Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2010, Side 6
6 fréttir 16. ágúst 2010 mánudagur
Gröfumanninum Jóni Hauki Ólafssyni brá heldur betur í brún fyrir helgi er hann fann
lítinn kettling undir vélarhlíf bifreiðar sinnar. Hafði kötturinn leitað skjóls í rigningu
og endaði í heillöngum bíltúr sem lauk inni í Reykjanesbæ. Jón Haukur segir kettling-
in litla hafa verið lafhræddan og auglýsir eftir eigendum hans.
Jón Haukur Ólafsson gröfumað-
ur rúntaði um fyrir helgi með lítinn
kettl ing undir vélarhlíf bifreiðar sinn-
ar. Hann ók um það bil 60 kílómetra
áður en hann uppgötvaði að kisan var
með í för.
Á föstudaginn lagði Jón Haukur
snemma af stað til vinnu en þá var
hellirigning úti. Ók hann frá heimili
sínu í Breiðholtinu sem leið liggur til
Sandgerðis til að sækja vinnufélaga
sinn. Þegar þangað var komið héldu
þeir félagar til Keflavíkur og þegar Jón
Haukur stöðvaði bílinn heyrði hann
einhver hljóð undan vélarhlífinni.
Hann var ansi hissa þegar hann opn-
aði húddið því þar kom lafhræddur
lítill kettlingur í ljós.
Ekki slasaður
„Já, hann var agalega hræddur greyið,
skalf mikið úr hræðslu og mjálmaði
hátt og ámátlega. Ég varð alveg gátt-
aður þegar ég opnaði húddið suður í
Keflavík og það á við um vinnufélag-
ana líka. Mér dauðbrá alveg hreint,“
segir Jón Haukur.
Aðspurður segir Jón Haukur úti-
lokað að kettlingurinn hafi kom-
ist undir húddið einhvern tímann á
leiðinni. Hann segir kisuna óðum að
jafna sig eftir rúntinn. „Hann hefur
örugglega ekki komið upp í á leiðinni
því ég stoppaði hvergi og því hefur
hann fengið ansi langar rúnt úr Breið-
holtinu. Það rigndi svo mikið þegar
ég lagði af stað og kettlingurinn hefur
laumað sér í skjól undir húddinu. Þar
var hann ofan á ventlunum,“ segir Jón
Haukur.
Yfir 60 kílómetrar
„Kettlingnum varð sem betur fer ekk-
ert meint af þessu. Það er nú svolítið
heitt þarna undir húddinu og því var
ég í fyrstu hræddur um að kettlingur-
inn væri slasaður. Það var sem betur
fer ekki, hann var í fínu lagi og hann er
núna heima hjá mér,“ segir Jón Hauk-
ur.
Ef vegalengdin sem gröfumaður-
inn ók fyrir helgi er skoðuð má sjá að
ökuferð kettlingsins undir húddinu var
rúmir 60 kílómetrar. „Þegar ég kom á
staðinn heyrði ég einhver hljóð sem
ekki áttu að vera undir húddinu. Ég
átti sannarlega ekki von á því að finna
þarna kettling,“ segir Jón Haukur.
Auglýsir eftir eiganda
Gröfumaðurinn vonast til þess að eig-
endur kettlingsins þekki hann á mynd
og gefi sig fram. Ef ekki er hann alveg
til í að halda honum. „Mig langar til að
eigandinn gefi sig fram. Kettlingurinn
er ómerktur og því veit ég ekkert um
eigandann. Ég held að greyið sé ekki
nema tveggja mánaða gamalt. Hann
er voðalega fallegur, hvítur á bring-
unni og dökkur á ofan með bröndum.
Það hlýtur einhver að sakna hans en
ég mun vissulega eiga hann ef eng-
inn gefur sig fram. Þá færi ég í að kyn-
greina hann og finna á hann fallegt
nafn.“
trAusti HAfstEinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Átt þú þessa kisu?
JónHaukurauglýsir
eftireigendum
kettlingsinssemfékk
farundirhúddinu.
MyndSigtryggurAri
Ók með kettling
undi úd in
Hlaupa í nafni
Hrafnkels
Facebook-hópur hefur ver-
ið stofnaður þar sem hlaupar-
ar í Reykjavíkurmaraþoninu eru
hvattir til að hlaupa til styrktar
fjölskyldu Hrafnkels Kristjáns-
sonar, íþróttafréttamanns, sem
lést í bílslysi í desember í fyrra. Á
vef hópsins segir að tilgangurinn
sé að leggja drög að stofnun sjóðs
sem styður við bakið á börnum
hans en Hrafnkell skildi eftir sig
tvö börn. Segir einnig að þetta
sé fyrsta skrefið í átt að stofnun
íþrótta- og afrekssjóðs í nafni
Hrafnkels sem gæti veitt stóra
og smáa styrki til barna sem vilja
stunda íþróttir.
kr fótboltabullur
Grímur Atlason var staddur á úr-
slitaleik VISA-bikarsins í knatt-
spyrnu karla um helgina. Í pistli á
bloggsíðu sinni segir Grímur gæslu
á vellinum hafa verið litla og lýsir
nokkrum „heilalausum heimskingj-
um“. Grímur segir að fullir aðdáend-
ur KR-liðsins hafi kastað dósum og
fullum vatnsflöskum inn á völlinn
eftir að leiknum hafi verið lokið.
Grímur leggur til að stuðnings-
mannaklúbbur KR setjist niður með
sínum félögum og fari yfir hvernig
skal hegða sér á fótboltaleik.
Ónákvæm spurning
ragnheiðar
Steingrímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra segir að mál Gylfa Magn-
ússonar er varðar gengistryggingu
lána varpi skugga á góð störf hans
sem efnahags- og viðskiptaráð-
herra. Steingrímur segir einnig að
spurning Ragnheiðar Ríkharðsdótt-
ur, þingkonu Sjálfstæðisflokksins,
hafi verið ónákvæm og því hafi svar
Gylfa við spurningunni einnig verið
ónákvæmt. „Vissulega var hugtaka-
notkun þarna ekki alveg skýr, á báða
bóga, hjá þeim sem spurði og svar-
aði. Gylfi fær þarna á sig nýja spurn-
ingu og fær tvær mínútur til að svara
henni,“ sagði Steingrímur í kvöld-
fréttum Ríkisútvarpsins um helgina.
Leit af ulrike Kimpfler stóð yfir frá því á mánudag:
FannstlátiníHvalfjarðarsveit
Ulrike Kimpfler fannst látin á sunnu-
dag. Lík hennar fannst í svonefndu
Belgsholtsnesi skammt frá Narfa-
staðaósi í Hvalfjarðarsveit. Í tilkynn-
ingu frá lögreglu segir að menn á
báti frá björgunarsveitinni Brák hafi
fundið líkið eftir að lögreglan hafði
ákveðið að stækka leitar svæðið síð-
degis í gær. Staðurinn er um tíu kíló-
metra suðvestur frá Borgarnesi.
Ekkert hafði spurst til Ulrike síð-
an á mánudaginn í síðustu viku. Hún
var búsett ásamt sambýlismanni
sínum við Böðvarsgötu í Borgarnesi.
Hún fór þaðan á mánudagskvöldið
án þess að láta sambýlis mann sinn
vita og skyldi eftir bæði farsímann
sinn og bílinn. Ulrike bjó í Borgar-
nesi í fjögur ár en hún var þýsk að
uppruna.
Leit að henni hófst á miðviku-
daginn en á fimmtudag var send út
tilkynning til fjölmiðla þar sem lýst
var eftir henni. Í tilkynningunni var
fólk í Borgarnesi beðið sérstaklega
um að huga að kjöllurum, geymsl-
um og bakgörðum lóða sinn.
Hundrað og fimmtíu björgunar-
sveitarmenn frá þrettán björgun-
arsveitum leituðu að Ulrike. Ásamt
björgunarsveitarmönnum var þyrla
notuð við leitina sem flaug yfir fjör-
ur á svæðinu þar sem leitin stóð
yfir. Lögreglan vill koma á framfæri
þakklæti til björgunarsveitarmanna
og annarra sem að leitinni komu.
ulrike hvarf á mánudaginn. Leitað
hennihófstámiðvikudaginnoglýst
vareftirhennidaginneftir.
Flugi aflýst vegna
verkfalls
Ferðum Flugfélags Íslands frá
Reykjavíkurflugvelli til Húsavík-
urflugvallar á föstudag var aflýst
vegna verkfallsaðgerða slökkvi-
liðsmanna. „Við hörmum þessar
aðgerðir slökkviliðsmanna og þykir
miður fyrir hönd okkar farþega þau
óþægindi sem þeim fylgja,“ segir
Árni Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Flugfélags Íslands. Slökkviliðs-
menn tóku sér stöðu við útgang flug-
stöðvarinnar á Reykjavíkurflugvelli
á föstudag og meinuðu fólki að fara
út í vél. Um sextíu manns áttu bókað
flug norður á land.