Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2010, Síða 6
6 fréttir 21. júní 2010 mánudagur
• Dregur úr vöðvaspennu
• Höfuð- háls- og bakverkjum
• Er slakandi og bætir svefn
• Notkun 10-20 mínútur í senn
• Gefur þér aukna orku og vellíðan
Verð: 9.750 kr.
Nálastungudýnan
Opið virka daga frá kl. 9 -18
Sími 569 3100 • Stórhöfða 25 • www.eirberg.is
Ölvun á Bíladögum
Lögreglan á Akureyri stöðvaði fjóra
ökumenn aðfaranótt sunnudags
vegna meints ölvunaraksturs. Þá er
einn grunaður um að hafa ekið und-
ir áhrifum eiturlyfja.
Bíladagar, árleg hátíð bílaáhuga-
manna, var haldin á Akureyri um
helgina og að sögn lögreglu var
ölvun áberandi mikil á hátíðinni,
þó sérstaklega þegar leið á kvöld-
ið. Aðfaranótt sunnudagsins var þó
töluvert rólegri en aðfaranótt laugar-
dagsins en þá var mun meiri erill hjá
lögreglu og fangageymslur fullar.
Strangar kröfur
fyrir Ísland
„Við munum ekki koma í veg fyr-
ir viðræðurnar en Ísland þarf að
standast þungar kröfur,“ sagði Jan-
Peter Balkenende, forsætisráðherra
Hollands, í samtali við starfsbræð-
ur sína, leiðtoga ríkja ESB, á fundi
þeirra í Brussel á fimmtudag þegar
umsókn Íslands var formlega sam-
þykkt.
Hollenskur embættismaður segir
í samtali við ESB-fréttavefinn EU
Observer að hollenska ríkisstjórnin
fagni því að hún hafi getað sann-
fært önnur aðildarríki um að Ice-
save-deilan sé ekki aðeins tvíhliða.
„Hún er orðin að máli alls ESB - það
er mjög mikilvægt.“ Hann segir að
gangur aðildarviðræðnanna við Ís-
land sé háður því hvort Íslendingar
standi við alþjóðlegar skuldbinding-
ar sínar.
Lést í
vélhjólaslysi
Kona á miðjum aldri lést í vél-
hjólaslysi síðdegis á laugardag
við bæinn Litla-Holt í Dalabyggð
í námunda við Gilsfjarðarbrú.
Lögregla og sjúkralið var kallað á
staðinn klukkan 17.30 auk þyrlu
Landhelgisgæslunnar.
Þegar björgunarmenn komu
á vettvang var konan látin. Lög-
regla fer með rannsókn slyssins
en tildrög þess liggja ekki fyrir.
Ungur Frakki drukknaði við köfun í Silfru á Þingvöllum:
Öryggismál gagnrýnd
Spurningar hafa vaknað um örygg-
ismál við Silfru á Þingvöllum, sem er
vinsælasti köfunarstaður landsins,
eftir að franskur karlmaður um þrí-
tugt drukknaði í gjánni á laugardag.
Landfræðingurinn Jónína Ólafs-
dóttir, sem skrifaði lokaritgerð við
Háskóla Íslands um öryggismál kaf-
ara á Íslandi, gagnrýnir að ekkert
aukasúrefni eða merkingar séu við
Silfru, þrátt fyrir að tugir manna kafi
þar daglega yfir sumartímann. Nið-
urstaðan í ritgerð Jónínu er að örygg-
ismálin sem snúa að köfun á Íslandi
séu ekki í nógu góðu standi og lítið
eftirlit sé með kennslu í köfun.
DV hefur rætt við nokkra kafara
í kjölfar slyssins og benda þeir á að
þrír lögreglumenn hafi verið mjög
hætt komnir við köfun í Silfru í ágúst-
lok í fyrra, en þar voru þeir í köfunar-
þjálfun. Viðmælendur DV gagnrýna
að aldrei hafi farið fram rannsókn á
slysi lögreglumannanna sem varp-
að hefði ljósi á ástæður slyssins til
að forðast mætti að slíkt endurtæki
sig. Fullyrt er að banaslysið á laug-
ardaginn hafi verið á nánast sama
staðnum í gjánni þar sem lögreglu-
mennirnir þrír voru nálægt drukkn-
un í fyrra.
Svo virðist sem franski kafarinn
hafi drukknað þegar hann reyndi að
bjarga unnustu sinni sem sat föst í
gjánni.
helgihrafn@dv.is
Silfra á Þingvöllum Gjáin er með
þekktustu köfunarstöðum heims. Í kjölfar
þess að ungur Frakki drukknaði í Silfru á
laugardaginn hafa öryggismál við gjána
verið gagnrýnd.
RISAGRÓÐURHÚS
REIST Á ÍSLANDI
Erlendir fjárfestar hafa sýnt því áhuga að setja á fót magnframleiðslu á grænmeti hér
á landi til útflutnings. Talið er að sextíu störf gætu skapast nái áformin fram að ganga.
Þórður H. Hilmarsson, framkvæmdastjóri Fjárfestingarstofu, segir verkefnið vera
mjög atvinnuskapandi miðað við hver orkuþörf þess sé.
Um sextíu störf gætu skapast ef
áform innlendra og erlendra fjár-
festa um að setja á laggirnar gróð-
urhúsastarfsemi hér á landi ná fram
að ganga. Staðsetning liggur ekki fyr-
ir en gróðurhús af þessum toga yrði
sett upp nálægt jarðvarmaveitu. Þær
eru bæði á Suðvesturlandi og norð-
austurhorni landsins, en líklegt er að
stefnt verði að uppbyggingu á Suður-
nesjum.
Talið er að um hundrað þúsund
fermetra svæði þurfi undir starfsem-
ina. Þar verður lögð áhersla á út-
flutning grænmetis frá Íslandi á evr-
ópskan markað. Á næstu tveimur til
þremur mánuðum mun framhald
málsins skýrast.
Fimm verkefni í skoðun
Fjárfestingarstofa hefur unnið að
verkefninu í samstarfi við fjárfesta-
hópinn. Hlutverk Fjárfestingarstofu
er að aðstoða erlenda fjárfesta sem
hafa áhuga á beinum fjárfesting-
um hérlendis og veita þeim upplýs-
ingar. Þórður H. Hilmarsson, fram-
kvæmdastjóri Fjárfestingarstofu,
segir að áætluð orkuþörf starfsem-
innar sé um fimmtán megavött.
Hann segir ekki spurningu um hvort
verði af verkefninu heldur hvenær.
„Staðreyndin er sú að þarna er verk-
efni með litla orkuþörf en er mjög at-
vinnuskapandi. Þarna eigum við Ís-
lendingar tækifæri,“ segir Þórður.
Hann segir fyrirtækið þurfa að
notast við raforku, heitt vatn og kol-
tvísýring til framleiðslunnar. Þetta fá-
ist allt úr jarðvarmaveitum. Því henti
íslenskar aðstæður mjög vel til fram-
leiðslunnar. Nú sé verið að kanna
kostnaðarhagkvæmni þess að flytja
grænmetið yfir til Evrópu eða ann-
arra viðskiptalanda.
Þórður segir að starfsmenn Fjár-
festingarstofu hafi orðið varir við
aukinn áhuga erlendra fjárfesta á Ís-
landi síðustu tólf mánuði. Nú vinni
Fjárfestingarstofa að undirbúningi
fimm verkefna. Auk gróðurhúsanna
sé um að ræða fyrirtæki í sólarkís-
ilframleiðslu, kísilmálmframleiðslu,
umhverfisvænum efnavöruiðnaði
og gagnaver. Að jafnaði berast Fjár-
festingarstofu um þrjú hundruð fyr-
irspurnir frá erlendum aðilum á ári.
Gengisfallið ekki áhrifavaldur
Aðspurður hvort gengisfall krónunn-
ar hafi valdið því að áhugi erlendra
fjárfesta á Íslandi hafi aukist telur
Þórður svo ekki vera. Hann telur tvær
aðalástæður liggja að baki áhugan-
um. „Orkuverð hefur hækkað erlend-
is og það er erfitt fyrir kaupendur
raforku að gera langtímasamninga.
Orkuháð fyrirtæki geta komið hing-
að og gert langtímasamninga á föstu
verði. Auk þess hafa kolefnisskatt-
ar verið lagðir á fyrirtæki í auknum
mæli. Ísland er hentugt að þessu leyti
vegna þess að hér er græn orka fram-
leidd. Þessi þróun vinnur með okk-
ur,“ segir Þórður sem telur gengisfall
krónunnar þó geta falið í sér bónus
fyrir erlend fyrirtæki vegna innlendr-
ar kostnaðarhagkvæmni framleiðsl-
unnar, eins og hvað varðar launa-
kostnað.
Ýmsir kostir í stöðunni
Í maí mældist atvinnuleysi á Suð-
urnesjum 13,5 prósent. Árni Sig-
fússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ,
segir að sér lítist ágætlega á hug-
myndina svo lengi sem þetta sé
viðskiptahugmynd sem beri sig.
Árni segir að áður hafi verið rætt
um uppbyggingu gróðurhúsastarf-
semi á Suðurnesjum en þau áform
hafi ekki gengið eftir. Ísland þurfi að
keppa við stóra markaði fyrir slíka
framleiðslu. Ýmis verkefni eru nú
í undirbúningi á Suðurnesjum til
atvinnustarfsemi. Þar á meðal eru
áform um álver, kísiliðju, sjúkrahús
og ECA-herþotuverkefnið.
RóbeRt HlynuR balduRSSon
blaðamaður skrifar: rhb@dv.is
Þarna eigum við Íslendingar
tækifæri.
ÁlveR í HelGuvík Viðræður standa yfir milli HS Orku og Norðuráls um verð á
raforku. Vonast er til að niðurstaða náist í þeim innan fárra vikna.
kíSilveRkSmiðja Fulltrúar fyrirtækisins ræða við HS Orku um raforkuverð.
Allflest leyfi fyrir framkvæmdunum eru komin í hús og fjármögnun er fyrir hendi.
GaGnaveR veRne HoldinGS Fjárfestingarsamningur liggur fyrir. Verkefnið
er komið upp á borð á ný eftir að leystist úr málum vegna tengsla við Björgólf
Thor Björgólfsson fjárfesti.
e.C.a. PRoGRamS iCeland Hefur viðrað hugmyndir um að vera með tuttugu
þotur hér á landi, meðal annars til að sinna viðhaldi á þeim. Viðræður eru á
byrjunarstigi, en samgönguráðherra hefur sagt að samningurinn rúmist innan
stjórnarsáttmálans.
SjúkRaHúS Salt HealtH Er í meirihlutaeigu Róberts Wessman. Hyggst vera
með sjúkrahúsþjónustu fyrir útlendinga, þar sem verður meðal annars boðið upp
á lýtaaðgerðir. Fyrirhugað er að starfsemin hefjist árið 2011.
Staða verkefna á Suðurnesjum
tækifæri í jarðvarmanum Orkan í iðrum
jarðar nýtist vel í starfsemi gróðurhúsa.
Áætlað er að gróðurhúsið verði hundrað
þúsund fermetrar.