Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2009, Qupperneq 38
Umsjón: Kjartan GUnnar Kjartansson, kgk@dv.is
Sveinn Viðar Jónsson
rafvélavirkjameistari
Sveinn Viðar fæddist í Bolungar-
vík og sleit þar barnsskónum. Hann
nam í Barnaskóla Bolungarvíkur en
fluttist suður yfir heiðar til Reykja-
víkur árið 1955 og starfaði í Sunnu-
búðinni í Mávahlíð.
Sveinn hóf nám í rafvélavirkj-
un við Iðnskólann í Reykjavik 1959.
Hann var samhliða námi í vinnu hjá
Segli. Eftir nám starfaði hann m.a.
við Síldarbræðsluna á Hjalteyri og í
Búrfellsvirkjun.
Sveinn starfaði síðar hjá fyrirtæki
Hauks og Ólafs í sex ár en rak síð-
an eigið fyrirtæki, Rafvélaverkstæði
Sveins Viðars, í tuttugu og fimm ár.
Frá 1995 hefur Sveinn starfað hjá
Orkuveitunni.
Fjölskylda
Eiginkona Sveins er Auður Sigur-
borg Vésteinsdóttir, f. 29.8. 1939,
húsmóðir. Þau gengu í hjónaband
12.8. 1962. Foreldrar Auðar voru
Elín Guðbrandsdóttir, f. 1.8. 1914 í
Reykjavík, d. 16.9. 1996, verslunar-
maður, og Vésteinn Guðmundsson,
f. 14.8. 1914, á Hesti í Önundarfirði,
d. 15.1. 1980, efnaverkfræðingur og
forstjóri Kísiliðjunnar við Mývatn
um árabil.
Börn Auðar og Sveins eru Elín,
f. 25.2. 1963, útsendingarstjóri á
SkjáEinum, en eiginmaður henn-
ar er Sigmundur Ernir Rúnarsson,
f. 6.3. 1961, skáld og alþm. og eiga
þau Birtu, f. 29.8. 1990, Rúnar f. 13.3.
1992, Erni, f. 24.4. 1996 og Auði, f.
10.11. 2004, en fyrir á Sigmund-
ur Eydísi Eddu, f. 4.1. 1985, d. 23.3.
2009, og Odd, f. 17.2. 1987; Hrönn, f.
23.3. 1967, fjármálastjóri hjá Voda-
fone, en eiginmaður hennar er Berg-
sveinn Sampsted, f. 15.5. 1966, fram-
kvæmdastjóri Valitor, og eiga þau
Svein, f. 24.1, 1995, Alfons, f. 6.4. 1998
og Dag, f. 7.8. 2004; Auður Ýr, f. 14.12.
1974, sjávarlíffræðingur og MA í um-
hverfis og efnafræði, og sérfræðing-
ur hjá Álverinu í Straumsvík en mað-
ur hennar er William McDonald
Johnston 3rd, f. 15.1. 1974, markaðs-
fræðingur og eru börn þeirra Pálína
Hrönn, f. 3.10. 2005,og Tómas Ás-
geir, f. 21.3. 2007; Ásgeir Örn, f. 5.1.
1976, d. 22.10. 1994.
Systkini Sveins eru Guðmunda, f.
1922, nú látin, var gift Kristjáni Páls-
syni, d. 1998, en þau eignuðust sex
börn; Gísli, f. 1923, d. 1989 en kona
hans var Gyða Antoníusdóttir, d. 1991,
og eignuðust þau fimm börn en hann
átti eina dóttur áður; Guðbjörg Krist-
ín, f. 1925, d. 1926; Guðbjörg, f. 1927
en hennar maður var Kristján Tröm-
berg, d. 1969 og áttu þau fimm börn
en seinni maður hennar var Krist-
inn Finnbogason, d. 1991, og eign-
uðust þau fimm börn; Óskar, f. 1928,
en hans kona er Elsa Friðriksdóttir
og eiga þau fjögur börn auk þess sem
hann átti eina dóttur áður; Áslaug, f.
1929, nú látin, en hennar maður var
Jóhannes Guðjónsson, d. 1985, og
eignuðust þau fimm börn; Jóhann
Líndal, f. 1930, en kona hans er Elsa
Gestsdóttir og eiga þau fimm börn
en hann átti eina dóttur áður; Alda, f.
1935, var gift Ingibergi Jensen sem er
látinn en þau eignuðust fjögur börn;
Herbert, f. 1936, d. 1985, en hans kona
var Steinunn Felixdóttir og eignuðust
þau tvö börn; Sigurvin, f. 1937, kvænt-
ist Halldóru Guðbjörnsdóttur en þau
skildu, þau eignuðust sjö börn.
Foreldrar Sveins Viðars voru Lína
Dalrós Gísladóttir, f. Í Bolungarvík
22. 9. 1904, d. 14.12. 1997, og Jón Ás-
geir Jónsson, f. 9.7. 1911 á Ísafirði, d.
1.10. 1996.
Ætt
Foreldrar Línu Dalrósar voru Gísli
Jónsson á Tindum í Tungusveit
í Strandasýslu og Elísabet Guð-
mundsdóttir frá Meira-Hrauni í
Skálavík.
Jón Ásgeir var sonur hjónanna
Jóns Jónssonar vélstjóra og Ástríð-
ar Guðbjartsdóttur. Hann ólst upp
á Bolungarvik og sótti sjó þaðan á
meðan heilsa leyfði.
70 ára á laugardag 70 ára á föstudag
Astrid Kofoed Hansen
húsmóðir í reykjavík
Astrid fæddist í Reykjavík og ólst þar
upp í foreldrahúsum. Hún lauk gagn-
fræðaprófi frá Austurbæjarskólan-
um, stundaði nám við Kvennaskól-
ann í Stake Farm í Kent á Bretlandi
í tæpt ár og var síðan skiptinemi í
Bandaríkjunum í eitt ár en hún fór
með fyrsta skiptinemahópnum sem
héðan fór til Bandaríkjanna.
Astrid var hlaðfreyja hjá Flug-
málastjórn á Keflavíkurflugvelli í
eitt og hálft ár og flugfreyja hjá Loft-
leiðum í þrjú ár. Hún stundaði síð-
an húsmóðurstörf, fyrst í München
í Þýskalandi meðan maður hennar
stundaði þar nám og síðan i Garða-
bænum.
Astrid var formaður Laufsins,
samtaka flogaveikra.
Fjölskylda
Eiginmaður Astridar er Einar Þor-
björnsson, f. 7.7. 1938, verkfræðing-
ur. Hann er sonur Þorbjörns Jóhann-
essonar, kaupmanns í Kjötbúðinni
Borg í Reykjavík, og k.h., Sigríðar
Huldu Einarsdóttur húsmóður.
Synir Astridar og Einars eru Agnar
Már, f. 26.1. 1964, framkvæmdastjóri
og eigandi Nemag, The Pub Man-
egement Company Sviss, búsettur
í Sviss, en kona hans er Andrea Isa-
bella Sprich og eiga þau tvær dæt-
ur; Þorbjörn Jóhannes, f. 8.8. 1967,
húsasmíðameistari hjá Forsvarsbygg
í Noregi, en kona hans er Anna Maria
Gísladóttir og eiga þau tvo syni; Axel
Kristján, f. 30.12. 1970, starfsmaður
hjá Flugmálastjórn en kona hans er
Laufey Sigurðardóttir og eiga þau tvo
syni; Einar Eiríkur, f. 13.5. 1980, við
störf og nám í Sviss og á hann fjög-
ur börn.
Systkini Astridar eru Hólmfríð-
ur Sólveig, f. 20.6.1941, sendiherra-
frú í Brussel; Emelía Kristín, f. 1.5.
1943, d. 17.9. 2004, vararæðismaður
Íslendinga í Grikklandi; Soffia Ísa-
bella, f. 6.10.1945, fyrrv. sérkenn-
ari við Ölduselsskóla; Björg Sigríður
Anna, f. 18.7. 1948, B.S. og starfsmað-
ur hjá Iðan Fræðslusetri; Agnar Kof-
oed Hansen, f. 7.4. 1956, rekstraverk-
fræðingur í Reykjavík.
Foreldrar Astridar: Agnar Eldberg
Kofoed Hansen, f. 3.8. 1915, d. 23.12.
1982, framkvæmdastjóri Flugfélags
Akureyrar (síðar Flugfélag Íslands)
og fyrsti flugmaður þess, lögreglu-
stjóri í Reykjavík og síðan flugmála-
stjóri, og k.h., Björg Sigríður Anna
Axelsdóttir, f. 24.7. 1918, húsmóðir.
Ætt
Agnar var sonur Agnars Kofoed
Hansens, skógræktarstjóra í Reykja-
vík, sonar Hans Péturs Kofoed Han-
sens prófasts og Soffiu Isabellu
Molke Kofoed Hansen. Móðir Agn-
ars flugmálastjóra var Emilía Kofoed
Hansen Benediktsdóttir, formanns í
Akurey Péturssonar.
Björg Sigríður Anna er dóttir Ax-
els, kaupmanns á Akureyri Krist-
jánssonar, kaupmanns á Sauðárkróki
Gíslasonar, b. á Eyvindarstöðum í
Blöndudal Ólafssonar. Móðir Gísla
var Ingiríður, systir Ingibjargar, lang-
ömmu Kristjáns, föður Jónasar lækn-
is, afa Jónasar Kristjánssonar, fyrrv.
ritsrjóra DV. Önnur systir Ingiríð-
ar var Guðrún, langamma Páls á
Guðlaugsstöðum, afa Páls Péturs-
sonar, fyrrv. ráðherra. Ingiríður var
dóttir Guðmundar ríka, í Stóradal
Jónssonar, ættföður Skeggstaðaætt-
ar, Jónssonar. Móðir Kristjáns var
Elísabet, systir Erlends, afa Sigurð-
ar Guðmundssonar skólameistara.
Annar bróðir Elísabetar var Jón, afi
Jóns Leifs. Elísabet var dóttir Pálma,
b. í Sólheimum á Ásum Jónssonar.
Móðir Axels var Björg Eiríksdóttir,
b. í Blöndudalshólum, bróður Þor-
bjargar, ömmu Ólafs Björnssonar
hagfræðiprófessors. Eiríkur var son-
ur Halldórs, stúdents á Úlfsstöðum
i Loðmundarfirði Sigurðssonar, pr. á
Hálsi í Fnjóskadal Árnasonar. Móðir
Halldórs var Björg Halldórsdóttir Ví-
dalín, systir Benedikts, langafa Einars
Benediktssonar skálds. Móðir Eiríks
var Hildur Eiríksdóttir, b. á Skinna-
lóni Grímssonar. Móðir Hildar var
Þorbjörg Stefánsdóttir Scheving, pr. á
Presthólum, bróðir Jórunnar, ömmu
Jónasar Hallgrímssonar skálds.
Móðir Bjargar Sigríðar Önnu var
Hólmfríður, systir Jóns, b. á Hofi, föð-
ur Pálma í Hagkaup. Annar bróðir
Hólmfríðar var Pálmi, faðir Elínar,
blaðamanns og rithöfundar. Hólm-
fríður var dóttir Jóns, b. á Nautabúi
í Skagafirði, bróðir Hannesar, föður
Pálma rektors og afa Hannesar Pét-
urssonar skálds. Móðir Hólmfríðar
var Sólveig Eggertsdóttir, Jónsson-
ar, pr. á Mælifelli Sveinssonar, nátt-
úrufræðings Pálssonar. Móðir Jóns
var Þórunn Bjarnadóttir, landlækn-
is Pálssonar og Rannveigar Skúla-
dóttur, landfógeta Magnússonar.
Móðir Eggerts var Hólmfríður Jóns-
dóttir, ættföður Reykjahlíðarættar
Þorsteinssonar.
Gunnar fæddist á Hólmavík en ólst
upp í Einfætlingsgili í Bitrufirði.
Hann stundaði nám við Iðnskól-
ann í Reykjavík og lauk þaðan próf-
um sem rennismiður. Þá stund-
aði hann söngnám hjá Snæbjörgu
Snæbjarnardóttur við Tónlistar-
skóla Garðabæjar.
Gunnar lærði vélsmíði hjá Vél-
smiðjunni Faxa, starfaði síðan hjá
Vélsmiðjunni Faxastáli í Kópavogi
til 2005 en hefur síðan starfað hjá
þjónustudeild Olíudreifingar.
Hann syngur i kór Hjallakirkju
og hefur einnig sungið með Karla-
kór Reykjavíkur, Drangey og Kór
Átthagafélags Strandamanna.
Fjölskylda
Gunnar kvæntist 16.7 1994 Ragn-
heiði Sveinsdóttur, f. 29.4. 1961,
lyfjatækni. Hún er dóttir Sveins
Kristinssonar og Pálínu Guðlaugs-
dóttur.
Börn Gunnars og Ragnheið-
ar eru Guðjón Ingi Gunnarsson, f.
17.5. 1992; Sólrún Ásdís Gunnars-
dóttir, f. 26.7. 1995.
Systkini Gunnars eru Sigmund-
ur, f. 24.1. 1957, lagermaður, búsett-
ur í Kópavogi; Guðjón Friðbjörn, f.
16.6. 1958, húsasmíðameistari, bú-
settur á Bifröst í Borgarfirði; Sól-
rún, f. 17.7. 1961, sjúkaliði, bú-
sett á Hólmavík; Lýður, f. 29.1.
1967, vélamaður á Hólmadrangi
frá Hólmavík; Jóhann Lárus, f.
28.8. 1969, húsasmiður, búsettur á
Hólmavík.
Foreldrar Gunnars: Jón Sig-
mundsson, f. 22.11. 1914, d. 30.7.
2004, bóndi að Einfætlingsgili, og
Elín Gunnarsdóttir, f. 15.3. 1933,
húsfreyja, nú á dvalarheimili aldr-
aðra á Hólmavík.
Ætt
Jón var sonur Sigmundar Lýðsson-
ar, b. og gullsmiðs á Einfætlings-
gili, og Jóhönnu Sigmundsdóttur
Knudsen húsfreyju.
Elín er dóttir Gunnars Jónsson-
ar, b. í Gilsfjarðarmúla, og Sólrúnar
Guðjónsdóttur húsfreyju.
Kjartan Gunnar Kjartansson rekur
ættir þjóðþekktra Íslendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma
viðburði liðinna ára og minnist horfinna
merkra Íslendinga. Lesendur geta sent inn
tilkynningar um stórafmæli á netfangið
kgk@dv.is
50 ára á föstudag
Gunnar Jónsson
rennismiður og söngvari
Finnur Eyjólfsson og Bryndís
Ágústa Sigurðardóttir
50 ára brúðkaupsafmæli á laugardag
Hjónin Finnur Eyjólfsson, f. 6.9.
1930, fyrrv. starfsmaður Flugmála-
stjórnar, og Bryndís Ágústa Sigurð-
ardóttir, f. 28.10. 1929, húsmóðir,
eiga 50 ára brúðkaupsafmæli á laug-
ardag.
Börn þeirra eru Áslaug Finns-
dóttir, f. 24.9. 1960, skrifstofustjóri;
Sigrún Finnsdóttir, f. 22.1. 1962, sér-
fræðingur, og Eyjólfur Ágúst Finns-
son, f. 5.3. 1966.
gullbrúðkaup
38 föstudagur 4. desember 2009 ættfræði