmt heimild- um DV var kaup- verðið um þrjár millj- ónir dollara. „Við höfum ekki borgað krónu fyr- ir IceExpress. Við tókum bara yfir félagið,“ segir Gylfi í samtali við DV. IceExpress hafi verið með starfsemi í New York þar sem þeir voru að þjóna TVG Zimsen, sem er í eigu Eimskips. Það snúi að flug- starfsemi sem Eimskip hafi yfirtek- ið. Einnig hafi starfsemi IceExpress í Norfolk í Virginíufylki runnið inn í rekstur Eimskips. Undir skilanefnd Landsbankans Á mánudag var tilkynnt að Björgólf- ur Guðmundsson, eigandi Grett- is, sem var stærsti hluthafi Eim- skips með 33 prósenta hlut, bæri persónulega ábyrgð á 58 milljarða skuld við Landsbankann. Stór hluti af því væri vegna kaupa hans á hlut hans í Eimskip. Auk þess var Magn- ús Þorsteinsson, eigandi Frontline Holding sem átti 33 prósenta hlut í Eimskip, lýstur gjaldþrota af Hér- aðsdómi Norðurlands eystra. Gylfi segir að núna sé verið að vinna að endurskipulagn- ingu Eimskips í samstarfi við skilanefnd Landsbank- ans. Bankarnir fari nú fram fyrir hönd þeirra Björgólfs og Magnúsar. Óbreytt stjórn Í stjórn Eimskips sitja Sindri Sindrason, stjórnarfor- maður, Gunnar M. Bjorg, Frið- rik Jóhannsson, Orri Hauksson og Tómas Ottó Hansson. Að sögn Gylfa sat Sindri í stjórn þar sem hann átti stóran hlut í Eimskip sem hafi nú rýrnað veru- lega. Gunnar sat fyrir hönd Magn- úsar Þorsteinssonar og þeir Orri og Tómas fyrir hönd Björgólfs Guðmundssonar. Þegar Gylfi er spurður hvort ekki eigi að setja nýja stjórn yfir Eimskip þar sem stjórnarmenn séu flestir fulltrú- ar þeirra hluthafa sem hafi glatað hlut sínum svarar hann því neit- andi. „Menn eru fyrst og fremst að gæta hagsmuna Eimskips, en ekk að hugsa um það fyrir hvern þeir komu inn í stjórnina upphaflega,“ segir Gylfi. Fyrirhugaðar breytingar Að sögn Gylfa er unnið daglega með ýmsum aðilum frá Landsbankan- um, Straumi-Burðarás og erlend- um kröfuhöfum að endurskipu- lagningu félagsins. Nefnir hann meðal annars fyrirhugaða sölu á frystigeymslum í Kanada og jafn- vel einhverjum af skipum félagsins. Gylfi segir að hugsanlega sé ein- hverra frétta að vænta af félaginu fyrir aðalfund sem haldinn verður í lok maí. Ekki náðist í Hildi Hauks- dóttur og Hallgrím T. Ragnarsson, framkvæmdastjóra ShopUSA, við vinnslu fréttarinnar þar sem slökkt var á símum beggja. annaS SIGmUndSSon blaðamaður skrifar: as @dv.is afneitar hlut konunnar gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, neitar því að kona hans eigi, eða hafi átt, hlut í ShopuSa. Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@bil jofur.is SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR BIFREIÐAVERKSTÆÐI annas sigmundsson blaðamaður skrifar: as@dv.is Áfram forstjóri samkvæmt heimildum dV verður gylfi sigfússon áfram forstjóri Eimskips. mYnd Bragi ÞÓr jÓsEfsson Óljóst með skipin Langfoss og dalfoss voru fjármögnuð af sænska bankanum nordea. Þessi skip finnast ekki lengur í áætlanakerfi Eimskips en þó hefur ekki verið tilkynnt um sölu þeirra. 8. aí 2009 6. maí 2009

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.