Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2010, Side 17
MÁNUDAGUR 26. júlí 2010 ERLENT 17
Forsætisráðherra Rússlands, Vladi-
mir Putín, sagði á laugardag að hann
hefði hitt rússnesku njósnarana sem
sendir voru frá Bandaríkjunum eftir
að hafa verið handteknir þar í landi
og ákærðir fyrir njósnir. „Ég hef eng-
ar efasemdir að þau muni lifa áhuga-
verðu og björtu lífi,“ sagði Putín, sem
sjálfur er fyrrverandi njósnari leyni-
þjónustunnar KBG, sem var, í sam-
tali við erlenda fjölmiðla.
Tíu manns játuðu að hafa starf-
að sem njósnarar í Bandaríkjunum
fyrir rússnesk stjórnvöld. Banda-
rísk stjórnvöld skiptu á þeim og fjór-
um einstaklingum sem sátu í rúss-
neskum fangelsum fyrir njósnir fyrir
Bandaríkin í Rússlandi. Njósnara-
skiptin voru þau umfangsmestu síð-
an í kalda stríðinu. Á meðal þeirra
sem Putín talaði við var Anna Chap-
man, 28 ára, sem rak fasteignasölu
sem metin er á tvær milljónir Banda-
ríkjadala. Hún var einnig breskur
ríkisborgari en var svipt bresku rík-
isfangi í kjölfar málsins. Putín sagð-
ist hafa hitt njósnarana, spjallað við
þá og sungið með þeim sovésk lög.
Hann sagðist einnig meta mikils það
sem þau gerðu. „Öll þeirra hafa átt
erfiða ævi,“ sagði Putín. „Fyrst þurfti
að ná tökum á erlendu tungumáli
eins og það væri þeirra eigið. Hugsa
og tala það og gera allt sem þér er
sagt til að vinna að hag móðurlands-
ins í mörg ár án þess að treysta á
diplómatíska friðhelgi,“ bætti hann
við. Hann svaraði engum spurning-
um erlendra fjölmiðla um hvernig
Rússland ætlaði að bregðast við mál-
inu, sem hefur vægast sagt fengið
mikla athygli. adalsteinn@dv.is
Forsætisráðherra Rússlands söng sovésk lög með njósnurunum:
Putín hittir rússnesku njósnarana
Nítján létust
í ástargöngu
Nítján manns létust eftir mik-
inn átroðning í Ástargöngunni (e.
Love Parade) í Duisburg í Þýska-
landi. Hundrað eru slasaðir og þar
af nokkrir lífshættulega. Talið er að
rúmlega milljón manns hafi tekið
þátt í göngunni. Lögreglan reyndi að
takmarka aðgang fólks að hátíðinni
við eina götuna. Skipuleggjendur
hátíðarinnar töldu ekki ráðlagt að
biðja fólk að rýma svæðið, af ótta við
frekari slys. Mikil örvænting greip þó
um sig á meðal fólks og áttu sjúkra-
flutningamenn erfitt með að komast
á vettvang vegna fjöldans. Gangan
er árleg hátíð unnenda raftónlistar í
Evrópu.
Fær leyfi til mari-
júanaræktunar
Ungur maður að nafni Jeff Wil-
cox vill verða frumkvöðull á sviði
ræktunar marijúana í Kaliforníu.
Maðurinn hefur sannfært yfirvöld í
Oakland-borg í Bandaríkjunum um
að gefa sér leyfi til að hefjast handa
við uppbyggingu á sjö ekra svæði
þar sem hann hyggst rækta mari-
júana. Afurðina ætlar hann að selja
þeim sem mega neyta marijúana í
lækningaskyni, en það er víða leyft
í Bandaríkjunum. Wilcox er einnig
spenntur fyrir því að ná forskoti á
aðra ræktendur ef ske kynni að mar-
ijúana verði lögleitt í fylkinu eins og
hugmyndir eru uppi um.
Hóta aðgerðum
Yfirvöld í Norður-Kóreu hafa sagt
að þau muni ekki hika við að fara í
heilagt stríð til að svara sameigin-
legri heræfingu Bandaríkjanna og
Suður-Kóreu sem hófst um helgina.
Norður-Kóreumenn hóta jafnframt
að nota kjarnorkuvopn hvenær sem
þeim kann að þykja slíkt nauðsyn-
legt. Þeir saka Bandaríkin og Suð-
ur-Kóreu um að ögra þeim með
vopnavaldi. Ráðamenn í Washing-
ton sögðust ekki hafa áhuga á að
munnhöggvast frekar við Norður-
Kóreumenn. Kínverjar hafa þegar
mótmælt heræfingunum auk Norð-
ur-Kóreumanna. Þeir segja það
hættuspil að auka spennuna á Kór-
euskaga sem hefur farið stigvaxandi
síðan Norður-Kóreumenn voru sak-
aðir um að sökkva suðurkóreskum
tundurspilli í mars.
Límmiðar sem
hylja nekt
Hægt er að kaupa sérstaka lím-
miða til að líma yfir þá staði á
líkamanum sem þú vilt að sjáist
ekki þegar þú ferð í gegnum ör-
yggishlið á flugvöllum. Límmið-
arnir eiga að hylja þá staði sem
þú vilt þegar gengið er í gegnum
gegnumlýsingartæki, sem lýsir í
gegnum föt, og tekið hefur verið
í notkun við öryggishlið á flug-
völlum víðs vegar um heim. Á
vefsíðunni sem selur límmiðana
segir að þeir muni ekki verja þig
fyrir geisluninni frá tækinu en þú
haldir virðingunni. Efasemdir eru
þó uppi um gagnsemi límmiðana
og segja sumir að þeir séu gagns-
lausir og benda á að myndin sem
starfsmenn við öryggishliðin sjái
sýni ekki nema útlínur líkamans,
og að engin nekt sjáist.
Vladimir Putín Forsætisráðherra Rússlands var ánægður með njósnarana tíu.
MYND REUTERS
Írak, er fæðingartíðni stökkbreyttra
algjörlega stjórnlaus.“ Moret útskýrir:
„Fyrir hvern erfðagalla sem við sjá-
um núna, munum við sjá þúsundir
hjá kynslóðum framtíðarinnar.“ Hún
segir umhverfið í Írak núna vera full-
komlega geislavirkt.
Tíföldun krabbameinstilfella
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO)
rannsakar nú mikinn fjölda fæðing-
argalla í Írak, en læknar þar í landi
hafa bent á að líklega tengist þeir
notkun skotfæra sem innihalda rýrt
úran. Þá segja læknar að þeir eigi
erfitt með að takast á við sífellt fjölg-
andi tilfelli krabbameins, sérstak-
lega á svæðum þar sem Bandaríkin
og Bretland stunduðu sprengjuárás-
ir. Í janúar 2010 sögðu íraskir læknar
að þeir teldu að notkun rýrðs úrans
í skotfærum innrásarherjanna væri
að valda sífjölgandi tilfellum krabba-
meins í landinu, þetta kom fyrst fram
hjá Al Jazeera. Á þremur árum hef-
ur krabbameinstilfellum í héraðinu
Babil fjölgað tífalt, segir í frétt Tehran
Times. Árið 2004 greindust 500 með
krabbamein þar, árið 2008 greindust
7.000 manns með krabbamein. Farið
hefur verið fram á fjölda rannsókna í
málinu.
Á vef geislavarna ríkisins má finna eftirfarandi upplýsingar um rýrt úran:
n Úran er náttúrulegt frumefni og finnst í jarðvegi og bergi. Eins og það finnst
í náttúrunni er það blanda þriggja samsæta: Í kjarnorkuiðnaði er blöndu
samsætanna breytt til þess að fá aukinn hlut úrans-235, sem hentar betur fyrir
flesta kjarnorkuofna (og einnig í kjarnorkuvopn). Er þá talað um að úranið
sé auðgað (enska enriched) því blandan er þá auðugri af úrani-235. Þetta aukna
magn úrans-235 er fengið úr öðrum skammti af úrani, sem verður þá fyrir bragðið
rýrari af úrani-235. Er þá talað um rýrt úran (enska depleted uranium, skammstaf-
að DU).
n Efnafræðileg áhætta
Efnafræðileg áhætta er sú sama frá öllum samsætum úrans, þær hafa allar sömu
efnafræðilega eiginleika. Rýrt úran hefur því nákvæmlega sömu efnafræðilega
eiginleika og náttúrulegt úran. Mikið magn úrans getur haft skaðleg áhrif á lík-
amann eins og aðrir þungmálmar, t.d. getur það haft áhrif á starfsemi nýrna. Tölu-
vert af efninu þarf þó að berast inn í líkamann til þess að slík áhrif komi fram.
n Áhætta vegna geislunar
Áhætta vegna geislunar getur verið tvenns konar. Annars vegar getur verið um
ytri geislun að ræða (frá efni utan líkamans), t.d. ef úranklumpur er settur í vasa
og er þar í langan tíma. Hins vegar getur verið um innri geislun að ræða (frá
efnum sem berast inn í líkamann), t.d. sem rykagnir ofan í lungu.
Rýrt úran sendir minna af geislun frá sér en náttúrulegt úran, enda er búið að
minnka hlut geislavirkari samsæta úrans.
Hvað er rýrt úran?
Krabbamein og stökkbreytingar
Írösk kona lítur eftir veiku barni sínu,
en undanfarin ár hefur tíðni erfðagalla í
ungbörnum aukist jafnt og þétt.
„ÍRAK ER
EITRUÐ
EYÐIMÖRK“
Sprengdir með rýrðu úrani Skriðdrekar
Íraka sem sprengdir voru með sprengjum
með rýrðu úrani við úthverfi Bagdad, í
maí, 2003. Læknar og vísindamenn hafa
áhyggjur af áhrifum rýrðs úrans.
Á verði Hermaður
við vélbyssuna í
Bagdad á meðan
pílagrímar ganga
sína leið í bak-
grunninum.