Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Síða 50
föstudagur 26. júní 200950 Lífsstíll
Notaðu sólarvörN! „Ég held að
yngri konur hafi ekki meðtekið hversu
mikilvæg sólarvörn er fyrir húðina og
þær munu sjá eftir því seinna,“ segir sex
and the City-stjarnan Kristin davis þegar
hún er spurð um sitt helsta fegurðar-
ráð. Þetta snýst ekki bara um að fá smá
lit, stelpur.
Ný rós blómstrar hjá L´Occitane en
klassíska rósalínan þeirra hefur ver-
ið afar vinsæl síðustu misseri. Nýja
rósalínan á rætur sínar að rekja
til Forcalquier í Provence-héraði í
Suðaustur-Frakklandi. Í maímán-
uði í þessum litla bæ brýst vorsólin
fram og rósaakrarnir fylla þorpin af
ljúfum ilmi.
Samkvæmt gömlum hefðum
fagnar unga fólkið fyrstu rósaupp-
skerunni með því að syngja og
dansa í kringum tré skreytt rósa-
blómsveigum og litskrúðugum
borðum. Og síðan er ein ung og fal-
leg stúlka valin maídrottningin um
nóttina. Því hefur þessar fallega lína
hlotið nafnið Rose Nuit de Mai eða
næturrós maímánaðar.
Línan fangar þetta sérstaka and-
rúmsloft maíhátíðarinnar þegar
rósailmurinn blandast saman við
viðarkenndan ilminn. Ilmurinn er
heillandi og nautnafullur í senn. Í
línunni má finna ilmvatn, „roll on“-
ilm sem er kjörið að hafa í veskinu
til að fríska upp á ilminn, sturtu-
sápu og húðmjólk sem gefur húð-
inni glitrandi áferð.
Ný rósalína frá L´Occitane:
Ilmur NæturrósarINNar
faNgaður
umsjón: hanna eiríKsdóttir, hanna@dv.is
Burt með
BroddaNa
margar konur raka á sér leggina
enda er með eindæmum dýrt að
fara í vax þessa dagana. hægt er að
vaxa sig heima en það er ekki
auðvelt og margar konur hafa ekki
þolinmæði í að láta hárin vaxa. fyrir
þær konur sem raka á sér fæturna
en hata broddana er um að gera að
fjárfesta í góðri fjögurra eða fimm
blaða rakvél. eftir raksturinn er síðan
gott að bera þykkt krem á til að
koma í veg fyrir kaktus-áferðina eins
og til dæmis elizabeth arden eight
hour kremið. Kremið er bæði
græðandi og gefur fallegan glans.
HeIllaNdI
uppskrIftIr
Whole foods-verslanakeðjan í
Bandaríkjunum er með frábæra
heimasíðu. Þar má finna frábærar
uppskriftir, allt frá heimabökuðum
brauðum til tófúrétta. fyrir þá sem
hafa gaman af að elda á þessi síða
eftir að koma að góðum notum því
uppskriftir eru afar skemmtilegar og
öðruvísi. Á vefnum má finna
næringarinnihald allra uppskrift-
anna sem kemur sér vel fyrir þá sem
hugsa vel um heilsuna. en á síðunni
má einnig finna skemmtilegar
heilsuráðleggingar fyrir hina
venjulegu manneskju. nú svo er
alveg þess virði að kíkja inn í
verslunina við tækifæri ef farið er
vestur um haf. hún er draumur.
lestu í sumar
Þú verður kannski ekki á ströndinni
á alicante í sumar, en þú færð
sumarfrí, svo mikið er víst. í sumar
halda íslenskar fjölskyldur upp í
bústað eða í tjaldferðalag. Því er
kjörið tækifæri þetta sumarið að
næla sér í góðar bækur því fátt er
betra en að lesa í blíðviðrinu. Það
fylgir einnig lestrinum mikil hvíld.
Léttur lestur er skemmtilegur á
sumrin og því eru spennusögur oft
vel við hæfi. stieg Larsson-trílógían
hefur notið mikilla vinsælda
undanfarið og verður enginn svikinn
af því að lesa Karla sem hata konur
eftir stieg Larsson, óheillakrákuna
eftir Camillu Lackberg eða
rauðbrysting eftir jo nesbö.
skandínavískar og pottþéttar.
lostavekjaNdI
matur
Kim Basinger og Mickey
Rourke notuðust við mat
í ástarleikjum sínum
í kvikmyndinni Nine
and ½ week á afar eftir-
minnlegan máta. En viss
matur getur einnig örvað
líkamann til hins ítrasta
og gert kynlífið mun
skemmtilegra.
CHIlI-pIpar
Það er sérstakt efnasamband í chili-
pipar sem eykur blóðflæði líkamans
og örvar taugaendana þannig að
það „kviknar“ í þínum og ástarleikirn-
ir verða enn meira spennandi.
avókadó og aspas
Bæði avókadó og aspasinn inni-
halda mikið af e-vítamínun sem
kemur af stað fjöldaframleiðslu
hórmóna á borð við testósterón,
estrógen og prógesterón líkam-
ans sem örvar kynfæri kvenna.
BaNaNar
Það er mikið magn af
pótassíum í banönum.
steinefnið styrkir vöðvana. Við
fullnægingu verða samdrætt-
irnir mun öflugri ef nóg er um
pótassíum í líkamanum og þar
að leiðandi mun manneskjan
upplifa ákafari fullnægingu.
súkkulaðI
súkkulaðibaunin
inniheldur fenýlalín sem
er ein af nauðsynlegum
amínósýrum. Það sem ein-
kennir fenýlalínið er að það
veitir manneskjunni mikla
vellíðan og þegar fólki
líður vel er ekki vitlaust að
stunda kynlíf.
ostrur
Þetta er kannski klisja en
ostrur innihalda mikið magn
af steinefninu zink sem
eykur testósterónmagn
líkamans. Því er haldið
fram að testósterónið auki
kynlífslöngun hvers og eins.
graNateplI
granatepli innihalda mikið af andoxunarefnum sem
hjálpa blóðinu að renna betur í gegnum hár- og slagæð-
ar. Þetta veldur aukinni tilfinningu á kynfærasvæðinu.
rauðvíN
rauðvín slakar hraðar á fólki heldur
en gott axlanudd. Það eru andoxun-
arefni í rauðvíni sem auka blóðflæðið
áður og á meðan á kynlífi stendur.
lax og valHNetur
Bæð laxinn og valhneturnar
eru stútfull af omega 3
fitusýrum sem hafa frábær
áhrif á alla kynlífshórmón-
ana. graskersfræ og hörfræ
eru einnig frábær frygðarlyf.
vaNIlla
eftir kvöldmatinn er
um að gera að fá sér
ljúffengan ís með
vanillu. Vanilla er
sögð örva taugarnar á
mildan máta og gera
því kynlífið enn sætara.
Roll on-ilmur
hentugt þegar
konur eru á
ferðinni.
Sturtusápa sem
ilmar af franskri rós.
Glitrandi húðmjólk Þú munt
glitra af fegurð í sumar.