Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2010, Blaðsíða 14
Dísilolía
Algengt verð verð á lítra 194,6 kr. verð á lítra 191,6 kr.
Almennt verð verð á lítra 194,3 kr. verð á lítra 191,4 kr.
Algengt verð verð á lítra 196,5 kr. verð á lítra 193,5 kr.
bensín
Almennt verð verð á lítra 194,3 kr. verð á lítra 191,3 kr.
Almennt verð verð á lítra 194,4 kr. verð á lítra 191,4 kr.
Algengt verð verð á lítra 194,6 kr. verð á lítra 191,6 kr.
ÓdýrAri
ferðAlög
Kostnaður við sumarfrí getur auð-
veldlega hlaupið á hundruðum
þúsunda króna, en oft er hægt að
fara í frí fyrir minna. Ferðaskrif-
stofur og flugfélög eru stund-
um með skynditilboð til ýmissa
áfangastaða, sem gilda jafnvel ein-
ungis í sólarhring. Þá er hægt að fá
utanlandsferð ásamt gistingu á 60–
100 þúsund krónur, eftir því hversu
veglegt tilboðið er og hver áfanga-
staðurinn er. Þó er nauðsynlegt að
vera sveigjanlegur með það hvenær
farið er í frí, því tilboðin eru oft ein-
ungis í boði nokkrum dögum fyrir
brottför. Dæmi um tilboð af þessu
tagi eru Sprettur hjá Plúsferðum,
Stökktu hjá Heimsferðum og Heiti
potturinn hjá Iceland Express.
Hyggilegt er að skrá sig annaðhvort
á póstlista eða í Facebook-hóp við-
komandi félags til að frétta alltaf
fljótt af tilboðunum. Ef auglýsingar
fara í taugarnar á þér er hægt að af-
skrá sig þegar sumarfríinu er lokið.
Okur í bíÓ
n Lastið að þessu sinni fá Samb-
íóin fyrir hátt verðlag. Viðskipta-
vinur fór nýlega á þrívíddarmynd í
kvikmyndahúsinu á Álfabakka, og
blöskraði heldur betur verðið sem
miðinn var á. Viðskiptavinurinn
greiddi 1.470 krónur fyrir aðgang
að myndinni og fyrir svokölluð þrí-
víddargleraugum. Þetta var verð-
lag án poppkorns og gosdrykks, en
viðskiptavinurinn þurfti að reiða út
enn hærri fjárhæð vegna
þeirrar háu álagning-
ar sem er almennt í
kvikmyndahúsum.
Viðskiptavininum
þótti þetta ekki boð-
legt verðlag, og ekki til þess
fallið að draga gesti að kvik-
myndahúsinu.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
umhverfisvænn
YggdrAsill
n Lofið að þessu sinni fær Yggdrasill.
Ánægður viðskiptavinur, sem stend-
ur mikið í sultu- og saftgerð, hafði
samband við blaðið. Við slíka vinnu
þarf til dæmis að endurnýta gamlar
krukkur og flöskur, en hluti af því ferli
er að fjarlægja límmiða. Viðskipta-
vinurinn segir það ekki einleikið hve
sterkt lím sé notað til að líma miða á
flöskur. Oft þarf að nota „white spirit“
til þess að fjarlægja þá, en slíkt
telst ekki umhverfisvænt.
Annað gildir hins vegar um
safaflöskur frá Yggdrasil,
en miðinn á þeim dett-
ur af eftir örstutta stund
í bleyti. Því á Yggrdrasill
skilið hól fyrir umhverf-
isvæna vöru.
LOF&LAST
14 neyTendur UmSjóN: Símon örn reyniSSon simon@dv.is 25. ágúst 2010 miðvikudagur
ViLL LengjA bóTAréTT Félags- og tryggingamálaráðu-
neytið sendi frá sér fréttatilkynningu á mánudaginn þar sem fram kom að
félagsmálaráðherra vill lengja rétt til atvinnuleysisbóta. Í tilkynningunni
kom fram að Árni Páll Árnason ráðherra hafi lýst yfir vilja til að leggja fram
frumvarp þess efnis að réttur til fyrrnefndra bóta verði lengdur frá þrem-
ur upp í fimm ár. Þetta verði gert til þess að koma til móts við atvinnu-
lausa, og til þess að fást við kúfinn í atvinnuleysinu á landinu. Í tilkynning-
unni kemur enn fremur fram að nú sé uppi ástand í atvinnumálum sem
áður var nær óþekkt, og því sé brugðist við því með þessum hætti.e
L
d
S
n
e
y
T
i
Þegar kaupa á fartölvu er nauðsynlegt að
huga að því hversu áreiðanlegur framleiðand-
inn er. Samkvæmt nýlegri rannsókn eru Asus
og Toshiba áreiðanlegustu framleiðendurnir,
en Hewlett-Packard og Acer þeir óáreiðanleg-
ustu. Hlutfall bilana í fartölvum er hærra en
í flestum öðrum raftækjum, en samkvæmt
rannsókninni bila um 20% innan þriggja
ára. Til samanburðar bila um 15% stafrænna
myndavéla á sama tímabili og um 7,5% iP-
hone snjallsíma bila innan tveggja ára.
Áreiðanlegustu fartölvurnar
Í rannsókn á vegum þriðja aðila
kom fram að Toshiba og Asus séu
áreiðanlegustu framleiðendurn-
ir, en hlutfall bilana í fartölvum
frá þeim var rúmlega 15 prósent
á þremur árum, sem er 40% lægra
hlutfall en hjá óáreiðanlegasta
framleiðandanum. Hæsta hlutfall-
ið var hjá framleiðendunum Hew-
lett-Packard, Gateway og Acer, á
bilinu 23,3-25,6%. Athygli vekur að
HP er einn umsvifamesti fartölvu-
sali á heimsvísu, en er þrátt fyrir
það með hæsta hlutfall bilana. Enn
fremur kom fram að svokallaðar
„netbækur“, sem eru ódýrar og létt-
ar fartölvur höfðu hæstu bilunar-
hlutfall af mismunandi gerðum far-
tölva. Af þeim bilar ein af hverjum
fimm á þremur árum.
Tilhögun rannsóknarinnar
Fyrirtækið sem gaf út rannsóknina
kallast „SquareTrade Inc“ og sér-
hæfir sig í því að tryggja raftæki.
Um er að ræða þriðja aðila, sem
hefur ekki hagsmuna að gæta hjá
tölvuframleiðendum. Fyrirtækið
tryggir meðal annars farsíma, far-
tölvur og myndavélar. Í þeirri rann-
sókn sem hér er kynnt var könnuð
bilunartíðni 30.000 nýrra fartölva
sem tryggðar voru hjá SquareTrade
frá 2006–2009. Skoðuð var tíðni bil-
ana eftir framleiðendum annars
vegar og fartölvugerð hins vegar.
Gerðir fartölva í rannsókninni voru
þrjár, „netbók“, „venjulegar fartölv-
ur“ og „gæðafartölvur“.
mismunandi gerðir
í fyrsta flokknum er gerð af tölvu
sem er tiltölulega ný af nálinni.
Um er að ræða smáar og nettar
tölvur, sem eru ódýrar og hannað-
ar til þess að auðvelt sé að ferðast
með þær. Stærð skjásins er oftast
frá fimm tommum og upp í tæp-
lega tólf tommur, en getur þó verið
stærri. Í rannsóknininni voru þær
skilgreindar sem ódýrar og léttar
fartölvur, en nákvæm skilgreining
á netbókum er ekki til. Gert var ráð
fyrir að í þessum flokki væru tölv-
ur sem kosta undir 48.000 krónum
í Bandaríkjunum, en gera má ráð
fyrir því að slík tölva kosti 60–70.000
krónur á Íslandi vegna virðisauka-
skatts og sendingarkostnaðar.
Í hinum tveimur flokkunum var
einungis horft á verðlag. Í flokki
venjulegra fartölva eru tölvur sem
eru á verðbilinu 48-120.000 krón-
ur. í flokki gæðafartölva voru síð-
an fartölvur sem kosta 120 þúsund
krónur eða meira. Athuga ber að
líkt og með „netbækurnar“ þarf að
taka mið af því að þessi verð eru án
virðisaukaskatts og sending- ar-
kostnaðar.
Fartölvur bila títt
Í tölfræðinni kemur einnig
fram að fartölvur bila almennt
mjög oft. Þegar kannaðar voru
30.000 fartölvur án tillits til
framleiðanda, kom fram að á
þremur árum bila um 20,4% þeirra.
Á sama tímabili skemmast 10,6%
fartölva vegna hnjasks, og því er
hlutfall bilaðra fartölva um 31% eft-
ir þrjú ár, eða um ein af hverjum
þremur. Þessar tölur eru nokkuð
lægri á tveggja ára tímabili, en þá er
hlultfall bilana 12,7% en slysa 7%.
Minnst er hún á fyrsta árinu, en þá
skaddast 2,5% fartölva vegna
hnjasks og 4,7% bila.
Dýrari fartölv-
ur bila sjaldnar, en
munurinn á hlutfalli
bilana á milli mis-
munandi gerða
fartölva á
fyrsta ár-
inu eftir
As
us
:
To
sh
iba
:
So
ny
:
Ap
ple
:
De
ll:
Le
no
vo
:
Ac
er
:
Ga
te
wa
y: HP
:
15
,6
%
15
,7
%
16
,8
%
17
,4
%
18
,3
%
21
,5
%
23
,3
%
23
,5
%
25
,6
%
Bilanatíðni fartölva á fyrstu
þremur árum notkunar
eftir framleiðendum.
Símon örn reyniSSon
blaðamaður skrifar: simon@dv.is