Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2010, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2010, Page 6
6 fréttir 19. júlí 2010 mánudagur Kona tilkynnti nauðgun til lögreglu í síðustu viku: Meint nauðgun í Elliðaárdal Kona tilkynnti nauðgun til lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu á mánudagskvöldið í síðustu viku. Nauðgunin á að hafa átt sér staða á víðavangi, nánar tiltekið þar sem hún var á gangi í Elliðaárdalnum. Eftir því sem DV kemst næst var frásögn konunnar á þá vegu að hún hefði verið á gangi þegar hún mætti karlmanni. Nokkru síðar sagðist hún hafa rankað við sér þar sem ljóst hefði verið að maðurinn hefði komið fram vilja sínum. Konuna grunaði að hún hefði verið sprautuð með deyfilyfi. Hjá lögreglunni fékkst staðfest að konan hefði tilkynnt um atburðinn og að málið væri til rannsóknar hjá kyn- ferðisbrotadeildinni. Fram til þessa hefur þó lítið sem ekkert komið fram í rannsókninni sem styður frásögn konunnar af hinni meintu nauðgun. Þannig hafa ekki fundist um- merki um verknaðinn og ekkert sem bendir til þess að karlmaður hafi þarna verið á ferð á þeim tíma sem konan segir nauðgunina hafa átt sér stað. Samkvæmt heimild- um DV hefur rannsókn heldur ekki sýnt fram á að konan hafi verið sprautuð með lyfjum né að nokkur hafi komið fram vilja sínum gagn- vart henni. Líkt og DV greindi frá var lög- reglunni á höfuðborgarsvæðinu einnig tilkynnt í síðustu viku um karlmann á sextugsaldri sem sagð- ur er hafa berað kynfæri sín fyr- ir framan ungar stúlkur í Elliða- árdalnum. Stúlkurnar fimm segja hann hafa nálgast þær á meðan hann fitlaði við kynfæri sín. trausti@dv.is Meint nauðgun Lögregla rannsakar hvort nauðgun hafi átt sér stað í Elliðaárdal í síðustu viku. Margrét Pála Ólafsdóttir leikskóla- stjóri og höfundur Hjallastefnunn- ar segir að ólíku sé saman að jafna, kynjaskiptu vali í Álftanesskóla og Hjallastefnunni. Hún fagnar því að reynt sé að koma til móts við þarfir drengja og stúlkna í skólanum en í hið umdeilda stráka- og stelpuval vanti alla dýpt. Sveinbjörn Markús Njáls- son, skólastjóri Álftanesskóla hefur áður tekið umdeildar ákvarðanir þeg- ar kemur að skólastarfi. Árið 2007 stóð hann fyrir því að prestur væri fenginn til þess að sinna sálgæslu í skólanum. Menntamálaráðuneytið er með málið til skoðunar. Ólíku saman að jafna DV.is fjallaði um það í síðustu viku að í Álftanesskóla hefði nemum í unglingadeild verið boðið upp á að taka valnámsskeiðin „strákaval“ og „stelpuval“. Samkvæmt lýsingu á val- áföngunum í valbók skólans áttu strákar í strákavali meðal annars að fræðast um bíla, vísindi og önn- ur „áhugamál drengja“, en stelpur í stelpuvali áttu meðal annars að fræð- ast um förðun og það sem fræga fólkið væri að aðhafast. Sveinbjörn sagði í samtali við DV.is að þarna væri í rauninni um jafnréttis- fræðslu og kynjafræði að ræða. Þá líkti hann kynbundna valinu við aðferðir Hjallastefnunnar en þar er börnum einnig skipt upp eftir kyni. „Hjá okk- ur er markmiðið að bæði kyn fái allt- af að prófa allt,“ segir Margrét Pála Ól- afsdóttir leikskólastjóri og höfundur Hjallastefnunnar sem segir ekki hægt að líkja stelpu- og strákavali í Álftanes- skóla við Hjallastefnuna. Vantar dýpt Margrét Pála segir Hjallastefnuna, andstætt valinu í Álftanesskóla, byggj- ast á því að bæði kyn fái sambærileg tilboð, og því sé þessu ekki saman að jafna. Hún segir að með kynjaskipt- ingu í Hjallastefnunni sé verið að bjóða börnunum upp á að þjálfa nýja hæfileika og nýjan áhuga. „Það er í raun frábært fyrir stúlkur að fá að vera einar og sér með sínu eigin kyni að læra um bíla og tækni sem er eitt- hvað sem þær eru óöruggar með, eða öfugt,“ segir hún. Hún segir að með slíkri kynja- skiptingu sé, öfugt við valið í Álfta- nesskóla, ekki verið að styrkja gömul kynhlutverk. „Það vantar bara dýpt í verkefnið hjá honum þannig að þetta verður bara allt of kynbundið,“ segir Margrét og tekur fram að marga drengi langi til að snyrta sig og vera fínir en þeir fái ekkert tæki- færi til þess ef þeir fara bara í gamla kynhlut- verkið. Hún segir gott að skólayfirvöld í Álfta- nesskóla séu að hugsa um þarfir kynjanna og hvetur þau til að taka verk- efnið lengra, þannig að bæði kynin fái að sinna öllum verkefn- um. Prest í skólann en engan Kóran Sveinbjörn Markús skólastjóri hefur áður staðið að baki umdeildum að- ferðum í skólastarfi. Þann 3. febrúar árið 2007 birtist viðtal við Sveinbjörn Markús í Fréttablaðinu þar sem hann varði þá ákvörðun sína að láta prest sjá um sálgæslu í skólanum. „Ég sé ekki að nærvera prests hér innan skól- ans hafi truflað einn eða neinn,“ sagði Sveinbjörn í viðtalinu. Þá fór hann ekki leynt með þá skoðun sína að þar sem meirihluti þjóðarinnar aðyll- ist þjóðkirkjuna ætti hún að fá pláss í skólastarfi umfram önnur trúfélög. Hann sagði sálgæsluna ekki snúast um trúboð heldur um að rækta gildi og læra af mistökum. Aðspurður vildi hann þó ekki að Kóraninum yrði dreift í skólanum: „Það byggist á því að ég þekki ekki og hef ekki kynnt mér með sama hætti Múhameðstrú. Það þýð- ir ekki að ég treysti þeim ekki, en hér erum við auðvitað með áttatíu prósent nemenda sem tilheyra Þjóðkirkjunni,“ sagði Sveinbjörn í viðtalinu. Til skoðunar Berglind Rós Magnúsdóttir ráðgjafi menntamálaráðherra segir að mats- og greiningarsvið menntamála- ráðuneytisins muni í haust hefja vinnu við úttekt á því hvernig val í grunnskól- um landsins sé útfært. Þá segir hún fleiri tilfelli í lík- ingu við það sem komið hefur upp í Álftanesskóla, vera til skoðunar hjá ráðuneytinu. Talsmaður femínista hefur bent á að með valinu sé verið að ýta undir hefðbundnar staðalímyndir og það sé brot á jafnréttis- lögum. Ákvörðun Álftanesskóla að bjóða upp námskeið, þar sem stelpur fræðast um fræga fólkið og strákar um vísindi, er umdeild. Forvígismaður Hjallastefnunnar, Margrét Pála Ólafs- dóttir, segir að ekki sé hægt að bera saman umdeild námskeið skólans og kynjaskiptingu Hjallastefnunar. Skólastjóri Álftanesskóla hefur áður vakið athygli fjölmiðla. „allt of kynbundið“ Sveinbjörn Markús skólastjóri hefur áður staðið að baki umdeildum aðferðum í skólastarfi. jÓn bjarKi Magnússon blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is sveinbjörn Markús njálsson Skóla- stjóri Álftanesskóla sagði að með valinu hafi hugmyndin verið að bjóða upp á jafnréttisfræðslu og kynjafræði. Mynd FréTTablaðið Hvað er í tísku? Í stelpuvali er spáð í fatnað, skó, litun, förðun, heilsu og fræga fólkið. strákaval Þáttakendur í strákavali eru strákar í 8., 9. og 10. bekk. Heitasta ár sögunnar Meðalhitastig í heiminum það sem af er árinu er það hæsta sem hefur mælst. Það er núna 0,68 gráðum yfir meðalhita á tuttugustu öldinni, sem var 15,5 celsíusstig. Á Íslandi hefur hitastigið ver- ið þremur til fjórum celsíusstig- um hærra að meðaltali en önnur ár. Þetta kemur fram í skýrslu frá bandarísku loftrannsóknarstöðinni, NOAA. Skýrslan kom út í lok júní og hefur kynt undir umræðu um gróð- urhúsaáhrif vestanhafs. Sjór notaður til slökkvistarfs Eldur kom upp í mosa og sinu sunn- an við Straumsvík á laugardagskvöld og gekk slökkvistarf erfiðlega framan af þar sem erfitt var að komast að eldinum. Slökkviliðið fékk Landhelgis- gæsluna í lið með sér og sótti ein af þyrlum gæslunnar sjó í slökkvifötu sem hékk neðan úr þyrlunni. Talið er að þyrlan hafi sótt um átján tonn af vatni og hjálpaði það til við að ráða niðurlögum eldsins. Eldsupp- tök eru ókunn en ekki þykir ólíklegt að eldurinn hafi kviknað af manna- völdum. Mikil veðurblíða Mikil veðurblíða var víða um landið um helgina. Aðallega þó sunnan- og vestanlands. Hitinn sunnanlands fór yfir 24 gráður og vestanlands fór hann yfir 23 gráður, bæði á laug- ardag og á sunnudag. Hlýjast var á Hellu eða 24,3 gráður. Veðurblíð- unni var þó misskipt því norðan- og austanlands var töluvert kaldara. Á Akureyri og Egilstöðum, til að mynda, fór hitinn rétt yfir tíu gráður yfir daginn. Ökklabrotnaði í gönguferð Lögregla og björgunarsveitir á Suð- urlandi voru kallaðar út seinni part- inn á sunnudag vegna stúlku sem slasaðist á göngu í Varmárdal ofan Hveragerðis. Grunur lék á að stúlkan hefði ökklabrotnað. Erfitt reyndist fyrir björgunarsveitarmenn að kom- ast að staðnum á bíl og því þurftu þeir að bera stúlkuna um tveggja kílómetra leið. Þá aðstoðuðu björgunarsveit- ir erlenda ferðamenn sem lentu í vandræðum á Skjaldbreiðarvegi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.