Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2010, Síða 20
100 ára afmæli
hljómplötunnar
Hljómplötuklúbburinn Íslensk
tónlist heldur upp á 100 ára afmæli
íslensku hljómplötunnar eftir viku í
Norræna húsinu. Glæsileg dagskrá
verður í boði, en meðal annars kem-
ur hin goðsagnakennda pönkhljóm-
sveit Þeyr fram, en þeir komu fyrst
fram í Norræna húsinu árið 1980.
Íslensk tónlist er hópur hljómplötu-
safnara sem safnar gömlum vínyl-
plötum. Klúbburinn leggur sérstaka
áherslu á íslenskar hljómplötur og
telja meðlimir hans að þeir hafi í
sameiningu náð að byggja upp all-
gott safn íslenskra hljómplatna frá
síðustu öld. Nánar verður greint frá
dagskránni þegar nær dregur.
Kallarinn
í Kilju
Kallarinn eftir franska rithöfund-
inn Fred Vargas, sem er skálda-
nafn skáldkonunnar Frédérique
Audoin-Rouzeau, er væntanleg
á kilju og er það Bjartur sem gef-
ur út. Áður hefur verið gefin út
bókin Varúlfurinn og senn kemur
Þríforkurinn eftir sama höfund.
Fred Vargas er einstakur höfund-
ur. Persónurnar sem hún skapar
eru flottar, framvindan spenn-
andi og Adamsberg lögreglu-
foringi, með sitt djúpa innsæi,
er sérstaklega heillandi. Hún er
metsöluhöfundur um víða ver-
öld. „Það er einhvern veginn allt
annar tónn og taktur í spennu-
sögum franska höfundarins Fred
Vargas en maður á að venjast.
Líklega stafar það aðallega af því
hvað lögregluþjónninn henn-
ar, hinn lágvaxni Jean-Baptiste
Adamsberg, er sérstæður kar-
akter, en persónurnar sem raða
sér í kringum hann eru líka vel
dregnar og óvæntar,“ segir Silja
Aðalsteinsdóttir í Tímariti Máls
og menningar.
artfart í dag
Mánudagur
Anna Asplind - Dancewalks
Hugmyndahús háskólanna kl. 16.00
Árni Kristjánsson - Á gólfinu
Útgerðin kl. 18.00
Sigurður Arent Jónsson - Blóðeik
Norðurpóllinn kl. 19.00
Dansnemar LHÍ - Stuttmyndakvöld
Útgerðin kl. 20.00
AMMA - Vakt
Norðurpóllinn kl. 20.00
Fimbulvetur - Interjections
Norðurpóllinn kl. 20.00
Fimmtudagur
Árni Kristjánsson - Á gólfinu
Útgerðin kl. 18.00
The Shakespeariment - Shakespeare in Pieces
Crymo Gallerí kl. 20.00
Dansnemar LHÍ - Stuttmyndakvöld
Útgerðin kl. 20.00
20 fókus 16. ágúst 2010 mánudagur
djassinn dunar Nóg er af djasstónleikum á landinu
þessa vikuna. Ólafur Stolzenwald og félagar halda tónleika í Deiglunni
á Akureyri fimmtudaginn 19. ágúst. Leitað verður í smiðju Kenny Burrell
og fleiri góðra manna, en lög einnig eftir gítarleikara bandsins verða
einnig á dagskránni. Í samstarfi við Jazzhátíð Reykjavíkur mun Reginfirra
ota sínu fyrsta afkvæmi að almúganum sunnudagskvöldið 15. ágúst
kl. 22.00. Á sunnudaginn munu Tóta Jónsdóttir, Ragnar Örn Emilsson,
Gunnar Hrafnsson, og Erik Qvick spila léttan djass í kósíheitum á hinum
frábæra veitingastað Kryddlegin Hjörtu, Skúlagötu 17 Reykjavík.
hvað heitir lagið?
„It‘s not your situation, I just need
contemplation over you
I‘m not so systematic, it‘s just that I‘m
an addict for your love“
Konur hafa Sex And The City, Despe-
rate Housewives, Kvennahlaupið og
Baðhúsið. Við karlmenn höfum The
Expendables. Ég fór á þessa mynd
með mestu væntingar sem hægt
er að fara með á mynd, hún stóðst
væntingar og rúmlega það. Shaw-
shank Redemption, Inception og
Godfather eru drasl við hliðina á The
Expendables. Ég fullyrði það að þetta
sé besta mynd allra tíma.
Sylvester Gardenzio Stallone, eða
Sly eins og vinir hans kalla hann, er
fæddur 1946. Hann hefur gefið okk-
ur frábærar myndir eins og Rambo,
Rocky, Tango And Cash og Lock Up.
Sly er 6% fita í þessari mynd því hann
veit hvernig þú átt að halda þér „for-
ever young“, rífa í lóðin. Þykki og Sly
kunna þetta.
Þú finnur ekki dýrari hóp af harð-
hausum í einni mynd. Sly, Jason Stat-
ham, Jet Li, Dolph Lundgren, Eric
Roberts, Randy Couture, Stone Cold
Steve Austin, Terry Crews, Mickey
Rourke, Bruce Willis og síðast en ekki
síst Arnold Schwarzenegger. Það þarf
FRÁBÆRAN leikstjóra til þess að láta
þessa fagmenn vinna saman og Sly
er líklega besti leikstjóri í heimi í dag.
Aldrei hef ég séð jafn marga leikara
standa sig svona vel í sömu mynd-
innni. Ég hefði haldið að einhver af
þeim hefði skitið á sig en Sly kann
greinilega að ná því besta úr mönn-
um.
Það þarf líka að gefa Sly það að
hann er sniðugur. Hann er með Asíu-
búann Jet Li í myndinni og þar er Sly
búinn að ganga úr skugga um að allir
Asíubúar í heiminum fari á myndina.
Hann er með blökkumanninn Terry
Crews í henni sem er í miklu uppá-
haldi hjá öllum þeldökkum mönn-
um í heiminum. Það er eitthvað sem
segir mér að buddan hjá Sly eigi eft-
ir að þyngjast töluvert núna á næst-
unni.
Það var mjög gaman að sjá Dolph
Lundgren og Sly hittast aftur, en þeir
börðu hvorn annan í drasl fyrir 25
árum í myndinni Rocky 4. Dolph er
með „kombakk“ í þessari mynd og
það er á hreinu að hann á eftir að fá
fleiri verkefni á næstunni. Eric Ro-
berts sýndi það í þessari mynd að
það er enginn betri í að leika vondan
karl en hann. Jason Statham stimpl-
aði sig inn sem opinberlega besti
hasarleikari í heimi í dag. Statham
er granítharður í þessari mynd, hann
var það harður að ég vildi óska þess
að ég væri sköllóttur. Ég öfunda fé-
laga minn Auðun Blöndal.
Ég er mikill aðdáandi Terry Crews,
hann er helmassaður blökkumaður
og mjög fyndinn eins og hann hefur
verið að sýna undanfarið í auglýsing-
um fyrir Old Spice. Crews var dugleg-
ur að sýna byssurnar sínar í þessari
mynd en þær eru vörumerkið hans.
Atriðið í kirkjunni þar sem Bruce
Willis, Sly Stallone og Schwarzen-
egger hittast allir er eitt besta atriði
sem ég hef séð. Menn stóðu upp
í salnum og klöppuðu í því atriði.
Stemningin var ólýsanleg á mynd-
inni, enda fullur salur af mönnum
sem bekkja yfir 100 kíló. Það má
síðan ekki gleyma Mickey Rour-
ke, hann var einfaldlega of svalur í
þessari mynd.
Það er ekki eitt rómantískt atriði í
myndinni, Sly er bara of harður fyr-
ir einhverja rómantík. Það er eitt at-
riði í myndinni þar sem Sly gat kysst
gullfallega prinsessu, en hann setti
sokk í það, grjótharður. Þegar það
kom hlé í myndinni þá hugsaði ég
hvernig þetta yrði eiginlega eftir hlé,
það var ekki ein róleg sekúnda fyr-
ir hálfleik. Þetta er hasar frá fyrstu
sekúndu og þessar 103 mínútur sem
myndin er líða eins og korter.
Ég hef heyrt einn gæja segja við
mig að honum fyndist Expendables
ekkert sérstök. Sá gaur keyrir líka
um á öfugum vegarhelmingi þannig
að það var ekki marktækt. Fyrir alla
KARLMENN í heiminum þá er þessi
mynd mesta veisla sem hægt er að
fara á. Það er einfaldlega upplifun
að sjá þessa mynd.
The Expendables fær 5 stjörn-
ur af 5 mögulegum og ég tel niður
dagana þangað til að mynd núm-
er 2 kemur en Sly er strax búinn að
gefa það út að það séu góðar líkur á
framhaldi.
Egill Þykki Einarsson
6 prósent fita,
100 prósent gæði
„Stemningin var ólýs-
anleg á myndinni,
enda fullur salur af
mönnum sem bekkja
yfir 100 kíló.“
Egill Þykki Einarsson
skrifar
The expendables
leikstjóri: Sylvester Stallone
aðalhlutverk: Sylvester Stallone, Jason
Statham, Jet Li og Dolph Lundgren.
kvikmyndir
svar: Toto - Georgy Porgy