Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2010, Qupperneq 7
Samkvæmt svörum frá Biskupsstofu
við fyrirspurn DV síðastliðinn föstu-
dag kannaðist Karl Sigurbjörnsson
biskup ekki við bréf, sem fyrrver-
andi organisti Bústaðakirkju kom
til kirkjuráðs, þar sem hann lýsir því
þegar hann varð vitni að ósiðlegu at-
hæfi Ólafs Skúlasonar, fyrrverandi
biskups, í myrkraherbergi í kirkjunni.
Organistinn Birgir Ás Guðmundsson
kom bréfinu til kirkjuráðs sem fram-
lagi til umræðu um frásagnir Sigrún-
ar Pálínu Ingvarsdóttur, sem var ein
fjögurra kvenna sem greindi
frá meintu kynferðisofbeldi biskups-
ins fyrrverandi.
„Hann veit ekki hvaða bréf þetta
er. Hann kannast ekkert við þetta,“
sagði Ragnhildur Benediktsdóttir
sem er skrifstofustjóri Biskupsstofu.
Biskup kannaðist hvorki við að hafa
séð bréfið né að það hefði verið tekið
fyrir á þessum fundi kirkjuráðs.
Fjallar um ósiðlegt athæfi Ólafs
Bréfið sendi Birgir Ás til Kjartans
Arnar Sigurbjörnssonar, sjúkrahús-
prests á Landspítalanum, þann 14.
júní 2009 og bað hann Kjartan að
koma því áleiðis til kirkjuráðs. „Ég
kom þessu bréfi áfram,“ segir Kjart-
an Örn. „Ég var beðinn um það og lá
ekki á því.“
Bréfið sem hann afhenti kirkju-
ráði fyrir hönd Birgis Áss var einn-
ig á meðal þeirra gagna sem Sig-
rún Pálína Ingvarsdóttir lagði fyrir
kirkjuráð í fyrra, þegar hún fór fram
á afsökunarbeiðni af hálfu kirkj-
unnar. Það gerði hún þegar hún
fékk áheyrn ráðsins. Biskup sat
þann fund eins og allir aðrir full-
trúar kirkjuráðs. Og þegar hún af-
henti bréfið kynnti hún bréfið
og efni þess sérstaklega. Sig-
rún Pálína segir svör bisk-
ups ekki geta hafa verið
sannleikanum sam-
kvæm.
„Bréfið hefði
ekki getað far-
ið fram hjá
Karli. Það
var í þeim
gögnum
sem ég
afhenti
á fund-
inum
með
kirkju-
ráði
og ég
kynnti það sérstaklega. Hann veit
alveg af þessu bréfi. Hann er bara
ekki að segja rétt frá. Það hefði ekki
getað farið fram hjá honum. Þá
hefur hann ekki tekið það alvarlega
sem ég var að segja. Þá hefur hann
ekki heldur farið í gegnum gögnin
sem ég skildi eftir, því ég skildi eftir
fullt af sönnunargögnum fyrir öllu
sem ég sagði.“
Dóttur biskups ekki svarað
Bréf Birgis er ekki eina bréfið sem
hefur borist Biskupsstofu vegna
ósiðlegs athæfis Ólafs á sínum
tíma. Dóttir Ólafs, Guðrún Ebba,
sendi biskupi líka bréf þar sem hún
hvatti kirkjuna til að gera allt sem
í hennar valdi stæði til að koma í
veg fyrir að þetta gæti gerst aftur,
að kynferðisbrotamenn kæmust
til æðstu metorða. Það væri henni
hjartans mál. Þá óskaði Guðrún
Ebba eftir fundi með kirkjuráði.
Bréf Guðrúnar Ebbu lá ósvarað
á borði biskups í heilt ár, eða þar til
hún ítrekaði ósk sína um fund með
kirkjuráði með öðru bréfi núna í
vor. Þá lét hún ekki nægja að senda
bréfið á biskup sem hafði ekki svar-
að henni heldur sendi hún ítrekun
sína á alla sem sitja í kirkjuráði.
Það gerði hún núna í maí. Í kjöl-
farið var bréf Guðrúnar Ebbu tekið
fyrir á fundi kirkjuráðs í júní og þá
var ákveðið að bjóða henni á fund
ráðsins í haust. Það hefur þó ekki
enn verið gert.
Í viðtali við DV á föstudaginn
benti Thelma Ásdísardóttir á það
að þegar fólk sýndi slíkt hugrekki,
eins og Guðrún Ebba hefði gert,
og opnaði á gömul og sársaukafull
mál væri lágmark að svara slíku
bréfi strax. Séra Kjartan furðar sig
líka á þessari löngu bið eftir svari
biskups: „Ég þekki ekki þetta mál.
En mér finnst það ókurteisi að
svara bréfinu ekki strax.“
Bréfið fannst svo
á Biskupsstofu
Ekki hefur náðst aftur í biskup eða
aðra starfsmenn Biskupsstofu eftir
að DV barst bréfið en DV barst eft-
irfarandi yfirlýsing frá Biskupsstofu
á sunnudag. „Vegna fréttar sem birst
hefur á vefmiðlum í dag skal tekið
fram að umrætt bréf Birgis Áss Guð-
mundssonar var ekki sent kirkjuráði
formlega. Við eftirgrennslan fannst
meðal fylgiskjala sem Sigrún Pál-
ína Ingvarsdóttir afhenti kirkjuráði
í fyrra afrit af tölvubréfi frá honum
sem stílað er á tvo aðila óviðkom-
andi kirkjuráði. Það er mat biskups-
stofu að efni bréfsins sé slíkt að það
falli undir 5.gr.upplýsingalaga sem
fjallar um einkamálefni einstakl-
inga og því sé biskupsstofu óheimilt
að birta það. Ásakanir um að bisk-
upsstofa sé að stinga þessum mál-
um undir stól eiga alls ekki við rök
að styðjast.“
mánudagur 16. ágúst 2010 fréttir 7
Þegar DV óskaði eftir afriti af bréfi Birgis Áss Guðmundssonar
hjá Biskupsstofu á föstudagsmorgun kannaðist biskup ekki við
tilvist þess. Séra Kjartan Örn Sigurbjörnsson staðfestir að hann
hafi komið bréfinu til kirkjuráðs í júní 2009. Sigrún Pálína Ingvars-
dóttir afhenti líka kirkjuráði bréfið auk þess sem hún kynnti efni
þess sérstaklega fyrir ráðinu. Hún segir engan vafa leika á því að
biskup hafi vitað af bréfinu, hann hafi bara ekki sagt rétt frá.
InGIBjÖrG DÖGG KjartanSDÓttIr
blaðamaður skrifar: ingibjorg@dv.is
Frásögn Birgis Áss Guðmundssonar til kirkjuráðs í heild sinni.
nHeillogsæll!Bestaðfrásögnmínséíöllumatriðumsannleikanumsamkvæmt.
Éggerihérmeðskýragreinfyrirþvísemégupplifði.
Égundirritaður,BirgirÁsGuðmundsson,kt.0303393129,varorganistiíBústaða-
kirkjuífjögurár,þ.e.áárunum1972-1977.Ogvarþvínánastisamstarfmaðurséra
ÓlafsSkúlasonar.Þaðháttaðiþannigtilaðpresturhafðiskrifstofu,nokkurskonar
kompuímyrkraherbergiendakirkjanennþáíbyggingu.
Eðlimálsinssamkvæmtáttégofterindiíþettaherbergi.Eittsinnsemoftarkom
égfyrirvaralaustþarinn(tilaðathugameðsálmanúmer)bjóstekkiviðneinum
þarinni.Þegarégkeminnséhvarliggurungogfallegstúlkamillitvítugsog
þrítugsábedda,semþar,varogÓlafurofanáhenni.Þóvarvinstrifóturhans
ofanágólfi.
Stúlkanvarfremurklæðlítilíbrúnleitumstuttumkjól.Háraliturvardökkur,þá
ekkisvartur.Húnvarútgrátin.Ólafurreissnöggtuppviðinnkomumínaogvar
lausgirtur.Égvissiekkihvaðanámigstóðveðrið,enpresturbrásthinnverstivið
ogvandaðmérekkikveðjurnarfyriraðryðjastsvonainn.
Ólafuráttioftmjögerfittmeðaðhemjaskapsitt.Enhanngatmjögfljóttog
áreynslulaustbrugðiðséríauðmjúkanprestogveitthlutaðeigandihugguneins
oggóðurleikari.Égvarðoftvitniaðþví.
Mérhefurallargötursíðarþóttþettamjögundarlegt,svoekkisénúmeirasagt.
Égtaldimértrúumaðhannhefðiveriðaðhuggastúlkunaeftirt.d.dauðsfall.
Mörgumárumsíðar,eðaþegarkvennamálÓlafskomustíhámæli,komhanntil
mínnæstumdaglegaímeðferð.Gerðistégnokkurskonarsálusorgarihans.Hann
varmjögtætturogaugnráðiðógnvekjandiogkannskiekkiundarlegteftirþær
mikluásakanirsemáhannvorubornar.
Égerbundinntrúnaðiumþaðsemokkurfórámilli.Enveitþóýmislegt.Eittget
égþósagthannaðhannvarhaldinnmikillikynferðislegriþráeðalöngunsem
komframíóeðli.
Þettaerskrifaðsamkvæmtbestusamviskuogminni.
BirgirÁsGuðmundsson
Kjartan minn ég óska eftir því að þú komir þessu á framfæri við kirkjuráð.
Þinn vinur Birgir Ás
„Hún var útgrátin“
Þá hefur hann ekki
tekið það alvar-
lega sem ég var
að segja.
BISKUPI YFIRSÁST
BRÉF ORGANISTA
Sigrún Pálína Telurbiskupekkihafa
sagtréttfráumaðhannþekktiekkitil
bréfsorganistans.
Kannaðist ekki við bréfið Karl
Sigurbjörnssonvildiekkikannastviðbréf
organistaítíðÓlafsSkúlasonaríBústaða-
kirkju,þarsemósiðleguathæfiÓlafserlýst.
Ólafur Skúlason DóttirÓlafshefur
leitaðtilkirkjuráðsumaðtryggjaað
kynferðisbrotamennkomistekkiafturtil
æðstumetorðainnankirkjunnar.Biskup
létbréfihennarósvaraðíheiltár.