Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2010, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2010, Blaðsíða 7
mánudagur 19. júlí 2010 fréttir 7 Kostnaður setur mark sitt á Inspired by Iceland-verkefnið: Vefmyndavélum fækkað „Átakið átti fyrst og fremst að standa í maí, júní og fram í júlí. Þetta er bæði kostnaðarsamt og svo eru líka tæknilegir erfiðleikar,“ segir Einar Karl Haraldsson, formaður fram- kvæmdanefndar átaksins Inspired by Iceland. Þegar Inspired by Iceland-átak- inu var hrundið af stað í vor voru settar upp sjö myndavélar við vin- sæla ferðamannastaði á Íslandi, sem áhugasamir gátu skoðað á net- inu. Núna er hinsvegar einungis hægt að skoða myndir frá þremur stöðum. Einar segir að ástæðan fyr- ir þessari fækkun sé fyrst og fremst vegna mikils kostnaðar. „Þetta er rosalega dýrt og aðal- lega bandbreiddin,“ segir Einar en Inspired by Iceland-átakið átti að laða ferðamenn til landsins eftir gosið í Eyjafjallajökli. Miklum fjár- munum var varið í verkefnið. „Þeir hjá RHnet (Rannsókna og háskólaneti Íslands) hafa verið að hjálpa okkur með þetta. En þeir geta ekki varið það að halda svona mikilli bandbreidd svona lengi. Ef við værum að borga fyrir þetta fullu verði þá væru þetta alveg „sky high“ prísar. Við ætlum samt að reyna að halda þessum þremur allavega fram í ágúst og jafnvel til áramóta,“ seg- ir Einar en átakinu lýkur formlega í ágúst. Hann segir að líkur séu á að einhverjir peningar verði afgangs þegar verkefninu lýkur og það verði skoðað hvernig þeim verði ráðstaf- að. Aðspurður segist hann telja að Inspired by Iceland-átakið hafi skil- að sér. „Þetta hefur skilað sér, ferða- mannastraumurinn hefur aukist og pantanir hafa aukist og það á örugg- lega eftir að skila sér inn í haustið og veturinn. Aðalmálið er að ég held að okkur hafi tekist að leiðrétta þessar ranghugmyndir um að Ísland væri lokað og allt þakið ösku.“ viktoria@dv.is Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar enn atferli ríflega fertugs karlmanns sem grunaður er um víðtæk skemmdarverk á eigum útrásarvíkinga. Rannsókn er nú á lokastigi og líkur á því að málið verði sent ákæruvaldinu í kjölfarið. Yfirmað- ur rannsóknardeildarinnar segir þó ekki liggja fyrir hver verði næstu skref. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er að leggja lokahönd á rannsókn í máli karlmanns sem hún telur hafa slett rauðri málningu á heim- ili, bifreiðar og aðrar eigur ýmissa forkólfa íslensks viðskiptalífs fyr- ir bankahrunið. Sá einstaklingur hefur gjarnan verið nefndur Skap- ofsi. Um miðjan janúar síðastliðinn handtók lögreglan ríflega fertug- an karlmann sem talinn var bera ábyrgð á skemmdarverkum í skjóli nætur þar sem rauðri málningu var slett á heimili fólks sem hefur verið áberandi í íslensku viðskipta- lífi fyrir og eftir hrun. Þannig var til að mynda á tæpu ári slett máln- ingu á heimili Hreiðars Más Sig- urðssonar, fyrrverandi bankastjóra Kaupþings, Bjarna Ármannssonar, fyrrverandi forstjóra Glitnis, Björg- ólfs Guðmundssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Landsbankans, Hannesar Smárasonar, fyrrverandi forstjóra FL Group, Karl Werners- sonar, fyrrverandi forstjóra Mile- stone, og á heimili og Hummer- bíl Björgólfs Thors Björgólfssonar, fyrrverandi aðaleiganda Lands- bankans. Játar aðild Samkvæmt heimildum DV hefur viðkomandi játað aðild að mál- inu með þeim hætti að hafa tekið og dreift ljósmyndum af því þegar málningu var slett á eigur útrásar- víkinganna svokölluðu. Játning á því að standa að baki skemmdar- verkunum sjálfum liggur ekki fyrir. Aðspurður segir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn og yfirmaður rannsóknardeildar lög- reglunnar á höfuðborgarsvæðinu, rannsóknian á lokastigi. Í kjölfar- ið segir hann ákvörðun um fram- hald verða tekna og þannig geti styst í ákæru. „Málið er á loka- stigi rannsóknar og það er ekki búið að taka lokaákvörðun um framhaldið. Þetta hefur ekki ver- ið sent til ákærumeðferðar en við erum rétt að klára rannsóknina. Þá leggjumst við yfir niðurstöðuna og hvaða stefnu við tökum,“ segir hann. Handtekinn og grunaður Það var 15. janúar sem maður- inn var handtekinn, daginn eftir að skvett hafði verið málningu á heimili Hreiðars Más í fjórða sinn. Þá sagði Friðrik Smári að maður- inn hefði verið handtekinn vegna grunsemda um að hafa staðið að skemmdarverki á heimili banka- stjórans fyrrverandi og að hann væri jafnframt grunaður um að standa að baki fleiri skemmdar- verkum í þá veru. Málningarskemmdarverkin hófust í byrjun apríl í fyrra þeg- ar heimili athafnamannsins Hannesar Smárasonar var baðað rauðri málningu. Næstu mánuði þar á eftir tók við röð skemmdar- verka þar sem rauðri málningu var skvett á hvert heimilið af öðru hjá fólki sem tengdist banka- hruninu, bæði fyrir og eftir. Á eftir Hannesi fengu þeir Bjarni, Björg- ólfur, Björgólfur Thor, Hreiðar Már, og Karl allir að finna fyrir verkum þess sem kallaður hefur verið Skapofsi. trausti Hafsteinsson blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Hummerinn baðaður LíktogfjöldiheimilaútrásarvíkingavarHummer-glæsibíllBjörgólfsThorsbaðaðurírauðrimálningu. skapofsarannsókn er alveg að ljúka 3. apríl 2009HeimiliHannesarSmárasonar,fyrrverandiforstjóraFLGroup. 2. Júlí 2009HeimiliBjörgólfsGuðmundssonar,fyrrverandistjórnarfor- mannsLandsbankans. 2. Júlí 2009HeimiliBirnuEinarsdóttur,bankastjóraÍslandsbanka. 20. Júní 2009HeimiliBjörgólfsThorsBjörgólfssonar,einsaffyrrverandi aðaleigendumLandsbankans. 17. Júlí 2009HeimiliBjarnaÁrmannssonar,fyrrverandiforstjóraGlitnis. 6. ágúst 2009HeimiliHreiðarsMásSigurðssonar,fyrrverandiforstjóra Kaupþings. 13. ágúst 2009HeimiliHreiðarsMásSigurðssonar,fyrrverandiforstjóra Kaupþings. 13. ágúst 2009HeimiliKarlsWernessonar,fyrrverandiforstjóraMilestone. 23. ágúst 2009 Hummer-bifreiðBjörgólfsThorsBjörgólfssonar. Málningarferill SkapofSa tæknileg vandamál Einarsegiraðtæknileg- irerfiðleikarhafisett marksittáverkefnið. Harma ákvörðun ráðherra Stjórn Frjálslynda flokksins harmar það að Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, „ætli enn einu sinni“ að fara eftir ráðlegging- um Hafrannsóknastofnunnar varð- andi hámarksafla á komandi fisk- veiðiári. Þetta kemur fram í ályktun frá stjórninni. Flokkurinn vill að bætt verði við veiðiheimildir þannig að þorskaflinn verði að minnsta kosti aukinn um 100 þúsund tonn og rétt sé að auka sókn í aðrar fiski- tegundir. Einnig lýsir stjórnin yfir vonbrigðum með ríkisstjórnina sem virðist ekki ætla að breyta núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi í haust eins og gefin voru loforð um í aðdrag- anda síðustu kosninga og sett var í stjórnarsáttmálann. Daníel bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar Daníel Jakobsson hefur verið ráðinn bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Daníel er frá Ísafirði en starfaði síðast sem útibússtjóri hjá Landsbankanum að Laugavegi 77 í Reykjavík. Tæplega þrjátíu manns sóttu um bæjarstjóra- stöðuna. Í samtali við veffréttamið- ilinn Bæjarins bestu telur Daní- el ráðninguna vera mikla áskorun fyrir sig og einnig kom það honum á óvart að fá stöðuna. Reiknað er með að Daníel hefji störf í lok næsta mánaðar en þá lætur fráfarandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, Halldór Halldórsson, af störfum. eldur í tré Eldur kom upp í tré fyrir utan lík- amsræktarstöðina World Class í Laugardalnum um klukkan fjögur á sunnudag. Á tímabili var óttast að bílar í grennd við tréð gætu skemmst vegna eldsins en svo fór ekki. Mjög greiðlega gekk að slökkva eldinn og tók slökkvistarfið aðeins nokkr- ar mínútur enda eldurinn aðeins minni háttar. Ekkert tjón hlaust af eldinum. Búið að veiða 36 langreyðar Hvalbátarnir Hvalur 8 og Hvalur 9 komu báðir til hafnar í Hvalfirði á sunnudag með fjórar langreyðar innanborðs. Heimilt var að veiða 150 langreyðar í ár en þá einnig heimilt að veiða til viðbótar 25 hvali, sem er ónýttur kvóti frá því á síð- asta ári. Það sem af er þessari hval- veiðivertíð hafa 36 langreyðar verið veiddar. Þetta kom fram í fréttum RÚV á sunnudag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.