Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2010, Blaðsíða 6
6 fréttir 25. ágúst 2010 miðvikudagur
Skuldir sem fyrrverandi sveitarstjórn Vesturbyggðar stofnaði til í tengslum við kaup
á stofnfjárbréfum í Sparisjóði Vestfjarða eru að sliga sveitarfélagið. Bæjarstjóri segir
sveitarfélög ekki eiga að standa í hlutabréfaviðskiptum. Sveitarstjórnin hefur farið
yfir málin en óvíst er hvaða leiðir verða farnar til þess að bæta fjárhagsstöðuna.
HLUTABRÉFASKULDIR
SLIGA VESTURBYGGÐ
Vesturbyggð tók lán upp á 151 milljón
krónur fyrir kaupum á stofnfjárbréf-
um í Sparisjóði Vestfjarða fyrir hrun-
ið 2008. Fjármálastjóri sveitarfélags-
ins segir tvö lán hafa verið tekin, 88
milljónir hjá Lánasjóði sveitarfélaga
og 63 milljónir hjá Landsbankanum í
erlendum gjaldeyri, jenum og svissn-
eskum frönkum. Lánið hjá Lánasjóði
sveitarfélaga er á gjalddaga árið 2017.
Fjármálastjóri Vesturbyggðar seg-
ir gjalddaga láns í erlendri mynt hjá
Landsbankanum upphaflega hafa
verið árið 2009 en nú sé unnið að
samningum um lánið. Samkvæmt
heimildum DV er um kúlulán að ræða
og er ein stór greiðsla á gjalddaga á
næstu árum. Fjármálastjórinn getur
ekki staðfest að svo sé. Vegna hruns
íslensku krónunnar eru skuldir vegna
hlutabréfakaupa Vesturbyggðar í
Sparisjóði Vestfjarða farnar að slaga í
300 milljónir.
Hlutabréfabrask ekki
fyrir sveitarfélög
Ásthildur Sturludóttir, nýráðinn bæj-
arstjóri Vesturbyggðar, viðurkennir
að ný sveitarstjórn verði að vinna úr
bágri fjárhagsstöðu sveitarfélagsins.
Samkvæmt ársreikningi 2009 skuld-
aði sveitarfélagið 1.338 milljónir en
eigið fé var 350 milljónir. Ásthildur
staðfestir að ný sveitarstjórn hafi farið
yfir málin, en engin niðurstaða sé enn
komin í það hvaða leiðir verði farnar
til þess að bæta fjármál sveitarfélags-
ins.
„Sveitarfélög eiga ekki að standa í
hlutabréfakaupum, það er mín per-
sónulega skoðun,“ segir Ásthildur.
Hún viðurkennir að staðan sé ekki
góð en segir verkefni bæjarstjórnar
vera að vinna úr þessum málum. Ást-
hildur bendir á að fyrri bæjarstjórn
hafi tekið lánin og því sé ekki við nú-
verandi stjórn að sakast. „Þetta eru
skuldir sem var stofnað til af fyrrver-
andi meirihluta og okkar verkefni er
að laga til.“ Aðspurð um það hvort að
henni hafi verið brugðið þegar hún
áttaði sig á bágri fjárhagsstöðu sveitar-
félagsins segir hún: „Auðvitað bregð-
ur manni að heyra að það hafi verið
keypt hlutabréf fyrir peningana.“ En
bætir því við að skuldstaðan sem slík
hafi ekki komið henni á óvart, hún hafi
haft vitneskju um hana.
Tækifæri í vandræðum
Þórir Sveinsson, fjármálastjóri sveit-
arfélagsins, segir að Vesturbyggð hafi
keypt stofnbréf í Sparisjóði Vestfjarða
þegar Eyrarsparisjóður rann saman
við Sparisjóð Vestfjarða. Sparisjóður
Vestfjarða rann síðar inn í Sparisjóð
Keflavíkur sem nú er gjaldþrota. Þórir
staðfestir að nú sé unnið að samning-
um við Landsbankann vegna láns sem
fengið var í erlendri mynt. Þá staðfest-
ir hann að samkvæmt ársreikningi
2009 hafi sveitarfélagið skuldað 1.338
milljónir á móti 350 milljónum króna í
eigin fé. Ásthildur segir skuldbinding-
arnar vera háar fyrir ekki stærra sveit-
arfélag en bendir á að hlutfallið hjá
Reykjavíkurborg sé öllu verra.
Hún vill ekki tjá sig um hvort nú-
verandi sveitarstjórn álíti að fjárfest-
ing sveitarfélagsins í hlutabréfum hafi
verið eðlileg en ítrekar að hennar per-
sónulega skoðun sé sú að fjárfesting í
hlutabréfum á vegum sveitarfélaga sé
óeðlileg. Aðspurð um það hvort erfitt
sé að taka við svo skuldsettu búi svar-
ar Ásthildur: „Auðvitað er það erfitt en
það eru alltaf tækifæri í öllum vand-
ræðum og ég held að þetta sé vanda-
mál sem við þurfum að leysa og það
verður bara að koma í ljós með hvaða
hætti við gerum það. En ég hef fulla
sannfæringu fyrir því að við leysum
þetta.“
jón bjarki magnússon
blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is
NýstjórnSparisjóðsinsíKeflavíkhefurbentfyrristjórnSparisjóðsinsíKeflavíkáað
skoðavelmálefnifjárfestingarfélagsinsKistuvegnagrunsumaðmeðstarfsemi
félagsinshafiveriðunniðgegnhagsmunumsparisjóðsins,líktogDVbentiá
fyrráárinu.Kistavarfjárfestingarfélagíeigunokkurrasparisjóða,meðalannars
SparisjóðsinsíKeflavík,SPRONogSparisjóðsSvarfdæla,ogvarstofnaðtilað
kaupahlutabréfíeignarhaldsfélaginuExistaárið2007.Existavaraðmestuíeigu
BakkabræðraenKistavareinnstærstihluthafinníþví.
HeimildarmaðurDVútskýrirstarfsemiKistuáeftirfarandihátt:„Kistavar
aðgöngumiðiípartíiðfyrirsparisjóðinaígegnumExista.Lögðvargríðarlegpressa
ásparisjóðinaaðtakaþáttíþessu.Sagtvarviðþá:Þiðeruðekkiaðhugsaum
hagsmunisparisjóðannaefþiðtakiðekkiþáttíþessu.Vissulegahögnuðustmenn
tilaðbyrjameðenmennkunnusérekkihófogstoppuðuekkioggenguoflangt
íþessu.Mennvorukomnirsvolangtútfyrirstofnsamþykktiroggrunnhugmynda-
fræðisparisjóðanna.“
Kistavarþvítækisemsparisjóðirnirílandinunotuðutilaðgræðaféáuppgangi
ExistaogKaupþingsáárunumfyrirhrunsökumþessaðþeirvildueinnigfá
hlutdeildíhagnaðiíslenskabankakerfisins.MeðKistuvorusparisjóðirniríraun
aðtakagríðarlegaáhættumeðþvíaðveðjapeningumstofnfjáreigendaogspari-
sjóðannaááframhaldandiuppgangbankansogstærstahluthafahans.Svonáin
voruþessitengslKistuviðExistaaðKistaerflokkaðmeðExistaogfyrirtækjum
Bakkabræðraþegarrætterumheildarútlántileinstakrafyrirtækjahópaískýrslu
rannsóknarnefndarAlþingis.
HeimildarmaðurinnsegiraðnæstuskrefímálefnumKistumunimiðaaðþvíað
leysafélagiðupp.HannsegiraðKistaeigiummilljarðkrónaíreiðuféíþvísem
hluthafarKistueigikröfuáaðskiptaámillisín.
Þessidæmisýnaaðekkiervanþörfáaðríkisvaldiðlátirannsakastarfsemi
íslenskrasparisjóðaáárunumfyrirhrunenekkivarfjallaðumstarfsemiþeirraí
skýrslurannsóknarnefndarAlþingis.
Almenningur tApAði milljörðum
LánþeirrasemtókumyntkörfulánvegnastofnfjáraukningaríSparisjóðiSvarfdæla
ílokárs2007hafatvöfaldastsamkvæmtfréttumsemDVhefurflutt.Stórhlutilán-
takendannaergamaltfólk.Þegarláninvorutekinnamhvertþeirra3,7milljónum
enhjáþeimsemtókumyntkörfulánstandaþaunúí7,5milljónum.Fyrirhugað
varaðgerasjóðinnaðhlutafélagiþegarstofnfjáraukningináttisérstað.Þvívar
frestaðsumarið2008.
StofnfjáreigenduríSparisjóðiSvarfdælaeru150ogsamkvæmtheimildumDV
tókumeiraen90prósentafþeimlánvegnastofnfjáraukningarinnarognámu
þausamtals500milljónumkróna.Þarafvarstórhlutisemfékkmyntkörfulánhjá
fjárfestingarbankanumSagaCapitaláAkureyri.SamkvæmtheimildumDVerstór
hlutimyntkörfulánannaágjalddagaárið2012ogþvíekkiívanskilum.
BrostnAr forsendur
Sveitarfélög eiga ekki að standa
í hlutabréfakaupum,
það er mín persónulega
skoðun.
skuldsett sveitarfélag Sveitarfélag-
iðVesturbyggðskuldar1.338milljónir
krónaámóti350milljónumkrónaí
eiginfé.Sveitarstjórnintóklánfyrir
hlutabréfakaupumíerlendrimynt.
Yfirheyrðir
í annað sinn
Yfirheyrslur vegna morðsins í Hafn-
arfirði stóðu yfir á mánudaginn og
þriðjudaginn. Sumir sem yfirheyrð-
ir hafa verið síðustu daga hafa ver-
ið yfirheyrðir áður í tengslum við
málið. Nokkrir einstaklingar hafa
réttarstöðu grunaðra í málinu. Frið-
rik Smári Björgvinsson, yfirmað-
ur rannsóknardeildar lögreglunn-
ar, vildi ekki staðfesta að rannsókn
lögreglunnar teygði anga sína að
einhverju leyti til Litháen, eins og
Fréttablaðið greindi frá á þriðjudag.
80 þúsund í Strætó
Um áttatíu þúsund farþegar not-
færðu sér þjónustu strætó á Menn-
ingarnótt að því er fram kemur í
tilkynningu frá Strætó bs. Segir í
tilkynningunni að farið hafi verið í
sérstakt átak til að hvetja almenning
til að taka strætó og var meðal ann-
ars boðið frítt í strætó og var ferðum
fjölgað. Greiðlega gekk að anna eft-
irspurn á mesta álagstímanum sem
var eftir flugeldasýninguna en þá
stefndu tugþúsundir manna úr mið-
borginni.
Skipulagsbreyting-
ar Landsvirkjunar
Haldinn var fundur með starfsfólki
Landsvirkjunar á fimmtudaginn þar
sem skipulagsbreytingar innan fyr-
irtækisins voru kynntar. Skipulags-
breytingarnar felast meðal annars í
því að innlend verkefni Landsvirkj-
unar Power, dótturfélags Landsvirkj-
unar, verða færð aftur inn í Lands-
virkjun. Frá þessu greindi Bjarni
Bjarnason, forstjóri Landsvirkjun-
ar Power, í samtali við DV. Verður
starfsemin færð inn á hið nýstofnaða
þróunarsvið.
Augljóst að ráðherr-
ann var upplýstur
„Augljóst er að ráðherrann gat ekki
annað en verið upplýstur um tvö
lögfræðiálit/minnisblöð er bárust frá
Seðlabanka Íslands í lok maí 2009,“
segir í tilkynningu frá Hagsmuna-
samtökum heimilanna (HH). Segir
einnig í tilkynningunni að hártog-
anir um orðaval í svari ráðherra við
spurningu um lögmæti gengistrygg-
ingar lána á Alþingi séu óþarfar,
ráðherrann hafi vísvitandi reynt
að afvegaleiða Alþingi og þar með
þjóðina.