Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2010, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2010, Qupperneq 9
mánudagur 16. ágúst 2010 fréttir 9 Á síðasta ári voru 14 nauðganir framdar af skemmtistöðum sam- kvæmt Neyðarmóttöku vegna nauðgana. Þar af áttu fjórar sér stað á einum stað, Apótekinu við Aust- urstræti. Eyrún Jónsdóttir deild- arstjóri Neyðarmóttökunnar seg- ir að það sé afar óvenjulegt að svo margar nauðganir tengist einum stað. Oftast sé ein, kannski tvær nauðg anir tengdar hverjum stað fyrir sig og alls ekki hægt að taka einn stað út fram yfir annan hvað varðar hættu á nauðgunum. „Ég vil ekki úthrópa skemmtistaðina. Það eru ekki þeir sem eru hættu- legir, heldur mennirnir sem gera þetta. Aðstaða skemmtistaðanna er bara notuð. Auðvitað er kúnna- hópur staðanna misjafn og breyti- legur eftir tímabilum. En þegar það koma upp svona mörg mál varð- andi sama stað hlýtur eitthvað að vera í ólagi varðandi aðstöðuna. Oftast gerist þetta á salernum og þar sem hægt er að loka að sér af- síðis. Manneskju er kannski bara kippt inn á salernið. Þá gerist þetta líka fyrir utan skemmtistaðina í bænum. Jafnvel þó að nauðgun- in fari fram í návígi við annað fólk virðist það ekki alltaf tilbúið til að blanda sér í málin, telur sér trú um að þetta sé á milli tveggja einstakl- inga og lætur þetta afskiptalaust þrátt fyrir hróp og köll. Hingað koma einstaklingar sem eiga bágt með að trúa því að enginn hafi orðið var við neitt og skilja ekki af hverju þeim var ekki hjálpað.“ Oftast tengt áfengisnotkun Eyrún situr í samstarfshópi Neyð- armóttökunnar, lögreglunn- ar, Reykjavíkurborgar og fulltrúa skemmtistaðanna vegna örygg- ismála á skemmtistöðum. Innan þessa hóps hefur hún miðlað þess- um upplýsingum áfram. Björgvin Björgvinsson hjá kynferðisbrota- deild lögreglunnar segir að það sé ekki alltaf þannig að upplýsingar Neyðarmóttökunnar séu þær sömu og lögreglunnar. Séu málin ekki kærð hafi lögreglan ekki vitneskju um málið. Samkvæmt hans gögn- um er ástandið á Apótekinu ekki verra en annars staðar en dregur upplýsingar Neyðarmóttökunn- ar ekki í efa. „Apótekið er þekkt- ur staður sem margir sækja. Hann er bara einn af mörgum. Ég held að til okkar hafi borist eitt eða tvö mál varðandi Apótekið. En þetta er fjölsóttur staður þar sem ýmislegt getur gerst án þess að nokkur viti af því. Það er líka annað í þessu að það er alltaf undir hverjum og ein- um komið að vera meðvitaður um það að ef þeir drekka mikið, taka lyf eða fíkniefni þá getur ýmislegt gerst. Vandamálið felst meðal ann- ars í því að fólk leitar ekki inn á við og sér ekki að það er að setja sjálft sig í hættu með drykkju og dóp- neyslu. Oftar en ekki eru þessi mál tengd mikilli áfengisnotkun og ekki á ábyrgð neins nema viðkomandi sem er útsettur fyrir því að lenda í einhverjum vandræðum. Það er erfitt hvað það er algengt að fólk bendir alltaf á einhverja aðra og reynir að koma ábyrgðina yfir á þá. Fólk ætti kannski að líta oftar í eig- in barm og bera ábyrgð á sjálfu sér.“ Lögreglan ekki „frelsandi engill“ Björgvin veit ekki til þess að nokk- uð hafi verið aðhafst sérstaklega vegna þessara upplýsinga um Ap- ótekið, umfram þær tillögur sem samstarfshópurinn sendi á alla skemmtistaði sem fólu meðal ann- ars í sér tilmæli um aukna gæslu á skemmtistöðum og þá sérstaklega á salernisaðstöðunni, bætta lýs- ingu og þess háttar. „Það er allt- af eitthvað hægt að gera en það er kannski ekki mikill vilji til þess. Lögreglan er ekki eins og frels- andi engill sem hefur ráð undir rifi hverju. Það eina sem við get- um gert er að sjá til þess að þeim öryggisráðstöfunum sem við leggj- um til sé fylgt eftir. Þú verður eig- inlega að spyrja einhvern hjá borg- inni hvað þurfi til svo að stað sé lokað eða það sé gripið til annarra aðgerða. Þar eru leyfin gefin út. Þú gætir líka spurt lögreglustjóra hvort að það sé nógu skýrt með hvaða hætti hægt er að bregðast við og hvaða reglugerðum er hægt að beita. Kannski er gott að spyrja þá hvort þær heimildir sem við höfum séu ekki nógu skýrar. Hvað þurfi til að stað sé lokað. Þeir eru ekki margir skemmtistaðirnir sem hafa lokað.“ Spurning hvort það sé ástæða til viðbragða Stefán Eiríksson lögreglustjóri neitaði að veita nokkrar upplýsing- ar um Apótekið og það hvort gripið hefði verið til sérstakra ráðstafana þar. „Ég get ekki rætt um ákveðna staði en á almennum nótum get ég sagt þér að lögreglan hefur ýmis ráð til að bregðast við ef hún tel- ur ástæðu til þess. Okkar heimild- ir eru skýrar samkvæmt lögum um veitingahús og skemmtistaði. En til þess að geta nýtt þær heimild- ir verðum við að hafa upplýsingar um málin og þá af því að þau voru kærð. Okkur berast auðvitað ýms- ar upplýsingar varðandi rekstur skemmtistaða og við höfum gert athugsemdir víða. En ég veit ekki hvort óstaðfestar fregnir af fjór- um nauðgunum á einum stað séu ástæða til viðbragða, ég veit það ekki. Það kallar á skoðun af okkar hálfu og er ekkert sem ég get rætt í léttu spjalli við blaðamann.“ Rekstraraðili vissi ekki af þessu Eigandi Apóteksins, Gunnar Traustason, hafði aldrei heyrt af þessum upplýsingum þegar blaða- maður hafði samband við hann. „Það er ekki rétt,“ voru fyrstu við- brögð hans. „Það hefur ekki komið sú helgi síðan staðurinn opnaði að ég hafi ekki verið hér. Það er ekkert sem fer fram hjá mér. Ég þyrfti að vera bæði blindur og heyrnarlaus til að svona mál gæti farið fram hjá mér.“ Hann bætir því þó við að það gæti kannski verið að eitthvað hefði gerst inni á staðnum án þess að hann hefði nokkurn tím- ann heyrt um það. „En ég er að fá þessar fréttir fyrst núna. Ég verð að segja að mér finnst það kjánalegt að ég sem rekstraraðili sé ekki lát- inn vita af þessu. Mér finnst það mjög asnalegt. Það mætti greini- lega vera betra upplýsingaflæði í svona málum. Þessi mál hafa ekki verið kærð því ég hef aldrei heyrt þetta áður. Það hefur enginn ver- ið dæmdur fyrir nauðgun á Apó- tekinu. Lögreglan rannsakaði eitt mál og það var fellt niður þar sem það var ekki talin ástæða til þess að gefa út ákæru. Ég var hér á staðn- um þegar lögreglan kom á svæðið og vissi allt um það. Ef rétt reyn- ist þá er þetta mál sem hægt er að bregðast við. Ég er nú þegar búinn að auka öryggið en eflaust er allt- af hægt að bæta sig. Ég mun skoða það. En við reynum að tryggja ör- yggi gesta og gera allt sem mögu- legt er til að koma í veg fyrir að svona geti gerst.“ Læstu salerninu niðri Gunnar segir að hann hafi til að mynda læst salernisaðstöðu niðri í kjallara og í kjölfar ábendinga í skýrslu um öryggi á skemmtistöð- um hafi eftirlit dyravarða með sal- ernum verið hert. „Skýrslan fjallaði um ýmsar hættur á skemmtistöð- um. Meðal annars þessar. Og það er ýmislegt hægt að gera til þess að fyrirbyggja svona lagað áður en það gerist. Til dæmis með því að fjölga um einn mann í dyravörsl- unni. Það getur breytt heilmiklu. Ég hef gert það. Við breyttum líka rútínu dyravarðanna þannig að þeir fara oftar niður að salernun- um. Áður en við fengum þessar ábendingar var ég reyndar búinn að loka fyrir salerni niðri snemma árs. Af því að það bauð hættunni heim. Það var stórt salerni þar sem aðgengið var auðvelt og hægt var að loka að sér. Við læstum því.“ Þá var þess krafist af lögreglunni að starfsmannaaðstöðu í kjallaran- um sem var einnig hálfgerð nauð- ganagildra yrði lokað. „Núna get- ur fólk hvergi komist inn og læst að sér. Hér er ekkert rými þar sem fólk getur verið óáreitt, þannig séð.“ Verið að endurskoða leyfin Eyrún tekur undir það að það sé einkennilegt að Gunnar viti ekki af þessu. Það sé í raun óskiljanlegt því þessi mál hafi verið til umræðu allt árið. Hún segist þó binda von- ir við að þessi samstarfsvettvang- ur verði til þess að þessi mál verði tekin fastari tökum. „Síðustu tvö ár höfum við fundað öðru hvoru. Það er mikilvægt því lögreglustjóri og Reykjavíkurborg gefa út skemmt- analeyfi þannig að þeir þurfa að hafa þessar upplýsingar. Nú er kominn fastur borgarstarfsmaður í að endurskoða leyfi og skoða til hvaða úrræða er hægt að grípa til að tryggja öryggi fólks. Þetta er eitt- hvað sem þarf að bregðast við. En það er þannig að ef einhver ætlar sér það og hefur einbeittan brota- vilja getur hann brotið á konum hvar sem er, körlum líka. Við höf- um samt ákveðnar væntingar um að þessi úttekt muni leiða til þess að eftirlit verði stöðugt. Ég vona að það verði skemmtistöðum kapps- mál að tryggja öryggi gesta. Gera þeim kleift að sækja rétt sinn, með- al annars með öryggismyndavél- um sem hafa bæði fælingarmátt og gera þolendum mögulega auð- veldara að leita réttar síns.“ Aldrei fleiri nauðganir Fjöldi nauðgunar- og misbeiting- armála, eins og það kallast þegar þolandinn er í of annarlegu ástandi til að geta spyrnt við verknaðinum vegna áfengisneyslu, lyfjanotkun- ar eða eiturlyfjaneyslu, hefur farið vaxandi á milli ára. Árið 2008 hafði lögreglan vitneskju um 37 mál, árið 2009 voru þau 67 og það sem af er þessu ári eru þau orðin 46. Árið 2009 bárust um 130 mál til Neyðarmót- töku vegna nauðgana og það sem af er árs eru málin orðin um sextíu talsins. Eyrún segir að yfirleitt sé það þannig að um helmingur þeirra mála sem til Neyðarmóttökunnar koma séu kærð til lögreglu. Oftast tengsl milli þolanda og geranda Björgvin segir að meirihluti mál- anna varði misbeitingu. „Það er að aukast,“ segir hann: „Það er því miður þannig að það eru alltaf menn sem sjá að konan er svo ölv- uð að þeir geti notfært sér ástand hennar og eru tilbúnir til þess. Það er líka að aukast að viðkomandi sé svo illa staddur að hann veit kannski af því að þetta gerðist fyrr en seinna eða man ekki hvar hann var. Oft er erfitt að finna sönnun- argögn en lögreglan ver að jafnaði tveimur mánuðum í að rannsaka svona mál á meðan það fara yfir- leitt þrír dagar í að rannsaka þjófn- að. Oftar en ekki eru þetta orð gegn orði.“ Fæstar nauðganir fara þó fram á skemmtistöðum. Yfirleitt fara þær fram inni á heimilum fólks eða í bíl. Allajafna er gerandinn ein- hver sem viðkomandinn þekkir, hvort sem það er langtímakunn- ingsskapur eða stuttur. „Það gerir þolandanum líka erfiðara fyrir og oft þarf hann að vega það og meta hvort hann vill kæra eða ekki.“ Nauðgunum hefur farið fjölgandi á síðustu árum. og á síðasta ári bárust lögreglunni upplýsingar um 67 nauðganir en 37 árið þar á undan. Það sem af er þessu ári hafa 46 leitað til lögreglu en um 60 til Neyðarmót- töku vegna nauðgana, en í fyrra leituðu um 130 til hennar. Þá áttu fjórtán nauðganir sér stað á skemmti- stöðum samkvæmt Neyðarmóttökunni og þar af voru fjórar á sama staðnum, Apótekinu. FJÓRUM NAUÐGAÐ Á SAMA STAÐNUM ingibjöRg dögg kjARtAnSdóttiR blaðamaður skrifar: ingibjorg@dv.is Fólk ætti kannski að líta oftar í eigin barm og bera ábyrgð á sjálfu sér. nauðganafaraldur AldreiáðurhafajafnmargarnauðganirveriðkærðartillögregluogtilkynntartilNeyðarmóttöku vegnanauðgana.myNdsigtryggurAri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.