Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2009, Page 4
Sandkorn
n Óskar Hrafn Þorvaldsson og
samstarfsfólk hans á Stöð 2 virð-
ist vera að ryðja RÚV-urum aftur
fyrir sig. Þannig hefur spurst út
að samkvæmt fyrstu tölum úr
mælingum
þessarar
viku séu
bæði fréttir
Stöðvar 2 (25
prósent) og
Ísland í dag
(29 prósent)
með nokk-
uð forskot
á fréttir Sjónvarps (19 prósent)
og Kastljós (21 prósent). Það er
því af sem áður var þegar fréttir
Sjónvarps og Kastljósið báru höf-
uð og herðar yfir keppinauta sína
á Stöð 2. Eftir nokkur döpur ár á
Lynghálsi og síðar Skaftahlíð og
tíð fréttastjóraskipti virðist Stöðin
hins vegar á góðri siglingu.
n Áhorf á fréttir SkjásEins hljóta
hins vegar að valda aðstandend-
um þeirra, bæði á SkjáEinum og
Morgunblaðinu, miklum áhyggj-
um. Þannig mælist áhorf á frétta-
tímann aðeins um eitt prósent
og sennilega
í fyrsta skipti
á gifturíkum
sjónvarps-
ferli Ingu
Lindar Karls-
dóttur sem
hún þarf að
sætta sig við
slíkt. Áhorf
á dagskrárliði SkjásEins mælist
almennt lítið eftir að lokað var á
dagskrána og hafa sumir hrunið
en þá afsökun er ekki hægt að
nota á fréttatímann sem sendur
er út í opinni dagskrá.
n Viðbúið er að fjöldi fólks verði
saman kominn á veitingastaðn-
um Litlu Brekku sunnudaginn
6. desember þegar tveir fulltrúar
Wiki Leaks,
þeir Daniel
Schmitt og
Julian Ass-
ange, verða
frummæl-
endur á
Pressukvöldi
Blaða-
mannafé-
lags Íslands.
Þeir hafa verið hérna í nokkurn
tíma og munu á Pressukvöldinu
meðal annars fjalla um hvern-
ig íslenskir blaðamenn geta nýtt
sér Wikileaks og hugmyndir um
hvað Ísland getur gert fyrir fjöl-
miðlafrelsi í heiminum. Wiki-
leaks er síðan sem birti upplýs-
ingar úr lánabók Kaupþings sem
vöktu mikla athygli fyrr á árinu.
4 föstudagur 4. desember 2009 fréttir
Forsvarsmenn PH prents biðja keppinaut um sameiningu:
Kennitöluflakkarar leita lausna
Forsvarsmenn prentsmiðjunnar PH
prents hafa óskað eftir sameiningu
við annað fyrirtæki í sama bransa.
Um er að ræða prentsmiðjuna Let-
urprent en einn eigenda prentsmiðj-
unnar, Hilmar Sigurðsson, gekk á
fund eigenda Leturprents nýverið
þar sem óskað var eftir sameiningu
fyrirtækjanna.
Endurtekið kennitöluflakk eig-
enda prentsmiðjunnar PH prents í
Hafnarfirði hefur vakið reiði sam-
keppnisaðila. Eigendurnir starfa nú
undir fimmtu kennitölunni og hafa
því keyrt fjórar prentsmiðjur í þrot
á tæpum áratug. Fyrri gjaldþrot fyr-
irtækja þeirra Magnúsar Ólafssonar,
Rósmundar Magnússonar og Hilm-
ars Sigurðssonar nema hundruðum
milljóna króna. Keppinautar, birgj-
ar og hagsmunasamtök hafa lýst yfir
sárum vonbrigðum og kallað eftir því
að komið verði í veg fyrir áframhald-
andi rekstur prentsmiðjunnar. Undir
nafni PH prents leita þeir nú lausna
til að halda áfram prentsmiðjurekstri
og ein þeirra gæti verið sameining
við aðrar prentsmiðjur.
Burkni Aðalsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Leturprents, staðfestir
að leitað hafi verið til sín þar sem ósk-
að var eftir sameiningu við Prenth-
eima. Aðspurður útilokar hann að hún
verði að veruleika. „Ég get alveg viður-
kennt að þeir komu til okkar og spurðu
eftir áhuga okkar. Við erum hins veg-
ar á bullandi siglingu og auðvitað hef-
ur umræða um kennitöluflakk þeirra
mikil áhrif á okkur enda erum við með
flekklaust fyrirtæki. Við viljum ekki
fara út í eitthvert ævintýri. Við höfum
engan áhuga á þessu, því miður,“ segir
Burkni Aðalsteinsson, framkvæmda-
stjóri Leturprents. trausti@dv.is
Vilja sameinast Forsvarsmenn PH
prents, áður Íslandsprents, leita til
samkeppnisaðila eftir sameiningu.
Mexíkósk súpa
á alþingi
Í frétt um matinn á Alþingi í síð-
asta blaði féll út að á föstudag er
mexíkósk súpa með nachos og
sýrðum rjóma í matinn, auk sal-
atbars. Þessu er hér með komið á
framfæri. Í fréttinni mæltist nær-
ingarfræðingur til þess að sýrði
rjóminn innihéldi mest tíu pró-
sent fitu og hvatti þingmenn til að
borða nachos í hófi með súpunni.
Tapaði ekki í
Reykjanesbæ
Í frétt og á forsíðu miðvikudags-
blaðs DV var knattspyrnumað-
urinn Eiður Smári Guðjohnsen
ranglega sagður hafa tapað fé á
Íþróttaakademíunni í Reykja-
nesbæ. Hið rétta er að Eiður
Smári er einn af aðstandendum
Knattspyrnuakademíu Íslands
í Kópavogi. Dagný Gísladóttir,
kynningarstjóri Reykjanesbæjar,
segir rekstur Íþróttaakademíunn-
ar ganga vel hjá Keili, miðstöð
vísinda og fræða á Ásbrú undir
stjórn HR.
„Það voru sorglega fáir sem mættu
því það var virkilega vel að þessu
staðið. Þetta var frábært framtak hjá
þeim sem komu að þessum tónleik-
um,“ segir Elísabet Valgeirsdóttir, for-
maður Mæðrastyrksnefndar Hafn-
arfjarðar. Prímadonnurnar héldu
tónleika í Víðistaðakirkju laugardag-
inn 28. nóvember til styrktar nefnd-
inni. Aðeins borguðu 26 manns sig
inn á tónleikana þar sem söfnuðust
65 þúsund krónur. Sú upphæð skilar
sér óskert til skjólstæðinga Mæðra-
styrksnefndar. Prímadonnurnar
fengu hins vegar 700 þúsund króna
styrk frá Rio Tinto Alcan til að halda
tónleikana.
Úthlutað úr styrktarsjóði
Á styrktartónleikunum komu fram
sópransöngkonurnar Sigrún Hjálm-
týsdóttir, betur þekkt sem Diddú,
Auður Gunnarsdóttir, Elín Ósk Ósk-
arsdóttir og Þóra Einarsdóttir, auk
Antoníu Hevesi píanóleikara. Þær
hafa áður leitt saman hesta sína í
Íslensku óp- er-
unni undir
nafninu Príma-
donnurnar.
Daginn fyr-
ir tónleikana
var tilkynnt um
úthlutanir úr
Samfélagssjóði
Alcan. Þá var
9,3 milljónum
úthlutað, þar
af 700 þúsund
krónum til tón-
leikahaldsins.
Þannig greiddi
Rio Tinto Al-
can laun þeirra
sem komu að
tónleikunum
og fyrir aug-
lýsingar vegna
þeirra. Styrkir
voru veittir til valinna verkefna sem
sótt hafði verið um styrki fyrir til fyr-
irtækisins.
Hófstillt miðaverð
Auður leynir ekki vonbrigðum sín-
um með mætingu
á tónleikana og
þá upphæð sem
þar safnaðist. „Jú,
það var frekar illa
mætt. Auðvitað
voru þetta von-
brigði,“ segir hún.
Prímadonn-
urnar stefna því
á að halda aðra
tónleika fyrir
næstu jól til styrkt-
ar Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar.
„Við erum mjög spenntar fyrir því,“
segir Auður.
Hún telur að tímasetning tónleik-
anna hafi mögulega haft eitthvað
um aðsóknina að segja en sama
dag var Jólaþorpið á Thorsplaninu
í Hafnarfirði formlega opnað. Því
var mikið um að vera fyrir bæjarbúa
þennan dag.
Engu að síður var miðaverði sér-
staklega stillt í hóf til að laða að gesti,
en aðgangseyrir var 2.500 krónur.
Elísabet hjá Mæðrastyrksnefnd
er afar þakklát fyrir það fé sem safn-
aðist. Hún bendir á að Mæðrastyrks-
nefnd Hafnarfjarðar sé ekki á fjár-
lögum ríkisins og nefndina muni
um allt fé sem til fellur.
Erfitt að fá athygli
Prímadonnurnar héldu veglega tón-
leika í Íslensku óperunni í vor. Góð-
ur rómur var gerður að þeim tón-
leikum og þótti tíðindum sæta að
fjórar af fremstu sópransöngkonum
skyldu þarna koma saman, ásamt
Antoníu píanóleikara. Efnisskráin
samanstóð þá af helstu perlum óp-
erubókmenntanna, eftir meðal ann-
ars Mozart, Verdi og Wagner, .
Auður segir Prímadonnurnar
stefna að því að halda reglulega tón-
leika saman á næstu misserum. Hún
undrast þá litlu athygli sem tónleik-
arnir fengu nú. „Það er alltaf svo
mikið um að vera að það er erfitt að
fá athygli fjölmiðla. Mér hefur líka
fundist það enn erfiðara þegar að-
eins konur koma saman og standa
að viðburðum,“ segir hún.
Sópransöngkonurnar Prímadonnurnar fengu 700 þúsund króna styrk úr Samfélagssjóði
Alcan til að halda tónleika til styrktar Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar. Heldur fáir
mættu á tónleikana og því söfnuðust aðeins 65 þúsund krónur fyrir Mæðrastyrksnefnd.
TÍU SINNUM DÝRARI
EN SÖFNUNARFÉÐ
Erla Hlynsdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
„ Auðvitað voru
þetta vonbrigði.“
Auglýsingaveggspjald fyrir tónleikana.
Prímadonnurnar Rio Tinto
Alcan styrkti tónleikana um 700
þúsund krónur en þar söfnuðust
aðeins 65 þúsund krónur fyrir
Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar.