Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2010, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2010, Side 4
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Rafknúnir hæginda- stólar • Auðvelda þér að standa upp • Einfaldar stillingar og fjölbreytt úrval 4 FRÉTTIR 26. júlí 2010 MÁNUDAGUR Hús Stefáns Hilmarssonar á Laufásvegi er yfirveðsett. Stefán hefur verið settur í þrot af Arion banka og er ein helsta ástæðan færsla hans á húsinu á Laufásvegi yfir í einkahlutafélag móður sinnar árið 2008. Í fyrra fékk Stefán 120 milljóna lán út á húsið. Stefán vill ekki gefa upp hver lánaði. Hagsmunum helsta veðhafa hússins, Byrs, er líklega best borgið með að láta Stefán halda húsinu og borga af lánunum á því. UM 230 MILLJÓNIR HVÍLA Á HÚSI STEFÁNS Hús Stefáns Hilmarssonar, fjármála- stjóra 365 og fyrrverandi fjármála- stjóra Baugs, er veðsett fyrir tæplega 230 milljóna króna lánum. Fast- eignamat hússins er hins vegar að- eins tæpar 80 milljónir króna. Því má segja að hús Stefáns sé yfirveðsett. Arion banki hefur keyrt Stefán í þrot vegna 160 milljóna króna skuld- ar hans við bankann og hefur Stef- án áfrýjað úrskurðinum. Ein helsta ástæðan fyrir því af hverju Arion banki keyrði Stefán í þrot er að Stef- án færði húsið af sínu nafni í sept- ember 2008 og yfir á einkahlutafélag sem er í eigu eignarhaldsfélagsins Hjálms, sem var í eigu Jóns Ásgeirs- sonar og gaf meðal annars út DV á sínum tíma. Skuldir Stefáns eru til- komnar vegna viðskipta hans í gegn- um einkabankaþjónustu Kaupþings, nú Arion banka. Við blasir að færslan á húsinu yfir í hlutafélagið, sem heitir Vegvís- ir ehf., sé riftanleg ef svo mun fara að gjaldþrotaúrskurður Stefáns verð- ur staðfestur í Hæstarétti. Ekki er til dæmis vitað hvort einhver greiðsla hafi borist fyrir húsið. Lét Stefán fá 120 milljónir Í veðbókarvottorði hússins kem- ur fram að á fyrri hluta árs 2009 hafi Stefán veðsett húsið fyrir samtals 120 milljónir króna, tvö veðskuldabréf að fjárhæð 60 milljónir króna hvort hvíla á húsinu. Ekki er þess getið hver veðhafinn er. Þessar tvær veð- setningar eru hins vegar númer 5 og 6 í veðréttarröðinni og má því ætla að ólíklegt sé að veðhafinn fái eitthvað upp í kröfur sínar verði húsið tekið af Stefáni og selt. Spurningin er hver það er sem hefur lánað Stefáni þess- ar 120 milljónir gegn 5. og 6. veðrétti í húsi sem var yfirveðsett fyrir. Stefán vill aðspurður ekki greina frá því hver það var sem lánaði honum 120 millj- ónir út á 5. og 6. veðrétt í húsinu. Fyrstu fjórir veðréttirnir eru nefnilega hjá sparisjóðnum Byr en Stefán veðsetti húsið upphaflega tvívegis hjá Sparisjóði Hafnarfjarð- ar og nágrennis þegar hann keypti það árið 2006. Samtals nema veð sparisjóðsins tæpum 110 milljónum króna og er því líklegt að sparisjóður- inn eignist húsið ef það verður tekið af Stefáni. Hagsmunir lánardrottna Arion banki, eða Kaupþing, er hins vegar hvergi nefndur á nafn í veð- bókarvottorði Laufásvegar 68. Bank- inn á því ekki veð í húsinu og mun því ekki eignast það ef færslu þess yfir í hlutafélagið verður rift. Byr mun því að öllum líkindum eignast húsið til fulls ef húsið verður tekið af Stefáni. Lán Stefáns, hjá öðrum fjármála- fyrirtækjum en Arion banka, munu hins vegar vera í skilum að fullu og því er spurning hvort það þjóni hags- munum Byrs að eignast húsið þar sem skuldirnar sem hvíla á því eru talsvert hærri en fasteignamat hússins. Hugs- anlegt er að hagsmunum Byrs sé ein- mitt best borgið með því að Stefán haldi áfram að búa í húsinu og greiða af lánum sínum. Á móti kemur að Ar- ion banki hafði enga hagsmuni af því að sleppa því að setja Stefán í þrot út af skuldunum. Með gjaldþrotabeiðn- inni hefur Arion banki hins vegar vilj- að sækja í aðrar eignir Stefáns en hús- ið á Laufásveginum. INGI F. VILHJÁLMSSON fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is Samtals nema veð sparisjóðsins tæpum 110 milljónum. Þrefalt hærri lán Láninsemhvílaá húsiStefánseruumþrisvarsinnum hærrienfasteignamathússins. Báðar fjölskyldurnar í Aratúni hafa nú flúið götuna: Hinfjölskyldanflúin Fjölskylda í Aratúni í Garðabæ sem sökuð hefur verið um að hafa beitt andlegu einelti og síðar líkamlegu of- beldi gegn annarri fjölskyldu, hefur flúið heimili sitt. Samkvæmt heim- ildum DV hefur fjölskyldan fengið fjölda hótana eftir að fjölmiðlar fóru að fjalla um málið í síðustu viku. Eins og DV fjallaði um í helgarblaðinu flúðu Brynja Scheving og fjölskylda hennar til vinafólks þar sem þau óttuðust framhaldið. Erjurnar hafa staðið yfir í fjögur ár, en þær hófust vegna þess að Brynja og fjölskylda ætluðu að reisa bílskúr. Fjölskylda nágrannanna var ekki á eitt sátt með það og í framhaldinu stigmögnuð- ust erjurnar. Þar til sauð upp úr í síð- asta mánuði en þá beittu nágrannar Brynju hana líkamlegu ofbeldi, sam- kvæmt því sem hún segir. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni er verið að vinna að málinu af öllu afli en að sögn hennar hefur einn maður verið að vinna eingöngu við rannsókn þessa máls alla síðustu vikuna. Þá segir lögreglan að flótti Brynju og fjölskyldu hafi ekki komið inn á hennar borð. Báðar fjölskyldur hafa lagt fram kærur um líkamsárás og er það í rannsókn. Lögreglan hef- ur óskað eftir gögnum frá slysadeild en að sögn tekur það að minnsta kosti hálfan mánuð eða þrjár vikur að fá vottorð frá slysadeild. Þá hefur verið rætt við vitni að atburðinum til þess að fá skýrari mynd á atburðarás. Þá segir lögreglan ekki vera ástæðu til þess að leita að vopnum, en eins og fram hefur komið var önnur fjöl- skyldan sökuð um að hafa beitt pip- arúða á tveggja ára barn. Í gær var haldinn samstöðufundur við Aratún 36 en þar vildi fólk sýna þeim sem urðu fyrir ofbeldinu stuðning, sagði Andrés Helgi Valgarðsson í samtali við DV. jonbjarki@dv.is Aratún Núersvo komiðaðbáðar fjölskyldurnarhafa flúiðheimilisitt. Dómarinn fríar lögbrjótinn Hagsmunasamtök heimilanna furða sig á niðurstöðu héraðsdóms síð- astliðinn föstudag um að bæta skuli lögbrjóti upp forsendubrest sem varð til vegna lögbrota hans. „Á lög- reglan næst að fylgja ökumanni, sem var tekinn fyrir of hraðan akstur, á forgangsljósum á ákvörðunarstað vegna þess að forsendur ökumanns- ins til að komast á ákvörðunarstað var að þurfa að aka vel yfir hraða- mörkum?“ segir í tilkynningu frá samtökunum. Þá segir að dómarinn fríi þannig lögbrjótinn frá því að taka ábyrgð. Auðlindir seldar útlendingum Sigmundur Davíð, formaður Fram- sóknarflokksins, óttast að fleiri náttúruauðlindir verði seldar út- lendingum ef samstarfinu við AGS verði haldið áfram. Hann segir að ríkisstjórnin verði að marka sér skýra stefnu í þessu viðkvæma máli. Þá segir hann að kaup Magma á HS Orku séu aðeins byrjunin á því sem koma skal verði samstarfinu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn haldið áfram. AGS hafi selt aðgang að nátt- úruauðlindum upp í skuldir í öllum þeim ríkjum þar sem þeir hafa tekið yfir efnahagsstjórn. Vildu undirskrift Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn krafðist þess að endurskoðunar- fyrirtæki skrifuðu undir uppgjör banka og sparisjóða á Íslandi. Þetta vildi sjóðurinn á með- an óvissa ríkti um stöðu þeirra. Fréttastofa RÚV greindi frá þessu á sunnudag og var þetta haft eftir Gunnari Andersen. Hætt var við þetta þegar ljóst varð hve mikil vinnan yrði sem myndi bætast ofan á útreikninga á gengistryggðum lánum. Í frétt RÚV kom fram að útreikningarnir væru bæði tímafrekir og kostnað- arsamir. Stendur í ströngu Stefánstendur íströnguþessadaganaenhanner einungiseinnaförfáumþekktum auð-ogkaupsýslumönnumsem settirhafaveriðpersónulegaíþrot eftirefnhagshrunið2008.Hinirtveir semhvaðþekktastirerueruþeir BjörgólfurGuðmundssonogMagnús Þorsteinsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.