Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2010, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2010, Side 17
mánudagur 16. ágúst 2010 erlent 17 Sænskur ökumaður gæti þurft að borga sem samsvarar 120 millj- ónum íslenskra króna í sekt fyr- ir hraðakstur í Sviss. Maðurinn keyrði á meira en tvöföldum há- markshraða í stórglæsilegri Mer- cedes Benz-bifreið sinni, sem metin er á tæpar þrjátíu milljónir, þegar svissneska umferðarlögregl- an stöðvaði hann. Lögreglumenn segja að maðurinn hafi keyrt svo hratt að það hann hafi þurft langan vegarkafla til að stöðva. Ökumaðurinn var á meiri hraða en nokkur annar ökuþrjótur sem tekinn hefur verið fyrir hraðakst- ur í sögu landsins, ef marka má orð saksóknarans í málinu. Í Sviss eru hraðaksturssektir reiknaðar út með formúlu þar sem tekið er mið af tekjum ökumannsins og hversu al- varlegt brotið var. Fastlega er búist við að mað- urinn verði dæmdur til hörðustu mögulegu refsingar og þurfi að greiða hámarkssekt, en þá þyrfti hann að borga fjögur hundruð þús- und krónur á dag – í 300 daga, en samtals nemur það 120 miljónum. „Við finnum engin gögn um það að nokkur maður hafi verið gripinn við að keyra hraðar en umræddur maður,“ segir talsmaður svissnesku lögreglunnar. Ökumaðurinn mæld- ist á 300 kílómetra hraða á einum kafla ökurferðar sinnar. Hann náði að komast hjá því að vera mældur á nokkrum stöð- um vegna þess að sum radartæki lögregluyfirvalda geta ekki mælt hraða sem er yfir 200 kílómetrum á klukkustund. En Svíinn náðist loks á hraða- myndavél á A-1-hraðbrautinni á milli Bern og Lausanne á föstudag- inn. Hún er af gerð nýrra radartækja sem eru mun öflugri í mælingum sínum, en ökumaðurinn mældist á 300 kílómetra hraða á þeim tíma. Þegar maðurinn reyndi að út- skýra hvers vegna hann hefði keyrt á þessum hraða sagði hann: „Ég held að hraðamælirinn á bílnum, sem er nýr, sé bilaður.“ Lögreglan handtók manninn en sleppti honum í kjölfar yfirheyrslu. Keyrði á 300 kílómetra hraða og þarf að greiða 120 milljónir króna: Hæsta hraðaksturssekt sögunnar Bleikur pardus framseldur til Japan Karlmaður, sem lögregla segir til- heyra þjófagengi sem er kallað „Pink Panther“, eða „Bleiki Pardusinn“, var fluttur frá Spáni til Japans í gær eftir að hafa verið ákærður fyrir rán í skartgripabúð í Japan. Rifat Had- ziahmetovic, fjörtíu og tveggja ára, frá Montenegro, er grunaður um að stela tíara-demanti sem er sagður kosta tvö hundruð milljón yen, eða sem nemur 280 milljónum króna, í verslun í Tokýo árið 2007, að sögn þarlendra yfirvalda. Þjófahringurinn sem hann er sagður tilheyra er tal- inn samanstanda af 200 mönnum, sem eru grunaðir um rúmlega níutíu rán í Evrópu, Mið-Austurlöndunum og í Asíu, síðan árið 1999. Átta áhorfendur létust Að minnsta kosti átta létu lífið og tólf slösuðust í utanvegakapp- akstri í Kaliforníu í gær. Keppandi þar missti stjórn á ökutæki sínu með þeim afleiðingum að bíllinn hafnaði inni í áhorfendaþvögu í Laucerne-dalnum í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Kappaksturinn heitir California 200 en slysið átti sér stað um 160 kílómetra frá Los Angeles. Þeir sem slösuðust voru fluttir með sjúkraflugi á nærliggj- andi sjúkrahús. Tugir þúsunda sækja keppnina og standa áhorf- endur fremur nálægt kappakst- ursbrautinni. Fimm daga neyðar- pilla Lyfjaeftirlitið í Bandaríkjunum hefur gefið grænt ljós á neyðarpillu til að koma í veg fyrir þungun sem virkar allt að fimm dögum eftir kynmök. Ákvörðun lyfjaeftirlitsins hefur verið harðlega gagnrýnd af þeim sem eru á móti fóstureyðingum. New York Times greinir frá þessu. Fimm daga neyðarpillan er ólík þeirri neyðar- pillu sem nú þegar er til staðar á þann hátt að læknir þarf að skrifa upp á lyfseðil fyrir henni. Í umfjöll- un New York Times um pilluna segir að á hverju kvöldi stundi um ein milljón bandarískra kvenna, sem ekki ætla sér að eignast börn, óvarin kynmök. Biblían heimild læknablaðs Læknatímarit hefur dregið til baka grein um kraftaverk Jesú og beðist afsökunar á að hafa birt hana. Grein- in, sem birtist í Virology Journal, dregur tiltekið kraftaverk Jesú ekki í efa heldur veltir upp spurningum um hvað hafi orsakað veikindi konu sem Jesús er sagður hafa læknað. Í tilkynningu frá ritstjóra blaðsins seg- ir að Virology Journal dragi greinina til baka þar sem heimildirnar sem notaðar voru við vinnslu greinar- innar þyki of umdeildar. Einungis atburðir sem lýst er í Biblíunni eru notaðir sem heimildir í greininni. Bandarísk og suðurkóresk stjórnvöld búa herafla sína undir aðra heræfingu á Kóreuskag- anum. Æfingin kemur aðeins nokkrum vikum eftir eina stærstu sameiginlegu heræfingu ríkjanna tveggja. Norðurkóresk stjórnvöld sögðu fyrri æfinguna geta orðið kveikju að nýju Kóreustríði. Önnur æfing er olía á eldinn í deilum Kóreuríkjanna. ÖNNUR HERÆFING Á KÓREUSKAGANUM Bandaríkin og Suður-Kórea munu halda aðra sameiginlega heræfingu innan mánaðar. Fyrri heræfing land- anna, sem haldin var fyrir nokkrum vikum, jók gríðarlega á spennuna sem fyrir er á Kóreuskaganum. Boð- uð heræfing í september mun auka enn á spennuna. Kínversk stjórnvöld, sem eru helstu bandamenn norður- kóreskra stjórnvalda, eru ekki sátt við æfinguna. Í kjölfar síðustu heræfingar land- anna sögðu norðurkóresk stjórnvöld að æfingin væri „hættulegur verkn- aður sem gæti virkað sem kveikja að nýju stríði“. Stjórnvöld í Pyong- yang, höfuðborg Norður-Kóreu, hafa í gegnum tíðina oft svarað ögrunum og árásum suðurkóreska hersins með árásum. Stjórnmálaskýrendur sem fréttastofa Reuters ræddi við segja þó ólíklegt að leiðtogar Norður-Kóreu hætti á nýtt stríð. Vilja ögra Norður-Kóreu Bandarísk yfirvöld hafa þó varað við því að frekari ögrana í garð Norður- Kóreu kunni að gæta næstu mánuði í ljósi þess að stjórnvöld í Pyongyang reyna nú að skapa pólitískan meðbyr í heimalandinu í tilefni af leiðtoga- skiptum sem sögð eru yfirvofandi. Reikna yfirvöld í Bandaríkjunum og Suður-Kóreu með að Kim Jong- il muni stíga til hliðar innan tíðar og yngsti sonur hans taka við. Bandarísk stjórnvöld hafa sagt að með heræfingunum séu send skýr skilaboð til leiðtoga Norður-Kóreu um að árásir norðurkóreska hers- ins verði ekki liðnar og þeim verði að linna. Norðurkóreskir hermenn gerðu árás á suðurkóreska hermenn í síð- ustu viku og er árásin talin orsök þess að æfingin er boðuð svo stuttu eftir að fyrri æfingunni lauk. Búa yfir kjarnavopnum Norðurkóresk stjórnvöld eru sögð búa yfir kjarnorkuvopnum sem þau gætu hugsanlega notað ef nýtt Kóreu- stríð hefðist. Kínversk stjórnvöld, sem leiddu sex ríkja viðræður, sem slitnaði upp úr í fyrra, við Norður-Kóreu um fækkun kjarnavopna, hafa áhyggjur af annari heræfingu. Kínversk stjórnvöld voru helstu bandamenn Norður-Kóreu í Kóreu- stríðinu, auk Sovétríkjanna, en stuðn- ingur þeirra við núverandi stjórn- völd eru þó óljós. Kínverjar leiddu til að mynda fyrrnefndar viðræður um fækkun kjarnavopna Norður-Kóreu auk þess að samþykkja þvinganir ör- yggisráðs Sameinuðu þjóðanna gagn- vart Norður-Kóreu en Kína hefur neit- unarvald í ráðinu. Framtíðin óljós Ef nýtt Kóreustríð brýst út mun það að öllum líkindum marka lok norð- urkóreska ríksins. Ekki er talið að norðurkóresk stjórnvöld hafi burði til að verjast sameiginlegum árásum Bandaríkjanna og Suður-Kóreu án stuðnings stórra ríkja á borð við Kína eða Rússland. Norðurkóresk stjórnvöld hafa hins vegar í gegnum tíðina ekki setið á sér þegar kemur að því að svara árásum eða ögrunum suðurkóreskra stjórn- valda og hafa sagst tilbúin í nýtt stríð. aðalsteiNN KjartaNssoN blaðamaður skrifar: adalsteinn@dv.is Norður-kóresk stjórnvöld segjast tilbúin fyrir nýtt Kóreustríð. Ríkið er sagt búa yfir kjarnavopnum. Nýboðuð heræfing Bandaríkjanna og Suður-Kóreu á Kóreuskaganum í september er eins og olía á eld í deilum Kóreuríkjanna. H&N-myNd KoreaN CeNtral News ageNCy 300 kílómetra hraði Hraðamælar lögreglunnar gátu ekki mælt hraðann á Svíanum, svo mikill var hann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.