Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2010, Page 23
MÁNUDAGUR 16. ágúst 2010 ÚTTEKT 23
12 LEIÐIR
TIL AÐ TAKAST Á VIÐ HEGÐUN BARNA
Barnið er að kanna styrk sinn og hljóðin sem myndast eru
líka skemmtileg,“ segir Klein sem segir þessa þörf einnig
til komna til að athuga hvar mörk þín liggja. „Barnið horfir
líklega á þig um leið og það lætur diskinn detta á gólfið.
Það er að athuga hve langt það kemst.“
Ráð:
„Börn hafa löngun og þörf fyrir að kasta hlutum.
Gefðu barninu fötu sem það getur notað til að henda
dótinu sínu ofan í. Gefðu því skýr skilaboð um að
það megi nota boltann til að henda en ekki skál
hundsins. Ef þú segir bara: „ekki henda,“ vekur það
upp pirring hjá barninu, sérstaklega ef það hefur
séð þig henda fötum í óhreina tauið.
Mundu:
Ef þú sérð að barnið er að henda hlutum vegna
reiði segðu: „þú ert reiður, prófaðu að stappa
niður fótunum í stað þess að henda dótinu
þínu.“
Smábörn gera sér smám sam-
an grein fyrir að þau
hafa val.