Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2010, Blaðsíða 7
miðvikudagur 25. ágúst 2010 fréttir 7
Reikningar sem DV hefur undir
höndum frá heimasíðunni Wiki-
leaks sýna fram á hvernig Bjarni
Ármannsson, þáverandi forstjóri
Glitnis, lét bankann borga nánast
allt fyrir sig varðandi veru hans
í íbúð Glitnis í Osló þar til hann
hætti í bankanum í lok apríl 2007.
Reikningar fyrir innanstokksmuni,
heimilistæki, hljómflutningstæki,
matvöru, listaverkatryggingar,
hreingerningar, veitingahúsreikn-
inga og fleira voru sendir til Glitn-
is sem greiddi reikningana fyr-
ir Bjarna sem dvaldi nokkuð oft í
Osló vegna starfs síns fyrir Glitni
í landinu. Samtals er um að ræða
reikninga upp á fleiri milljónir
króna.
Þrátt fyrir að Glitnir hafi átt
íbúðina, samkvæmt því sem tals-
maður Bjarna, Hafliði Helgason,
segir skapaðist nokkur rekistefna
meðal starfsmanna Glitnis sem
sáu um meðhöndla reikningana
frá Bjarna þar sem þeir vissu ekki
almennilega hver ætti að greiða
þá. „Hann notaði íbúðina þeg-
ar hann dvaldi í Osló langtímum
saman vegna vinnu sinnar við
eignasafn bankans þar. Bankinn
hefur alltaf átt þessa íbúð og rekið
hana og þetta kemur Bjarna ekkert
við; Bjarni hefur aldrei átt hana.“
Því hefur verið litið svo á að bank-
inn væri að greiða vinnutengd út-
gjöld Bjarna.
Bjarni borgaði ekki
Í tölvupósti frá starfsmanni Glitn-
is í Noregi, Karin Roiseth, til starfs-
manns Glitnis á Íslandi, Áslaug-
ar Ágústsdóttur, í mars árið 2007
kom fram að ekki væri vitað hver
ætti að standa skil á kostnaðin-
um við íbúðina sem Bjarni hafði
til afnota en hún var við Camillu
Colletsvei 1 í Osló. Karin sagði, í
íslenskri þýðingu: „Meðfylgjandi
eru reikningar sem Glitnir í Noregi
borgaði í tengslum við íbúð í Osló.
Ég veit ekki hvort Glitnir á að borga
þetta eða Bjarni sjálfur. Getur þú
vinsamlegast millifært 22.311,94
norskar krónur til Glitnis í Noregi.“
Rekistefna starfsmanna Glitnis
varðandi greiðsluna á reikningum
Bjarna er ekki óeðlileg í ljósi þess
hvers eðlis þeir voru, meðal ann-
ars vátryggingareikningur frá Sjó-
vá upp á nærri 3 milljónir króna
vegna listaverka sem Bjarni flutti
frá Íslandi með Samskipum og
hafði í íbúðinni í Osló. Þegar Bjarni
lét af störfum hjá Glitni í apríl 2007
gerði hann samkomulag við bank-
ann um að hann fengi að eignast
einhver af þessum listaverkum, líkt
og DV greindi frá í fyrra. Bjarni hef-
ur því keypt einhver af þeim mál-
verkum sem hann lét Glitni tryggja
áður en þau voru flutt til Noregs.
Þessi fríðindi Bjarna bættust
við ríkulegar launa- og bónus-
greiðslur til hans en einungis á ár-
inu 2007 fékk Bjarni 370 milljónir
króna í bónusgreiðslur. Af reikn-
ingunum að dæma er einnig alveg
ljóst að hann hefur nýtt sér þetta til
hins hins ítrasta en þar er að finna
færslur upp á nokkra þúsundkalla
fyrir leikföngum og DVD-myndum
sem bankinn borgaði fyrir Bjarna.
Reyndar þarf þetta ekki að
koma á óvart þar sem ein frægasta
sagan af Bjarna snýst um það að
Pétur Blöndal, þingmaður og einn
af fyrrverandi ráðamönnum Kaup-
þings, hafi komið auga á viðskipta-
hæfileika Bjarna í útskriftarferð
tölvunarfræðinema á Taílandi þar
sem Bjarni prúttaði um nánast allt
frá appelsínusafanum á hótelinu
til glingursins sem var á boðstól-
um á götum úti. Fljótlega var því
ljóst að þar fór aðsjáll maður sem
rýndi í hverja krónu.
Taldi Bjarna eiga íbúðina
Þrátt fyrir að Hafliði segi að Bjarni
hafi aldrei átt íbúðina sem hann
hafði til afnota í Osló benda tölvu-
skeyti sem DV hefur undir höndum
til að starfsmenn Glitnis sem sáu
um að greiða reikninga sem tengd-
ust henni hafi talið að íbúðin væri í
hans eigu. Áðurnefnd Karin leitaði
til dæmis til Áslaugar á Íslandi í ág-
úst 2007 vegna þess að hún taldi að
Glitnir banki á Íslandi hefði greitt
of mikið fyrir íbúðina þegar hún
keypti íbúðina af Bjarna. „Hæ. Ég
vona að þú getir hjálpað mér! Ég
skil það sem svo að Glitnir hf. hafi
keypt ofangreint [íbúðina, innskot
blaðamanns] af Bjarna. Í tengslum
við þessi viðskipti greiddi Glitnir
hf. 2.180 norskum krónum of mik-
ið. Mig vantar reikning og reikn-
ingsnúmer svo ég get millifært
þessa upphæð.“
Þó Bjarni hafi ekki átt íbúðina,
eftir því sem Hafliði segir, var hún
þó í raun sem hans eign og virðist
hann hafa litið á sem slíka. Reikn-
ingarnir sem um ræðir hér eru því
enn ein staðfestingin á þeim ótrú-
legu launa- og fríðindakjörum sem
Bjarni Ármannsson naut með-
an hann stýrði Glitni sem enduðu
með því að hann seldi bankanum
hlutabréf sín í bankanum á yfir-
verði og innleysti milljarða króna í
hagnað. Bjarni var sannarlega einn
þeirra sem græddi á íslenska efna-
hagsundrinu.
Reikningar sem Glitnir fékk frá Bjarna Ármannssyni, fyrrverandi forstjóra Glitnis,
sýna hvernig Glitnir greiddi nánast allt fyrir Bjarna vegna veru hans í Noregi. Tals-
maður Bjarna segir að Bjarni hafi aldrei átt íbúðina sem hann hafði til afnota í Osló og
Glitnir hafi séð um rekstur hennar. Starfsmenn Glitnis vissu hins vegar ekki hver ætti
að greiða rekstrarkostnað íbúðarinnar né hvort Bjarni ætti hana eða ekki.
BORGAÐI NÁNAST
ALLT FYRIR BJARNA
ingi f. vilhjÁlmsson
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Hann notaði íbúðina þegar hann dvaldi í Osló langtímum saman vegna vinnu sinnar
við eignasafn bankans þar.
góð staða Bjarna Reikningar
semDVhefurundirhöndum
sýnaframáhvernigGlitnir
greiddinánastallankostnað
fyrirBjarnaÁrmannssonvegna
veruhansíNoregi.Þessi
fríðindiBjarnabættustvið
milljónagreiðslursemhann
fékkílaunogbónusa.
Óvissustaða Evu
Samningur Evu Joly við embætti
sérstaks saksóknara um ráðgjöf í
málum tengdum efnahagshruninu
rennur út á næsta ári. Ekki hef-
ur verið tekin ákvörðun um hvort
samningurinn við hana verði fram-
lengdur. Joly situr sjálf á Evrópu-
þinginu fyrir evrópska græningja.
Hún íhugar nú hvort hún eigi að
bjóða sig fram í forsetakosningum
í Frakklandi árið 2012 gegn Nicolas
Sarkozy. Þykir það bera vott um að
hún hafi ef til vill annað en ráðgjöf í
hyggju á komandi árum.
Landsmenn drekka
of mikið
Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráð-
herra vill herða bann við áfengisaug-
lýsingum og herða viðurlög vegna
brota þar á. Með þessu vill Álfheiður
sporna við drykkju landsmanna og
draga úr henni. Ráðherrann segir
áfengisneyslu hafa aukist verulega á
landinu síðustu áratugi. Máli sínu til
stuðnings segir Álfheiður að meðal-
neysla Íslendinga hafi árið 2007 ver-
ið 7,5 lítrar af áfengi.
Iceland Airwaves
til Akureyrar
Blásið verður til tónlistarveislu á
Græna hattinum á laugardags-
kvöld í tengslum við Akureyrarvöku
sem þar er haldin um helgina. Þar
munu meðal annars hljómsveitirnar
Bloodgroup, Endless Dark, Sjálf-
sprottin spévísi og Buxnaskjónar
troða upp. Samkvæmt tilkynningu
frá forsvarsmönnum Akureyrarvöku,
er þetta gert með það í huga að efla
tengsl Iceland Airwaves við hljóm-
sveitir og tónleikagesti af lands-
byggðinni.
Tekið fyrir
í september
Gengistrygging bílalána verður tekin
fyrir í Hæstarétti þann 6. septemb-
er. Þar mun líklega fást niðurstaða
í það hvort miða eigi við samnings-
vexti eða lægstu vexti Seðlabanka Ís-
lands þegar endurreikna á lán vegna
dóms Hæstaréttar frá því í júní þar
sem þau voru talin vera ólögmæt.
Samtök lánþega beina því til fólks að
lánþegar fresti afborgunum á slíkum
lánum þar til niðurstaða hefur feng-
ist fyrir Hæstarétti.