Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Page 46

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Page 46
föstudagur 26. júní 200946 Helgarblað HIN HLIÐIN Trommar með sveitinni Wasabi‘s Nafn og aldur? „Ég heiti Hrefna Rósa Jóhannsd. Sætran samkvæmt þjóðskrá og er 28 ára gömul.“ Atvinna? „Veitingahúsaeigandi og matreiðslumaður að mennt. Yfirkokkur á Fiskmarkaðnum.“ Hjúskaparstaða? „Á kærasta.“ Fjöldi barna? „Engin eins og er.“ Hefur þú átt gæludýr? „Jahá, ég hef alltaf átt kisur og ég elska kisur. Ég á þrjár kisur í dag sem heita Skugga, Lenni og Mía.“ Hvaða tónleika fórst þú á síðast? „Ég fór á Stóns á Sódómu. Voru alveg klikkaðir tón- leikar.“ Hefur þú komist í kast við lögin? „Já. En ekkert alvarlegt samt.“ Hver er uppáhaldsflíkin þín og af hverju? „Í augnablikinu eru það Kron by KronKron-skórnir mínir úr sumarlínunni. Skór eru flík, ekki satt?“ Hefur þú farið í megrun? „Nei, en ég hef farið í aðhald. Megrun er svo ljótt og niðurdrepandi orð.“ Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmælum? „Já.“ Trúir þú á framhaldslíf? „Ég geri það, já, á fallegan og barnslegan hátt.“ Hvaða lag skammast þú þín mest fyrir að hafa haldið upp á? „Ég skammast mín ekki fyrir neitt. Asnaleg lög eru bara minningar um gamla og góða tíma.“ Hvaða lag kveikir í þér? „Club Tropicana með Wham! kemur mér í gott skap og fær mig til að dilla mér.“ Til hvers hlakkar þú núna? „Ég hlakka til að taka upp fleiri Matarklúbbsþætti, klára kokkabókina mína og fara á Eistnaflug og Lunga.“ Hvaða mynd getur þú horft á aftur og aftur? „Það er Mallrats. Mér finnst hún eldast mjög vel, hún er sjúklega fyndin og Jason Lee er uppáhaldsleikar- inn minn.“ Afrek vikunnar? „Fékk mér tattú sem var mjög vont – og ekki láta neinn segja þér neitt annað – en það var alveg þess virði.“ Hefur þú látið spá fyrir þér? „Nei. Ég vil frekar að lífið komi mér á óvart en að ég sé að bíða eftir að einhver spá rætist.“ Spilar þú á hljóðfæri? „Ég er trommari í The Wasabi‘s. “ Viltu að Ísland gangi í Evrópusambandið? „Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki kynnt mér það mál nógu vel til að hafa sterka skoðun á því.“ Hvað er mikilvægast í lífinu? „Það eru þessir litlu hlutir í lífinu sem veita manni ómælda ánægju. Svo er líka mikilvægt að elska sjálfan sig svo maður geti elskað aðra og smitað út frá sér. Hljómar egótískt en er svo satt.“ Hvaða íslenska ráðamann mundir þú vilja hella full- an og fara á trúnó með? „Össur Skarphéðinsson. Svo myndi ég plata hann til að kaupa flugmiða handa okkur til Írlands og við myndum dansa river-dansa.“ Hvaða fræga einstakling myndir þú helst vilja hitta og af hverju? „Ég myndi vilja hitta Rachel Ray og spyrja hana hvar hún fékk þennan græna písk sem hún notar í þáttun- um sínum. Þegar ég sé þennan písk langar mig geð- veikt til að þeyta eitthvað. Svo girnilegur pískur.“ Hefur þú ort ljóð? „Já, ég var mjög dugleg að yrkja ljóð og skrifa smásög- ur hérna áður fyrr. Tölvusjúka mamma og Konan sem átti 100 börn eru titlar sem gleymast seint.“ Nýlegt prakkarastrik? „Algjör prakkari. Er alltaf að prakkarast. Það er of vandræðalegt að segja frá.“ Hvaða fræga einstaklingi líkist þú mest? „Persónulega finnst mér ég ekki líkjast neinum fræg- um en mér hefur oftast verið líkt við Reneé Zellweger í útliti.“ Ertu með einhverja leynda hæfileika? „Ég get ekki gert neitt svona skrýtið með líkamanum ef það er spurningin en ég er góð að teikna sem er hæfileiki sem ég hef ekki náð að sinna í mörg ár og stefni á að sinna meira á næstunni þegar tími gefst.“ Á að leyfa önnur vímuefni en áfengi? „Nei.“ Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn? „Það fer algjörlega eftir því hvernig skapi ég er í en þessa dagana dreymir mig um að fara á veitingastað- inn Roka í London og fá mér kokteil sem heitir Tokyo Baby 2009. Ég sé þann stað fyrir mér í hillingum eins og manneskja sem sér gossjálfsala í eyðimörkinnni. “ Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa? „Ég fer inn á southparkstudios.com og kveiki á einum þætti sem ég sofna mjög fljótlega yfir samt.“ Hver er leið Íslands út úr kreppunni? „Ég væri til í að vita svarið við þessu.“ LandsLiðskokkurinn Hrefna rósa JóHannsdóttir sætran myndi pLata Össur skarpHéðinsson með sér tiL ÍrLands að dansa river-dans og fékk sér Húð- fLúr fyrr Í vikunni. mynd karL petersson 30 days Apótekin & Heilsubúðirnar www.leit.is · Smellið á ristilvandamál Á gamla gamla verðinu. 30 days Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman. Umboðs- og söluaðili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is Birkilauf Oxy tarm Apótekin & Heilsubúðirnar www.leit.is · Smellið á ristilvandamál Á gamla gamla genginu. Oxy tarm Endurnærir og hreinsar ristilinn Allir dásama oxy tarmið H u g sa s é r! S. 562 2104 Varahlutaverslunin Varahlutaverslunin Kistufell | Brautarholti 16 | Sími: 562 2104 | www.kistufell.is | kistufell@kistufell.is Ventlar NICOLAI Véla- og hjólastillingar Tímareimar - Viðgerðir BIFREIÐASTILLINGAR Faxafeni 12 Sími 588-2455

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.