Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2010, Síða 23
MÁNUDAGUR 26. júlí 2010 ÚTTEKT 23
Ameríski draumurinn
Þeir Auddi, Sveppi, Villi Nagbítur og Gillzenegger heyja undarlega keppni í Banda-
ríkjunum. Þeir skiptast í tvö lið sem leggja af stað hvort frá sínum enda landsins og
fyrra liðið sem kemur í Mall of America í Minneapolis sigrar, en á leiðinni þurfa þeir að
leysa mörg undarleg verkefni. Þættirnir voru teknir upp í sumar og hvílir mikil leynd
yfir efninu, sem ku vera óborganlegt. Þættirnir hefja göngu sína 20. ágúst.
Tími nornarinnar
Spennuþættir sem gerðir eru upp úr spennusögu Árna Þórarinssonar, en það
er enginn annar en Friðrik Þór Friðriksson sem leikstýrir. Þættirnir verða sýndir í
Ríkisjónvarpinu og hefjast tökur í haust. Mögulega verða þeir sýndir eftir áramót, þó
ekkert sé staðfest í þeim efnum. Um er að ræða fjóra, 50 mínútna langa þætti, en ekki
er enn búið að tilkynna hver fer með aðalhlutverkið.
Pressa
Það muna eflaust margir eftir sjónvarpsþáttunum Pressa, sem þeir Sigurjón
Kjartansson og Óskar Jónasson framleiddu. Þættirnir fjölluðu um Láru sem hefur störf
á æsifréttamiðlinum Póstinum og rannsakar dularfullt morðmál. Ekki er ljóst hver
efnistök næstu seríu verða, en ljóst er að íslenska efnahagshrunið eða slíkt, gæti leikið
stórt hlutverk. Í aðalhlutverkum eru Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Kjartan Guðjónsson og
Þorsteinn Bachmann. Hefjast í janúar 2011.
Hæ Gosi
Hæ Gosi, eru nýir gamanþættir í anda Klovn. Þeir Árni Pétur og Kjartan Guðjónssynir
fara með aðalhlutverk í þáttunum, sem fjalla um bræður og samskipti þeirra við hitt
kynið og aldraðan föður sinn. Leikstjóri þáttanna er Arnór Pálmi Arnarson, og er
fyrsta upplag, sex þættir. Af öðrum leikurum má nefna Maríu Ellingsen, Helgu
Brögu Jónsdóttur, Hjálmar Hjálmarsson, Hannes Óla Ágústsson, Þórunni Örnu
Kristjánsdóttur og Þráin Karlsson. Sýningar hefjast í septemberlok á Skjá einum.
Makalaus
Skjár einn samdi á dögunum við
fjölmiðlakonuna og rithöfundinn
Tobbu Marinósdóttur um að
gera sjónvarpsþætti byggða
á bók hennar Makalaus.
Þættirnir munu fjalla um
unga konu í Reykjavík
og baráttu hennar
við aukakílóin og
hitt kynið. Engin
smáatriði liggja
fyrir en framleiðsla
á þáttunum hefst
í haust og verða
þeir svo sýndir
á Skjá einum eftir
áramót.