Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2009, Side 18
„Við höfum verið bjartsýnar allan tím-
ann en þetta tekur svo langan tíma
og gengur svo hægt. Hann er með
börnin þótt ég hafi fengið fullt for-
ræði. Hann áfrýjar en samt er hann
með börnin. Við skiljum þetta ekki.
Hvað ef ég vinn aftur og hann ákveð-
ur að flýja með börnin? Hvað get ég
gert þá?“ segir Lilja Karen Jónsdótt-
ir. Hún stendur nú í forræðisdeilu í
Færeyjum við íslenskan barnsföður
sinn, Baldur Hrafn Björnsson. Dóm-
stólar í Færeyjum dæmdu henni fullt
forræði í byrjun nóvember. Baldur
ákvað að áfrýja málinu og fær að hafa
börnin til 22. mars á næsta ári þegar
málið verður tekið fyrir aftur.
Telja þetta barnsrán
Lilja og Baldur eiga saman dóttur-
ina Söru Maríu, sem er fjögurra ára,
og Magnús Elí, sem er tveggja ára.
Þau hafa verið í Færeyjum síðan í
lok nóvember í fyrra. Þá bað Lilja
hann um að taka börnin tímabund-
ið því sambýliskona hennar, Friðmey
Sveinsdóttir, veiktist skyndilega. Að
sögn Lilju fór Baldur fram á að þau
skiptu um lögheimili svo þau gætu
verið á leikskóla í Færeyjum og sam-
þykkti Lilja það. Börnin áttu að vera
hjá föður sínum til 1. apríl á þessu ári
en þá vildi hann ekki skila þeim aftur,
að sögn Lilju.
Seinna komst Lilja að því að ekki
hefði þurft að breyta lögheimili barn-
anna svo þau gætu verið á leikskóla
þar sem fyrirhugað var að þau dveldu
í Færeyjum skemur en hálft ár. Hún
komst einnig að því að búið var að
breyta lögheimili barnanna mánuði
áður en þau fóru þangað.
Lilja og Friðmey halda því fram
að um barnsrán sé að ræða en þar
sem Færeyjar eru ekki aðili að Haag-
samningnum er ekki hægt að beita
ákvæði hans um að fá börnin til baka
til Íslands.
Unnu besta lögfræðinginn
Forræðisdeila Lilju og Baldurs var
tekin fyrir 21. október síðastliðinn.
Í dómsúrskurði kemur fram að fær-
eyskum dómstólum finnst augljóst
að Lilja hafi mestmegnis séð um
uppeldi barnanna þangað til þau
fluttu til Færeyja. Því metur dómur-
inn það svo að best sé að veita henni
fullt forræði. Sameiginlegt forræði
þeirra Baldurs sé því ógilt.
„Hann var með besta lögfræðing
Færeyja, lögfræðing sem sérhæfir sig
í fjölskyldumálum eins og forræði
og skilnuðum. Okkar lögfræðingur
gerir það ekki. Baldur fékk tvær vik-
ur til að áfrýja og hann gerði það á
lokadegi. Við héldum að við fengjum
börnin en örfáum klukkustundum
áður en fresturinn rann út áfrýjaði
hann,“ segir Lilja. Málið verður tekið
fyrir aftur 22. mars á næsta ári og fær
Baldur að hafa börnin þangað til.
„Við skiljum þetta ekki því börnin
hafa nánari tengsl við Lilju. Þau hafa
verið í hennar faðmi og þau vilja ekki
að hún leggi þau frá sér,“ segir Frið-
mey.
Missir af miklu
Lilja og Friðmey hafa biðlað til ís-
lenska dómsmálaráðuneytisins um
hjálp. Þar fá þær þau svör að þetta
sé í höndum færeyskra yfirvalda þar
sem börnin séu með lögheimili þar.
„Af hverju vilja íslensk stjórnvöld
ekki hjálpa okkur? Við viljum biðla
til Íslendinga að hafa samband við
okkur ef þeir halda að okkur hafi yfir-
sést eitthvað sem gæti hjálpað í okkar
máli,“ segir Lilja. Hún segir það afar
sárt að hafa verið svo lengi aðskilin
frá börnum sínum.
„Það er hræðilegt að vera án
barnanna sinna. Það er ekkert verra
en það. Ég vil ekki að börnin mín séu
í Færeyjum. Ég er búin að missa af
rúmlega ári af uppvexti þeirra. Þau
voru svo ung þegar þau fóru út. Ég
er búin að missa af tveimur afmælis-
veislum og einum jólum og áramót-
um. Ég og Friðmey ætluðum að gifta
okkur 2. maí en þurftum að afpanta
því við vildum gifta okkur að börn-
unum viðstöddum. Mamma sagði
meira að segja einu sinni við mig:
„Ætlar þetta að verða annað Sophiu
Hansen mál?““
Sárt að skila þeim
Lilja fékk sér fyrst lögfræðing hér á Ís-
landi en fékk ekki gjafsókn. Því borg-
ar hún enn helming af launum sínum
í lögfræðikostnað, að hennar sögn.
Hún og Baldur eru bæði með gjaf-
sókn í Færeyjum en Lilja segir málið
samt sem áður hafa kostað þær Frið-
meyju gríðarlega peninga.
„Lögfræðingurinn sótti um gjaf-
sókn hér á Íslandi en fékk neitun
því börnin eru skráð í Færeyjum.
Við fengum færeyska gjafsókn en
hver ferð til Færeyja kostar okkur að
minnsta kosti tvö hundruð þúsund.
Svo þurfum við að greiða fyrir gist-
ingu þannig að þetta eru rosaleg-
ir peningar, sérstaklega fyrir öryrkja
eins og okkur.“
Lilja og Friðmey fá börnin um jól-
in, frá 18. desember til 4. janúar. Þær
eru glaðar yfir því en finnst sárt að
þurfa að skila þeim.
„Það er frábært að fá þau yfir jól-
in. Það er bara sárt að þurfa að skila
þeim. Mér finnst að það eigi að skila
þeim til okkar.“
18 föstudagur 4. desember 2009 fréttir
Haagsamningurinn gildir ekki
Færeyjar eru eitt af fáum löndum sem ekki eru aðilar að Haagsamningnum. Því er
ekki hægt að beita ákvæðum hans í máli Lilju.
Afhending á grUndvelli hAAgSAMningSinS
11. gr.
Barn, sem flutt er hingað til lands með ólögmætum hætti eða er haldið hér á
ólögmætan hátt, skal, samkvæmt beiðni, afhent þeim sem rétt hefur til þess ef barnið
var búsett í ríki, sem er aðili að Haagsamningnum, rétt áður en það var flutt á brott
eða hald hófst.
Ólögmætt er að flytja barn eða halda því ef:
1. sú háttsemi brýtur í bága við rétt forsjáraðila eða annars aðila, án tillits til hvort
hann fer einn með réttinn eða með öðrum, til að annast barnið samkvæmt lögum
þess ríkis þar sem barnið var búsett rétt áður en það var flutt á brott eða hald hófst og
2. hlutaðeigandi aðili fór í raun með þennan rétt, þegar barnið var flutt á brott eða
hald hófst, eða hefði farið með hann ef hin ólögmæta háttsemi hefði ekki átt sér stað.
lilja Karen Jónsdóttir vann forræðisdeilu í Færeyjum við íslenskan barnsföður sinn. Hann áfrýjaði og fær
að hafa börnin þangað til málið verður tekið aftur fyrir í mars. Hún skilur ekki af hverju íslensk stjórnvöld
vilja ekki hjálpa henni og segir ekkert verra en að vera aðskilin frá börnum sínum.
sÁrT aÐ skila BÖrnunum
lilJA KATrín gUnnArSdóTTir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
„Mamma sagði meira
að segja einu sinni við
mig: „Ætlar þetta að
verða annað Sophiu
Hansen mál?““
ekkert verra Lilja er búin að
missa af mörgu í uppvexti barna
sinna og segir það hræðilegt.
Mynd KriSTinn MAgnúSSon
Koma heim um jólin Lilja og
Friðmey fá börnin heim um jólin en
þurfa að skila þeim aftur 4. janúar.
veiktist í nóvember Friðmey veiktist
í nóvember í fyrra og þá bað Lilja
Baldur um að taka börnin tímabundið.
Hér er Friðmey ásamt Magnúsi Elí.
í faðmi móður sinnar Færeyskir
dómstólar komust að þeirri niður-
stöðu að réttast væri að Lilja fengi fullt
forræði yfir börnunum.