Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2010, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2010, Síða 5
FRÉTTIR 3. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 5 Ríkissaksóknari fer fram á að Sophia Hansen verði dæmd í 5 til 6 mán- aða fangelsi fyrir að hafa haft fyrr- verandi bandamann sinn, Sig- urð Pétur Harðarson, fyrir rangri sök þegar hún kærði hann til lög- reglu fyrir að falsa undirskrift henn- ar vegna skulda hennar við Sigurð Pétur og föður hans. Sigurður Pétur fékk í kjölfarið réttarstöðu grunaðs manns, en var síðan hreinsaður af öllum sökum. Það varð hins vegar til þess að Sophia var ákærð fyrir ranga kæru. Aðalmeðferð fór fram í Hér- aðsdómi Reykjavíkur á þriðjudag. Málið snýst um þrjú viðskiptabréf með undirskrift Sophiu. Hún vildi hins vegar ekki kannast við að hafa skrifað undir og fól lögmanni sínum að kæra Sigurð Pétur til lögreglu fyr- ir að hafa falsað umræddar undir- skriftir. Hún var á síðasta ári dæmd til að greiða Sigurði Pétri 20 milljónir króna vegna vangoldinna lána sem hann veitti henni þegar þau stóðu í baráttunni um að fá dætur hennar Dagbjörtu og Rúnu heim til Íslands. Samtals nam upphæð viðskiptabréf- anna rúmlega 40 milljónum króna. „Dóttir mín talar ekki og les ekki íslensku“ Skýrslutaka fyrir héraðsdómi á þriðjudagsmorgun var tilfinninga- þrungin og virtist Sophia í nokkru uppnámi þegar hún svaraði spurn- ingum saksóknara. Saksóknari lagði fram ýmis gögn með undirskrift So- phiu, en hún ýmist kannaðist ekki við skjölin eða neitaði því að hafa skrifað undir þau. „Maður þyrfti að vera heiladauður til að skrifa undri svona ábyrgð,“ sagði Sophia þegar hún var spurð um eitt skjalið með meintri undirskrift hennar. Sophia neitaði því að hafa skrifað undir ýmis skjöl sem lögð voru fram og sagði að sér væri alveg flökurt af þessu máli. Málið snýst einnig um hvort Rúna Hansen, dóttir hennar sem býr í Tyrklandi, hafi vottað undirskriftir hennar sem eiga að hafa verið gerð- ar í júlí 2005 á hóteli í Tyrklandi þar sem Sigurður Pétur var einnig við- staddur. Sophia neitaði því alfarið að Rúna hefði skrifað undir nokkra pappíra og sagði: „Dóttir mín talar ekki og les ekki íslensku.“ Þess vegna hefði hún aldrei skrifað undir papp- íra sem hún skildi ekki. Undirskrift- irnar frá Istanbul eru meðal þeirra sem Sophia sakaði Sigurð Pétur um að hafa falsað. „Ég er í sambandi við dætur mínar en enginn annar,“ sagði Sophia. Eftir að saksóknari hafði spurt hana nánar út í málavexti hreytti Sophia út úr sér: „Ég er hissa á að þú skulir ekki koma með bækur úr barnaskóla.“ Sigurður Pétur Harðarson sagði hins vegar fyrir dómi að hann hefði verið með mæðgunum á umræddu hóteli þegar þær skrifuðu undir skjölin. DV hefur einnig séð bréfs- efni merkt hótelinu þar sem sjá má undirskrift Rúnu á íslensku og á tyrk- nesku. Sigurður sagðist fyrir dómi hafa beðið hana um að nota íslensku undirskriftina sína við undirritun skjalanna. Rúna stóð með Sophiu Til stóð að Rúna Hansen kæmi til landsins og bæri vitni. Hún bar hins vegar vitni í gegnum síma frá Istan- búl á tyrknesku. Túlk þurfti til að- stoðar. Rúna var spurð hvort hún hefði verið stödd á hóteli með móð- ur sinni og Sigurði Pétri 11. júlí 2005 þar sem hún á að hafa vottað und- irskrift Sophiu. Hún neitaði því og sagðist ekki hafa skrifað undir neitt. Hún var því næst spurð hvort lög- reglan hefði haft samband við hana. Hún sagði að lögreglan hefði haft samband við sig og að hún hefði sagt henni að hún hefði ekki skrifað und- ir neina pappíra. Því næst var hún spurð hvort hún þekkti Sigurð Pét- ur. Rúna svaraði: „Ég hitti hann þeg- ar ég var lítil en ég þekki hann ekki neitt.“ Hún var næst spurð hvort hún hefði hitt hann í Istanbúl árið 2005. Hún neitaði því. Fullyrðingar mæðgnanna stang- ast algjörlega á við fullyrðingar Sig- urðar Péturs um að hann hafi verið með þeim á umræddu hóteli, farið út að borða með þeim í Istanbúl og fleira í júlí 2005. Kannaðist ekki við vitni Ýmislegt fleira kom fram fyrir dómi sem Sophia neitaði að kannast við. Skuldaviðurkenningu til Sigurð- ar, sem Sophia á að hafa undirritað á heimili sínu í júní 2007, var einn- ig deilt um fyrir dómi. Ákæruvaldið kallaði til vitni sem bar fyrir dómi að hafa verið statt á heimili Sophiu með Sigurði Pétri þegar hún skrifaði und- ir viðurkenninguna. Sigurður Pétur sagði sömu sögu fyrir dómi. Hann mundi hins vegar ekki nákvæm- ar dagsetningar í því samhengi og heyrðist Sophia þá segja: „Voðalega þægilegt að muna ekki.“ Sophia neitaði því hins vegar að- spurð að hún hefði hitt umrætt vitni, sem er fyrrverandi lögreglumaður, og hvað þá að hann hefði komið inn á heimili hennar. Kannast ekki við Ragnar Hall Annað skjal sem deilt var um var umboð sem Sophia veitti Ragnari Hall lögmanni til að annast mál fyrir hennar hönd. Sophia neitaði því að hafa veitt Ragnari slíkt umboð og að hafa rætt við hann. Ragnar var sjálf- ur kallaður fyrir dóminn sem vitni í málinu. Hann sagðist vissulega hafa fengið umboðið frá Sophiu til þess að koma húseign hennar í verð. So- phia hélt sig við sína frásögn en þeg- ar hún var spurð hvort hún teldi að Ragnar væri að segja ósatt fyrir dómi sagði hún að það væri ekki sitt að meta það. Frásögn Sophiu stangaðist einnig algjörlega á við vitnisburð Ragnars um málavexti. Eftir að vitnaleiðslum lauk var gert stutt hlé á réttarhaldinu áður en munnlegur málflutningur hófst. Blaðamaður reyndi að fá So- phiu til að ræða við sig í stuttu hléi sem gert var. Sophia reiddist þá og sagðist ekkert hafa við fjölmiðla að ræða og gekk hröðum skrefum burt. Greinilegt var að réttarhaldið tók á hana, því í hléinu sagðist hún þurfa að fara út að fá sér ferskt loft til að róa niður taugarnar eftir að hafa hlustað á framburð eiðsvarinna vitna. „Á sér engar málsbætur“ Saksóknari sagði í munnlegum mál- flutningi að ekkert sem fram hefði komið í málinu styddi framburð So- phiu. Hann gerði einnig lítið úr vitn- isburði Rúnu og sagði hann engu skipta. „Sophia á sér engar málsbæt- ur,“ sagði hann og benti á að atburða- rásin hefði verið niðurlægjandi fyr- ir Sigurð Pétur, þar sem fjölmiðlar hefðu fjallað mikið um málið. Verjandi hennar krafðist hins vegar sýknu, eða að henni yrði ekki refsað yrði hún sakfelld. Hann sagði sakarefnið vera að gruna Sigurð Pét- ur um fölsun en það fæli ekki í sér staðhæfingu um brot. Rúna Hansen, dóttir Sophiu Hansen, studdi framburð móður sinnar í tilfinningaþrunginni aðalmeðferð í fjársvikamáli gegn henni. Saksóknari krefst fangelsisdóms yfir Sophiu. Hún neitaði því að hafa veitt Ragn- ari Hall umboð til að annast sín mál og einnig að hafa skrifað undir nokkur af þeim skjölum sem hún er ákærð fyrir að hafa sakað Sigurð Pétur Harðarson um að hafa falsað, þrátt fyrir framburð vitna um annað. RÚNA STÓÐ MEÐ MÖMMU VALGEIR ÖRN RAGNARSSON blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð helgin 13. – 16. febrúar 2009 dagblaðið vísir 29. tbl. – 99. árg. – verð kr. 548 Sophia hanSen: MENNIRNIR, SVIKIN og BRUNINN Bjarni Benediktsson: n eignaÐiST barnabarn 2. febrúar n DagbJÖrT er einhleYp n haliM: UppgJÖr í næSTa lífi n SigUrÐUr pÉTUr fær 19 MillJÓnir frÁ henni VerÖlD SophiU jóhanna guðrún: Glímir við sjálfs- ofnæmi sjálfsTæðisfloKKUrinn BEr áBYrGð á HrUninU gunnar stóryrtur í garð jóhönnu: „HEimsBYGGðin Hlær“ „hVar er barniÐ MiTT?” n „einS og geiMVera Væri búin aÐ Taka Yfir líkaMa DÓTTUr Minnar“ n MÓÐir STúlkUnnar SeM Var MiSnoTUÐ af fÖÐUr SínUM TJÁir Sig HvEr vinnUr EUrovision? F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð dv.is besta rannsóknarblaðamennska ársins fimmtudagur 25. september 2008 dagblaðið vísir 177. tbl. – 98. árg. – verð kr. 295 Svikinn um allt og býr í húSbíl n Sverrir Ólafsson fór frá kúbu á kúpuna laminn af landSliðS- þjálfara í taekwondo n „hann lúbarði mig,“ segir dyravörður fréttir „No, No!“ n mohamed attia stendur með Sophiu n Sigurður Pétur vill 20 milljónir frá henni Eiginmaður Sophiu hanSEn Er lífvörður hEnnar: ég Særði ruSSell Crowe tvífari bjarkar fÓlk neytendur fÓlk floSi fellir grímuna n hégómlegur, kvíðinn og kjarklaus, gleyminn og þunglyndur og með hjartapínu fréttir m YN d H ei ð a H el g a d Ó tt ir auglýSa rangt verð F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð F I M M T u d a g u r 2 5 . s e p T e M b e r 2 0 0 8 hjartapínu Víkingurinn átti í blóðugum deilum í Dalabyggð EnDurrEistuhEimabæ Eiríks rauða Beggi og Pacasfinna hamingjuá VEsturlanDiKibbi er gestgjafi Vesturlands Við þjóðVeginn: VEðrið kEmur flóttamönnum í opna skjölDu VESTURLAND Hlæjandi í kvíða og Flosi ÓlaFsson, tvítugur sem bóndi í reykholtsdal, fellir grímuna: „í hittEðfyrra Var ég rEynDar hér um bil Drukknaður“ yfirlögganVErst í VEðraVíti baulu- kóngurinn jón ólason á aKranesi glímir Við fólKsfjölgun og fæKKun í lögreglunni: linda björK guðrúnardóttir hjálpar palestínsKu sKagamönnunum: Úr stríði í frið í Dalabyggð grímur atlason er ánægður með að Vera laus úr borginni: VatnsVErk-smiðja rís á ysta annEsi Sérblað v Sturland veSturland F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð dv.is besta rannsóknarblaðamennska ársins Bókari tekinn í gíslingu þriðjudagur 26. ágúst 2008 dagblaðið vísir 155. tbl. – 98. árg. – verð kr. 295 Sigurður Pétur HarðarSon Sýknaður af SkjalafalSi: Borgin stefnir fjölskylduhjálp reykjavíkurborg Hótar fjölSkyldu- HjálP íSlandS út- burði vegna van- goldinnar leigu. Sophia kom Sök á Sigurð fréttir Ásdís Rán í fasteignabrask n „ég grét þegar ég heyrði að hún hefði lagt fram þessa kæru“ n sigurður pétur íhugar að kæra sophiu hansen aftur n segir föður sinn hafa lánað sophiu milljónir króna HafnfirSkur bókari Hefur kært innráS tveggja Hnífamanna Sem Hann Segir Hafa Haldið Sér föngnum með Poka yfir Höfði til að ná uPP úr Honum lykilorði. Hagfræðingur fer sexfalt maraþon áSdíS rán gunnarSdóttir flytur til búlgaríu áSamt manni Sínum, garðari gunnlaugSSyni. fólk fréttir Sigurður Pétur höfðaði málið á hend- ur Sophiu vegna vangoldinna lána en hún hafði áður kært Sigurð Pétur fyrir að hafa haft af sér fé með því að falsa undirskrift hennar. Sænsk rit- handarrannsókn benti aftur á móti til þess að Sophia hefði skrifað und- ir veð í íbúð sinni með eigin hendi. Sigurði Pétri þykir sárt að hafa setið uppi með hnífinn í bakinu eftir ára- langan stuðning við Sophu en segist fagna því að niðurstaða sé nú komin í þetta mál. „Í raun er ég ferlega feginn að vera laus út úr þessu og að þetta sé búið. Það er sorglegt þegar fólk reynir að koma aftan að þeim sem hefur aldrei viljað því nema allt hið besta eins og hefur gerst í þessu máli,“ segir Sig- urður Pétur í samtali við DV. Sophia og Sigurður hafa eldað grátt silfur um árabil en þau voru áður mjög náin og Sigurður barðist af kappi með henni í baráttunni fyrir að fá dæturnar heim. Á þeim árum, allt frá 1990 til 2005, lagði Sigurður Pétur henni til fé sem héraðsdómur hefur nú gert henni að endurgreiða að hluta. Eyðilagði fríið Forsaga málsins er sú að Sophia Hansen lagði árið 2007 fram kæru á hendur Sigurði eftir að hann krafðist þess að hún borgaði tryggingabréf, skuldarviðurkenningu og skulda- bréf sem faðir hans hafði lagt út fyr- ir hana. Sophia sagðist aldrei hafa skrifað undir veð í íbúð sinni og kannaðist ekki við að hún eða dótt- ir hennar hefðu skrifað undir skjölin. Undirskriftin var send til rithandar- rannsóknar hjá Statens kriminaltekn- iska laboratorium í Svíþjóð og bentu niðurstöður þeirrar rannsóknar ein- dregið til þess að umrædd undirskrift væri ekki gerð af Sigurði Pétri heldur Sophiu sjálfri. Mál Sophiu á hendur Sigurði Pétri var því látið niður falla. Sigurður sagði í samtali við DV árið 2008 að honum sárnaði kæran mjög. Hann hafi verið staddur í fríi erlend- is þegar hann frétti af kærunni. „Frí- ið var ónýtt. Ég grét þegar ég heyrði að hún hefði lagt fram þessa kæru,“ sagði hann. Sigurður Pétur höfðaði í kjölfarið mál gegn Sophiu vegna peningaláns að upphæð 20 milljónir króna. Pen- ingana hafði hann lánað Sophiu á löngum tíma, allt frá árinu 1990. Við aðalmeðferð málsins sagði Sophia að hún skuldaði Sigurði Pétri ekki 20 milljónir og hún þekkti hvorki bókar- ann sem gerði skattframtöl hennar, rannsóknarlögreglumanninn sem átti að hafa verið vitni að því þeg- ar hún skrifaði undir né heldur lög- mann sem hún á að hafa hringt í frá Tyrklandi til þess að tryggja að Sig- urður Pétur fengi veð í íbúð henn- ar á Íslandi. Allir þessir menn voru kallaðir til sem vitni í málinu og lýstu samskiptum sínum við Sophiu á einn eða annan hátt. Alltaf haft samúð með Sophiu „Það er nú einu sinni svo að í öllum málum er það réttlætið sem sigrar að lokum þótt maður sé ósáttur við hvernig málalok eru í einu og öðru. Þetta er búið að vera löng og ströng barátta og hefur tekið sinn toll af þeim sem að henni hafa komið bæði andlega og líkamlega. Ég er ánægð- ur að það sé komin lausn í þetta mál. Lausnin er kannski ekki endilega sú sem ég stefndi að í upphafi, en það er komin lausn og það er alltaf gott að fá lausn í hverju máli fyrir sig,“ seg- ir Sigurður um samskiptin við sína áður góðu vinkonu. „Auðvitað átti þetta aldrei að enda svona en það var hennar val.“ Hefði Sophia ekki kært hann vegna fölsunar á undirskrift- unum hefði hann líklega aldrei far- ið í mál við hana. „Ég stórlega efast um það, hún hefur ævinlega átt mína samúð.“ Með hnífinn í bakinu Sigurður segist leiður yfir því að hafa verið svikinn af Sophiu sem hafi reynt að bera á hann rangar sakar- giftir. Hann segist þó ekki sjá eftir að hafa stutt hana í baráttunni á sínum tíma. „Ég sé svo sem ekki eftir því að hafa farið út í það að hjálpa henni en það er skelfilegt að hafa stutt við bakið á manneskjunni í 15 ár í þess- ari miklu baráttu og fá svo hnífinn í bakið,“ segir hann. Sigurður seg- ir að hann hafi verið í sambandi við Sophiu þegar hún dvaldi í Tyrklandi í kringum aldamótin. „Við töluðum oft saman í síma og stundum, þegar hún átti ekki peninga hjálpaði ég henni,“ segir Sigurður og kveðst þrátt fyrir dóminn ekki sjá fram á að fá allt það fé sem hann lagði Sophiu til endur- greitt. „Það eru einhverjar milljónir í viðbót,“ segir hann. Ofboðsleg heift Sigurður segir að á síðustu 20 árum hafi hann öðlast mikla reynslu. „Það eru margir sigrar en samt eru töp eftir þennan tíma. Þegar á heildina er litið er þetta ofboðslega mikil reynsla sem ég hef öðlast á öllum þessum tíma. Ef ég hefði aldrei komið að þessu máli myndi ég ekki skilja stakt orð í tyrknesku og ekki öðlast jafnmikinn skilning á trú múslíma og hve heift mannsins getur verið ofboðsleg,“ seg- ir Sigurður sem hefur eignast mikið af góðum vinum í Tyrklandi. Stefán Karl Kristjánsson, lögmað- ur Sophiu, segir í samtali við DV að engin ákvörðun hafi verið tekin um hvort dómnum verði áfrýjað, það sé í skoðun. Sigurður Pétur segir að það sé ekki hans mál hvort hún áfrýi dómnum. Stormasamt samband Segja má að dómurinn í gær marki viss kaflaskil í stormasömum samskipt- um þeirra Sophiu og Sigurðar. Sam- band þeirra teygir anga sína allt aftur til fyrstu ára þeirrar löngu baráttu sem Sophia háði til þess að fá dætur sínar Dabgjörtu og Rúnu aftur heim. Sú bar- föstudagur 13. febrúar 200910 Fréttir BALDUR GUÐMUNDSSON OG BOÐi LOGASON blaðamenn skrifa: baldur@dv.is og bodi@dv.is Átti aldrei að enda svona Sophia Hansen var á fimmtudag dæmd til að greiða Sigurði Pétri Harðarsyni tæpar 20 milljónir króna. Sigurð-ur Pétur og Sophia eiga sér langa sögu en hann var áður nánasti bandamaður hennar. Líf Sophiu hefur ekki verið neinn dans á rósum frá því leiðir hennar og Sigurðar Péturs skildu. Hún missti aleigu sína nýlega þegar heimili hennar brann ofan af henni þannig að segja má að enn rjúki úr rústum heimilis hennar þegar henni er gert að greiða sínum gamla félaga tæpar 20 milljónir. Barnsfaðir hennar, Halim Al, vandar hvorki Sigurði né Sophiu kveðjurnar, segir þau bæði sek og að gert verði upp við þau í öðru lífi. tí m al ín a 25. júNí 1981frumburður sophiu Hansen og Halims al, dagbjört Vesile, fæðist. 3. OktóBER 1982 rúna ayisegül fæðist. 13. APRíL 1984 sophia Hansen og Halim al ganga í hjónaband hjá fógeta. APRíL 1987 Halim al verður íslenskur ríkisborgari. SUMARiÐ 1990 sophia Hansen vísar Halim al á dyr. 15. júNí 1991 Halim al kemur með dæturnar tvær til Istanbúl. 15. áGúSt 1991 Halim tilkynnir að dæturnar muni ekki snúa aftur til Íslands. 10. APRíL 1992 sophiu Hansen úrskurðuð forsjá dætra sinna á Íslandi. 2. NóvEMBER 1992 Landssöfnun til styrktar málarekstri sophiu Hansen í tyrklandi hleypt af stokkunum á Íslandi. börnin heim er slagorðið. útvarps- maðurinn sigurður Pétur Harðarson er talsmaður söfnunarinnar. 12. NóvEMBER 1992 undirréttur í Istanbúl úrskurðar lögskilnað sophiu og Halims og veitir Halim forræði yfir dætrunum. sophiu er veittur umgengn- isréttur í júlí, ár hvert. Þingmaður heittrú- aðra múslima var vopnaður í dómssalnum. 4. fEBRúAR 1993 Hæstiréttur í tyrklandi ómerkir dóm undirréttar um forræði Halims, vegna galla á málsmeðferð. 28. júNí 1993 undirréttur í Istanbúl rýmkar umgengnis- rétt sophiu. 7. OktóBER 1993 Héraðsdómari í Istanbúl gengur gegn hæstarétti og staðfestir fyrri úrskurð um forræði Halims yfir stúlkunum. 30. MARS 1994 Hæstiréttur ómerkir enn héraðsdóminn. dómari telur að áður en forsjá verði ákveðin þurfi að fást úr því skorið hver sé hjúskapar- staða og ríkisfang þeirra sem deila. 17. SEPtEMBER 1994 sophia brýst inn á heimili Halims með aðstoð lásasmiðs. Þar hittir hún fyrir dóttur sína dagbjörtu. 13. júNí 1996 undirréttur í Istanbúl ákvarðar að sophia megi umgangast dætur sínar frá 1. júlí til 31. ágúst, ár hvert. 1. DESEMBER 1996 sophia hittir dætur sínar á lögreglustöð í Is- tanbúl eftir tveggja ára aðskilnað. dagbjört er fimmtán ára og rúna 14 ára. 18. MARS 1997 sophia Hansen og Halim al sitja fyrir svör- um um forræðisdeiluna í sjónvarpsþætti í tyrklandi. 3. júLí 1998 Halim al fer með dagbjörtu og rúnu til divigri sem er afskekkt fjallaþorp. 9. júLí 1998 sophia hittir dætur sínar undir eftirliti í divigri. 2. júNí 2003 rúna ayisegül, tvítug, gengur í hjónaband í Istanbúl. eiginmaðurinn er ahmet erkol, 25 ára ökukennari af efnaðri fjölskyldu. 23. SEPtEMBER 2003 Mannréttindadómstóll evrópu úrskurðar að mannréttindi hafi verið brotin á sophiu Hansen. tyrknesk stjórnvöld hafi ekki gripið til ráðstafana til þess að tryggja að hún fengi að hitta dætur sínar. sophia fær 75 þúsund evrur í bætur. stúlkurnar eru nú 20 og 21 árs. Halim og dæturnar Halim al ásamt dagbjörtu og rúnu. Þær eru nú á 27. og 28. aldursári. átta hófst skömmu eftir að fyrrverandi eiginmaður Sophiu, Halim Al, neitaði að skila stúlkunum eftir að þær höfðu verið hjá honum í sumarleyfi 1991. Sigurður, sem var vinsæll útvarps- maður, stóð þétt við bak Sophiu þegar efnt var til landssöfnunarinnar „Börn- in heim“ en þar var fé safnað til fjár- frekrar baráttu Sophiu sem átti samúð þjóðarinnar. Sigurður var talsmaður söfnunarinnar en í kjölfarið var talað um að þau ættu í ástarsambandi. Sig- urður Pétur harðneitar því hins vegar í samtali við DV en Halim Al hefur sagt að brestir hafi komið í hjónaband hans og Sophiu eftir að hún kynntist Sigurði Pétri. Harkaleg vinslit Á þeim tíma sem baráttan um dæt- urnar stóð sem hæst var fátt sem benti til þess að samskiptum þeirra Sophiu og Sigurðar Péturs myndi ljúka í dómsölum. Sigurður Pétur fór margar ferðir til Tyrklands, ým- ist með eða án Sophiu, með það markmið að fá dætur þeirra Sophiu og Halims Al heim til Íslands. Síðar skildu leiðir og í byrjun maí á síðasta ári sagði DV fréttir af því að Sigurður Pétur og Sophia Hansen hefðu kært hvort annað. Sigurður kærði Sophiu fyrir að hafa eytt 52 milljónum króna af peningum fjölskyldu hans. Sophia kærði aftur á móti Sigurð Pétur fyrir að hafa falsað undirskrift hennar og eldri dóttur hennar. Þau málaferli voru til lykta leidd í gær með sigri Sigurðar Péturs. Óhætt er að segja að undanfarnar vikur hafi reynst Sophiu erfiðar. Ekki eru nema þrjár vikur síðan heim- ili hennar á Klapparstíg 17 brann til kaldra kola. Það var því varla kólnað í glóðunum þegar Sophia var dæmd til að greiða fyrrverandi nánum vini sínum tæpar 20 milljónir króna. Sophia bjó á neðstu hæð hússins og í samtali við Stöð 2 sagðist hún hafa misst allt sitt í brunanum og það eina sem hún ætti eftir væru bolur- inn og buxurnar sem hún var í þeg- ar hún fór út úr húsinu. Hún tapaði einnig að eigin sögn persónulegum munum frá dætrunum Dagbjörtu og Rúnu. Friðrik Smári Björgvins- son yfirlögregluþjónn sagði í samtali við DV í gær að grunur léki á að um íkveikju hefði verið að ræða en eng- inn sérstakur liggi þó undir grun um verknaðinn. Íhugaði að myrða Sophiu Halim Al, sem upphaflega var aðal- skúrkurinn í lífi Sophiu, sagði farir sín- ar ekki sléttar í viðtali við Mannlíf árið 2007: ,,Við bjuggum saman í 10 ár og í fimm ár var sambandið gott en seinni fimm árin var lífið með henni illbæri- legt. Þá hafði hún kynnst Sigurði Pétri Harðarsyni og var í sambandi við hann, gift konan,“ sagði Halim Al í Mannlífi. Í viðtalinu segir Halim að dætur þeirra hafi sagt honum frá sambandi Sigurð- ar og móður þeirra. Hjónabandið hafi svo versnað frá degi til dags og Halim hafi verið að því kominn að missa vit- ið vegna hjónabandserfiðleika. Hann lýsir stirðum samskiptum þeirra og segir að hann hafi leitað allra leiða til að ná sáttum við Sophiu. „Ég hugs- aði ákaft um leiðir til að tryggja dætr- um mínum góða framtíð. Það komu upp tilvik þegar stúlkurnar voru einar heima en móðir þeirra úti að skemmta sér. Mér var ljóst að Sophia gæti ekki alið þær sómasamlega upp og hugs- aði til hvaða ráða ég gæti gripið. Meðal þess sem laust niður í ruglaðan huga mér var að myrða Sophiu eða að fyr- irfara mér sem hvort tveggja stríddi þó algjörlega gegn trú minni. Niðurstaða mín varð sú að gera hvorugt,“ sagði Halim. Hafði fé af almenningi Halim sagðist í viðtalinu við Mann- líf hafa verið undrandi á söfnuninni „Börnin heim“. Sophia hafi þá feng- ið milljónir króna frá íslenskum al- menningi. „Ég skildi aldrei tilgang þess að láta hana hafa alla þessa pen- inga. Þetta jaðrar við að vera illa feng- ið fé og ég samþykkti aldrei að dæt- ur okkar fengju gjafir frá henni sem voru keyptar fyrir söfnunarféð. Hún svindlaði á íslensku þjóðinni, not- aði börnin sem skálkaskjól og not- aði svo peningana til að búa á fín- um hótelum og lifa lúxuslífi,“ sagði Halim sem bætti því við að einhver hafi borið út ljótar sög- ur um hann og sagt að hann hafi skilið eft- ir skuldir á Íslandi. Það sé rakalaus lygi, hann skuldi engum neitt. föstudagur 13. febrúar 2009 11 Fréttir 2004 frumburður rúnu ayisegül, drengurinn Hubaip, fæðist. Nóvember 2003 sophia Hansen flyst til tyrklands. 8. maÍ 2008 Mál sigurðar Péturs Harðarsonar gegn sophiu Hansen er tekið fyrir í Héraðsdómi reykjavík- ur. sophia segir að sigurður vilji fá 52 milljónir frá henni. Hún kveðst hafa kært sigurð fyrir skjalafals. Í kjölfar umfjöllunar dV um málið er blaðamanni hótað lífláti af manni sem segist vera múslimi og eiginmaður sophiu. 31. júlÍ 2008 Mohamed attia segir í viðtali við dV að sophia Hansen sé konan sín. „Við höfum verið gift í sex mánuði og það hefur ýmislegt hent okkur á þessum tíma,“ segir hann og hyggst aðstoða eiginkonu sína 24. September 2008 aðalmeðferð í skuldamáli sigurðar Péturs Harðarsonar gegn sophiu Hansen fer fram í Héraðsdómi reykjavíkur. sophia Hansen mætir í dómsal ásamt Mohamed attia, sem ver eiginkonu sína fyrir spurningum dV. sigurður Pétur krefur sophiu um 20 milljónir króna vegna vangreiddrar skuldar. 19. jaNúar 2009 Heimili sophiu Hansen að Klapparstíg 17 brennur til kaldra kola í miklum eldsvoða. Húsið er gjörónýtt og sophia segist hafa misst allt sitt. 12. febrúar 2009 sophia Hansen er af Héraðsdómi reykjavíkur dæmd til að greiða sigurði Pétri Harðarsyni 19 milljónir króna vegna vangreiddrar skuldar. Nærri 18 ár eru liðin frá því Halim al fór með dætur þeirra sophiu til tyrklands. „Hún eignaðist annan strák fyrir tíu dögum. Ég er mjög ánægður... Ég er aftur orðinn afi.“ Dagbjört og rúna rúna á tvö börn með manni sínum en dagbjört er einhleyp. Það veldur föður hennar miklum áhyggjum. Framhald á næstu opnu 13. feb. 2009 25. sept. 2008 26. ágúst 2008 Ég hitti hann þegar ég var lítil en ég þekki hann ekki neitt. Sophia Hansen Kom fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur og neitaði öllum sakar- giftum. Hún kannaðist ekki við vitni í málinu, hún kannaðist ekki við að hafa skrifað undir ýmis skjöl og hún kannaðist ekki við að hafa haft Ragnar Hall í vinnu. Dagbjört og Rúna Rúna á tvö börn með manni sínum. Rúna bar vitni fyrir héraðsdómi og studdi frásögn móður sinnar. Sigurður Pétur Harðarson Staðhæfði fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur að hann hefði verið með Sophiu Hansen og Rúnu dóttur hennar á hóteli í Istanbúl árið 2005 þegar þær skrifuðu undir skjöl. Þær neituðu því báðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.