Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Qupperneq 64
n KR-ingurinn knái Björgólfur Tak-
efusa hafði ekki heppnina með sér
á æfingu Vesturbæjarstórveldisins á
dögunum. Björgólfur fékk hné sam-
herja síns í lærið með þeim afleiðing-
um að það bólgnaði upp. Björgólfur
ákvað því að leita til læknis sem varð
til þess að kappinn var lagður inn
á spítala þar sem það blæddi inn á
lærvöðvann. Björgólfur dvaldi að-
eins eina nótt á sjúkrahúsi en þetta
var samt sem áður áfall fyrir knatt-
spyrnu-
manninn
sem hefur
staðið sig
vel það sem af er
leiktíðinni. Óheppnin
virðist elta fjölskyld-
una en eins og oft
hefur komið fram er
Björgólfur afabarn
Björgólfs Guð-
mundssonar og þar
af leiðandi frændi
Björgólfs Thors
Björgólfssonar.
Er góð menntun
silfri betri?
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.
Níu landsliðsmenn karla í handbolta
skráðu sig í nám í ÍAK einkaþjálfun
hjá Keili fyrir stuttu. Í þessum hópi eru
margar skærustu stjörnur landsliðsins
en námsmennirnir eru Guðjón Val-
ur Sigurðsson, Logi Geirsson, Vignir
Svavarsson, Björgvin Páll Gústavsson,
Einar Hólmgeirsson, Ingimundur Ingi-
mundarson, Þórir Ólafsson, Hreiðar
Levy Guðmundsson og Aron Pálmars-
son. Einnig er kærasta Loga Geirsson-
ar, körfuboltakonan Ingibjörg Elva Vil-
bergsdóttir, skráð í námið.
Björgvin Páll, sem hefur farið ham-
förum í markinu, segir námið sniðið
að þörfum silfurstrákanna. „Við erum
búnir að leita mikið að námi sem teng-
ist íþróttinni og sem hægt er að taka á
Íslandi. Það getur verið erfitt að nálg-
ast námið því oft er mikið af verkleg-
um tímum og tímum sem krefjast þess
að maður sé á Íslandi. ÍAK býður upp
á skemmtilega lausn fyrir okkur og
er námið í rauninni sniðið í kringum
okkur. Við erum allir í þessu í gegnum
netið. Svo þegar við erum á Íslandi í
kringum landsliðið og fleira hittast all-
ir og við förum í verklega tíma.“
Björgvin Páll útilokar ekki að liðs-
félagarnir hjálpist að. „Það er ómögu-
legt að segja. Við erum allir góðir vinir
þannig að það er ekkert fjarlægt. Eins
og Logi sagði um daginn þá gæti far-
ið svo að við opnum stöð saman þeg-
ar við komum heim allir. Það er alveg
pæling. En ég á vonandi eftir fimm-
tán ár í atvinnumennsku þannig að ég
held að þetta sé langtímahugmynd.“
liljakatrin@dv.is
Björgólfur
á spítala
Opið laugardaga 10-14
Níu landsliðsmenn karla í handbolta stunda fjarnám hjá Keili:
sIlfurstráKarNIr á sKólaBEKK
n Partípinninn Andrés Pétur Rún-
arsson datt aldeilis í lukkupottinn
fyrir stuttu þegar hann var beðinn
um að vera einn af dómurunum
í fegurðarsamkeppninni Sumar-
stúlka Suðurnesja sem fram fór um
helgina. Andrési Pétri var boðið í
golf sömu helgi en afþakkaði boð-
ið og tók dómarastarfinu fegins
hendi í staðinn. Þessi
knái veitingahúsa-
eigandi tók starf sitt
sem dómari mjög
alvarlega og undir-
bjó sig með því að
skoða aragrúa af
bikiníblöðum. Sjálf
keppnin tókst mjög
vel og var Andrés
Pétur hæstánægð-
ur með kvöldið og
því ekki ólíklegt
að hann taki álíka
dómarastarf að sér
aftur.
aNdrés pétur
dæmIr fEgurð
n Poppgúrúinn Dr. Gunni er í sum-
arfríi og ákvað að skella sér í veiði-
ferð. Hann hefði betur sleppt því,
því eins og hann skrifar á blogg-
síðu sína var þetta ekki ferð til fjár.
„Í Skorradalsvatni sargaðist flotholt
og fluga af í þriðja kasti. Þá festi ég
Tobyspún og braut glænýju stöng-
ina þegar ég reyndi með offorsi að
ná spúninum,“ bloggar Dr. Gunni.
Hremmingarnar héldu áfram í Vest-
urhópi. „Á báti í Vesturhópi hélt ég
áfram með hálfa stöng og
lét bátinn draga annan
spún. Gætti ég ekki að
mér og rann allt girnið
af hjólinu. Greip ég þá
Disney-stöng Dag-
bjartar og henti út
síðasta spúninum.
Hann festist og allt
draslið slitnaði af,“
skrifar Dr. Gunni.
Hann lætur þetta
ekki stoppa sig
og hlakkar til að
veiða aftur reynsl-
unni ríkari.
ömurlEg
vEIðIfErð
Silfraðir námshestar landsliðinu var
ákaft fagnað þegar það vann silfurverð-
launin á ólympíuleikunum í fyrra.
mynd Sigtryggur Ari JóhAnnSSon