Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Síða 40
föstudagur 26. júní 200940 Ættfræði
umsjón: Kjartan gunnar Kjartansson, kgk@dv.is
Guðmundur I. Arnarson
háskólanemi í Reykjavík
Guðmundur fæddist í
Reykjavík og ólst þar upp
í Hlíðunum. Hann var
í Hlíðaskóla, lauk stúd-
entsprófi frá MH 2001 og
stundar nú nám í sagn-
fræði við HÍ.
Guðmundur starfaði
hjá timbursölu BYKO á
sumrin með mennta-
skólanámi, starfaði hjá
Ræstingaþjónustunni
um skeið en hefur starfað hjá Össuri
frá 2008.
Guðmundur æfði og keppti í
körfubolta með yngri
flokkum Vals á ungl-
ingsárunum.
Fjölskylda
Systir Guðmundar er
Sigurlaug Arnardóttir,
f. 21.8. 1970, tónlistar-
kennari í Reykjavík.
Foreldrar Guð-
mundar: Örn Sigur-
bergsson, f. 13.12. 1950,
d. 19.8. 2001, aðstoðarskólameistari
við MK, og Kristín Jónsdóttir, f. 7.8.
1949, verslunarmaður í Reykjavík.
30 ára á föstudag 85 ára á mánudag
Skúli H. Norðdahl
aRkitekt
Skúli fæddist í Reykjavík og ólst þar
upp. Hann lauk stúdentsprófi frá MR
1944 og námi í arkitektúr við Nor-
ges Högskole í Þrándheimi í Noregi
1951. Þá sótti hann námskeið í skipu-
lagsfræðum við Kungl. Tekniska
Högskolan í Stokkhólmi, Svíþjóð, og
Byggningsadminstration og ekonomi
á vegum Stokkhólmsborgar 1952.
Skúli starfaði hjá Stockholms-
stadsfastighetskontor, husbyggnad-
savdeling, 1952-53 og teiknistofu SÍS
1954-56. Hann vann hjá skipulags-
deild Reykjavíkurborgar 1956-60,
Rannsóknarstofnun byggingariðn-
aðarins 1964-65 og var skipulags-
stjóri hjá bæjarverkfræðingi Kópa-
vogs 1969-1989. Skúli hefur starfrækt
eigin teiknistofu í Reykjavík samhliða
öðrum störfum frá 1954 og gerir enn.
Fjölskylda
Skúli kvæntist 1974 Sigríði Guðrúnu
Elíasdóttur Norðdahl, f. 22.11. 1925,
d. 1.5. 1992, húsmóður. Börn þeirra
eru Guðrún Valgerður, f. 26.8. 1948,
búsett í Þrándheimi, Noregi, Dr. Phil,
lífefnafræðingur en maður hennar er
Logi Jónsson lífeðlisfræðingur; Guð-
björg Astrid, f. 8.10. 1953 í Stokkhólmi,
Svíþjóð, listdansari og starfrækir Klass-
íska listdansskólann en maður henn-
ar var Þórarinn Kjartansson fram-
kvæmdastjóri sem er látinn; Ingibjörg
Lára, f. 11.9. 1959, B.S. líffræðingur en
maður hennar er Jón Þrándur Steins-
son læknir; Valgerður Hrund, f. 17.9.
1963 í Reykjavík, rafmagnsverkfræð-
ingur og MBAM; Elías Skúli, f. 16.8.
1965 í Reykjavík, vélaverkfræðingur
og framkvæmdastjóri en kona hans er
Sigrún Faulk hjúkrunarfræðingur.
Systkini Skúla eru Kristín Guðrún
Haraldsdóttir Norðdahl, f. 8.8. 1926 í
Reykjavík, íþróttakennari; Guðmund-
ur Haraldsson Norðdahl, f. 29.2. 1929 í
Reykjavík, tónlistarkennari; Jón Bjarni
Haraldsson Norðdahl, f. 24.4. 1931 í
Reykjavík, verkstjóri.
Hálfbróðir Skúla, samfeðra, er Jó-
hannes Víðir Haraldsson, f. 2.6. 1939 á
Akureyri, flugstjóri.
Foreldrar Skúla voru Haraldur
Norðdahl, f. 24.9. 1897, d. 24.1. 1993,
tollvörður í Reykjavík, og k.h., Valgerð-
ur Jónsdóttir Norðdahl, f. 20.9. 1895, d.
30.9. 1960, húsfreyja.
Ætt
Haraldur var sonur Skúla Norðdahl,
b. og vegaverkstjóra í Elliðakoti og á
Úlfarsfelli, bróður Guðmundar, afa
Guðrúnar Norðdahl arkitekts. Skúli
var sonur Guðmundar Norðdahl, b.
á Elliðakoti Magnússonar Norðdahl,
pr. í Meðallandsþingum Jónssonar,
pr. í Hvammi í Norðurárdal Magnús-
sonar, sýslumanns í Búðardal Ketils-
sonar. Móðir Magnúsar sýslumanns
var Guðrún Magnúsdóttir, systir
Skúla fógeta. Móðir Magnúsar Norð-
dahl var Guðrún Guðmundsdóttir,
sýslumanns á Svignaskarði Ketils-
sonar, bróður, samfeðra, Magnúsar
í Búðardal. Móðir Guðmundar var
Rannveig Eggertsdóttir, pr. í Staf-
holti Bjarnasonar, landlæknis Páls-
sonar. Móðir Eggerts var Rannveig
Skúladóttir, landfógeta Magnússon-
ar. Móðir Skúla var Guðrún Jóns-
dóttir, b. í Langholti Gissurarsonar
og Guðrúnar Jónsdóttur, b. á Syðri-
Steinsmýri Jónssonar, pr. í Með-
allandsþingum Jónssonar, bróður
Steingríms biskups. Móðir Jóns pr.
var Helga Steingrímsdóttir, systir
Jóns eldprests.
Móðir Haralds var Guðbjörg, syst-
ir Eiríks, afa Vigdísar Finnbogadótt-
ur, fyrrv. forseta. Annar bróðir Guð-
bjargar var Einar, faðir Guðmundar
frá Miðdal, föður Errós, Ara Trausta
og Egils arkitekts, en meðal bræðra
Guðmundar frá Miðdal voru Sveinn
veiðimálastjóri, faðir Einars arkitekts,
Tryggvi, b. í Miðdal, faðir Einars arki-
tekts, og Haukur prentari, faðir Rún-
ars arkitekts. Guðbjörg var dóttir Guð-
mundar, b. í Miðdal Einarssonar, b.
á Álfsstöðum á Skeiðum Gíslasonar,
b. þar Helgasonar, bróður Ingveldar,
móður Ófeigs ríka á Fjalli. Móðir Guð-
mundar var Margrét Hafliðadóttir, b.
á Birnustöðum Þorkelssonar. Móðir
Guðbjargar var Vigdís Eiríksdóttir, b.
á Vorsabæ á Skeiðum Hafliðasonar,
bróður Margrétar.
Foreldrar Valgerðar, móður Skúla,
voru Jón Bjarni Jónsson, sjómaður
á Patreksfirði, og Guðbjörg Össur-
ardóttur, forstöðukona Sjúkrahúss
Patreksfjarðar.
Guðmundur fæddist í Reykjavík en
ólst upp að Ingólfshvoli í Ölfusi til
ellefu ára aldurs og síðan í Vaðnesi
í Grímsnesi. Hann stundaði nám
við Bændaskólann á Hólum og lauk
þaðan búfræðiprófi.
Guðmundur stundaði bygg-
ingavinnu með afa sínum og nafna
í Reykjavík, starfaði hjá Sláturfélagi
Suðurlands í sauðfjárslátrun nokkur
haust og var bifreiðastjóri og sölu-
maður hjá Sanitas 1981-85. Hann
flutti þá á Selfoss og var þar bifreiða-
stjóri hjá Kaupfélagi Árnesinga til
1986 en flutti þá að Klausturhólum,
hóf þar búskap og hefur verið bóndi
þar síðan.
Guðmundur hefur verið fjall-
kóngur frá 1990 og var fjallskilastjóri
1994-2006. Hann situr í stjórn Bún-
aðarfélags Grímsneshrepps frá 1993
og er formaður ungmennafélagsins
Hvatar frá 1998.
Fjölskylda
Eiginkona Guðmundar er Þórleif
Gunnarsdóttir, f. 22.9. 1963, skrif-
stofumaður. Hún er dóttir Gunn-
ars F. Þórðarsonar bifvélavirkja og
Hönnu S. Hansdóttur, húsmóð-
ur í Ömmukoti í Klausturhólum,
sem bæði eru látin.
Börn Guðmundar og Þórleifar
eru Gunnar Finnur, f. 23.7. 1983,
d. 18.8. 1987; Antonía Helga, f.
17.4. 1988, nemi; Jóhannes Þór-
ólfur, f. 13.11. 1989, nemi; Einar
Ásgeir, f. 8.7. 1997, grunnskóla-
nemi.
Systkini Guðmundar eru
Brúney Bjarklind Kjartansdótt-
ir, f. 9.8. 1963, búsett á Villinga-
vatni í Grafningi; Ragnhildur
Kjartansdóttir, f. 11.8. 1966, bú-
sett á Selfossi; Ingólfur Heimir
Kjartansson, f. 9.8. 1968, búsett-
ur í Svíþjóð; Birna Kjartansdótt-
ir, f. 16.1. 1971 búsett í Vaðnesi;
Páll Helgi Kjartansson, f. 7.5.
1972, búsettur á Grænlandi; Jón
Steingrímur Kjartansson, f. 24.7.
1973, búsettur á Selfossi; Guðjón
Kjartansson, f. 23.2. 1975, búsett-
ur í Vaðnesi; Ólafur Ingi Kjartans-
son, f. 10.8. 1978, búsettur í Vað-
nesi; Skarphéðinn Jóhannesson,
f. 30.7. 1963, búsettur í Lyngholti
í Ásahreppi; Þórólfur Jóhannes-
son, f. 6.3. 1967, búsettur í Reykja-
vík; Hörður Jóhannesson, f. 21.6.
1969 búsettur á Selfossi.
Foreldrar Guðmundar eru
Jóhannes Þórólfur Gylfi Guð-
mundsson, f. 20.5. 1931, leigu-
bílstjóri í Reykjavík, og Antonía
Helga Helgadóttir, f. 20.8. 1942,
húsfreyja í Vaðnesi.
Fósturfaðir Guðmundar var
Kjartan Pálsson, f. 28.7. 1918, d.
13.9. 2006, bóndi Vaðnesi.
Kjartan Gunnar Kjartansson rekur
ættir þjóðþekktra íslendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma
viðburði liðinna ára og minnist horfinna
merkra íslendinga. Lesendur geta sent inn
tilkynningar um stórafmæli á netfangið
kgk@dv.is
50 ára á laugardag
Guðmundur Jóhannesson
bóndi og veRktaki á klaustuRhólum í gRímsnesi
Elvar Knútur Valsson
veRkefnastjóRi hjá nýsköpunaRmiðstöð íslands
Elvar fæddist á Akureyri
og ólst þar upp. Hann var
í Glerárskóla, lauk stúd-
entsprófi frá MA 2000, lauk
prófi í viðskiptafræði frá
HA 2003 og MS-prófi í við-
skiptum frá HÍ 2006.
Elvar starfaði hjá Iðn-
tæknistofnun Íslands
2004-2007, hjá Arion –
Verðbréfavörslunni 2007-
2009 og hefur verið verkefnastjóri
hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands frá
2009.
Elvar æfði og keppti í körfubolta
með unglingaflokkum Þórs á Akur-
eyri og lék með unglingalandsliði
Íslands.
Fjölskylda
Kona Elvars er Anna
Margrét Eggertsdóttir,
f. 23.8. 1980, verkefna-
stjóri hjá Stjórnmála-
fræðideild HÍ.
Systkini Elvars eru
Sigurgeir Valsson, f.
4.12. 1984, nemi í lög-
fræði við HÍ; Ingibjörg
Lind Valsdóttir, f. 4.11.
1987, nemi í verkfræði við HÍ; Sig-
rún Eva Valsdóttir, f. 3.3. 1999,
grunnskólanemi. Foreldrar Elvars
eru Valur Knútsson, f. 1.12. 1959,
verkfræðingur á Akureyri, og Sól-
veig Sigurgeirsdóttir, f. 31.3. 1959,
bankastarfsmaður á Akureyri.
30 ára á föstudag
Berglind Ó. Guðnadóttir
þRoskaþjálfi í Reykjavík
Fæddist í Reykjavík, ólst upp
á Hornafirði til fimm ára ald-
urs en síðan í Reykjavík. Var í
Árbæjarskóla, lauk stúdents-
prófi frá FB 2001 og þroska-
þjálfaprófi frá KHÍ 2007.
Berglind starfaði við
Hólmasund, á sambýli fyr-
ir fatlaða 2003-2005 og hefur
starfað þar frá 2007. Þá starf-
aði hún í Lyngási, dagvist-
un fyrir fötluð börn, á sumrin með
námi í FB.
Berglind starfar með björgunar-
sveitinni Kili á Kjalarnesi. Þá stundar
hún þjálfun á eigin hundi til leita.
Fjölskylda
Systkini Berglind-
ar eru Inga Sigurrós
Guðnadóttir, f. 1974;
Örvar Guðnason, f.
1993; Hörður Helga-
son, f. 1995; Anika
Helgadóttir, f. 1995.
Foreldrar Berg-
lindar eru Guðrún
Sóley Guðnadóttir,
f. 1956, leikskólaliði í Reykjavík, og
Guðni Þór Hermannsson, f. 1954,
ráðsmaður á Einarsstöðum. Fóstur-
faðir Berglindar er Helgi Harðarson,
f. 1960, bifvélavirki í Reykjavík.
30 ára á föstudag
Þórarinn Óli Rafnsson
iðnveRkamaðuR og nemi á staðaRbakka í miðfiRði
Þórarinn fæddist í Reykja-
vík en ólst upp á Staðar-
bakka í Miðfirði. Hann var í
barnaskóla að Laugabakka
og stundar nú fjarnám í raf-
virkjun við VMA .
Þórarinn stundaði verk-
takastörf, hefur verið leið-
sögumaður veiðimanna í
Miðfjarðará og hefur stund-
að rafvirkjastörf. Þórarinn
var formaður Flugbjörgunarsveit-
ar Vestur-Húnavatnssýslu og hefur
sinnt fleiri trúnaðarstörfum.
Fjölskylda
Eiginkona Þórarins er Guðfinna
Krístín Ólafsdóttir, f. 1.11. 1973, skrif-
stofumaður á Hvamms-
tanga. Sonur Guðfinnu
og fóstursonur Þórarins
er Heiðar Örn Rúnars-
son, f. 15.12. 1994. Dótt-
ir Þórarins og Guðfinnu
er Inga Þórey Þórarins-
dóttir, f. 19.5. 2000.
Systkini Þórarins
eru Sólrún Guðfinna
Rafnsdóttir, f. 28.6. 1976,
kennari á Hvammstanga; Benedikt
Rafnsson, f. 26.7. 1985, vélsmiður á
Hvammstanga. Foreldrar Þórarins
eru Rafn Benediktsson, f. 25.5. 1952,
bóndi á Staðarbakka, og Ingibjörg
Þórðardóttir, f. 11.10. 1955, bóndi og
húsfreyja á Staðarbakka.
30 ára á laugardag