Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Qupperneq 34
föstudagur 26. júní 200934 Helgarblað
tæki í mörg ár þar sem ákvarðanir eru teknar
hratt fann ég hins vegar fljótt að ég hafði ekki
áhuga á að taka þátt í þessu pólitíska þrasi og
dró mig út úr því mjög fljótt. Okkur Gulla kom
vel saman og eftir að ég skildi fórum við að
vera saman,“ segir hún en þau Guðlaugur Þór
gengu í það heilaga árið 2001. Ágústa á tvö
börn af fyrra hjónabandi, Önnu Ýr sem er 17
ára og Rafn Franklín 14 ára. Saman eiga þau
Guðlaugur tvíburana Þórð Ársæl og Sonju
Dís sem eru 7 ára.
„Guðlaugur er frábær pabbi og voðalega
natinn og skemmtilegur og leggur sig fram
við að finna tíma fyrir börnin. Það er mik-
ill aldursmunur á þeim eldri og þeim yngri
og því var mikill spenningur að fá þau litlu í
heiminn og þau litlu horfa upp til þeirra eldri.
Samkomulagið er mjög gott og þetta gæti ekki
gengið betur,“ segir Ágústa sem var 37 ára þeg-
ar hún varð ófrísk að tvíburunum. Aðspurð
segir hún meðgönguna hafa gengið vel.
„Aldur er bara spurning um viðhorf. Ég hef
fylgst með jafnöldrum mínum eignast börn
fram að og eftir fertugt og fara létt með það.
Lífaldur fólks fer hækkandi svo það hlýtur að
vera eðlileg þróun að seinka barneignum. Ég
held líka að það sé ekki verra að vera búin að
ná ákveðnum þroska áður en maður tekst á
við foreldrahlutverkið.“
Spennuþrungin bið
Ágústa segir að koma tvíburanna í heim-
inn hafi verið óvæntur lottóvinningur í lífi
þeirra Guðlaugs. Guðlaugur sé einkabarn og
því hafi tvíburarnir verið fyrstu barnabörnin
hans megin.
„Ég var orðin þetta gömul og var satt að
segja ekki mjög spennt að ganga í gegnum
fleiri en eina meðgöngu svo við vorum himin-
lifandi. Í upphafi meðgöngunnar fann ég fyrir
afar sterkum óléttueinkennum og leið illa og
fór því í snemmsónar til að sjá hvort allt væri
í lagi. Læknirinn taldi þá mögulegt að fleira
væri inni í leginu. Annaðhvort væru fóstrin
tvö eða um blóðköggul væri að ræða. Við urð-
um að bíða í tvær vikur eftir niðurstöðunni
og okkur þótti sú bið löng og spennuþrungin.
Við veltum mikið fyrir okkur hvort við ættum
raunverulega von á tvíburum og vorum mjög
spennt að komast aftur í skoðun. Þá virtist í
fyrstu að um eitt fóstur væri að ræða og því er
ekki að neita að þá upplifði ég óvænt dálitla
vonbrigðatilfinningu. Svo kom í ljós að fóstr-
in voru tvö og má þá segja að tekið hafi við
kvíðablandin hamingjutilfinning. Svo þetta
var talsverður tilfinngarússibani.“
Meiri áherSla á heilSuna
Ágústa hefur verið framkvæmdastjóri Hreyf-
ingar frá upphafi en árið 1998 sameinaðist
Stúdíó Ágústu og Hrafns líkamsræktarstöð-
inni Mætti. Fyrir fjórum árum varð Hreyfing
dótturfyrirtæki Bláa lónsins og er Ágústa enn
hluthafi. Hún segir rekstur Hreyfingar ganga
mjög vel þótt henni hafi ekki litist á blikuna
fyrstu vikuna eftir bankahrunið.
„Það var eins og allt stöðvaðist en nokkr-
um dögum síðar komst allt í fyrra horf á ný.
Helsta breytingin sem ég finn fyrir er að að-
sókn hefur aukist jafnt og þétt og fólk nýtir
kortin sín betur í dag. Það er mjög ánægju-
legt að sjá hve margir setja heilsu sína í for-
gang. Regluleg heilsurækt er grunnur að and-
legri og líkamlegri vellíðan og það skiptir ekki
svo litlu máli fyrir okkur, sérstaklega þegar við
tökumst á við sveiflur í lífinu eins og núna.
Strax í upphafi bankahrunsins voru skilaboð-
in í samfélaginu sterk um að nú þyrfti fólk að
huga að því sem virkilegu máli skipt-
ir, eigin heilsu, styrkja fjölskyldu- og
vinabönd og hugsa á jákvæðum nót-
um. Fólk virðist almennt hafa meðtek-
ið þessi skilaboð og ég upplifi ákveðnar
breytingar í þessa veru, að við hugsum
meira um heilsuna, ræktum andlegu
hliðina til dæmis með því að fara oftar
í leikhús og lifum kannski innihaldsrík-
ara lífi nú en þegar góðærið stóð sem
hæst og mér finnst þetta góð þróun.
Í Hreyfingu hefur til dæmis orð-
ið mikil aukning í þátttöku í ýmsum
heilsuræktarnámskeiðum sem við höf-
um boðið upp á síðastliðna tvo ára-
tugi og það er athyglisvert að á síðustu
mánuðum hef ég greinilega orðið vör
við einlægari áhuga fólks á að bæta
heilsu sína og koma heilsurækt fast inn
í sitt lífsmunstur varanlega. Mér þyk-
ir það auðvitað sérlega ánægjulegt og
vona að þessi breyting sé komin til að
vera.“
bólan hlaut að Springa
Ágústa segir að við hljótum öll að vera
sammála um að það sé betra að hugsa
meira inn á við og rækta það sem virki-
lega skiptir máli.
„Það tóku allir þátt í góðærinu og
það var gaman á meðan á því stóð en
það hlaut að koma að því að bólan spryngi
þótt það sé auðvelt að vera vitur eftir á,“
segir hún og bætir við að þótt kreppan hafi
komið mjög illa við marga megi alltaf finna
jákvæðar hliðar á öllum málum þó stund-
um sé erfitt að koma auga á þær.
„Kreppan veitir óneitanlega ákveðna
lífsreynslu sem til dæmis unglingarnir
geta lært af. Unga kynslóðin var víðast hvar
orðin ansi dekruð og bar litla virðingu fyrir
því til dæmis að hafa atvinnu, því nóg var
framboðið. Við þurftum á ákveðinni leið-
réttingu að halda og ég heyri þessi viðhorf
víða í kringum mig. Gömlu gildin voru
gleymd og verðmætamat okkar var orð-
ið dálítið brenglað. Það var allt orðið svo
sjálfsagt og margir voru hættir að finna
fyrir ánægju yfir að eignast hluti, allt
þurfti að verða stærra og meira. Þetta
er auðvitað ekki algilt en ég hef orð-
ið vör við að margir upplifa þetta á
þennan hátt. Kreppan lendir auð-
vitað misharkalega á fólki og ef til
vill ekki jafnilla á minni kynslóð
sem búin var að koma sér upp hús-
næði og þeim sem eru um þrítugs-
aldurinn og voru að koma undir sig
fótunum, með háa greiðslubyrði og
jafnvel erlend húsnæðislán. Efna-
hagshrunið kemur líklega verst nið-
ur á þeim og hjá mörgum eru miklir
erfiðleikar og mikil skiljanleg reiði. Ég
finn mikið til með því fólki,“ segir hún.
SaMMála í 99% tilvika
Líkt og margir segjast upplifa hefur Ágústu
aldrei fundist ástandið óraunverulegt eða
eins og um martröð sé að ræða. Hún hefur
líka tengst stjórnmálum það lengi að hún veit
að í þeim getur allt gerst.
„En núna vantar okkur Íslendinga alvöru
leiðtoga, einhvern sem stappar stáli í þjóðina
og hvetur okkur áfram af jákvæðni og sann-
færir okkur um að allt verði í lagi. Samfélagið
er komið í eina allsherjar ringulreið og þenn-
an leiðtoga er hvergi að finna. Oft fyllist ég
hálfgerðum doða yfir ástandinu og reyni að
hugsa sem minnst um þetta allt saman og lík-
lega væri best að fara í fréttaföstu og hugsa
bara um eitthvað skemmtilegt en það er ekki
svo einfalt. Sérstaklega ekki þegar maður býr
með stjórnmálamanni sem lifir og hrærist í
þessum heimi.“
Hún segir að þau Guðlaugur ræði mikið
um stjórnmál á heimilinu og að lífsskoðan-
ir þeirra séu svipaðar. „Ætli við séum ekki
sammála í svona 99% tilvika,“ segir hún
og brosir og bætir aðspurð við að hann
hafi nú spurt hana ráða þótt hún sé
langt frá því að vera sérlegur ráð-
gjafi hans. „Ég stjórna nú helst
því sem viðkemur heilsunni
í hans lífi og reyni að beina
honum í réttar áttir henni
tengdar. Við erum lítið að
skipta okkur af ákvörð-
unartöku hvort annars
í okkar störfum en við
ræðum oft hlutina og
fáum skoðanir hvort
annars á ýmsum
málum.“
bíður Spennt eftir SuMarfríinu
Ágústa hefur alltaf lifað heilbrigðu líferni sem
skilar sér í unglegu og glæsilegu útliti. Hún
hugsar vel um sig, hefur aldrei reykt, sefur
vel og hvílir sig og hefur tileinkað sér að hafa
bjartsýni að leiðarljósi.
„Ég gæti ekki hugsað mér lífið öðruvísi en
að vera í reglulegri þjálfun svo ég hafi orku
til að framkvæma hlutina. Þegar þessir stóru
þættir eru í lagi líður mér vel,“ segir hún ham-
ingjusöm og bætir við að hún bíði spennt eftir
að geta farið í langþráð sumarleyfi með Guð-
laugi og börnunun.
„Mér finnst að Gulli hafi stað-
ið sig mjög vel. Hann missti
aldrei sjónar á því
sem skipti máli
og vann af heiðarleika. Það hefði verið auð-
velt að gefast upp og detta í þunglyndi þegar
menn lenda í slíkum ólgusjó. Þetta hefur tekið
á en hann var fljótur að horfa á hlutina með
jákvæðum augum og einbeita sér að þeim frá-
bæra stuðningi sem hann fékk frá vinum og
fjölskyldu í stað þess að einblína á hið nei-
kvæða. Vinir okkar eru traustir og stóðu þétt
við bakið á okkur sem er þakkarvert. Kannski
hafa einhverjir efast um heiðarleika hans
en það sem skiptir máli er að við vitum það
sanna. Ég er ofsalega stolt af honum.“
Indíana Ása Hreinsdóttir
„Ég þrýsti á Hann að Hætta því mÉr
finnst ekki þess virði að leggja sig
fram við Hlutina þegar þú færð
bara skít og leiðindi að launum.“
eignaðist tvíbura 38 ára „annaðhvort væru fóstrin
tvö eða um blóðköggul væri að ræða. Við urðum að
bíða í tvær vikur eftir niðurstöðunni og okkur þótti sú
bið löng og spennuþrungin.“
Mynd heiða helgadóttir